Morgunblaðið - 29.12.1987, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1987
37
Alþingi hækkaði heiðurslaun listamanna:
Ekki fjölgað í
heiðurslaimaflokki
ALÞINGI samþykkti samhljóða
á fundi sameinaðs þings i gær
breytingartillögu við fjárlaga-
frumvarpið frá menntamála-
nefnd um hækkun á heiðurs-
launum listamanna, úr 6,9
milljónum króna í 7,5 milljónir.
Fimmtán listamenn eru í heið-
urslaunaflokki og fær hver
þeirra 500 þúsund krónur í
heiðurslaun. Við afgreiðslu
fjárlaga þessa árs var 16 lista-
mönnum úthlutað heiðurslaun-
um en einn þeirra, Snorri
Hjartarson, lést i lok síðasta
árs.
Listamennirnir, sem njóta heið-
urslauna, eru Ámi Kristjánsson,
Finnur Jónsson, Guðmundur
Daní-
elsson, Halldór Laxness, Hannes
Pétursson, Indriði G. Þorsteins-
son, Jóhann Briem, Jón Nordal,
Jón úr Vör, María Markan, Matt-
hías Johannessen, Ólafur Jóhann
Sigurðsson, Stefán Íslandi, Sva-
var Guðnason og Valur Gíslason.
Á síðustu fjálögum voru heið-
urslaun alls 5,280 milljónir króna
og hafa hækkað um 40% milli
ára. Skiptust launin þá milli 16
manna og fékk hver 330 þúsund
í sinn hlut.
Þórhildur Þorleifsdóttir, form-
aður þingflokks Kvennalistans,
gerði grein fyrir atkvæði sínu og
sagði að þrátt fyrir að heiðurslaun
listamanna ættu að vera hafín
yfir allan flokkadrátt þá væri
þessi listi þannig að Kvennalistinn
gæti ekki sætt sig við hann. Hlut-
ur kvenna væri að þeirra mati
fyrir borð borinn. Þær greiddu þó
atkvæði með þessari breytingart-
illögu í trausti þess að á næsta
ári yrði ráðin bót á hlut kvenna.
Grænmetisverslun ríkisins
6 imlljónir í hönnunarkostn-
að vegna nýs þinghúss
Breytingartillaga um
sölu dregin til baka
HLÉ þurfti að gera á atkvæða-
greiðslu við þriðju umræðu
fjárlaga í gær þar sem ákveðin
sldlyrði er vera áttu í breyting-
artillögu um leyfi til að selja
eignir Grænmetisverslunar land-
búnaðarins höfðu fallið niður.
Ákvað fjárveitinganefnd áð
draga tillöguna til baka af þess-
um sökum.
Sighvatur Björgvinsson, formað-
ur fjái-veitinganefndar sagði að í
tillögu um að leyft yrði að selja
fasteignir Grænmetisverslunar
landbúnaðarins að Síðumúla 34 og
jarðhús í Ártúnsbrekku hefðu
ákveðin skilyrði fallið niður. Þar
sem ekki væri hægt að leggja fram
breytingartillögu við þennan lið
frumvarpsins hefði fjárveitinga-
nefnd ákveðið að draga tillöguna
til baka. Frumvarp um þetta efni
yrði þó lagt fram við fyrsta hentug-
leika.
Ólafur Þ. Þórðarson (F/Vf) sagði
að í frumvarpinu væri einnig liður
er heimilaði sölu á grænfóðursverk-
smiðju í Flatey. Þessi verksmiðja
væri þegar seld og þyrfti því að
leiðrétta þessi mistök.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson,
forseti sameinaðs þings, sagði að
liður sá er Ólafur Þ. hefði vakið
athygli á væri ekki til afgreiðslu á
þessum fundi og því ekki hægt að
gera neina breytingu þar á.
TILLAGA um sex mUljóna króna
framlag vegna hönnunarkostn-
aðar við nýtt þinghús var
samþykkt við afgreiðslu fjárlaga
í sameinuðu þingi í gær. 36 þing-
menn greiddu atkvæði með
tillögunni, 12 á móti, 10 sátu hjá
en 5 voru fjarstaddir.
Þeir þingmenn sem greiddu at-
kvæði á móti tiilögunni voru þau
Danfríður Skarphéðinsdóttir (Kvl/
VI), Geir Gunnarsson (Abl/Rn),
Guðmundur H. Garðarsson (S/
Rvk), Guðrún Agnarsdóttir (Kvl/
Rvk), Halldór Blöndal (S/Ne),
Hjörleifur Guttormsson (Ábl/Al),
Hreggviður Jónsson (B/Rn), Ingi
Bjöm Albertsson (B/Vl), Kristín
Halldórsdóttir (Kvl/Rn), Margrét
Frímannsdóttir (Abl/Sl), Svavar
Gestsson (Abl/Rvk) og Þórhildur
Þorleifsdóttir.
Nokkrir þingmenn gerðu grein
fyrir atkvæði sínu. Kristín Halldórs-
dóttir sagðist vera andvíg því að
þetta hús yrði reist á þeim stað sem
því væri ætlað. Unnt væri og æski-
legt að leysa húsnæðisvanda
Alþingis á annan hátt. Halldór
Blöndal sagði þessa fyrirhuguðu
byggingu falla illa inn í umhverfið
og vera „hátimbraða". Sighvatur
Björgvinsson sagði að hér væri ein-
FJARLÖGIN voru samþykkt í
sameinuðu þingi í gær. Allar þær
breýtingartillögur sem stjórnar-
flokkamir báru upp við þriðju
umræðu voru þá samþykktar en
allar tillögur stjómarandstöð-
unnar feUdar.
Þegar frumvarpið var borið upp
til atkvæða sátu allir þingmenn
stjómarandstöðunnar hjá að einum
undapskildum, Albert Guðmunds-
ungis um að ræða fjárveitingu til
að hægt væri að ljúka hönnun svo
skipulagsyfírvöld borgarinnar gætu
gert grein fyrir því hvort þau féll-
ust á að þessi bygging myndi rísa
þama. Síðan gæti Alþingi tekið
afstöðu til málsins. Hann greiddi
því atkvæði með þessari tillögu.
syni, en hann greiddi atkvæði gegn
frumvarpinu. Albert gerði grein
fyrir atkvæði sínu og sagði að
stjómin hefði fallið frá því mark-
miði að slétta út halla ríkissjóðs á
þremur ámm og hefði ákveðið að
gera það á einu ári í staðinn. Hall-
inn myndi nú lenda á heimilunum
og atvinnufyrirtækjum sem ekki
mættu við meiri álögum.
Fjárlög samþykkt
Siglufjörður:
Oku út í sjó en sluppu ómeiddir
Siflufirði.
HVlT jól voru á Siglufirði og var
rólegt í bænum yfir hátíðina.
Færð var góð á vegum og komu
tveir bUar yfir Lágheiði á sunnu-
daginn frá Ólafsfirði. Er það i
fyrsta sinn sem sú leið er fær um
þetta leyti árs.
Betur fór en á horfðist á jóladag
þegar nokkrir ungir menn voru að
leika sér á bílum á flugvellinum.
Náði ökumaður eins bílsins ekki að
stöðva og ók fram af flugvallarend-
anum. Bíllinn hafnaði úti í sjó 4—5
metrum neðar. Sem betur- fer heml-
aði ökumaðurinn ekki því ef hann
hefði gert það er hætt við að bfllinn
hefði hafnað í stórgrýti í fjörunni.
Þrír menn voru í bflnum og gengu
þeir út úr honum eftir óhappið alveg
ómeiddir. Bíllinn virðist vera lítið
skemmdur og var mikið lán að ekki
fór verr.
Vonskuveður var á Siglufirði á
mánudag og komust menn varla út
úr húsum.
Siglfirðingur kom hingað fyrir jól-
in með 180 til 190 tonn upp úr sjó.
Togaramir Stálvík, Sigluvík og
Stapavík voru í landi yfir jólin en
fóru út eftir miðnætti á annan dag
jóla. Þeir eru væntanlegir aftur á
gamlársdag. Svanurinn er hér og er
að lesta loðnumjöi. Matthías
Smárahvammsland:
Frestur til forkaups-
réttar framlengdur
SAMBAND fslenskra samvinnu-
félaga hefur veitt bæjarstjórn
Kópavogs frest fram tíl 15. febr-
úar, til að ákveða hvort bærinn
nýtir sér forkaupsrétt að
Smárahvammslandi. Að sögn
Guðjóns B. Ólafssonar forstjóra,
hafa frumhugmyndir að nýt-
ingu landsins verið kynntar
bæjaryfirvöldum og sagði hann
að forsendur hefðu ekki breyst
frá þvf sem var, þegar kauptil-
boðið var gert, þrátt fyrir
ákvörðun um fyrirhugaða skrif-
stofubyggingu á Kirkjusandi.
Guðjón taldi að bæjaryfirvöld
hefðu upphaflega búist við að Sam-
bandið mundi reisa nýjar skrifstof-
ur f Smárahvammslandi en um það
hefur aldrei neitt ákveðið komið
fram frá hendi Sambandsins.
„Þegar við fórum fram á að kaupa
landið var ekki ljóst hvar skrifstof-
ur okkar yrðu staðsettar. Það kom
síðar í ljós,“ sagði Guðjón. í frum-
hugmyndunum er gert ráð fyrir
að þama rísi hús fyrir verslunar-
og þjónustustarfsemi auk annarra
möguleika sem eru í athugun.
„Þetta er það stórt land að Sam-
bandið mun ekki geta nýtt það
allt nema á mjög löngum tíma og
þess vegna var þegar í upphafí
haft í huga að hugsanlega gætu
aðrir aðilar nýtt hluta af landinu,“
sagði Guðjón. Landið allt er um
30 hektarar og þar af eru um 20
hektarar byggingarland.
Kristján Guðmundsson bæjar-
stjóri sagði að hugmyndir Sam-
bandsins að landnýtingu í
Smárahvammslandi væru ekki full
mótaðar og að þær hefðu valdið
nokkrum vonbrigðum. „Það er ekki
óhugsandi að bæjarfélagið taki
forkaupsréttinn því margir aðilar
hafa lýst yfir áhuga á þessu landi,
en okkur fínnst ekki gerlegt að
taka afstöðu miðað við þær upplýs-
ingar sem við höfum nú,“ sagði
Kristján.
Morgunblaöið/Siguröur Jónsson
Fólksflutningabifreiðinni bakkað upp á Suðurlandsveg síðdegis á
aðfangadag.
Stór rúta fauk út
af Suðurlandsvegi
Selfossi.
Áætlunarbifreið með 40 far-
þega fór útaf Suðurlandsvegi
skammt vestan IngólfsfjaUs
siðdegis á aðfangadag jóla. Bif-
reiðin lenti i snörpum vindsveip
og ökumanninum tókst að sveigja
útaf veginum og forða frekara
óhappi.
Á aðfangadag var mjög hvasst og
hált á veginum undir Ingólfsfjalli og
sterkur vindstrengur með flallinu
vestanverðu. Fólksflutningabifreiðin,
sú stærsta í bflaflota Sérleyfisbíla
Selfoss, var í áætjunarferð frá
Reykjavík þegar ()happið varð.
Bflstjórinn stýrði bílnum skáhallt
útaf og stöðvaði hann í móa spöl frá
veginum. Nokkrum minútum sfðar
var annar bfll frú Sérleyfisbílum Sel-
foss kominn á vettvang og tók hann
farþegana og flutti áfram. Ekki er
vitað til að neinum hafí orðið meint
af þessu óhappi.
— Sig. Jóns.