Morgunblaðið - 29.12.1987, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1987
35
Milljóna tjón í bruna á Tjörnum;
Fjórar kýr og fjög-
ur naut brunnu inni
Fiskeldi Eyjafjarðar hf.
TVÖ fjós, sem rúmuðu 24 kýr,
og mjólkurhús brunnu til kaldra
kola að Tjörnum í Saurbæjar-
hreppi á jólanótt. Fjórar kýr og
fjögur naut brunnu inni. Tjón
nemur milljónum króna, en talið
er að eldsupptök megi rekja til
rafmagnstöflu í eldra fjósinu
sem byggt var úr torfi og grjóti
fyrir meira en hundrað árum.
Eldurinn breiddist hratt út í nýrra
fjósið, sem var áfast hinu gamla,
og var byggt upp úr 1970. Þá náði
eldurinn að teygja sig fljótlega inn
í mjólkurhúsið, sem var aðeins um
þriggja ára gamalt og áfast nýrra
fjósinu. „Þetta er gríðarmikið tjón
þó ekki sé enn búið að meta það.
Mjaltavélar og tankar voru upp á
einar 300.000 krónur, auk húsanna
þriggja sem öll urðu eldinum að
bráð,“ sagði Hreinn Gunnarsson í
samtali við Morgunblaðið í gær, en
hann er bróðir Harðar Gunnarsson-
ar ábúanda á Tjörnum. Hreinn býr
á Halldórsstöðum, sem er næsti bær
við Tjarnir.
Hátt í 1.000 hestar af heyi voru
í hlöðu varð það allt ónýtt og járn
á þaki hlöðunnar skemmdist tölu-
vert. 260 kindur voru inni í fjárhúsi
þarna skammt frá og tókst að
bjarga þeim öllum. Ef ekki hefði
tekist að ráða niðurlögum eldsins
hefði hlaða og ijárhús einnig bi-unn-
ið þar sem þau hús lágu næst
mjólkurhúsinu, að sögn Hreins.
Eldsins varð fyrst vart um kl.
23.00 á aðfangadagskvöld. Þá var
strax hringt á slökkviliðið á Akur-
eyri og komu sex slökkviliðsmenn
að Tjörnum laust fyrir miðnætti og
börðust við eldinn langt fram eftir
nóttu. Auk slökkviliðsmanna voru
björgunarsveitarmenn úr Hjálpar-
sveitinni Dalbjörgu kallaðir á
vettvang.
Hreinn sagði að gífurlega mikið
vatn hefði þurft til að slökkva eld-
inn og hefði það verið tekið úr
Eyjafjarðará auk vatns úr lind
skammt frá bænum. Slökkviliðið
var með tvo bíla við Tjarnir, dælubíl
og vatnsbíl. Eftir að búið var að
ráða niðurlögum eldsins að mestu
kom aftur upp eldur í heyi í hlöðu
en fljótlega tókst að slökkva hann.
Tjarnir er innsti bærinn í Eyja-
firði, um 50 km leið frá Akureyri,
og er þetta í þriðja skiptið sem hús
brenna þar. íbúðarhús brann þar
árið 1945 og síðan aftur fimm árum
síðar, árið 1950. „Aðeins útveggir
voru sæmilega heilir eftir þá bruna
báða og var íbúðarhúsið endur-
byggt í bæði skiptin,“sagði Hreinn.
„I fyrra skiptið brann geysilega
myndarlegur gamall torfbær með
íbúðarhúsinu sem var áfast. í gamla
bænum var mikill og góður viður
sem fór allur.“ Gunnar Jóhannsson,
Litlu munaði að bifreiðin hafnaði í sjónum. Morgunbiaðið/GSV
Róleg jól á Akureyri
Akureyrarbær hefur ákveðið að tvöfalda hlut sinn í Fiskeldi Eyja-
fjarðar hf., úr einni milljón í tvær milljónir. Fyrirtækið hefur farið
fram á að hlutafé þess verði aukið um 50%, úr 9 milljónum króna í
13,5 milljónir. Með því vona forráðamenn bæjarins að aðrir stærstu
hluthafar í Fiskeldi Eyjafjarðar hf. fylgi í kjölfarið og auki hluti sína
ti! jafns við bæinn.
ÞRATT fyrir annir hjá lögregl-
unni i Reykjavík um helgina gátu
lögreglumenn á Akureyri státað
af fremur rólegri tíð yfir jólahá-
tíðina utan brunans að Tjörnum.
Nokkuð var um minniháttar
árekstra og ölvun eins og gengur,
en ekkert umfram það sem venja
er, að sögn Ingimars Skjóldal varð-
stjóra. Mikil - hálka er á vegum
norðanlands. Fólksbifreið valt rétt
við Ljósavatn í fyrrakvöld, en engin
meiðsl urðu á fólki í bílnum. Bifreið-
in var flutt mikið skemmd «f
slysstað með kranabíl.
Litlu munaði um miðjan dag á
annan í jólum um kl. 15.30 þegar
bifreið var nærri farin í sjóinn við
Torfunesbryggjuna. Ökumaður
missti vald á bifreiðinni á götuljós-
um Drottningabrautar og Kaup-
vangsstrætis er hann kom akandi
suður Drottningabraut. Bifreiðin
lenti upp á umferðareyju og eftir
nokkurt ferðalag var það bifreið,
ökumanni og farþegum til happs
að hafna á bryggjupolla við Torfu-
nesbryggju.
Akureyrarbær hefur ákveðið
að selja hlutabréf sín í Möl og
sandi hf. sem nema 0,9% af fyrir-
tækinu. Þetta var samþykkt á
hátíðarfundi atvinnumálanefndar
sem fram fór sl. föstudag.
Bærinn hefur aldrei tekið þátt í
hlutabréfaaukningu fyrirtækisins, en
seldi hlut sinn á sexföldu nafnverði.
Hlutabréfín voru skráð á 46.000
„Við höfum fulla trú á fyrirtækinu
og viljum tryggja að hægt sé að koma
atvinnustarfsemi upp á Hjalteyri. Það
skýtur ef til vill skökku við að Akur-
eyrarbær vilji treysta atvinnustarf-
semi í öðru hreppsfélagi, en bærinn
gerir sér fulla grein fyrir stöðu sinni
á meðal sveitarfélaganna í kring.
Líta þarf á Eyjafjarðarsvæðið í heild
sinni er verið er að fja.lla um málefni
þess í stað þess að líta á sveitarfélög-
in sem afmörkuð," sagði Þorleifur
Þór Jónsson atvinnumálafulltrúi Ak-
ureyrarbæjar í samtali við Morgun-
blaðið.
Auk Akureyrarbæjar eru stærstu
hluthafar í Fiskeldi Eyjafjarðar hf.
Byggðastofnun, Útgerðarfélag Akur-
eyringa og Iðnþróunarfélag Eyja-
fjarðar. Ekki hefur verið tekin
ákvörðun um hlutafjáraukningu í
stjómum þessara fyrirtækja, en búast
má við ákvörðunum hjá þeim varð-
andi þetta mál fyrir hluthafafund hjá
Fiskeldi Eyjaíjarðar hf. sem haldinn
verður í Grunnskólanum á Hjalteyri
þann 9. janúar nk. Ljóst er að smærri
hluthafamir hafa ekki bolmagn til
að auka hlutafé sitt enn frekar, en
krónur, en voru seld til fyrirtækisins
á 276.000 krónur. Þorleifur Þór Jóns-
son atvinnumálafulltrúi sagði í
samtali við Morgunblaðið að þetta
væri liður í þeirri stefnu bæjaryfir-
valda að selja hluti sína í þeim
fyrirtækjum sem væm orðin burðug,
en þess í stað fjárfesta í öðmm og
nýjum sem þyrftu hjálpar við í upp-
byggingu sinni.
rekja má þörfína á auknu hlutafé til
fjögurra þátta, að sögn Þorleifs. í
fyrsta lagi var farið út í að reisa
varanlega eldisstöð, en í upphaflegri
fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir
bráðabirgðaeldisstöð. I öðm lagi var
FJÓRTÁN tillögur bárust í hug-
myndasamkeppni Akureyrarbæj-
ar um hönnun Ráðhústorgs og
Skátagils. Frestur til að skila inn
tillögum rann út í lok nóvember
og að öllum likindum verða verð-
laun veitt i febrúarmánuði.
Finnur Birgisson, skipulagsstjóri
Akureyrarbæjar, sagði að dómnefnd-
in væri farin að fjalla um tillögurnar.
Dómnefndarmenn fá hinsvegar ekki
að vita hveijir höfundar tillagnanna
em fyrr en dómur er genginn. Þá
verða umslög opnuð og nafnleynd
rofín. Verðlaunafé nemur samtals
900.000 krónum.
Hlé verður á dómnefndarstörfum
þar til seinni hluta janúarmánaðar
þar sem einn dómnefndarmanna er
í fríi. Finnur sagði að óvíst væri
hvenær framkvæmdir gætu hafíst í
miðbænum. Þær væm háðar fjárveit-
ingum bæjarstjómar, en ef vilji væri
til í bæjarstjóm væri örugglega hægt
að hefjast handa á næsta ári. Verk-
efninu verður að öllum líkindum skipt
í þijá hluta, í fyrsta íagi Ráðhústorg-
ið sjálft, neðri hluti Skátagils og efri
hluti þess, sem er hreinræktað úti-
bygging aðstöðunnar á Hjalteyri dýr-
ari en menn óraði fyrir, m.a. vegna
mikillar þenslu á svæðinu. I þriðja
lagi hafa allar almennar verðhækkan-
ir farið fram úr því sem góðu hófí
gegnir og í fjórða lagi hafa engir
opinberir styrkir fengist í verkefnið,
að sögn Þorleifs, en fastlega var gert
ráð fyrir þeim í upphafi rekstursins,
til dæmis frá Byggðastofnun,
Vísindasjóði, Rannsóknaráði, Haf-
rannsóknastofnun eða öðmm slíkum.
vistarsvæði. Búast má við því að
framkvæmdir dreifíst á nokkur ár.
Með nýju skipulagi Ráðhústorgs
verður hringakstur um torgið úr sög-
unni og þar með Akureyrar-„
rúnturinn", sem komst í fréttimar
fyrir skömmu þegar rúntinum var
lokað með hliði á nætuma samkvæmt
ákvörðun bæjarstjómar. Tillögumar
byggjast allar á því að akstur um
torgið hverfí enda var það ein af
meginforsendum fyrir hugmynda-
samkeppninni. Reyndar var sú
forsenda ákveðin með miðbæjar-
skipulagi, sem samþykkt var árið
1981 þegar ákveðið var að takmarka
umferð farartækja um miðbæinn.
Dómnefndarmenn eru mjög
ánægðir með útkomuna í samkeppn-
inni, að minnsta kosti við fyrstu sýn,
að sögn Finns. í dómnefnd sitja auk
Finns, Tómas Ingi OÍrich, formaður
Skógræktarfélags Eyjafjarðar, og
Ámi Steinar Jóhannsson, garðyrkju-
stjóri, tilnefndir af Akureyrarbæ. Af
Arkitektafélagi íslands eru þau
Sigríður Sigþórsdóttir, Reykjavík, og
Bjöm Kristleifsson, Egilsstöðum,
skipuð.
Bærinn selur hlut sinn
í Möl og sandi hf.
Hönnun Ráðhústorgs og Skátagils:
Fjórtán tillögur
bárust í samkeppni
faðir þeirra Hreins og Harðar, bjó
ásamt fjölskyldu sinni á jörðinni
þegar íbúðarhúsin brunnu. Talið var
þá að kviknað hefði í út frá skor-
steini.
Heila húsið er hlaðan á Tjörnum. Við hliðina eru fjósin tvö sem
brunnu, eins og sjá má, og hinum megin við hlöðuna má greina fjár-
hús, þaðan sem tókst að bjarga 260 kindum.
Aðeins útveggir fjósanna voru uppistandandi eftir að tekist hafði að ráða niðurlögum eldsins.
Akureyrarbær:
Tvöfaldar hlut sinn í