Morgunblaðið - 29.12.1987, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1987
Nýr bæklingur um endatöfl
og lausnir jólaskákþrauta
Hvítur leikur og heldur jafn-
tefli. .
1. Kd4 - dG 2. Kc3! (A!ls ekki
2. Kd5? Kc7 og svartur vinnur)
2. - d5 3. Kd4 - b4 4. Kxd5 -
b3 5. Kc6 - Kb8 6. Kb6 b2 7.
a7-i— Ka8 8. Ka6 — bl=D. Patt!
Skák
Margeir Pétursson
IBM-tölvufyrirtækið hefur
gefið út kennslubækling um
endatöfl fyrir unga skákáhuga-
menn í samvinnu við Taflfélag
Reykjavíkur og Skáksamband
íslands. í bæklingnum eru 12
dæmi, lausnir á þeim og nokkur
heiiræði til lesenda, m.a. frá
Jóhanni Hjartarsyni, stórmeist-
ara. Veg og vanda af þessari
útgáfu hafa skákmeistararnir
Davíð Ólafsson, Jón Þorvalds-
son og Ólafur H. Ólafsson haft.
Sem kunnugt er hélt IBM stór-
mót hér í Reykjavík í febrúarmán-
uði síðastliðnum, og var það eitt
af allra sterkustu skákmótum árs-
ins í heiminum. Nú ætlar fyrir-
tælcið að leggja unglingastarfi'
skákhreyfingarinnar lið. í formála
að bæklingnum segir Gunnar M.
Hansson, forstjóri IBM m.a.:
„Við setningu IBM-ofurskák-
mótsins í febrúar 1987 tilkynnti
ég ætlun okkar hjá IBM, að bjóða
æsku landsins til veglegs skák-
móts í mars 1988, þar sem keppt
yrði í nokkrum styrkleikaflokkum
16 ára og yngri.
Til þess að væntanlegir þátt-
takendur geti undirbúið sig sem
bezt ákváðum við að gefa út þijá
bæklinga, þennan um endatöfl og
síðan koma í byijun næsta árs
bæklingar um leikfléttur og áætl-
un í skák.
Skákin er hollt tómstundagam-
an. Sú rökhugsun, sem hún krefst,
kemur sér einnig vel í námi sem
og annars staðar í lífinu. Við höf-
um því talið sjálfsagt að stuðla
að framgangi hennar meðal ungu
kynslóðarinnar.“
Um efni þessa fyrsta IBM-
skákbæklings er það að segja að
dæmin hafa verið vel valin. Þau
eru einföld og skemmtileg og fela
í sér lærdóm sem allir skákmenn
verða að þekkja. Þegar horft er
á öfluga meistara tefla hraðskák
sýnist helst sem þeir séu með
þekkingu á þessum undirstöðu-
reglum í fingrunum, svo fljótir eru
þeir að leika. Slíkt kemur ekki
SkákþrautiriMM
jh> fyrirböm og
unglinga
Endatöfl
fyrr en eftir áralanga þjálfun og
það er því mikilvægt að tileinka
sér þessar reglur og heilræði sem
allra fyrst.
Ég hafði sérstaklega gaman af
einu dæminu, því ég veit af eigin
reynslu að jafnvel reyndir skák-
menn þekkja það ekki. Ég var á
móti erlendis fyrir nokkrum árum
ásamt nokkrum ungum íslenskum
skákmönnum. Þegar skákirnar
fóru í bið kom einn þeirra til mín
og sýndi mér sigri hrósandi sína
stöðu, sem var mjög áþekk dæm-
inu í bæklingnum, sem er svona:
-„Vertu nú ekki of viss,“ sagði
ég og það tók mig ekki nema
mínútu að sannfæra hann um að
staðan er dautt jafntefli. Það fór
þó betur en á horfðist. Andstæð-
ingur hans hafði heldur ekki lesið
kennslubækumar og hafði ekki
einu sinni fyrir því að mæta til
leiks þegar tefla átti áfram.
Með þessu dæmi fylgir reglan:
„Mislitir biskupar auka líkurnar á
jafntefli."
IBM á þakkir skildar fyrir þetta
framlag sitt, það á vel við nú
þegar skáktölvur eru komnar á
mörg heimili. Þótt slík tæki og
forrit séu enn ekki nægilega öflug
til að veita meisturum verðuga
keppni em einnig að verða mikil
tölvubylting í heimi stórmeistara
og atvinnumanna. Nú er farið að
bjóða upp á gífurlega stór skák-
söfn á tölvudisklingum og getur
notandinn kallað fram þær skákir
sem hann þarf á að halda eftir
vissu kerfi. Þetta er einkum hag-
nýtt þegar verið er að rannsaka
skákir ákveðins andstæðings eða
sérstakt byijanaafbrigði.
Skólar, taflfélög eða áhuga-
menn sem vilja nýta sér bækling-
inn, sem er ókeypis, geta nálgast
hann hjá Skáksambandi íslands,
Laugavegi 71, 3. hæð, Reykjavík,
eða pantað hann í síma 27570.
Lausnir á
j ólaskákþrautum
Hér fara á eftir lausnir á skák-
dæmum sem birtust hér í Mbl. á
aðfangadag. Mér hafa borist
kvartanir yfir því að dæmi 5 og
6 hafi verið of þung og er það
e.t.v. rétt. Það verður að teljast
mjög góð frammistaða að hafa
náð að leysa annað af þeim dæm-
um. Hin eru aftur á móti fremur
létt og ætti það að hafa vegið upp
á móti.
1. Kubbel 1922.
2. I. Kantorovich 1987.
Hvítur leikur og vinnur.
1. Hh8+ - Kgl 2. Hhl+! (Auð-
vitað ekki 2. a8=D? og hvíti
kóngurinn nær ekki að skýla sér
fyrir þráskákum) 2. — Kxhl 3.
a8=D og hvítur er óveijandi mát.
T.d. 3. - Kh2 '4. Dh8+ - Kgl
5. Dg7+ - Kfl 6. Dal+, eða 3.
— Dfl+ 4. Kg3+ — Kgl 5. Da7+
- Khl 6. Dh7+ - Kgl 7. Dh2
mát.
3. A. Seleznev 1920.
Hvítur leikur og vinnur.
1. c5! — Re6 (Ef 1. — dxc5 þá
2. Hd7 - Re6 3. He7 og bæði
svörtu c peðin falla og hvítur vinn-
ur létt) 2. cxd6! - Rxd8 3. dxc7
— Rb7 (Svartur leggur pattgildru)
4. c8=H! - Rxa5 5. Hc5! - Rb7
6. Hc6 mát!
4. A. Dombrovskis 1972.
Hvítur leikur og mátar í öðr-
um leik.
1. Dg6! og svartur er í leikþröng.
Þótt hvítur hóti ekki máti, á svart-
ur engan leik sem ekki leyfir mát
í næsta leik.
5. A. Kuznetsov 1963.
Hvítur mátar í fjórða leik.
1. Bd4! og nú:
a) 1. — b2 2. Bbl með hótuninni
3. Dd3 og 4. Dxg6 mát.
b) 1. - bxa2 2. Bal - g6 3. Dc3
— gxf5 4. Dg7 mát.
c) 1. - g6 2. Bb2 - a3 3. Dc3
— axb2 4. Dh8 mát.
d) 1. '- h2 2. Dc3! - g6 3. Bh8
— gxf5 4. Dg7 mát.
Þetta er býsna erfitt dæmi.
6. A. Kuznetsov 1980.
1. Kel!(Hótar 2. Rc3!) 1. — He8
2. Bh2+ - Khl 3. Be5+ - Kgl
4. Rc3 - Rxc3 5. Bh2+ - Khl
6. Bg3+ — Kgl 7. Bf2 mát.
Aðrar leiðir eru: 1. — Hd8 2.
Bh2+ - Khl 3. Bd6+, eða 1. -
Hc8 2. Bh2+ - Khl 3. Bc7+ o.s.
frv.
Vegna mikillar eftirspurnar óskum við eftir góðum
skuldabréfum í umboðssölu.
Helstu skuldabréf í sölu hjá
Verðbréfaviðskiptum
Spariskírteini ríkissjóðs 7,2-8,5% ávöxtun umfram verðbólgu
Veðdeild Samvinnubankans 9,7% ávöxtun umfram verðbólgu
Lind hf. 11,0% ávöxtun umfram verðbólgu
Glitnir hf. 11,1% ávöxtun umfram verðbólgu
Lýsing hf. 10,8% ávöxtun umfram verðbólgu
Samvinnusjóður íslands hf. 10,5% ávöxtun umfram verðbólgu
Samband ísl. samvinnufélaga 10,8% ávöxtun umfram verðbólgu
Fasteignatryggð skuldabréf 12-15% ávöxtun umfram verðbólgu
Allar nánari upplýsingar í Bankastræti 7, 3. hæð.
Síminn er 20700.
VV
l/ERÐBRÉFAUIÐSKIPTI
TOLLARI ’88
Léttir mjög toJlskýrslugerð eftir áramót.
Tollari ’88 er fullkomið forrit sem sparar inn-
flytjendum miklar þjáningar við tollskýrslu-
gerð og verðútreikninga.
Tollareglur breytast verulega um áramótin.
Tollari ’88 er arftaki Tollara II, sem er eitt
vinsælasta tollaforritið í dag.
Tollari ’88 borgar sig á nokkrum mánuðum í
hreinum tímasparnaði.
★ Tollskrá með gömlum og nýjum tollflokk-
um er innbyggð. Ef sleginn er inn gamall
tollflokkur, stingur Tollari upp á þeim nýja
eða þeim nýju sem til greina koma.
Tollari fæst í öllum helstu tölvuverslunum.
ÍSLENSK TÆKI,
Garöatorgi 5, Garðabæ,
sími 656510.
öbbYIMmdstæki