Morgunblaðið - 29.12.1987, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1987
15
Fiskeldisstöðin Smári hf.:
Lax sendur með flugi beint
á Bandaríkjamarkað
ÞorlákshÖfn.
FISKELDISSTÖÐIN Smári hf. í
Þorlákshöfn slátraöi um 400 kíló-
um af laxi í nýju og glæsilegu
sláturhúsi sem þeir hafa reist.
Allur þessi lax verður sendur
með flugi beint á markað í
Bandaríkjunum.
Þorvaldur Garðarsson fram-
kvæmdastjóri Smára sagði að þetta
væri hálfgerð tilraunaslátrun, til að
athuga hvernig nýja sláturhúsið
reyndist og eins til að þreifa sig
áfram með markaðinn í Banda-
ríkjunum.
„Húsið hefur reynst frábærlega
vel, er rúmgott, bjart og hreinlegt,
einnig hafa öll tæki rejmst mjög
vel en tölvuvogir og annar búnaður
er frá Marel," sagði Þorvaldur.
„Við seljum allan okkar lax sjálflr
og fer hann beint til veitingahúsa
og hótela í Bandaríkjunum. Fyrir
laxinn fæst mjög gott verð núna
eða um 450 krónur.
Það er mikilvægt að öll okkar
vara verði í hæsta gæðaflokki og
fái á sig gott orð því það gæti
tryggt ókkur hæsta verð. Sá lax
sem fer út núna er 4-6 pund að
þyngd en einn og einn fer upp í 8
pund en þetta er heppilegasta
stærðin til slátrunar," sagði Þor-
valdur. „
Ársframleiðsla
400 tonn
„Hjá okkur á stöðinni eru nú um
50 tonn tilbúin til slátrunar sem
ráðgert er að vera búið að slátra
fyrir vorið," sagði Þorvaldur. „Þeg-
ar stöðin er fullbúin er reiknað með
að ársframleiðslan verði um 400
tonn af laxi. Auk þess er seiðafram-
leiðsla í fullum gangi og tilraunir
með bleikju og urriða. Vonir standa
til að eftir áramót verði hægt að
senda fisk út tvisvar í viku. Það
er mikill kostur að geta slátrað
svona jafnt og þétt, jafnvel er hægt
að hugsa sér að ef kaupanda vant-
ar skyndilega aukið magn getur
hann hringt og fengið þá pöntun
afgreidda í Bandaríkjunum strax
daginn eftir."
Lax í svipuðum
gæðaf lokki og
náttúrulegur lax
Þegar litið er ofan í kerin vékur
það athygli að mikill straumur og
hringiða er í þeim. Þorvaldur sagði
að þetta væri til að líkja eftir nátt-.
úrulegu umhverfi. Laxinn yrði að
hafa fyrir því að synda upp í
strauminn, þannig er minni hætta
á að hann offitni. Þetta ásamt fóðr-
inu sem kemur frá ístess á Akureyri
gerir það að verkum að þessi eldis-
lax gefur laxi sem vex við náttúru-
legar aðstæður lítið eftir, sagði
Þorvaldur.
Heitur sjór í
túnfætinum
Grundvallaratriði fyrir góðri fisk-
eldisstöð er mikið af góðu vatni,
heitu og köldu ásamt hreinum og
tærum sjó. Að sögn Þorvaldar eru
aðstæður hér í Þorlákshöfn örugg-
lega þær bestu sem hægt er að
hugsa sér, að vísu eru boranir
kostnaðarsamar, en þegar árangur-
inn er góður er það vel þess virði.
„Þær holur sem búið er að bora
hér á berginu hafa allar skilað ár-
angri. Það er ekki lítill kostur að
hafa heitt og kalt vatn og heitan
og kaldan sjó innan lóðamarkanna,
og allt saman mjög hreint og tært
eftir að hafa síast í gegnum jarðlög-
in,“ sagði Þorvaldur að lokum.
- JHS
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Þorvaldur Garðarson stöðvarstjóri með einn átta punda á tölvuvog-
inni.
Unnið við að verka laxinn og gera tilbúið til útflutnings. Hér er hreinlæti og vandvirkni í fyrirrúmi.
Ennþá einu sinni nýr og byltingarkenndur HONDA CIVIC með breytingum,
sem gera HOIMDA CIVIC tvímælalaust fremstan í flokki minni bíla.
Allar gerðir koma nú með vél úr léttmálmi og 16-VENTLA, ýmist með
einum eða tveimur kambásum, sem þýðir meiri orka og minni eyðsla.
Ný frábær fjöðrun, sem á sór enga hliðstæðu í sambærlegum bílum og
óvenju mikil lengd á milli hjóla gefur bílnum mjög góða aksturseiginleika
og aukín þægindi í akstri.
Með þessu hefur HONDA sannað enn einu sinni, að þeir framleiða „litla
bílinn“ með þægindi og rými stóru drekanna en aðalsmerki HONDA í
fyrirrúmi:
SPARNEYTNI, GÆÐI OG ENDINGU.
HONDA AISLANDI Vatnagörðum 24 s. 689900.
NY HONDA CIYIC KYNSLOÐ