Morgunblaðið - 29.12.1987, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1987
Borgarbúar skemmta sér:
Meira en hundrað útköll hjá
lögreglu aðfaramótt sunnudags
LÖGREGLAN í Reykjavík átti
mjög annríkt að kvöldi annars
dags jóla og sinnti á annað
hundrað útköllum. Gífurleg
ölvun var í borginni og víða
skarst í odda með mönnum,
bæði í heimahúsum og á al-
mannafæri. Lögreglan hafði
sama viðbúnað og venjulegar
helgar, eftirlitsbílar voru
tveimur fleiri en virka daga
og gangandi menn voru á
aukavakt í miðborginni. „Sem
betur fer réðum við allt sem
upp á kom,“ sagði Jónas J.
Hallsson, sem var vakthafandi
aðalvarðstjóri þessa nótt, „em
það mátti ekki meira vera þvi
við fengum mörg erfið og
tímafrek verkefni.
„Fólk var óvenju illskeytt og
erfítt viðureignar," sagði Jónas.
„Til dæmis ærðist maður á veit-
ingahúsi, réðist að bláókunnugu
fólki, veitti því áverka og
skemmdi fyrir því fatnað. Fyrir
utan annað veitingahús slógust
tveir menn harkalega, annar
nefbrotnaði en hinn fékk bitsár
á læri. Við Casablanca á Skúla-
götu kom til fjöldaslagsmála og
þurfti að færa 6 áflogaseggi á
lögreglustöðina. Ekið var á tvo
gangandi vegfarendur í borginni
en um alvarleg meiðsli var ekki
að ræða. Ölvaðir ökumenn og
réttindalausir voru staðnir að
verki. Svona mætti áfram telja.
Unglingur ógnaði jafnaldra
sínum með hnífi og í ljós kom
að hann átti safn af alls konar
hnífum sem við lögðum hald á.
Einnig var starfsmaður veitinga-
húss í borginni staðinn að því
að bera smyglað áfengi inn í
veitingahúsið. Fólk varð fyrir
ýmis konar ónæði vegna ölvun-
Morgunblaðið/Júlíus
Jónas J. Hallsson aðalvarð-
stjóri.
arláta í í flestum hverfum
borgarinnar og fangageymslurn-
ar yfirfylltust eins og undanfarn-
ar helgar. Flytja þurfti konu með
bam í Kvennaathvarfið vegna
heimilisaðstæðna og þá er fátt
eitt talið af verkefnunum sem
við fengum þessa næturvakt,"
sagði-Jónas J. Hann kvaðst enga
skýringu kunna á því hvers
vegna Reykvíkingar „skemmtu
ser“ með þessum hætti en sagði
að undanfamar helgar hefðu
verið hver annarri erfiðari, ölv-
unarlæti og róstur virtust sífellt
færast í vöxt.
Klukkan Staður Verkefni Afgreiðsla
0330 Suðurlandsbraut/Vegmúli Umf.slys R-x/á stúlku Sjúkralið, slysadeild
0330 Borgartún v/Evrópu Arekstur
0340 Shell, Laugavegi Rúðubrot Securitas
0344 Casablanca úti Hópslagsmál Sex í fangamóttöku
0354 Hollywood Slagsmál úti Afstaðið
0355 Lindargata/Vitastígur Réttindaleysi ökum. G-x Aðalstöð
0402 Laugavegur X Skemmdir á bifr. G-x Skýrsla
0404 Sundlaugar! Laugardal Maður áð angrá konu Fólk fært á aðalstöð
0407 Háaleitisbraut v/BP Ölvun, slagsmál Ekkert fannst
0408 Austurberg X Ölvun, heimilisófriður Manni ekið að X-vegi
0407 Vesturlandsvegur v/Elliðaár Rauðbrún Daihatsu veltur Fór af vettvangi
0408 Lækjargata v/Skalla Ölvun-slagsmál Einn á slysadeild í lögr.bifr.
0415 JL Hringbraut Leigubifr.stj. biðurum aðstoð Varfarinn
0419 Breiðholtsskóli Rúðubrot, ytra byrði Fjórir piltar að verki handteknir
0420 Knnglumýrarbraut/Borgartún Ölvun, slagsmál Einn á slysadeild í lögreglubifr.
0430 X-fell Ölvun og hávaði Ekki á rökúm reist
0430 X-fell Konu og bami ekið í Kvennaathvarf Aðstoð
0436 Grettisgata X Ölvun, slagsmál Femt f móttöku, ekki lögreglumál
0439 Skúlagata v/Hörpu Ölvun, slagsmál Tveir í geymslu
0445 Hverfisgata X Innbrot og fíkniefnamál Þrennt í geymslu
0452 Tilkynning Lýst eftir manni á bifr. R-x Fór að heiman í bræði
0505 Týsgata Meintölv. ökum. Y-x Aðalstöð
Útköll lögreglunnar í Reykjavík frá klukkan 3.30- 5.05 aðfararnótt sunnudagsins.
Flugleiðir:
Nokkrir farþegar
veðurtepptir yfir jólin
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Rafmagnsstaurar lágu brotnir á löngum kafla undir Ingólfsfjalli.
FLUG innanlands gekk nokkuð
misjafnlega yfir hátíðarnar. Að
sögn Andra Hrólfssonar stöðv-
arstjóra innanlandsdeildar
Flugleiða varð að aflýsa nokkr-
um ferðum fyrir jólin og urðu
nokkrir farþegar, aðallega þeir
sem ætluðii til Vestfjarða, að
dvelja fjarri heimilum sínum á
jólunum af þeim sökum.
Á Þorláksmessu féllu niður
þijár ferðir Flugleiða til Vest-
Rafmagnslaust í Olfusi og
Flóa á aðfangadagskvöld
RAFMAGNSLAUST varð um
stundarsakir á nokkrum bæjum
í Ölfusi og í Flóa á aðfangadags-
kvöld. Orsök þessa var sú að
rafmangsstaurar brotnuðu und-
an þunga rafmagnslína og
vegna hvassviðris.
I Ölfusi brotnuðu tíu staurar en
þar hafði mikil ísing safnast á
rafmagnslínuna sem er mjög þung
Evrópumót í skák 16 ára og yngri:
Þröstur vann 2
fyrstu skákirnar
ÞRÖSTUR Árnason hefur unnið
tvær fyrstu skákir sínar á Evr-
ópumóti unglinga 16 ára og
yngri, sem nú er haldið í útborg
Stokkhólms í Svíþjóð. Guðfríður
Lilja Grétarsdóttir, sem teflir í
kvennaflokki, tapaði fyrstu skák
sinni en vann þá næstu.
Þröstur vann Belgann Le Quang
Kin í fyrstu umferð og Kari Rinne
frá Svfþjóð í annari umferð. Guð-
fríður Lilja tapaði fyrir sænskri
stúlku í fyrstu umferð en vann
Katrin Jahnke frá Þýskaiandi í 2.
umferð.
Eftir tvær umferðir voru Þröst-
ur, Hjelm frá Svíþjóð og Markovic
frá Júgóslavíu efstir með 2 vinn-
inga. í humátt á eftir fylgir
Frakkinn De Grave með U/2 vinn-
ing.
18 þátttakendur eru í drengja-
flokki og 12 í stúlknaflokki. Tefldar
eru 9 umferðir eftir monradkerfi í
báðum flokkum og er þriðja umferð
tefld í dag.
fyrir, var byggð árið 1947 og er
með þúngum vír. Staurarnir sem
féllu eru undir Ingólfsfjalli vestan-
verðu en þar var mjög hvasst og
sviptivindasamt þennan dag. I
Flóa brotnuðu þrír staurar vegna
ísingar á línum.
Rafmagnslaust varð á þessu
svæði um tíma á aðfangadags-
kvöld. Starfsmönnum Rafmagn-
sveitna ríkisins tókst að koma
rafmagni á velflesta bæi um kvöld-
ið og unnu þeir að viðgerðum alla
jólanóttina. Ráðgert er að styrkja
raflínuna undir Ingólfsfjalli sérs-
taklega með tilliti til þess hversu
þung línan er þar og sviptivinda
sem þar geta komið.
— Sig. Jóns.
©
INNLENT
mannaeyja og ein til Patreksfjarð-
ar vegna veðurs. Á aðfangadag
féll einnig niður ferð vélar sem
átti að fara til Patreksfjarðar og
Þingeyrar. Auk þess féll niður flug
til Isaíjarðar og Hornafjarðar, en
flogið var til Vestmannaeyja
síðdegis á aðfangadag. Voru fáir
farþegar með í þeirri ferð, en flest-
ir sem ætluðu til Vestmannaeyja
fóru með Herjólfi fyrr um daginn.
Flugleiðir fluttu um 200 far-
þega á aðfangadag og sagði Andri
að ýfirleitt væru fáir farþegar
þennan dag. Fólk kysi heldur að
komast á milli á Þorláksmessu,
ef það ætti þess kost, en að treysta
á færð á aðfangadag.
Illa hefur gengið að fljúga til
Eyja því á laugardaginn, annan
dag jóla, féll niður ein ferð til
Vestmannaeyja og á sunnudaginn
tvær ferðir. I gær var flogið til
Akureyrar qg Egilsstaða og í gær-
kvöldi átti að athuga með flug til
Húsavíkur og Akureyrar. Öðru
flugi var aflýst vegna veðurs.
Mikið er um bókanir hjá Flug-
leiðum um áramót og hefur
mörgum aukaferðum verið bætt
við til áætlunarstaða Flugleiða.
Tónleikar
í Duus
I kvöld verða tónleikar fjög-
urra hljómsveita í veitingahúsinu
Duus í Fischerssundi. Hljóm-
sveitirnar verða Aðfall, Blátt
áfram og Bleiku bastarnir.
Bleiku bastarnir hafa nýverið
sent frá sér sína fyrstu hljómplötu
og eru tónleikarnir ætlaðir til að
kynna þá hljómplötu meðal annars.
Hinar hljómsveitirnar hafa öllu
minna látið í sér heyra.
Rafmagnslaust á að-
fangadag í Reykjavík
RAFMAGNSLAUST varð í um
500 ibúðum í Reykjavík, þegar
kviknaði i spennistöð við Furu-
mel kl. 17:30 á aðfangadag og
kom rafmagn þar ekki á aftur
fyrr en klukkan hálf tvö að-
fararnótt jóladags.
Að sögn Aðalsteins Guðjohnsens
rafmagnsstjóra, fór rafmagnið af í
nærliggjandi götum við spennistöð-
ina og einnig í tveimur götum í
Þingholtunum en þar komst það á
aftur eftir nokkrar mínútur. Talið
er að neisti úr rafstreng hafi kom-
ist í olíu og valdið brunanum og
er það mjög óvenjulegt að sögn
Aðalsteins. „Spennistöðin hreinlega
fuðraði upp,“ sagði hann.
Rafmagn fór einnig af um tíma
á einum stað í Kópavogi og á Selt-
jarnarnesi yfrir hátíðarnar.
Þá hefur bilun í stjórnstöð götu-
ljósa í Reykjavík valdið truflunum
á götulýsingu í austurhluta borgar-
innar en sú bilun er ekki talin
alvarleg að sögn Aðalsteins.
Húsaleiga
hækkar um 9%
SAMKVÆMT ákvæðum í lögum
nr." 62/1984 hækkar leiga fyrir
íbúðarhúsnæði og atvinnuhús-
næði, sem lögin taka til, um 9,0%
frá og með janúarbyijun 1988.
Hækkun þessi reiknast á þá
leigu, sem er í desember 1987. Jan-
úarleigan helst óbreytt næstu tvo
mánuði, það er í febrúar og mars,
segir í fréttatilkynningu frá Hag-
stofu íslands.