Morgunblaðið - 29.12.1987, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1987
Frá æfingu á Jólaóratoríu Bachs.
Langholtskirkja:
Jólaóratoría Bachs
Sagt er að tvisvar nái manns-
ævin hámarki, með fæðingu og
dauða. Allt sem við ber þar á milli
eru áfangar. í kristindómi og vest-
rænni menningu hafa tveir atburðir
orðið listamönnum að yrkisefni öðr-
um fremur: Fæðing og dauði Krists.
Eitt mesta listaverk menningarsög-
unnar er Jólaóratórían eftir Jóhann
Sebastian Bach. í kvöld og annað
kvöld verður fyrri hluti verksins
fluttur í Langholtskirkju og hefjast
tónleikamir klukkan 20.30. Þessi
flutningur er löngu orðinn fastur
liður í starfsemi Kórs Langholts-
kirkju, eða eins og stjómandinn, Jón
Stefánsson, orðar það: „Okkur
finnst fólk þurfa að fá Jólaóratórí-
una regiulega. Þetta tilheyrir
jólunum, ekki síður en rjúpumar."
Jólaóratórían er mikið verk sem
sjaldnast er flutt í einu lagi. Kór
Langholtskirkju hefur tvívegis flutt
verkið í heild, og þá tvö kvöld í
röð. Þetta er í fimmta sinn sem
kórinn flytur verkið og tekur flutn-
ingurinn um tvo tíma. Einsöngvarar
em Kristinn Sigmundsson, Michael
Goldthorp, Ólöf Kolbrún Harðar-
dóttir og Sigríður Ella Magnús-
dóttir, en konsertmeistari er Júlíana
Elín Kjartansdóttir. —
„Flutningur á borð við þennan
er mikið fyrirtæki,“ segir Jón Stef-
ánsson kórstjóri í viðtali við
Morgunblaði, „og það má ekki
miklu muna að fjárhagslega sé
þetta ofviða. Til þess að flutningur-
inn standi undir sér þurfum við að
fylla kirkjuna tvisvar sinnum og það
gemm við nú sjálfsagt. Hljómsveit-
in er stærsti kostnaðarliðurinn, að
sjálfsögðu, en til þess að flytja verk-
ið með þeim myndarbrag sem er
við hæfi þarf marga hljóðfæraleik-
ara.“
Guðspjallamanninn syngur Mic-
hael Goldthorp sem margoft hefur
farið með það vandasama hlutverk
í óratóríuflutningi hér á landi, ávallt
við hinn bezta orðstír. Spumingu
um það hvort af öllum íslenzkum
tenómm sé enginn sem farið geti
með hlutverk guðspjallamanns
svarar Jón Stefánsson svo:
„Það væri þá enginn nema Jón
Þorsteinsson, sem er í Hollandi.
Hins vegar hyllir undir tenór sem
ég geri mér vonir um að verði kjör-
inn í hlutverk guðspjallamannsins.
Það er Gunnar Guðbjömsson og ég
verð að segja það að hann lofar
mjög góðu. Til að syngja hlutverk
guðspjallamannsins þarf mjög létta
rödd, hlutverkið allt liggur svo jafn-
hátt að segja má að menn syngi
sig bara á kaf ef raddimar em
ekki þeim mun léttari, og dra-
matískur tenór hefði ekki það
úthald sem guðspjallamaðurinn
krefst."
Þegar Jón er að því spurður hvort
árangurinn af vinnu þeirra mörgu
kóra sem hér starfa yrði ef til vill
meiri ef einhvetjir yrðu sameinaðir
eða störfuðu meira saman en raun
ber vitni, segir hann:
„Það efast ég um. Eiginlega er
ég viss um að svo yrði ekki. Sann-
leikurinn er nefnilega sá að söng-
kraftarnir hér virðast óþtjótandi.
Mér líður aldrei illa í þessu starfí
nema þegar inngöngupróf í kórinn
em haldin og maður neyðist til að
vísa frá mjög góðu söngfólki sem
sannarlega á erindi í kór. En sam-
vinna milli kóra er af hinu góða,
og ég hlakka sannarlega til æfinga
Langholtskórsins með Módettukór
Hallgrímskirkju fyrir flutning á
Verslunardeild Sambandsins:
Hjalti Pálsson
lætur af störfum
HJALTI Pálsson framkvæmda-
stjóri Verslunardeildar Sam-
bandsins lætur af störfum fyrir
aldurs sakir um áramótin eftir
fjörutíu ára starf hjá Samband-
inu. Ekki hefur verið ákveðið,
hver taki við af honum.
Hjalti er fæddur 1. nóvember
1922 að Hólum í Hjaltadal. Að
loknu námi árið 1948 hóf hann störf
hjá SÍS sem fulltrúi í Véladeild.
Hann varð ári síðar fyrsti fram-
kvæmdastjóri Dráttarvéla hf. og
gegndi því starfi til ársins 1960.
Hann var framkvæmdastjóri Véla-
deildar 1952 —67 og loks fram-
kvæmdastjóri Innflutningsdeildar,
sem nú heitir Verslunardeild Sam-
bandsins, frá 1967. Meðal annarra
starfa má nefna að Hjalti hafði for-
ystu um byggingu skrifstofuhúss
að Ármúla 3, komtumanna við
Sundahöfn, fóðurblöndunarstöðvar
Sambandsins og húsnæðis Verslun-
ardeildar við Holtagarða. Hann
hefur auk þess setið í stjómum
ýmissa samstarfs- og dótturfyrir-
tækja Sambandsins.
Hjalti sagði í samtali við Morgun-
blaðið að hann hygðist nú hægja
verulega á sér og draga sem mest
úr störfum fyrir Sambandið. „Þessa
dagana er ég að undirbúa hestaferð
sem ég ætla að fara í sumar frá
Hrútafírði yfír í Haukadal. Er ég
nú að lesa mér til um Haukadal og
sögu hans.“ Auk hestamennskunn-
ar sagðist Hjalti ætla að sinna öðru
V er ðlagsstof nun:
Unnið að upplýsingasöfn-
un vegna tollabreytinga
STARFSFÓLK Verðlagsstofnunar hefur unnið að upplýsingasöfnun
um vöruverð í desember í þeim tilgangi að kanna hvort tollalækkanir
í byrjun næsta árs skila sér í lækkuðu vöruverði. Georg Ólafsson
verðlagsstjóri segir að unnið hafi verið við þessa upplýsingasöfnun
fram undir jól og einnig dagana milli jóla og nýárs.
Georg sagði að verðlagið yrði stöður fengjust fyrr en í febrúar
kannað aftur eftir áramót og farið
ofan í verðmyndunina. Hann sagði
að nayðsynlegt væri að veita
ákveðna aðlögun að þessum breyt-
ingum, til dæmis vegna birgða sem
væru í verslunum um áramótin, og
því ekki útlit fyrir að miklar niður-
næstkomandi.
Hann sagði að upplýsingum um
verðbreytingar yrði komið á fram-
færi við almenning og síðan yrði
ráðherra og verðlagsráði gerð grein
fyrir einstökum málum eftir því sem
tilefni gæfíst til.
Hjalti Pálsson.
áhugamáli sínu, sem væri ættfræði.
Hjalti kvað margs vera minnast
frá þessum 40 ára starfsferli;
minnistæðastir væru þó hinir ýmsu
sigrar sem fyrirtækið hefði unnið í
harðri samkeppni. Þessi tími hefur
verið lærdómsríkur, margt hefur
gengið vel, en annað miður. Mín
gæfa hefur hins vegar sú að hafa
unnið með góðu fólki og kann ég
því bestu þakkir fyrir.“
HÍK og ríkisvaldið:
Vinnuhópur endur-
skoðar launakerfið
EINN fundur hefur verið með samninganefndum Hins íslenska kenn-
arafélags og fjármálaráðuneytisins um nýja kjarasamninga og hefur
næsti fundur samninganefndanna verið boðaður 8. janúar næstkom-
andi. Stjórn og fulltrúaráð Kennarasambands Islands var á fundi í
gær og verður á fundi í dag, þar sem gengið verður frá kröfugerð
félagsins í komandi samningum. Hún verður lögð fram á fundi með
samninganefnd fjármálaráðuneytisins, sem boðaður hefur verið á
morgun, miðvikudag.
Á fundi samninganefnda HlK og
fjármálaráðuneytisins var settur
vinnuhópur til að vinna að tillögu-
gerð um launagrunn, sem byggður
er á einingum eftir menntun,
kennslugreinum, kennslu utan dag-
vinnumarka, kennslu við öldunga-
deildir og öðrum atriðum
kjarasamninga, en samkvæmt bók-
un í kjarasamningum aðila frá því
í vor er gert ráð fyrir að unnið
skuli að slíkum launagrunni. Vinnu-
hópurinn hefur fundað einu sinni
og verður á öðrum fundi í dag og
á hann að leggja fram tillögur á
fundi samninganefndanna 8. jan-
úar.
samband íslands hefur ekki sagt
samningum lausum, en getur gert
það með hálfs mánaðar fyrirvara.
HÍK hefur einkum framhaldsskóla-
kennara innan sinna vébanda og
grunnskólakennarar eru félagar í
Kennarasambandi íslands.
'O
INNLENT
Subaru-bílamir enn óskoðaðir
ENN hafa Subaru-bifreiðirnar
sem lentu í flóðum í Drammen
ekki verið skoðaðar. Að sögn
Hauks Ingibergssonar fram-
kvæmdastjóra Bifreiðaeftirlits
ríkisins vantar viðbótarupplýs-
ingar frá tryggingafélagi
bOanna í Noregi. Þegar þær
liggja fyrir verður tekin
ákvörðun um skoðunina.
Haukur sagði að fyrir jól hefði
verið tekin sú ákvörðun að afla
frek'ari gagna um bílana frá
tryggingafélagi þeirra í Noregi.
Nú væri beðið eftir þessum við-
bótarupplýsingum. Ekki vildi
hann greina nánar frá því hvers
konar upplýsingar þetta væru.
Margeir Margeirsson einn inn-
flytjenda Subaru-bifreiðanna
sagðist vera bjartsýnn. Sagði
hann að bifreiðaeftirlitsmenn æt-
luðu að skoða verkstæði í Keflavík
í dag. „Þeir vilja athuga hvort það
fullnægi kröfum þeirra og hvort
skoðunin geti farið fram þar. Það
er ljóst að þeir væru ekki að skoða
verkstæðið ef þeir ættu eftir að
taka afstöðu til skoðunarinnar,“
sagði Margeir.