Morgunblaðið - 29.12.1987, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1987
Singapore:
Skorður settar við
útbreiðslu tímarita
Singapore, Reuter.
STJORNVÖLD í Singapore hafa
fyrirskipað að aðstandendur
tímaritsins Far Eastern
Economic Review dragi stórlega
úr sölu þess í landinu. Þetta er
í fjórða skiptið undanfarna 17
mánuði sem yfirvöld hefta út-
Túnis:
Stjórnmála-
samband við
Líbýumenn
Túnis, Reuter.
STJÓRNVÖLD í Túnis og Líbýu
hafa ákveðið að taka upp stjórn-
málasamband að nýju, að þvi er
TAP, hin opinbera fréttastofa
Túnis skýrði frá í gær.
Túnisbúar slitu stjómmálasam-
bandi við Líbýu í septembermánuði
árið 1985 er stjómvöld í síðar-
nefnda ríkinu ákváðu að vísa
30.000 verkamönnum frá Túnis úr
landi.
Undanfama mánuði hafa sam-
skipti ríkjanna farið batnandi og
hefur tekist að leysa nokkur helstu
ágreiningsmál ríkjanna svo sem
greiðslu skaðabóta til verkamanna
sem vísað var frá Líbýu. Þá hafa
Líbýumenn fallist á að gefa eftir fé
í eigu Túnisbúa sem var fryst í
líbýskum bönkum.
Búist er við að ríkin tilkynni
formlega að stjómmálasamband
hafi verið tekið upp að nýju á næstu
dögum.
breiðslu erlendra tímarita. Áður
hafði upplag Time, Asian Wall
Street Journal og Asiaweek verið
skorið niður um 90%.
Far Eastem Economic Review
var refsað fyrir fréttaflutning en
hinum þremur tímaritunum fyrir
að neita að birta svör stjómvalda
við því sem kallað var „mistök í
fréttaflutningi". Stjómin greip til
þess ráðs að minnka upplag tíma-
ritsins í landinu úr 10.000 eintökum
í 500 eftir að birst hafði frétt þann
17. desember um að yfírvöld hefðu
handtekið marxista sem reynt
hefðu að steypa stjóm Lee Kuan
Yews forsætisráðherra af stóli.
íbúar Singapore sem er eitt auð-
ugasta ríkið í Suðaustur-Asíu búa
við stórlega skert persónufrelsi og
stjómin hefur ekki farið dult með
þann ásetning sinn að hindra að
fréttamennska, gagnrýnin á vald-
hafa, nái að skjóta þar rótum.
Austurríki:
Fannfergi vestanhafs
Þrátt fyrir hríðarbyl léku Denver Broncos og San Diego Chargers um helgina í bandaríska fót-
boltanum. Mikið óveður hefur geisað undanfarna daga í Bandarikjunum.
Innanríkisráðherrann hvet-
ur Waldheim til afsagnar
Vínarborg, Reuter.
KARL Blecha, innanrikisráð-
herra Austurríkis hefur nú bæst
í hóp þeirra manna, sem hvetja
forseta landsins, Kurt Waldheim,
til afsagnar. Kom þetta fram í
viðtali, sem birt var í blaðinu Die
Sovétríkin:
Óháð félagasamtök gagn-
rýnd fyrir starfsemi sína
Moskvu, Reuter.
MÁLGAGN sovéska kommúni-
staflokksins Pravda varaði á
sunnudag mörg hinnna 30.000
félagasamtaka í landinu við því
að ástunda það sem kallað var
„athæfi fjandsamlegt ríkinu“. í
dagblaðinu sagði að margir fé-
laganna væru þrjótar sem ýttu
undir karlrembu, væru fjand-
samlegir gyðingum, hvettu til
stofnunar stjórnarandstöðu-
flokka og fijálsra verkalýðsfé-
laga.
„Starfsemi þeirra er í mörgum
tilvikum ólögleg og án leyfís skipu-
leggja slík samtök mótmælagöngur
og prenta og dreifa efni sem er
fjandsamlegt sósíalismanum,"
sagði ennfremur í frétt blaðsins.
„En þeir sem vilja físka í gruggugu
vatni ættu að skilja að við stefnum
ekki að vestrænu fíjálsræði heldur
að dýpra og víðtækara sósíalísku
lýðræði." Þetta var í fyrsta skipti
sem sovéskir fjölmiðlar ráðast gegn
félagasamtökunum í landinu. Svo
virðist sem hið opinbera hafi
áhyggjur af því að sveitarsjómir
megni ekki að halda starfsemi slíkra
samtaka í skefjum. Óopinber félög
hafa lengi verið við lýði í Sovétríkj-
unum. Þar fást félagar við ýmis
hugðarefni sín utan ramma kom-
múnistaflokksins. Síðan valdatími
Gorbatsjovs hófst hefur slíkum
samtökum vaxið fískur um hrygg.
Á einkaheimilum koma menn
gjama saman og ræða ýmis þjóð-
félagsleg vandamál.
Oleg Lyamín, lögfræðingur og
félagi í perestrojku-umræðuhópn-
um sem hittist hvem þriðjudag í
Moskvu, sagði í samtali við Reut-
ers-fréttastofuna að menn óttuðust
nú að yfírvöld hygðust loka klúbbn-
um. Hópurinn komst í deigluna eftir
að hann krafðist þess að ræða sem
Boris Jeltsin hélt áður en hann var
rekinn yrði birt opinberlega. Að
sögn hefur sá bjartsýnisandi sem
ríkt hefur. innan umræðuhópanna
beðið hnekki eftir að Jeltsin var
látinn víkja fyrir að gagnrýna þá
sem stæðu „glasnost" í vegi.
Presse á aðfangadag. Er hann
hæstsetti embættismaður þar i
landi, sem tekið hefur þessa af-
stöðu til Waldheims, en hún kann
að gefa til kynna að ekki sé allt
sem skyldi í stjórnarherbúðun-
um.
Blecha, sem einnig er varaform-
aður sósíalistaflokksins, sagði að
Waldheim ætti að láta af störfum
eftir að nefndarrannsókn á fortíð
forsetans lýkur í febrúar. Nefndin
hefur grafíst fyrir um það hver
starfí Waldheims var á stríðsárun-
um, en hann hefur ítrekað verið
sakaður um að hafa á einhvem
hátt tekið þátt í eða haft vitneskju
um stríðsglæpi nazista.
Hinn íhaldsami Þjóðarflokkur,
sem studdi Waldheim í forsetakjör-
inu 1986 en er jafnframt í ríkis-
stjóm með sósíalistum, mótmælti
þessum orðum harðlega og sagði
þau „smekklaust dæmi um friðrof
jólahelginnar".
Blecha sagði Die Presse að Aust-
urríki hefði einangrast á alþjóða-
vettvangi vegna máls Waldheims
og að svo gæti ekki haldið áfram.
„Hvert sem ég fer um Evrópu eru
fjölmiðlar herskáir vegna Wald-
heim-málsins og ráðherrar em á
verði gagnvart Austurríki."
Innanríkisráðherrann sagðist
gera ráð fyrir að niðurstaða rann-
sóknamefndarinnar yrði sú að ekki
yrðu færðar sönnur á neina af hin-
um meintu stríðsglæpum Wald-
heims. Waldheim gæti þá þjónað
landi sínu með því að segja af sér,
laus undan álagi og sekt, sagði
Blecha.
Talsmaður Þjóðarflokksins, Lud-
wig Steiner, sagði að ef Blecha
væri ekki sáttur við Waldheim í
forsetastóli ætti hann sjálfur að
segja af sér embætti. „Það er hlut-
verk ríkisstjómarinnar að berjast
gegn galdraofsóknum þeim, sem í
orði kveðnu beinast gegn forsetan-
um, en beinast í raun mest gegn
Austurríki."
Time velur Gorbatsjov Mann ársins:
Tækifærissinnaður en boðar
þó nýja von fyrir Sovétmenn
New York. Reuter.
Bandaríska timarítið Time
kaus Míkhaíl Gorbatsjov, leið-
toga Sovétríkjanna „Mann
ársins“ slðastliðinn laugardag.
Fylgdi kjörinu sú umsögn, að
hann værí „tækifærissinnaður
stjórnmálamaður, sem einskis
svifist" en samt sem áður
„táknrænn fyrír vonina um ný
Sovétríki“.
Time sagði, að Gorbatsjov hefði
„endurskapað hugmyndina um
sovéskan leiðtoga" á þeim tíma,
sem hann hefði verið við völd.
„Sovétríkin og flest, sem þeim
viðkemur, einkennast ekki lengur
af sömu þyngslunum og áður, það
hefur rofað til í myrkrinu, sem
jrfír þeim grúfði, síðan Gorbatsjov
varð aðalritari sovéska kommúni-
staflokksins," sagði Donald
Morrison, blaðamaður við Time.
Sagði hann, að Gorbatsjov væri
„sanntrúaður kommúnisti en
einnig tækifærissinnaður stjóm-
málamaður, sem einskis svifíst".
„Á árinu 1987 var hann dálítið
meira en þetta: Tákn fyrir ný
Sovétríki, ríki, sem em opnari og
leggja ögn meiri áherslu á velferð
þegnanna og ögn minni á áróður
meðal annarra þjóða. Fyrir að
kynda undir þessum vonum hefur
Time kosið Míkhafl S. Gorbatsjov
Mann ársins 1987,“ sagði Morri-
son.
Þetta er í 61. sinn frá árinu
1927, að Time velur sér Mann
ársins og er Gorbatsjov fjórði
Sovétleiðtoginn, sem hlýtur þann
titil. Árið 1983 varð Andropov
fyrir valinu ásamt Ronald Reag-
an, Nikíta Khrústsjov árið 1957
og Stalín tvisvar, 1939 og 1942.
Aðrir, sem komu til greina sem
Maður ársins, vom Reagan for-
seti, sem hlaut titilinn árið 1980,
Oliver North fyrir aðildina að
vopnasölumálinu og Oscar Arias,
forseti Costa Rica, en hann fékk
friðarverðlaun Nóbels fyrir áætl-
unina um frið í Mið-Ameríku. Þá
kom til álita að gefa Svarta mánu-
deginum, verðhmninu í Wall
Street, þennan titil og einhig al-
næmissjúkdómnum.
Fyrsta lán
NIB til Sovét-
ríkjanna
Helsinki, Norrœna fjárfestingarbankan-
nm.
NORRÆNI fjárfestingarbankinn
(NIB) hefur nú í fyrsta skipti
veitt Sovétmönnum ián. Lánið
nemur 128 milljónum danskra
króna og verður notað til að fjár-
magna smíði fjögurra þjónustu-
skipa fyrir sovéska fiskveiðiflot-
ann.
Skipin fjögur verða smíðuð hjá
Danyard Á/S í Danmörku en önnur
Norðurlönd leggja að hluta til efni
og tæki.
Lántaki er Vneshtorgbank, ut-
anríkisviðskiptabanki Sovétríkj-
anna, en hann sér um allar erlendar
lántökur fyrir Sovétríkin.