Morgunblaðið - 29.12.1987, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1987
61
Endurskinsmerki
ekki fáanleg
Guðfinna Hannesdóttir -
hringdi:
„Allir eru hvattir til að nota
endurskinsmerki. Vissulega er
þörf á að framfylgja því þegar
skyggnið er slæmt eins og verið
hefur undanfarið. Þau eiga að
vera til sölu í bensínsölum, mat-
vörubúðum og lyfjabúðum.
Nýlega gekk ég á röðina hér í
Hveragerði í áðurgreindar búðir
til að kaupa endurskinsmerki. Þau
voru hvergi til, utan límborðar í
lyfjabúð. Einn afgreiðslumaður
svaraði mér nokkuð mynduglega:
Við höfum aldrei selt slíkt hérna.“
Gullúr
Kvengullúr tapaðist föstudag-
inn 10. desember í eða fyrir utan
Broadway á sýningu Jassballet
dansflokksins. Gæti einnig hafa
tapast á Víðimel sama kvöld.
Finnandi vinsamlegast hafi sam-
band í síma 18031. Fundarlaun.
Gullkross
Gullkross með keðju tapaðist
við Iðufell eða þar í grennd.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma S.77104. Fund-
arlaun.
Sjal
Svart munstrað sjal tapaðist
fyrir nokkru á Skólavörðustíg.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 43248.
Svört læöa
Tæplega fullvaxin svört læða,
með hvítar hosur, háls og maga,
er í óskilum. Eigandi hennar er
beðinn að hringja í síma 33461.
Álit 133 lækna:
Hvar er fótfestan?
Til Velvakanda.
133 læknar senda Alþingi bréf
og segjast ekki telja ástæðu „til að
ætla að fslenska þjóðin muni missa
fótfestuna í áfengismálum þótt
leyfð verði sala bjórs í áfengisútsöl-
um.“
Hver er sú fótfesta sem þeir tala .
um? Finnst þeim þjóðin hafa örugga
fótfestu og fulla stjóm á neyslu
áfengis? Finnst þeim engin ástæða
til viðnáms gegn vímuefnaneyslu?
Eru þeir ánægðir með ástandið eins
og það er? Hver er fótfestan?
Þeir kunna tölur Sem benda til
þess að skorpulifur hafi verið á
undanhaldi á íslandi enda þótt
áfengisneysla færi vaxandi.
Skorpulifur er næstum óþekktur
sjúkdómur hér á landi svo að þess-
ar tölur em ekki marktækar. Ef til
dæmis 3 menn í landinu hafa
skorpulifur og einn deyr hefur tíðni
þessa sjúkdóms skyndilega lækkað
um 33 prósentustig.
Til hvers em læknarnir að tala
um þetta? Vill ekki einhver þeirra
vera svo vænn að segja mér og
öðmm fáfróðum hvort þeir haldi
að ekkert samband sé á milli áfeng-
isneyslu og lifrarskemmda? Það er
það sem máli skiptir. Hreint svar
við því.
í öðm lagi mætti spýija hvort
þessir 133 læknar séu vissir um það
að tölur um drykkjusjúka á íslandi
og í Bandaríkjunum séu sambæri-
legar þannig að Ömggt sé að þar
verði réttur samanburður um hlut-
fóll?
Það er athyglisvert að þessir 133
nefna engin ákveðin rök með bjór-
sölunni, en segja bara að ekki sé
sannað að hún muni auka heildar-
drykkjuna á íslandi. Þeir varast að
nefna hveijar séu þær „einu hlið-
stæður erlendis" sem þeir telja að
bendi til þess að heildameyslan
muni lítið breytast.
En höldum okkur við aðalatriði
málsins.
Telja þeir' 133 að ekkert samband
sé milli áfengisneyslu og iifrar-
skemmda?
Og hver er sú fótfesta í áfengis-
málum sem þeir tala um?
H.Kr.
Skrif ið eða hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til —
eða hringja milli kl. 10 og 12,
mánudaga til föstudaga, ef þeir
koma þvi ekki við að skrifa. Með-
al efnis, sem vel er þegið, eru
ábcndingar og orðaskiptingar,
fyrirspurnir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en
nöfn, nafnnúmer og heimilisföng
verða að fylgja öllu efni til þáttar-
ins, þó að höfundur óski nafn-
leyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina því til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti
sinn hlut ekki eftir liggja hér í
dálkunum.
Bundið slitlag á alla vegi
Ágæti Velvakandi.
Ég hitti starfsmann vegagerðar-
innar í sumar og við vomm hjartan-
lega sammála. Nýta bærí
takmarkað framkvæmdafé til að
koma bundnu slitlagi á vegi lands-
ins. Ósa og fjarðarbrýr væm því
ekki tímabærar og göng í gegnum
fjöll eða undir Atlantsála ekki held-
ur. Sérstaklega bæri að fresta
framkvæmdum sem væm bæði dýr-
ar og í þágu fárra. Fólk er streitu-
hlaðið nú til dags. Akstur á góðum
vegi í náttúmfögm landi, upp með
á eða fyrir fjörð, getur verið af-
slappandi og ánægjuríkur. Ekki er
það verra ef viðtækið í bílnum býð-
ur upp á góða tónlist á meðan.
Sjaldan verða óhöpp í íslenskri
hálku eða snjó sé sjálfsagðrar vark-
ámi gætt og bifreið búin til vetrar-
aksturs.
Hægt er að vinna skapandi störf
á meðan menn bíða af sér verstu
illviðri sem sjaldan em mörg dæg-
ur. Flug er aldrei hversdagslegt ef
menn einbeita sér að njóta þess.
Útsýni úr flugvél getur verið alveg
undurfagurt. Og smá sjóferð með
skipi eins og Heijólfi eða Akraborg-
inni með bílinn í farteskinu er
stundum draumur í bókstaflegri
merkingu. Því engin er hættan að
lenda í skurði eða út í móa, þó
dottað sé á meðan á ferðinni stend-
ur. Bjarni Valdimarsson
Hárgreiðslustofan, rakarastofan
ogsnyrtistofan
Hótel Sögu
tilkynna:
Frá 1. janúar ’88 til 8. febrúar ’88 verða stof-
ur okkar lokaðar vegna gagngerðra breytinga.
Við biðjumst velvirðingar á þessari röskun og
vonumst til að sjá þig hjá okkur í glæsilegu
húsnæði á nýju ári.
Opnum 8. febrúar ’88.
Hárgreiðslustofan
Úótel Sögu
Rakarastofan
Hótel Sögu.
Snyrtistofan
Hótel Sögu
Símar 35408 og 83033
V
VESTURBÆR
AUSTURBÆR
Lindargata 39-63 o.fl.
Skipholt 1-38
Skipholt 40-50
Stigahlíð 37-97
Fornaströnd
Bauganes
Nýlendugata
Einarsnes
MIÐBÆR
Látraströnd
Grettisgata 37-63 o.fl.
Hverfisgata 4-62
Barónsstígur 4-33 o.fl.
Laugavegur 32-80 o.fl.
KOPAVOGUR
Nýbýlavegur 5-36
Laufabrekka o.fl.