Morgunblaðið - 29.12.1987, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1987
Sovétríkin:
Víða andstaða
við „glasnost“
Moskvu, Reuter.
HÁTTSETTUR embættismað-
ur í Kreml sagði fyrir helgina
að margir frammámenn innan
kommúnistaflokksins víðs veg-
ar um Sovétríkin væru á móti
umbótum og reyndu að hindra
opinskáa umræðu um vanda-
mál landsins.
„Það er ekki tímabært að segja
að „glasnost“ sé ástundað hvar
sem er,“ sagði Georgíj Raz-
umovskí ritari miðstjórnarinnar í
viðtali við dagblaðið Prövdu. Hann
sagði ennfremur að til væru þeir
flokksmenn sem sannfærðir væru
um að almenningur þyrfti ekki
að vita allt: „Þeir halda vegna
stöðu sinnar að í þeim einum safn-
ist saman viska og þekking.“
Orð Razumovskís koma í kjöl-
far vaxandi opinberrar umræðu
um það í Sovétríkjunum að up-
stokkun þjóðlífsins eigi við
ramman reip að draga. Búist er
við að á næsta flokksþingi í júní
eðajúlí verði „glasnost" markaður
nýr rammi og þeir embættismenn
látnir víkja sem staðið hafa um-
bótum í vegi.
Cö PIOINIEER
Harðir bardagar í Afganistan:
Stórsókn gegn frelsissveitum
nærri landamærum Pakistans
Islamabad, Peshawar, Reuter.
TALSMENN stjórnarhersins í
Afganistan segja að umsátur
skæruliða um landamærabæinn
Khost, sem staðið hefur í átta
ár, hafi verið brotið á bak aft-
ur. Tilkynning þessi hefur ekki
fengist staðfest og fréttir af
átökunum eru óljósar. Tals-
menn skæruliða í Pakistan
kveðast efast um að tilkynning
stjórnvalda í Kabúl eigi við rök
að styðjast og bera til baka
fullyrðingar um mikið mann-
fall í röðum skæruliða. Átta ár
eru nú liðin frá því að Sovét-
menn réðust inn í Afganistan.
Stjórnarherinn, sem nýtur
stuðnings sovéskra innrásar-
sveita, blés til stórsóknar gegn
skæruliðum í síðustu viku en þeir
hafa ráðið landsvæðinu umhverfis
Khost, sem er skammt frá landa-
mærum Pakistan, síðustu átta
árin. Talið er að 8.000 stjómar-
hermenn haldi til í Khost auk
þess sem þar er einnig að finna
sovéska hernaðarráðgjafa. Hefur
bærinn verið nefndur „Litla
Moskva" af þessum sökum.
Útvarpið í Kabúl, höfuðborg
Afganistan, skýrði frá því á
sunnudag að stjórnarherinn hefði
unnið sigur á skæruliðum og brot-
ið umsátur þeirra á bak aftur.
Þess var ekki getið hvernig staðið
hefði verið að þessum hernaðarað-
gerðum en þjóðinni var heitið því
að skýrt yrði nánar frá þeim síðar.
Sovéska fréttastofan Tass skýrði
hins vegar frá því að sveitir stjórn-
arhersins væru enn í níu kílómetra
fjarlægð frá Khost og hafði frétt-
ina eftir . aðstoðarutanríkisráð-
herra stjórnarinnar í Kabúl.
Talsmaður Sovétstjórnarinnar
sagði í Moskvu á Þorláksmessu
að 1.500 skæruliðar hefðu fallið
eða særst í bardögum í nágrenni
Khost. Skæruliðar sögðu þessa
tölu fráleita en talsmaður þeirra
í Pakistan viðurkenndi að sveitir
Sovétmanna og stjómvalda í Kab-
úl hefðu náð hluta landsvæðisins
umhverfis Khost á sitt vald. Tals-
maðurinn kvað 41 skæmliða hafa
fallið í bardögum í desember en
sagðist ekki geta sagt til um
mannfall í röðum stjórnarher-
manna en taldi fullvíst að það
væri mun meira en það sem frels-
issveitirnar hefðu orðið fyrir.
Talsmaðurinn skýrði einnig frá
því að skæruliðar hefðu skotið
niður fjórar þotur í eigu stjórnar-
hersins og grandað fjórum til
viðbótar á flugvellinum í Khost.
Til þess að komast að bænum
þarf stjórnarherinn að fara um
80 kílómetra leið í gegnum land-
svæði sem frelsissveitir Afgana
hafa haft á sínu valdi allt frá því
Sovétmenn réðust inn í Afganist-
an fyrir átta ámm. Landsvæði
þetta hentar einnig sérlega vel
fyrir skæmhernað. Sérfræðingar
hafa og bent á að stjórnarherinn
geti tæpast treyst á liðs- og
birgðaflutninga með flugvélum
þar sem skæmliðar ráði nú yfir
öflugum loftvamarflugskeytum.
Bardagarnir í nágrenni Khost
em hinir hörðustu í landinu frá
því í janúarmánuði er yfirvöld
hmndu af stað herferð til að koma
á „þjóðársátt". Skæmliðum var
veitt uppgjöf saka og útlögum
leyft að snúa heim auk þess sem
stjórnvöld lýstu yfir vopnahléi.
Viðbrögð við þessu hafa verið
dræm og viðurkenna stjórnvöld
til að mynda að einungis um
100.000 flóttamenn hafi snúið til
baka en talið er að um þrjár millj-
ónir manna hafi flúið landið yfir
til Pakistan. Skæmliðar hafa
hafnað „þjóðarsáttinni“ og heita
því að beijast allt þar til sovéska
innrásarliðið verður kallað heim.
Diego Cordovez, sendimaður
Sameinuðu þjóðanna, er væntan-
legur til Pakistan í næsta mánuði
og mun hann einnig eiga viðræður
við ráðamenn í Kabúl. Cordovez
hefur stýrt óformlegum viðræðum
milli stjórnvalda í Pakistan og
Afganistan frá árinu 1982 og er
búist við að þessi lota viðræðn-
anna muni einkum snúast um
hvernig standa beri að brottflutn-
ingi sovéska innrásarliðsins.
Bögglast þú við flók-
inn undirbúning þeg-
ar von er á vinum?
| Gerðu þér lífið létt og
gestunum gott með að
bjóða þeim girnilegt og
stökkt
mms
Bugles með maís- og
ostabragði; tilbúið beint
úr pakkanum í skálina.
Ljúffengt eitt sér eða með
ídýfu.
/ Bc
NACK
aJASTEUKF
BWACADOEN
WRSAOEAUUMINIO KNUSPRIG OURCH
PAHAMANTCNfflSU FRISCHHALTE-
FRESCURA PACKUNG
F0RPACKA0 I
AROMBEVARANDE
F0UE
SMAAKTALS íAB0RaM.A,Z *
GEROOSTERDE « " rOSTADO
Ð^OSr BEVARER
SPROHETEN F0LIEP0SE BEVARER
FRISKHEDEN
VERS D00R
VERPAKKING
IN F0LIE
FRAIS GRACE AU
SACHETEN
ALUMINIUM
S :'xy NACK0
i-i , '<■< > -
> - ; •-. - U ■- . v.-.
mmá
m
■