Morgunblaðið - 29.12.1987, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1987
Guðmundur Hallvarðsson, formaður
Sjómannafélags Reykjavíkur:
*
Islensk kaupskipa-
félög taka þátt í
nútíma þrælahaldi
ALMENNUR félagsfundur Skip-
stjórafélags íslands, Stýrimanna-
félags íslands, Vélsijórafélags
íslands og Sjómannafélags Is-
lands með farmönnum var
haldinn í gær í félagsmiðstöð
Farmanna- og fiskimannasam-
bands íslands. Á fundinum var
rætt um atvinnuöryggi íslenskra
farmanna og komu þar fram
áhyggjur vegna verulegrar fjölg-
unar útlendínga á skipum, sem
annast flutninga á milli íslands
og annarra landa.
Á fundinn mættu auk forystu-
og félagsmanna félaganna fjögurra
Einar Hermannsson, framkvæmda-
stjóri Sambands íslenskra kaup-
skipaútgerða, Ragnhildur Hjalta-
dóttir frá samgönguráðuneytinu og
Atli Freyr Guðmundsson frá við-
skiptaráðuneýtínu.
Einar ræddi um stöðu íslenskrar
skipaútgerðar og þróunina á Norð-
urlöndum í sambandi við notkun
svokallaðra „þægindafána“. Full-
trúar ráðuneytanna svöruðu fyrir-
spurnum fundarmanna um þessi
mál.
Guðmundur Hallvarðsson, form-
aður Sjómannafélags Reykjavíkur
sagði í samtali við Morgunblaðið
að sjómenn væru uggandi vegna
þróunar mála undanfarið. „Á tíu
ára tímabili hefur kaupskipum ís-
lendinga fækkað um 16 á sama
tíma og flutningar til og frá landinu
hafa stóraukist. Um 300 farmenn
hafa misst vinnu sína á þessum tíma
vegna stóraukinnar leigutöku á er-
lendum skipum." Benti Guðmundur
á að á tímabilinu frá febrúar-nóv-
ember á þessu ári hefðu leigutökur
verið óvenjumiklar, eða samtals 81
Morgunblaðið/Bjami
Fundarmenn á fundi um atvinnuöryggi islenskra farmanna í gær.
skip.
Guðmundur sagði að við komu
m/s Hvítaness til landsins 16. des-
ember síðastliðinn hefði fjórum
íslendingum verið sagt upp og fjór-
ir Pólveijar ráðnir í þeirra stað.
„Menn hafa kallað þetta nútíma
þrælahald,“ sagði Guðmundur.
Benti hann á að menn þessir hefðu
um 1.000 dollara (u.þ.b. 36.000
kr.) í mánaðarlaun fyrir 10 stunda
vinnudag, sjö daga vikunnar. „Pól-
verjar þessir voru víst ráðnir í
gegnum ráðningarskrifstofu í Lon-
don, sem er í sambandi við vinnum-
iðlun ríkisins í Póllandi, sem tekur
stóran hluta tekna viðkomandi sjóa-
manna í gjöld og ýmsar greiðslur."
Aðspurður um aðgerðir samtaka
sjómanna sagði Guðmundur að þeg-
ar hefði vérið leitað samstarfs
Verkamannasambands íslands og
Alþýðusambands Íslands og væru
sjómenn um þessar mundir að skoða
leiðir til úrbóta. „Það er enginn
vafi á því að við munum sporna
gegn þessari þróun og munum á
einhvern hátt knýja útgerðarmenn
til þess að manna farskipin íslend-
ingum,“ sagði Guðmundur.
VEÐURHORFUR í DAG, 29.12.87
YFIRUT á hádegi (gmr: Um 500 km suðsuðvestur af Vestmanna-
eyjum er 952 millibara víðáttumíkil lægð sem þokast austnorðaust-
ur, en 1023 millibara hæð yfir norðausturströnd Grænlands.
SPÁ: i dag verður enn allhvöss norðaustanátt meö slyddu og hita
nálægt frostmarki á Vestfjörðum en hægari austlæg eða suðaust-
læg átt ( öðrum landshlutum, vfðast skúrir og 3ja—5 stiga hiti.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG: Nokkuð hvöss aust-
an- og norðaustanátt og éljagangur á Vestfjöröum og á annesjum
norðanlands en hægarí austlæg átt annars staðar. Dálftii rigning
eða slydda á Suðaustur- og Austurlandi en úrkomulftið vestanlands
og I innsveitum norðanlands. Hiti um frostmark norðantil ó landinu
en 2ja—4ra stiga hiti sunnanlands.
TÁKN: x Norðan, 4 vindstig: ^ Vindörin sýnir vind-
Heiðskírt stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig.
Léttskýjaó / / / / / / / Rigning
/ / / * / *
Skýjað / * / * Slydda / * /
J||^ Alskýjað .# # # * # * * Snjókoma * * *
■J 0 Hitastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
*
V a
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—|- Skafrenningur
Þrumuveður
Vf. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hhi VflAur Akureyri 1 snjóél ReykjavAc 8 skúr
Bergen 3 skýjað
Heisinki +8 skýjað
Jan Mayen +17 légþokublettir
Kaupmannah. 8 skýjað
Narssarssuaq 5 skýjað
Nuuk +7 heiðskírt
Oaió 2 skýjað
Stokkhólmur ♦1 léttskýjað
Þórshöfn 7 rignlng
Algarve 18 hólfskýjað
Amsterdam 11 þokumóða
Aþena 14 helðskirt
Barcelona 14 lóttskýjað
Bertfn 11 skýjað
Chicago 1 snjókoma
Foneyjar 2 þoka
Frankfurt 9 skýjað
Glasgow 12 rigning
Hamborg 11 þokumóða
Lat Palmas 21 skýjað
London 13 súld 4 s. klst.
LosAngeles 8 heiðskírl
Lúxemborg 7 þokumóða
Madríd 8 heiðsklrt
Malaga 17 léttskýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Montreal +13 léttskýjað
NewYork 2 alskýjað
París 7 þokumóða
Róm vantar
Vln 13 skýjað
Washington 4 fskorn
Winnipeg +7 þoka
Valencia 13 helðskfrt
Verður sfld söltuð
í janúarmánuði?
Sovétmenn falla frá kröfu um verðlækkun
SOVÉTMENN hafa nú fallið frá kröfu á verðlækkun á saltsíld, sem
áður var af þeirra hálfu skilyrði fyrir staðfestingu á kaupum á
30.000 tunnum af saltsíld til viðbótar áður staðfestum kaupum. Síldar-
útvegsnefnd er nú að kanna hjá sjávarútvegsráðuneytinu möguleika
á aukningu síldarkvótans sem svarar þessu magni, en leyfilegur afli
á vertíðinni hefur þegar verið tekinn. Ennfremur er verið að kanna
áhuga saltenda á frekari söltun. Verði af þessu hefst vertíð að nýju
í janúar. Um 3.500 tonn þarf af síld upp úr sjó f þessar 30.000 tunn-
ur og útflutningsverðmæti þeirra er 110 til 120 milljónir króna.
í fréttabréfi frá Síldarútvegsnefnd Sovétríkjanna. Verði af þessari sölt-
segir að í skeyti frá sovézku stofnun-
inni Sovrybflot, sem barst á að-
fangadag, hafí verið fallið frá
kröfunni um verðlækkun frá samn-
ingum haustsins, en þá var verð í
dölum talið 12% hærra en á vertíð-
inni þar á undan. í haust var samið
um sölu á 200.000 tunnum af saltsíld
tíl Sovétríkjanna og staðfestu Sovét-
menn þegar kaup á 150.000 tunnum.
Staðfesting á hinu hefur dregizt til
þessa, að undanskildu því að sam-
komulag náðist um kaup Sovét-
manna á 20.000 tunnum til viðbótar
til uppfyllingár samningi síðasta árs,
en það magn glataðist er flutninga-
skipið Suðurland fórst á leiðinni til
un til viðbótar nú verður alls saltað
í 200.000 tunnur fyrir Sovétmenn
og söltun á vertíðinni í heild meiri
en nokkru sinni fyrr í sögu söltunar
á Suðurlandssíld.
í fyrirframsamningi Síldarútvegs-
nefndar og Sorvybflot er tekið fram
að ekki megi afgreiða sfld með lægra
fituinnihaldi en 12%.
Samkvæmt fítumælingum, sem
gerðar hafa verið af Rannsókna-
stofnun fiskiðnaðarins undanfarin
ár á sfld veiddri í janúar, hefur fitu-
innihald hennar í þeim mánuði
reynzt vera 12 til 17%. Það er því
yfir lágmarkinu og söltun möguleg
hvað það varðar.
Fjárlög:
Samkomulag náðist um
framlög til Þjóðarbókhlöðu
BIRGIR ísleifur Gunnarsson, menntamálaráðherra, kynnti við loka-
afgreiðslu fjárlaga í sameinuðu þingi í gær samkomulag milli hans
og fjármálaráðherra um fjárframlög til Þjóðarbókhlöðunnar. í sam-
komulaginu felst m.a. að af innheimtum eignarskattsauka fyrir árið
1988 verði 50 mkr. varið til byggingarframkvæmda og allt að 20
mkr. af innheimtum eignarskattsauka ársins 1987 til viðbótar við
framlag á fjárlögum.
Birgir ísleifur sagði það ekki
hafa farið fram hjá neinum að á
milli hans og fjármálaráðherra hefði
verið ágreiningur um framkvæmd
laganna um þjóðarátak til bygging-
ar Þjóðarbókhlöðu, sem samþykkt
hefðu verið á Alþingi vorið 1986,
en þá var samþykkt að leggja á
sérstakan eignarskattsauka sem
standa skyldi undir kostnaði við
byggingarframkvæmdir. Áður en
fjárlög væru afgreidd teldi hann
rétt að greina frá samkomulagi sem
hann og fjármálaráðherra hefðu
gert um þessi mál.
Byggingarnefnd Þjóðarbókhlöðu
hefði gert áætlun um framkvæmdir
ársins 1988 og ijármagnsþörf til
þeitra. Samkvæmt þeirri áætlun
myndi þurfa 110-130 milljónir til
að byggingarhraði gæti talist eðli-
legur. I samkomulaginu fælist í
fyrsta lagi að af innheimtum eign-
arskattsauka ársins 1988 yrði 50
mkr. varið til byggingarfram-
kvæmda eins og gert væri ráð fyrir
í fjárlögum. í öðru lagi að af inn-
heimtum eignarskattsauka ársins
1987 yrði varið til byggingarfram-
kvæmda allt að 20 mkr. til viðbótar
við framlag á fjárlögum. I þriðja
lagi að ráðuneytin tækju upp við-
ræður eftir áramót um framtíðar-
skipan þessara mála áður en
útboðsáfangi 10 kæmi til fram-
kvæmda.
Menntamálaráðherra sagði að
þrátt fyrir þetta samkomulag væri
ágreiningurinn ekki útkljáður en
hann teldi að með því ættu bygging-
arframkvæmdir á næsta ári að geta
gengið með eðlilegum hætti og í
samræmi við áætlanir bygginga-
nefndar.