Morgunblaðið - 29.12.1987, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1987
27
■ Missa Solemnis ásamt Sinfóníu-
hljómsveit íslands sem fram fer í
vor.
Sigríður Ella Magnúsdóttir kom
til Reykjavíkur á annan í jólum frá
Englandi þar sem hún býr ásamt
fjölskyldu sinni. Ásamt óperusöng
hefur hún gert mikið af því að
syngja í kirkjulegum verkum, og í
tilefni af flutningi Jólaóratóríunnar
nú segir hún:
„Mér finnst flutningur þessara
stóru helgiverka hafa breytzt hér
heima á síðustu árum, og fann það
m.a. greinilega á fyrstu æfmgunni
með Langholtskórinn. Jólaóratórían
er yndislegt og stórbrotið verk en
mér finnst eins og hún og fleiri slík
verk séu orðin okkur nánari. Áður
var þetta með upphöfnum blæ sem
mér fínnst minna áberandi nú og
það er eins og flytjendumir njóti
flutningsins meira sjálfra sín vegna.
Kannski er ástæðan sú að við erum
orðin svo vön að flytja svona verk,
þekkjum þau orðið svo vel, að þetta
er orðið okkur eiginlegra og eðli-
legra en áður, og það tel ég vera
af hinu góða. Annars er það mér
alltaf ráðgáta hvemig Bach hefur
getað samið Jólaóratóríuna og önn-
ur snilldarverk, þrátt fyrir allt sem
hann þurfti að sinna, - erilsömu
starfi, organleik og svo átti hann
öll þessi börn. Kannski hann hafí
verið að flýja bamagargið og allan
erilinn...“
„Eg get með sanni sagt að án
Jólaóratóríunnar finnst mér engin
jól vera. í fyrra var það í fyrsta
sinn í mörg ár að ég söng ekki í
Jólaóratóríunni og það fannst mér
heldur dauf jól;“ segir Kristinn Sig-
mundsson. „Eg hef farið með
einsöngshlutverk í þessu verki fjór-
um eða fimm sinnum og þá með
Langholtskórnum, en þar að auki
hef ég verið í kórnum þegar Pólý-
fónkórinn hefur flutt Jólaóratórí-
una. Mitt hlutverk er einkum fólgið
í útlagningu á guðspjallinu. Ég syng
eina aríu og nokkur resítatív, auk
dúetts með Ólöfu Kolbrúnu."
-Á.R.
Morgunblaðið/Sverrir
Anna Vilhjálmsdóttir og Einar Júlíusson eru meðal flytjenda i
skemmtidagskránni Tekið á loft í Súlnasal, sem frumsýnd verður
að kvöldi nýársdags.
Hótel Saga:
Skemmtidagskrá
1 janúar og söng-
leikur í febrúar
SKEMMTIDAGSKRAIN Tekið á loft í Súlnasal, verður frumflutt að
kvöldi nýársdags á Hótel Sögu. Þar koma meðal annars fram Magnús
Kjartansson, Rúnar Júlíusson, Jóhann Helgason, Pálmi Gunnarsson,
Engilbert Jensen og Anna Vilhjálmsdóttir og flytja tónlist frá gullöld
bítlamenningarinnar á íslandi. Þessi skemmtidagsrká er sviðsett sem
flugferð og gerist í flugstöð, í fríhöfn og um borð í flugvél.
Nýr söngleikur verður síðan frum-
sýndur í Súlnasal laugardaginn 6.
febrúar. Söngleikurinn er byggður á
tónlist Magnúsar Eiríkssonar og
segir þar frá ungum manni á þyrnum
stráðri framabraut, sem þráir að
verða Næturgali en verður næturg-
alinn.I aðalhlutverkum eni Pálmi
Gunnarsson og Jóhanna Linnet en
hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar
sér um undirleik.
í tengslum við þessar skemmti-
dagskrár verða sérstakar helgar-
ferðir sem Flugleiðir, Hótel Saga og
Gildi hf. standa að og hafa þessar
helgarferðir hlotið nafnið Sögu-
Gildi. Þar geta gestir valið um 2-4
daga ferð, þar sem innifalið er
skemmtun, kvöldverður og gisting á
Hótel Sögu. Frá 6. janúar til 9. fe-
brúar verður sérstakt verð á þessum
ferðapakka, sem kostar þá td. 8763
krónur frá Akureyri, 10.209 frá
Egilsstöðum og 7250 frá Vest-
mannaeyjum. Hótel Saga mun
einnig bjóða Reykvíkingum að búa
á hótelinu á næsta ári og í sérstöku
nýárstilboði kostar nóttin 750 kr. á
mann í tveggja manna herbergi með
morgunverði.
Islensku skátarnir í Astralíu:
Eyddu jólanótt-
inni um borð í þotu
ÍSLENSKU skátarnir 115 sem lögðu af stað á l6. alþjóðlega
friðarþing skáta, sem haldið er að þessu sinni í Ástralíu, eyddu
aðfangadagkvöldi um borð í þotu. Voru skátarnir í námunda
við Betlehem, en skýjum ofar,
náðist mikil jólastemmning um
Benjamín Axel Ámason fram-
kvæmdastjóri Bandalags íslenskra
skáta sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að skátarnir hefðu
verið mjög ánægðir með dvölina um
borð í flugvélinni. Þar tóku þeir upp
jólapakka sem þeir höfðu haft með
sér að heiman og sungu jólasálma.
Einnig var borinn fram hátíðarmat-
ur og jólamyndir sýndar á mynd-
bandi um borð. í sömu flugvél voru
einnig breskir skátar á leið til Ástr-
alíu.
Ferð skátanna hófst að morgni
Þorláksmessu og voru þeir komnir
til London um hádegi. Þar dvöldu
þeir í sólarhring og lögðu af stað
til Bangkok á aðfangadag. Þaðan
þegar hátiðin gekk í garð og
borð í flugvélinni.
var farið til Sydney og síðan til
Melboume. Þar dvelja þeir nú hjá
skátafjölskyldum tveir saman í fjóra
daga.
Mótið hefst 31. desember og
stendur í viku. Eftir það ferðast
skátamir um Sydney og dvelja þar
aftur hjá skátafjölskyldum. Síðan
verður flogið til Bangkok 17. janúar
og þaðan til London þar sem dvalið
verður í þrjá daga áður en haldið
verður heim til Islands.
Benjamín sagði að skátamir létu
mjög vel af dvöl sinni í Ástralíu.
Þar er mjög heitt í veðri og fögn-
uðu íslensku skátarnir því þegar
þeir fengu rigningu til að kæla sig
niður.
Góð kirkjusókn
yfir hátíðarnar
KIRKJUSÓKN var með afbrigðum góð í Reykjavíkurprófast-
dæmi yfir hátíðarnar að sögn Sr. Ólafs Skúlasonar dómpróf-
asts. Messað var í fyrsta sinn á jólum í Seljakirkju, í Seljasókn,
í Breiðholti og í Hjallaprestakalli í Kópavogi þar sem messað
var í hátíðarsal Digranesskóla.
I skoðankönnun sem gerð var og aðrir úr öðmm sóknum," sagði
fyrir hátáðarnar kom fram að 60% hann.
þátttakenda hugðust sækja kirkju Svipaða sögu er að segja úr öðr-
hátíðardagana og sagði sr. Ólafur um sóknum í Reykjavík að sögn sr.
að um 60% sóknarbarna í Bústaðar- Ólafs og frá Akureyri hefðu borist
sók hefðu sótt kirkju um jólin. fréttir um mikla mikil og góða
„Sumir komu oftar en einu sinni kirkjusókn.
HÁSKÓLI ÍSLANDS
Endurmenntunarnefnd og Reiknistofnun
TÖVLUNÁMSKEIÐ
VORMISSER11988
Word ritvinnsluforritið
(fyrir Macintosh).
Þetta er þróað ritvinnslukerfi með fjölbreytta
möguleika á uppsetningu texta. Hentugt fyr-
ir Macintosh notendur sem skrifa bækur eða
langargreinar.
Tími: 6. til 9. janúar kl. 8.30-12.00. Kr. 7.500,-
Leiðbeinandi: Þórunn Pálsdóttir,
tölvunarfræðingur.
Orðsnilld (Wordperfect)
(fyrir pc-tölvur).
Þetta er þróað ritvinnslukerfi með fjölbreytta
möguleika á uppsetningu texta og til þess
að flytja gögn í prentsmiöju. Hentugt fyrir
þá sem skrifa bækur eöa langar greinar.
Tími: 15. til 18. febrúar kl. 08.30-12.00.
Námskeiöið verður endurtekið 22.-25. febrú-
ar. Kr. 7.500,-
Leiðbeinandi: Eirikur Rögnvaldsson,
lektor i heimspekideild.
Ritstoð
(fyrir pc-tölvur).
Þetta er einfalt og meðfærilegt ritvinnslu-
kerfi, hentugt fyrir þá sem ekki hafa sérstakar
þarfir varðandi tákn og uppsetningu texta.
Tími: 21. og 22. janúar kl. 8.30-12.00.
Kr. 4.000,-
Leiðbeinandi: Guðmundur Ólafsson,
stundakennari við HÍ.
MS-DOS stýrikerfið
(fyrir pc-tölvur).
Þetta námskeið er ætlað þeim sem hafa
dálitla reynslu í tölvunotkun. Fjallað er um
skrár, afrit og vólbúnaö.
Tími: 12. og 13. janúar kl. 8.30-12.00.
Kr. 4.000,-
Leiðbeinandi: Bergþór Skúlason,
tölvunarfræðingur.
Multiplan
(fyrir pc-tölvur)
Vinsæll töflureiknirfrá Microsoft. Kennd
veröur útgáfa 3, sem er talsvert öflugri en
útgáfa 1.
Tfml: 6. til 9. janúar kl. 8.30-12.00. Kr. 8.000,-
Leiðbeinandi: Bergþór Skúlason,
tölvunarfræðingur.
Excel töflureiknirinn
(fyrir Macintosh).
Excel er eitt öflugasta hjálpartæki Macintosh-
r.otandans og hefur bæði gagnagrunn og
forritunarmál.
Tfmi: 18. til 20. janúar kl. 8.30-12.30.
Kr. 8.000,-
Leiðbeinandi: Halldór Kristjánsson,
verkfræðingur.
Skráavinnsla ídBase 111+
(fyrir pc-tölvur)
Þetta er meö öflugustu og útbreiddustu kerf-
um til skráavinnslu og forritunar á pc-tölvum.
Tfmi: 11. til 14. janúar kl. 8.30-12.00.
Kr. 7.500,-
Leiðbeinandi: Halldóra Magnúsdóttir,
tölvunarfræöingur.
Forritun í dBase 111+
(fyrir pc-tölvur).
Þetta er framhald af námskeiðinu um skráa-
vinnslu ídBase III+.
Tími: 18. til 21. janúar kl. 13.15-17.00.
Kr. 8.000,-
Leiðbeinandi: Kjartan R. Guömundsson,
tölvunarfræðingur.
Unix kynning
(Notuð er HP 9000/840 tölva, nýtist í öllum
Unix kerfum).
Þessi kynning er ætluö þeim sem hafa nokkra
reynslu af tölvuvinnu og forritun (í einhverju
stýrikerfi).
Tfmi: 20. til 22. janúar kl. 13.15-17.00.
Kr. 8.000,-
Leiðbeinendur: Magnús Gíslason, reikni-
fræðingur og Maríus Ólafsson, reiknifræðing-
ur.
Tölvusamskipti
Almenn kynning á tölvusamskiptum. Þátttak-
endur læra að nýta sér tölvur til samskipta
við gagnanet og gagnabanka og áætla sam-
skiptakostnað.
Tfmi: 1. og 2. febrúar kl. 9.00-12.00 og
13.15-16.00. Kr. 8.000,-
Leiðbeinandi: Halldór Kristjánsson,
verkfræðingur.
Medline
Upplýsingaleit í læknisfræðilegu gagnasafni.
Námskeiðið fer fram i formi fyrirlestra, sýni-
kennslu og æfinga.
Tfmi: 14. og 15. jan. kl. 13.00-19.00 og 16.
jan. kl. 9.00-17.00. Kr. 8.000,-
Leiðeinandi: Sólveig Þorsteinsdóttir,
bókasafnsfræöingur.
Fortran 77
(fyrirVaxtölvur).
Námskeið fyrir þá sem hafa nokkra reynslu
í notkun Vax tölvu (m.a. í notkun ritils) en
eru byrjendur í forritun.
Tfmi: Náskeiöið hefst 18. janúar kl. 8.30 og
tekur 10 morgna sem dreifast á næstu 3
vikur. Kr. 15.000,-
Leiðbeinandi: Sigrún Helgadóttir,
reiknifræðingur.
Tölvunotkun við arðsemireikn
inga
Tími: 21. og 24. mars.
Leiðbeinendun Geir A. Gunnlaugsson, fram-
kvæmdastjóri og Páll Jensson, forstöðumaður.
Notkun tölvu við tölfræðilega
gagnavinnslu
(fyrir pc-tölur).
Farið er yfir helstu atriði tölf ræðiforritsins
spsspc+ og rifjuð upp undirstöðuatriði úr
tölfræði.
Tími: Námskeiðið hefst 8. febrúar kl. 13.15
og verður átta sinnum hálfur dagur. Tímar
verða eftir hádegi á mánudögum. Kr. 9.500,-
Leiðbeinendur: Elías Héðinsson, félags-
fræðingurog Helgi Þórsson, tölfræðingur.
Tölvunotkun
60 stunda námskeið sem hefst 26. janúar
og lýkur i mai. Kennt verður tvö kvöld í viku,
2 tíma í senn. Kennd verða helstu atriði í
notkun IBM-pc og sambærilega tölva: Rit-
vinnsla (Ritstoð), töflureiknir (Multiplan),
skýrslumyndasmíö (Chart) og dBase III+ auk
stýrikerfisins MS-DOS.
Námskeiðsgjald: Kr. 19.500,-
Umsjón: Helgi Þórsson, tölfræöingur.
Skráning á námskeiðin erá aðalskrifstofu Háskó/ans, sími 694306. Nánari upplýsing-
areru veittará skrifstofu endurmenntunarstjóra Háskólans ísíma 23712 og 687664.