Morgunblaðið - 29.12.1987, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1987
9
INGUNN H. STURLAUGSDOTTIR
hcettir sem heimilislœknir 1. janúar 1988.
Samlagsmenn eru beÖnir aÖ gera svo vel
aÖ snúa sér til viökomandi sjúkrasamlags
og velja sér nýjan heimilislœkni.
Félag
hormonikuunnenda
verður með jólatrésskemmtun í Templarahöll-
inni 3. janúar og hefst hún kl. 15.00.
Miðasala við innganginn.
Upplýsingar í síma 38093.
Allir velkomnir.
Skemmtinefndin.
_Til viÓskiptamanna_
banka og sparisjóða
Lokun
4. janúar
og eindagi
víxEa
Vegna áramótavinnu veröa
afgreiðslur banka og sparisjóöa
lokaðar mánudaginn
4. janúar 1988.
Leiðbeiningar um eindaga víxla
um áramót
liggjaframmi í afgreiðslum.
Reykjavík, 14. desember 1987
Samvinnunefnd bankaog sparisjóóa
(SffoiuKSdoííloiaaBiaBlbaiií
OG MIKIÐ HÚLLUMHÆ Á NÝÁRSNÓTT
Jólasveinar (hurðasleikir og kjötskelliri
taka á móti gestum og skreyta þá
með höttum, knöllum og ýmis konar
líkamshlutum.
KARMA heldur öllu á suðumarki
frameftir nóttu með söng og hljóðfæraslætti,
einnig taka gestir lagið.
HÚSIÐ OPNAÐ KL. 00.30.
hóPe/
SELFOSS
Eyravegi 2, sími 2500
Refskákin
mikla
Á nýlegum fundi með
Reagan I Washington lét
Gorbatsjov i það skína,
að hann myndi kalla sov-
éska heraflann heim frá
Afganistan, ef Banda-
rOtjamenn hœttu stuðn-
ingi við frelsissveitir
Afgana. I þessari yfirlýs-
ingu felst raunar hefð-
bundin sovésk umtumun
á staðreyndum. Látið er
að því liggja, að Sovét-
menn séu að beijast i
Afganistan vegna áreitni
að undirlagi Bandaríkja-
manna. Þetta er fráleit
söguskoðun.
Freedom House í
Bandarikjum hefur ný-
lega sent frá sér bókina
Afghanistan The Great
Game Revisited undir rit-
stjóm Rosanne Klass,
sem oftar en einu sinni
hefur komið hingað til
lands og rætt um ill örlög
Afgana. I bók þessari
sem er 520 bls. að stærð
gera margir höfundar,
sem em þaulkunnugir
málefnum Afganistans,
grein fyrir sögu lands og
þjóðar og stríði Sovét-
manna þar. Bókin hefst
á þessum orðum ritstjór-
ans:
„Vinátta Afganistans
skiptdr engu fyrir Rúss-
land nema hún geri
Rússum kleift að fara um
landið til Indlands, sem
jafngildir þvi að setja
Afganistan undir hæl
Rússlands."
Þannig komst Abdur
Rahman, emír af Afgan-
istan, að orði fyrir nærri
einni öld, i sjálfsævisögu
sinni, sem var gefin út í
London árið 1900. Hann
vissi um hvað hann var
að tala: hann hafði dval-
ist mörg ár i útlegð i
Rússlandi sem sérstakur
gestur Rússakeisara. Á
þessum árum hafði hann
oftar en einu sinni kynnst
leyndum hugsunum hátt-
settra embættismanna,
sem vonuðu að hann
myndi leggja þeim lið við
að ná Afganistan inn á
yfirráðasvæði Rússlands.
Kipling kallaði þetta
„The Great Game“ (ref-
skákina miklu) og átti
með þvi við sókn Rússa
í átt að Indlandshafi og
Stríð í átta ár
Um jólin voru átta ár liðin frá því að sovéski
herinn réðst inn í Afganistan. Talið er að síðan
27. desember 1979, þegar hernaðurinn hófst,
hafi 15.000 sovéskir hermenn fallið í landinu
og fleiri en 25.000 særst alvarlega. Hundruð
þúsunda Afgana hafa fallið og fjórar til fimm
milljónir flúið til nágrannaríkjanna, Pakistans
og írans. Sovétmenn hafa nú um 115.000
manna herlið í landinu, sem hefur tæplega
20% landsins á sínu valdi. Sumir telja, að
taka eigi mark á yfirlýsingum Gorbatsjovs um
að sovéski heraflinn verði kallaður heim, jafn-
vel innan árs. Aðrir telja á hinn bóginn, að
Sovétmenn ætli sér alls ekki að hverfa frá
Afganistan. Rætt er um þessi mál í Stakstein-
um í dag.
eftir yfirráðum á ind-
verska meginlandinu,
sem hófst að minnsta
kosti árið 1791, þegar
Katrín mikla lét semja
áætlanir um innrás og
Bretar snerust gegn
þeim.
„Á tólf árum mínum í
Rússlandi," ritaði emír-
inn: „Komst ég að raun
um það, að Rússar eru
alltaf með ráðabrugg
gegn Indlandi... Þeir
eru staðráðnir i að ráðast
gegn Indlandi fyrr en
síðar, þegar þeir sjá hent-
ugt tækifærí til þess ...
Þess vegna þurfa þeir að
fara um land mitt, en
einnig að taka Afganist-
an, ef þeir geta.““
Langþráður
draumur
í hinni nýju og ítarlegu
bók frá Freedom House
um Afganistan skrifar
Yossef Bodansky um
stríðsrekstur Sovét-
manna í Afganistan.
Hann segir, að Sovét-
menn hafi ekki faríð í
neinar grafgötur um
það, að þeir myndu mæta
harðrí andstöðu i Afgan-
istan. Það hafi tekið þá
rúm tuttugu ár að ná
tökum á múhameðstrú-
armönnum i sovésku
Mið-Asíu, en þeim hafi
tekist það. Nú beiti þeir
sömu aðferðum gegn
Afgönum, að umkríngja
og einangra svæði, þar
sem frelsissveitir hafa
búið um sig og bijóta
alla andstöðu á bak aftur
skref fyrir skref. f Afg-
anistan sé það hemaðar-
legt kappsmál
Sovétmanna að hafa þar
herafla er býr yfír sókn-
armætti, halda Kabúl,
höfuðborginni, og hindra
að frelsissveitir með að-
setur í Pakistan eflist og
styrkist.
Segir Bodansky að
Sovétmenn skilgreini nú-
verandi stöðu í Afganist-
an á þann veg, að
andspyrausveitiraar lúti
engrí miðstjóra og raun-
ar sé aðeins spuraing um
það, hvenær þær brotni
saman sem virkur and-
stæðingur. Þeir te(ji, að
skæruheraaður verði
stundaður áfram, en frá
sögulegum sjónarhóli séu
örlög afgönsku and-
spyraunnar þegar ráðin,
hún sé dauðadæmd. Sov-
étmenn viðurkenni, að
þeir ráði ekki yfir öllu
landinu, aðeins 25% af
því, andspymuhreyfing-
in ráði yfir 10% og 65%
berí að líta á sem einskis
manns land. Þeir hafí
ekki lagt sig fram um að
ná þessu landi. Hernað-
arstefna þeirra miði ekki
að þvi að ráða yfir öllu
landinu eða ibúum þess
heldur ná þeim stöðum,
sem skipta máli í hemað-
arlegu tilliti og sjá að
minnsta kosti um að þeir
nýtist ekki óvininum.
Bodansky telur, að
sovéska herstjórnin sé
ánægð með stöðu mála í
Afganistan og þá bættu
almennu hernaðarlegu
aðstöðu, sem stríðið þar
hafí fært Sovétríkjunum,
hún geri meira en bæta
upp stríðsskaðann og
mannsiífin. Ekkert bendi
til annars en Sovétmenn
ætli sér að vera áfram í
Afganistan. Þeir hafí
þegar fellt landið inn i
sovéska herstjórnarkerf-
ið. Hernaðarlegi ávinn-
ingurinn sé margvisleg-
ur, ekki sist sá að
Sovétmenn séu nú rúm-
lega 300 km nær Persa-
flóa og oliulindunum þar
en áður. Þá hafí stríðið
f Afganistan leitt til
víðtækustu breytinga á
sovéska heraflanum
síðan kjarnorkuvopn
komu til sögunnar.
1 stuttu máli er Bodan-
sky sömu skoðunar og
emírínn af Afganistan
árið 1900, að fyrir Rúss-
um vaki að leggja undir
sig Afganistan hvað sem
það kosti. Og í ljósi orða
emírsins er íhugunarvert
að velta fyrir sér sam-
skiptum Indveija og
Sovétmanna og sovésk-
um ítökum á Indlandi.
Nýlega sáu Indveijar til
að mynda ástæðu til að
sæma Míkhaíl Gorbatsjov
friðarorðu!
FYRIR ÞÁ SEM VILJA
ÁVAXTA PENINGA Á ÖRUGGAN
OG ÁHYGGJULAUSAN HÁTT...
SjÓÐSBRÉF VIB
BERANÚ11,5 - 11,9% ÁVÖXTUN
UMFRAM VERÐBÓLGU.
Sjóðsbréf 1 eru fyrir þá sem eru að safna og
ætla að nota peningana ásamt vöxtum og
verðbótum einhvern tíma síðar. Munur á
kaupgengi og sölugengi er aðeins 1%.
Sjóðsbréf 2 eru fyrir þá sem þurfa að lifa af
vöxtunum en þeir eru greiddir út í mars, júní,
september og desember á ári hverju.
Ávöxtun Sjóðsbréfa 1 og 2 er nú 11,5 -11,9%
umfram verðbólgu sem jafngildir um 39-40%
ársvöxtum.
Sjóður 1 og 2 fjárfesta aðeins í bankabréfum
og skuldabréfum traustra fyrirtækja. Kaupend-
ur Sjóðsbréfa taka því lágmarksáhættu.
Síminn að Ármtila 7 er 68-15-30. Heiðdís.
Ingibjörg, Sigurður B. eða Vilborg eru jaínan
reiðubúin að veita allar nánari upplýsingar.
VIB
verðbréfamarkaður
IÐNAÐARBANKANS HF.