Morgunblaðið - 29.12.1987, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1987
29
Sandinistar 1 Nicaragua:
Reiða si g á kúb-
anska og sovéska
hemaðarráðgjafa
Washington. Reuter.
FYRRUM foringi í her Nic-
aragua, sem flýði til Banda-
ríkjanna í oktober sl., sagði á
sunnudag, að í landinu væru 12
sovéskir og 500 kúbanskir hern-
aðarráðgjafar.
„Þegar ég flýði 25. október voru
sovésku hemaðarráðgjafarnir 12 en
þeir kúbönsku 500,“ sagði Roger
Miranda Bengoechea majór í viðtali
við bandaríska sjónvarpsstöð en
fyrr í mánuðinum vakti hann mikla
athygli þegar hann upplýsti, að
sandinistar hygðust fjölga í hernum
upp í 600.000 manns. Samsvarar
það fimmtungi þjóðarinnar.
Humberto Ortega, varnarmála-
ráðherra Nicaragua, staðfesti, að
þessar upplýsingar væru réttar, en
bróðir hans, Daniel Ortega forseti,
sagði, að aðeins væri um að ræða
hugmynd og hinn eiginlegi herafli
þá undanskilinn.
Miranda sagði einnig, að hanri
hefði séð um svissneskan banka-
reikning, sem tilheyrði vamarmála-
ráðherranum og hafði að geyma
1.479,000 dollara í október sl.
„Þetta fé var á hans nafni og ég
tel, að þeir bræðumir líti á það sem
tryggingu fyrir framtíðina fari svo,
að sandinistar hrökklist frá,“ sagði
Miranda og bætti því við, að fénu
hefðu þeir stolið af hernum auk
þess sem hluti fjárins væri afrakst-
ur af eiturlyfjasölu.
Ronald Strong, bandariski sjólið-
inn, sem lést í sprengingunni.
Hermdarverk
í Barcelona
Barcelona. Reuter.
Bandarískur sjóliði lét lífið og
níu slösuðust þegar sprengja
sprakk á veitingastað í Barcelona
á Spáni sl. laugardag. Voru þeir
skipverjar á tveimur bandariskum
herskipum, sem létu í gær úr höfn
með fána í hálfa stöng.
Tundurspillirinn Beary og freigát-
an Thom fóru í gær frá Bareelona
til ókunns áfangastaðar en áætlað
hafði verið, að skipin yrðu í höfn í
nokkra daga enn. Hefur gæsla verið
aukin til muna við önnur bandarísk
herskip í spænskum höfnum. Lík sjó-
liðans, Ronalds Strong, verður sent
heim til Bandaríkjanna með flugvél.
Tvenn samtök katalónskra að-
skilnaðarsinna, sem berast einnig á
banaspjót sín í milli, segjast bera
ábyrgð á ódæðinu en spænska lög-
reglan kannar einnig hvort önnur
hryðjuverkasamtök geti hafa verið
að verki.
Róm:
Adalgiso Scioni leiddur burt eftir handtökuna. Reuter
Ohamingjusamur ungl-
ingur rændi flugvél
Veifaði ódýru úri og sagðist vera með tímasprengju
Róm. Reuter.
Unglingsstrákur rændi hol-
lenskri farþegaflugvél á aðfanga-
dag og hótaði að sprengja hana í
lofti ef reynt yrði að ráðast gegn
honum. Skipaði hann flugmönn-
unum að lenda í Róm en þegar
þangað kom sleppti hann bæði
áhöfn og farþegum, 97 manns alls,
og var handtekinn. Kom þá í ljós,
að hann hafði hvorki sprengju né
önnur vopn undir höndum.
Yfirvöld á Ítalíu segja, að ungling-
urinn, Adalgiso Scioni, 15 ára
gamall, geti átt yfir höfði sér 21 árs
fangelsi vegna flugránsins en hann
rændi vélinni þegar hún var á leið
frá Amsterdam til Mílanó. Veifaði
hann ódýru armbandsúri og hélt því
fram, að með því gæti hann sprengt
sprengju, sem hann hefði komið fyr-
ir undir einu farþegasætinu. Lögðu
flugliðarnir mátulegan trúnað á orð
hans en þótti þó varlegra að gera
eins og hann sagði.
Þegar til Rómar kom fengu menn
talið Scioni á að fara frá borði undir
því yfirskini, að þeir ætluðu að verða
við kröfum hans um eina milljón
dollara, flugfarmiða til New York og
hótelherbergi þar í borg.
Gianfranco Dosi, dómari í Róm,
sagði, að samkvæmt ítölskum lögum
mætti dæma Scioni í 7-21 árs fang-
elsi. Það yrði þó til að milda dóminn
ef afbrotið mætti rekja til andlegra
erfiðleika eins og líklega ætti við um
Scioni. Við fyrstu yfirheyrslur kvaðst
hann búa yfir hemaðarleyndarmál-
um og sætu óvinir hans hvarvetna á
fleti fyrir.
Adalgiso Scioni á ítalskan föður
og hollenska móður og bjuggu þau
í Hollandi þar til þau settust að á
Sardiníu fyrir þremur árum. Er sagt,
að hann hafi verið óhamingjusamur
þar. Fyrir um hálfum mánuði hljópst
hann að heiman og notaði sparifé
sitt til að komast aftur til Hollands.
Fékk hann inni hjá afa sínum og
ömmu en var svo talinn á að snúa
aftur heim. Var hann á leið þangað
þegar hann rændi flugvélinni.
Reuter
Það fór vel á með leiðtogum sex arabaríkja við Persaflóa er þeir
vígðu nýjar aðalstöðvar Samstarfsráðs Persaflóarikja í Riyadh höfuð-
borg Saudi-Arabíu í gær.
Leiðtogafundur arabaríkja við Persaflóa:
Reuter
Blóðgjöf á jólum
Jólasveinninn kemur jafnan færandi hendi og lætur ekki staðar
numið við gjafmildina þótt pokinn sé tómur. Þá leggst hann bara
upp á bekk og gefur úr sér blóð. Þannig var það að minnsta kosti
með Matt Rissinger, sem býr í Fíldelfíu í Bandaríkjunum, en hann
er jólasveinn í hjáverkum og einn ötulasti blóðgjafi Rauða krossins
þar í borg.
Samkomulag um að
auka varnarsamstarf
Riyadh, Reuter.
LEIÐTOGAR arabaríkja við Pers-
aflóa komust í gær að samkomu-
lagi um stóraukna öryggissam-
vinnu. Slíkt samkomulag hefur
verið í bígerð undanfarin fimm
ár og kveður á um sámstarf
Saudi-Arabíu, Kúwait, Oman, Qat-
ar, Bahrain og Sameinuðu
arabísku furstadæmanna.
Samstarfsráð Persaflóaríkja
(GCC) sem stutt hefur írak í Persa-
flóastríðinu hefur undanfarið orðið
fyrir árásum öfgamanna sem styðja
írana. Samkomulagið sem sex aðild-
arríki ráðsins gerðu með sér í gær
kveður einkum á um varnarsam-
starf. Svo virðist sem Kúwait hafi
fallist á atriði í samkomulaginu um
samstarf í baráttu við glæpamenn
sem ríkið hefur hingað til hafnað.
Óeirðir i Mekka og sprengjuárásir í
landinu undanfarið ár eru sagðar
hafa ýtt undir samningsvilja Kúwait-
manna.
Fundi ráðsins líkur í dag og er
búist við að í lokaályktun hans verði
lýst yfir stuðningi við ályktun Örygg-
isráðs Sameinuðu þjóðanna um
vopnahlé í Persaflóastríðinu. Einnig
er búist við að leiðtogarnir gagnrýni
írana fyrir meinta aðild þeirra að
óeirðunum í Mekka í júlí. Sameinuðu
arabáku furstadæmin og Oman hafa
reynt að draga úr gagnrýni á írana
og sagt að slíkt eitri einungis and-
rúmsloftið við Flóann. Forseti
Sameinuðu arabísku furstadæmanna
hefur hvatt til þess að ráðið sendi
samninganefnd til Teheran höfuð-
borgar írans til að leita sátta í
stríðinu milli írana og íraka.
rGEGN SIAÐGREIÐSLUn
FUIGLEIÐIR
Kaupum og seljum hlutabréf
Flugleiða gegn staðgreiðslu.
Kaupverð nú er kr. 2.430.-
fyrir hverjar 1.000,- kr.
nafnverðs.
HluLabréfamarkaóurinn hí.
Skólavörðustíg 12, 3.h.,
101 Reykjavík.
VJGAJÍ’ ölAUVlMiUðUJ
VÆRZIUNARBRNKIÍSLANDS HF
Kaupum og seljum hlutabréf
Verslunarbanka íslands
gegn staðgreiðslu. Kaupverð
nú er kr. 1.290,- fyrir
hverjar 1.000,- kr.
nafnverðs.
tllutabréfamarkaóurinn hf.
Skólavörðustíg 12, 3.h.,
101 Reykjavík.
rGEGN STAÐGREIÐSHJ-
EIMSKIP
Kaupum og seljum hlutabréf
Eimskips gegn staðgreiðslu.
Kaupverð nú er kr. 3.530,-
fyrir hverjar 1.000,- kr.
nafnverðs.
Í1lu(abréfamarkaé>unnn hf.
Skólavörðustíg 12, 3.h.,
101 Reykjavík.
TOLLVÖRU
GEYMSLAN
Kaupum og seljum hlutabréf
Tollvörugeymslunnar gegn
staðgreiðslu.
Kaupverð nú er kr. 1.000,-
fyrir hverjar 1.000,- kr.
nafnverðs
HluLabréfamarkaóunnn hf.
Skólavörðustíg 12, 3.h.,
101 Reykjavík.
VJLAJil JIrVlAJlMJLL/jLv
Ædmtnntít?
, TRYGGINGAR
Kaupum og seljum hlutabréf
Almennra trygginga gegn
staðgreiðslu. Kaupverð nú
er kr. 1.240.- fyrir hverjar
1.000,-kr. nafnverðs.
Hlulabréfamarkaóunnn hf.
Skólavörðustíg 12, 3.h.,
101 Reykjavík.
rGEGN MGREffiSLlH
HAMPIÐJAN
Kaupum og seljum hlutabréf
Hampiðjunnar gegn
staðgreiðslu. Kaupverð nú
er kr. 1.300.- fyrir hverjar
1.000,^ kr. nafnverðs.
LlluLabréfamarkaóurinn hf.
Skólavörðustíg 12, 3.h.,
101 Reykjavík.