Morgunblaðið - 29.12.1987, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1987
45
Alls voru brautskráðir 47 nemendur, þar af 28 stúdentar. Á
myndinni eru nemendurnir ásamt skólameistara og aðstoðarskólameistara
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Fjölbrautaskóli Suðurlands:
Lífið er ekki einastaþekkmg
800 manns sóttu nám í Odda á 13. starfsönn skólans — 47 brautskráðir
Selfossi.
47 NEMENDUR voru braut-
skráðir af 13. starfsönn Fjöl-
brautaskóla Suðurlands
laugardag- 19. desember. Á
starfsönninni stunduðu 504
nemendur nám í dagskóla og
159 i öldungadeild og hafa
nemendur aidrei verið fleiri.
1981 voru 242 nemendur í dag-
skóla. Að meðtöldum þátttak-
endum í námskeiðum sem fram
hafa farið í skólanum hafa um
800 nemendur stundað þar nám
á önninni. Skólinn hefur nú
brautskráð 411 nemendur og
eru stúdentar 204.
Meðal þeirra stúdenta sem
brautskráðir voiu var einn sem
stundaði námið að mestu innan
veggja Litla-Hrauns á Eyrar-
bakka og er það í fyrsta sinn hér
á landi sem maður lýkur stúdents-
prófi jafnframt því að afplána
fangelsisdóm. Annar vistmaður
brautskráðist sem vélavörður,
hann stundaði námið í verknáms-
húsi skólans. Á Litla-Hrauni fer
fram kennsla- á vegum skólans
fyrir þá fanga sem áhuga hafa.
Brautskráning nemenda fór
fram við hátíðlega athöfn í Odda,
hinu nýja skólahúsi Fjölbrauta-
skólans, og er það í fyrsta sinn
sem brautskráning fer þar fram.
Skólahúsnæðið tekur jafnt og þétt
á sig rétta mynd innandyra og
verður fullgert á næstu þremur
Ólöf Österby flutti ávarp ný-
stúdenta.
„Þýðingarmest að
styrkja sjálfan sig“
- segir Hilmar Þórir Ólafsson
vistmaður á Litla-Hrauni sem
lokið hefur stúdentsprófi
Selfossi.
VISTMAÐUR á Litla Hrauni,
Hilmar Þorir Ólafsson, útskrif-
aðist á laugardag sem stúdent
frá Fjölbrautaskóla Suður-
lands. Það er í fyrsta sinn sem
maður lýkur stúdentsprófi
jafnframt því að afplána fang-
elsisdóm.
Hilmar útskrifaðist af félags-
fræðibraut og sóttist námið vel,
hlaut tvær viðurkenningar fyrir
námsárangur. Hann stundaði
námið að mestu leyti innan veggja
Litla-Hrauns á Eyrarbakka en þar
fer fram kennsla á vegum Fjöl-
brautaskóla Suðurlands fyrir þá
fanga sem áhuga hafa.
Hilmar stefnir á nám í bygg-
ingaverkfræði við Háskólann.
Hann sagði það hafa mikla þýð-
ingu fyrir sig og aðra sem á eftir
kæmu ef það fengist metið, svo
sem varðandi náðun, að hafa far-
ið í slíkt nám.
árum. Af torgi skólans, marmar-
atorginu, má í sjónhending sjá til
allra skólastofanna og þar hreyfa
leikandi línur byggingarinnar við
skáldlegu ímyndunarafli undir
stærsta glugga landsins.
Kór skólans söng að venju við
athöfnina undir stjóm Jóns Inga
Sigurmundssonar. Örlygur Karls-
son aðstoðarskólameistari flutti
annál annarinnar og gat þess
meðal annars að árangur nem-
enda væri svipaður og áður og
ekki meira um fall þó kröfur væru
Að lokinni athöfninni var gestum boðið til kaffidrykkju á torgi
skólans undir stærsta glugga Iandsins.
hertar. Hann minntist á vel
heppnaða fræsöfnun nemenda og
sagði hana verða fastan lið í skóla-
starfmu á hveiju hausti. Hann gat
þess að nám í hússtjórnarbraut
hefði verið tekið upp í fyrsta inn
og að nú brautskráðist í fyrsta
sinn búfræðingur af landbúnaðar-
braut.
„Maðurinn vex af viðfangsefni
sínu. Við komum hingað hálfgerð
böm og förum héðan fullorðin,"
sagði Olöf Österby sem flutti
ávarp nýstúdenta. Hún fagnaði
hinu nýja og glæsilega húsnæði
og lýsti ánægju með námsdvölina
og sagði tár í kinnum af. eftirsjá.
„Við þökkum af alhug þau tæki-
færi sem við höfum fepgið til að
læra og vaxa,“ sagði Ólöf.
Eftir að Þór Vigfússon skóla-
meistari hafði afhent nemendum
skírteini, verðlaun og viðurkenn-
ingar beindi hann orðum sínum
til nemenda. Hann vísaði til hinn-
ar endalausu þekkingarleitar þár
sem lokaniðurstöðu væri ekki að
fínna heldur skipti máli að halda
leitinni áfram. „Vonandi endist
leit ykkar allt lífið. Ég vona að
þið farið ekki mett héðan heldur
hungruð og þyrst í þessum skiln-
ingi,“ sagði Þór. „Lífíð er ekki
einasta þekking og þekkingin er
ekki einhlít til þess að ráða bug
á vanþekkingu og misskilningi.
Lífið mun ekki síður reyna á þol-
gæði ykkar og seiglu, sjálfsafneit-
un, réttlætiskennd og gott
hjartalag. Án þess verður þekk-
ingin aldrei meira en hvellandi
málmur. Ég vona að þessir eigin-
leikar endist ykkur og þroskist,
ekki síður en þekkingin, þegar út
í stóra samfélagið kemur, þar sem
á morgun verður kallað á ykkur
til að leysa þau vandamál sem
okkur hefur ekki enn tekist að
ráða við,“ sagði Þór er hann
kvaddi nemenduma og óskaði
þeim velfarnaðar.
— Sig. Jóns.
„Það er nauðsynlegt að finna
sér eitthvað að gera, það er mann-
skemmandi að gera ekki neitt,“
sagði Hilmar. „Eg hafði áhuga á
að taka stúdentspróf og kýldi
bara á það. Það voru allir mjög
skilningsríkir og sýndu gott við-
mót þegar þetta kom upp. Þetta
gefur mér tækifæri til að hafa
eitthvað að stefna að og það má
segja að það séu komnar á mig
rætur þegar ég fer út.
Ég er ánægður með áfangann
og þakka öllum í skólanum og
öðmm sem hlut hafa átt að máli,
fyrir að gera mér þetta kleift. Ég
hvet menn til að íhuga þennan
möguleika í námi. Það þýðingar-
mesta sem maður getur gert er
að styrkja sjálfan sig og námið
forðar manni frá tilgangsleysinu
í fangavistinni.
Sig. Jóns.
Jákvætt að veita f öng-
um möguleika til náms
- segir Þór Vigfússon skólameistari á Selfossi
Selfossi.
FRÁ því 1979 hefur kennsla af
einhverju tagi farið fram á
Litla-Hrauni. Eftir að Fjöl-
brautaskóli .Suðurlands var
stofnaður hafa framhalds-
skólakennarar annast kennsl-
una.
Nú er á Litla-Hrauni ein
kennslustofa og kennarar fara
þangað og kenna. Þar er fylgt
sömu námsskrá og í Fjölbrauta-
skólanum og sömu próf lögð fyrir.
Ingi S. Ingason kennari hefur
umsjón með kennslunni og sagði
hann að reynt væri að fá- menn
til að taka próf áður en þeir færu
út.
Þór Vigfússon skólameistari
var spurður um viðhorf skólans
til starfseminnar á Litla-Hrauni
en vistmaður þaðan var útskrifað-
ur stúdent fra Fjölbrautaskólan-
um á laugardag og annar sem
vélavörður.
„Fangelsisvist verður ekki til
betrunar, það sýna athuganir,
nema til komi nám. Það er tiltölu-
lega nýtt að kennt sé á Litla-
Hrauni og einstaka sinnum hafa
menn komið hingað uppeftir eftir
mat yfirvalda. Það er misjöfn
reynsla af því en hefur þó gefíst
vel í sumum tilvikum. Við vitum
lítið hvort þessi kennsla hefur
haft betrunaráhrif á þá sem kom-
ið hafa.
Þéssi útskrift héma núna gefur
vissar vonir. Það virðist ákaflega
jákvætt að veita föngum mögu-
leika til náms en það er mjög
vandmeðfarið að taka þá inn í
skólann enda er svo litið á af yfir-
völdum," sagði Þór Vigfússon
skólameistari.
Sig. Jóns.