Morgunblaðið - 29.12.1987, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1987
17
Víkingur FUS:
Guðjón Andrí
Kárason kos-
inn formaður
Sauðárkróki.
AÐALFUNDUR Víkings, félags
ungra Sjálfstæðismanna á Sauð-
árkróki og í Skagafirði var
haldinn 17. desember siðastliðinn
i Sæborg á Sauðárkróki. Starf
félagsins hefur verið í lágmarki
frá síðustu kosningum, en ný
stjórn sem kosin var hyggur á
öflugt starf í vetur.
Stefnt er að stórauknum sam-
skiptum FUS-félaganna í kjördæm-
inu. Fyrstu reglulegi fundur
nýkjörinnar stjómar verður þegar
eftir áramót og verða þar lagðar
línur um starf framundan.
Stjóm FUS Víkings skipa:
Guðjón Andri Kárason formaður,
en aðrir í stjóm eru Ari Jóhann
Sigurðsson, Vigfús Vigfússon,
Bjöm Jóhann Bjömsson og Ragnar
Ólafsson.
- BB
Orfeus í
undirheimum
Styrktarfélag íslensku óperunn-
ar sýnir gamanóperuna Orfeus í
undirheimum eftir franska tón-
skáldið Jacques Offenbach á
kvikmyndatjaldinu í Gamla bíói I
kvöld, þriðjudaginn 29. desember.
Sýningin hefst kl. 8. Áður hafa
verið sýndar fimm óperukvikmynd-
ir í þessum sýningaflokki: Hollend-
ingurinn fljúgandi og
Tannh&user eftir Wagner, Fidelio
eftir Beethoven, Töfraskyttan eft-
ir Weber og Wozzeck eftir Alban
Berg.
Gaman og alvara
Nú kveður við nýjan tón. Orfeus
í undirheimum er ein vinsælasta
gamanópera allra tíma, leiftrandi
fyndin og íjörug frá upphafi til
enda.
Höfundurinnn, Jacques Offen-
bach, fæddist í Köln 1819 og dó í
París 1880. Hann hafði óskað þess
alla tíð að fá að njóta viðurkenning-
ar sem alvarlegt óperutónskáld.
Honum varð ekki að þeirri ósk í
lifanda lífi. Hann dó fullur örvænt-
ingar með handritið að Ævintýr-
um Hoffmanns í höndunum.
Hoffmann var frumsýndur í París
§órum mánuðum eftir andlát Off-
enbachs og hefur notið mikillar
hylli óperugesta um allan heim all-
ar götur sfðan. Hoffmann var
sýndur hér í Þjóðleikhúsinu fyrir
mörgum árum.
Offenbach hóf tónlistarferil sinn
sem hljóðfæraleikari og hljómsveit-
arstjóri, en reyndi síðan að ná
fótfestu sem gamanóperutónskáld.
Það gekk ekki vel. Söngleikahúsin
í París voru ófús að sýna óperur
hans. Offenbach brást við þessu
mótlæti með því að stofna eigið
leikhús og sýna verkin þar. Frægð
hans og hylli jukust smám saman
innan Frakklands og utan. Hann
sló í gegn með Orfeusi, sem var
frumsýndur í París 1858. Textann
sömdu Hector Cremieux og
Ludovic Halévy. Síðan rak hver
gamanóperan aðra. Stíll Offen-
bachs hafði veruleg áhrif á önnur
tónskáld, svo sem Englendinginn
Sullivan, höfund Míkadósins og
margra annarra vinsælla verka, og
einnig á Vínarsnillinginn sjálfan,
Jóhann Strauss, höfund Leður-
blökunnar og Sígaunabarónsins.
Gamanóperur Offenbachs eru
um 100 talsins. Margar þeirra hafa
notið mikillar hylli frá upphafí,
ekki síst Orfeus og Helena fagra.
Helena fagra var sýnd í Þjóðleik-
húsinu fyrir nokkrum árum, en
Orfeus hefur ekki enn verið settur
á svið hér á landi. Tónlistin í báðum
þessum óperum (og næstum öllum
hinum líka) er léttúðug og Ijóðræn
á víxl. Á okkar dögum eru mörg
þessara verka þekkt fyrst og
fremst af leikandi léttum forleikj-
um og einstökum söngatriðum.
Kan-kan-dansinn í Orfeusi þekkja
næstum allir. Þetta er eitt allra
fjörugasta gamanóperuatriði í ger-
völlum tónbókmenntunum.
Saga úr undirheimum
Orfeusi var illa tekið á frumsýn-
ingu. Hneykslun gagmýnenda yfir
því, að Offenbach skyldi voga sér
að gera grín að goðsögninni um
Orfeus og Evridísi og samnefndri
óperu Glucks, vakti þó áhuga.
Þetta varð til þess, að verkið sló í
gegn skömmu síðar. Þegar Orfeus
var tekinn upp aftur 15 árum síðar,
náði hann aftur miklum vinsæld-
um. Leikhúsgestir í París þóttust
sjá, að Offenbach væri að gera
grín að samtfmafólki og fyrirbær-
um í Frakklandi. Léttúðin í verkinu
Jacques
Offenbach
átti vel við Frakka. Parísarbúar
sungu kan-kan-dansinn og annað
úr Orfeusi af mikilli lyst á götum
borgarinnar.
Þegar sagan hefst er Evridís,
eiginkona fiðlusnillingsins Orfeus-
ar, orðin langþreytt á sífelldum
fiðluleik bónda síns og leitar hugg-
unar hjá undirheimaguðinum
Plútó, sem klæðist jarðnesku dular-
gervi og kallast þá Aristeus. Hún
segir Orfeusi frá lostafullu fram-
ferði sfnu og fer svo með Plútó í
undirheima. Orfeus er himinlifandi,
enda hefur hann ekki undan að
kenna imgum stúlkum á fiðlu og
ýmislegt fleira, en almenningsálitið
knýr hann til að sýna ábyrgð og
reyna að bjarga konu sinni frá glöt-
un. Með hjálp Júpíters, konungs
guðanna, fer hann í undirheima
með guðdómlegu föruneyti. Júpiter
á Júnó, feita gyðju, sem er sambýl-
is- og siðferðismálaráðherra í
undirheimum. Júpíter gimist
Evridísi, breytir sér í flugu til að
komast að henni inn um skráargat
og stígur í vænginn við hana. Guð-
imir lýsa aðdáun sinni á Evrídísi í
eldflömgum kan-kan og dansa
menúett á milli.
Júpíter mælir svo fyrir, að Orf-
eus megi ná Evridísi aftur úr
undirheimum, en hann muni tapa
henni, ef hann líti við til að at-
huga, hvort hún fylgir á eftir
honum. Júpíter verður vonsvikinn,
þegar Orfeus tekur tilboðinu eins
og fyrirmynd hans í goðsögunni,
og sendir eldglæringar á eftir hon-
um. Orfeus hrekkur við og lítur
glaðbeittur til baka. Evridfs snýr
við. Hún er honum glötuð að eilífu,
guði sé lof. Aðdáendur hennar í
undirheimum fagna henni ákaft í
villtum dansi. Orfeus er ekki síður
sæll. Tjaldið fellur.
Kvikmyndin
Kvikmyndin, sem verður sýnd í
Gamla bíói í kvöld kl. 8, er komin
frá ríkisóperanni f Hamborg.
Fílharmóníuhljómsveit Hamborgar
leikur undir stjóm Marels Jan-
owski. Einsöngvarar, kór og list-
dansflokkur Hamborgaróperannar
koma fram. Sýningin tekur um 2
klukkustundir með hléum. Allir
styrktarfélagar íslensku óperannar
og gestir þeirra era velkomnir.
Aðgangur er ókeypis. Gleðilega
hátíð.
Texti: Þorvaldur Gylfason
PHiUPS
Tvær sjónvarpsstöövar eru barnaleikur
fyrir Philips HQ-VR 6542 myndbandstækið -
tæki sem svarar kröfum nútímans.
• Þráðlaus fjarstýring
• Sjálvirkur stöðva leitari
• i6stöðva<orval
• Upptökuminni í 14daga
fyrir 4 skráningar
• Skyndiupptaka óháð
upptökuminni
• Myndleitari i báðar áttir
• Frysting á ramma
• Og ótal fleiri möguleikar
sem aðeins Philips kann tökin á
• Verðið kemur þér á óvart.
Opiðídag:
Sœtúni8kl. 10-13
Kringlunni kl. 10-16
Heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI 3 - KRINGLUNNI - SÆTUN. 8 - S.M. 69 15 00