Morgunblaðið - 29.12.1987, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1987
Björgvin með góða gesti
Hljómplötur
Sveinn Guðjónsson
ý ÚTGÁFA á svonefndum jólaplöt-
um hefur verið fastur liður í
hljómplötuiðnaðinum á undanf-
örnum árum, þótt mönnum hafi
verið mislagðar hendur í þeim
efnum eins og gengur. Oft hefur
býsna vel tekist til og besta dæm-
ið sem ég man eftir í þessum
efnum er jólaplata hljómsveitar-
innar Hljóma, „Gleðileg jól“, sem
út kom á síðasta áratug og mun
enn vera í sölu, eftir því sem
mér er tjáð. Björgvin Halldórs-
son var í einu af aðalhlutverkun-
um á þeirri plötu og hefur raunar
komið við sögu á mörgum jóla-
plötum, sem síðan hafa komið
út. Og enn er Björgvin á ferð
með jólaplötu, sem ber heitið
„Jólagestir", þar sem hann tekur
á móti ýmsum þekktum söngvur-
um og þykir mér vel hafa tekist
til með valið á gestunum að þessu
sinni.
Björgvin fer nýjar leiðir á þess-
ari plötu og í stað þess að endurflyja
eldri jólalög, hefur hann látið gera
nýja jólatexta við lög úr ýmsum
áttum og hafa fæst þeirra áður
verið færð í jólabúning. Undantekn-
ing á því er þó lagið „Einmana um
jólin“, sem Björgvin syngur ásamt
Bjama Arasyni, en þar er á ferð-
inni gamla jólalagið „Blue Christm-
as“, sem Presley-aðdáendur hafa
gjaman sett á fóninn á Þorláks-
messukvöld á meðan þeir em að
skreyta jólatréð. Sumum þeirra
kann því að þykja það ósvífni af
þeim Bjarna og Björgvin að herma
með þessum hætti eftir goðinu, en
þó er bót í máli að þeir gera það
svo vel að engu er líkara en Elvis
sálugi hafi risið upp úr gröf sinni
til að syngja lagið á íslensku. Til
gamans skal það upplýst hér að það
er Bjami sem syngur fýrsta erind-
ið, Björgvin annað og Bjarni hið
þriðja, en margir hafa átt erfitt að
greina þar á milli og hafa sumir
staðið í þeirri trú að Bjami einn
eigi heiðurinn af söngnum. Þetta
sýnir bara að það geta fleiri náð
Elvis en Bjarni Arason.
Björgvin Halldórsson.
Annað gamalt jólalag sem er að
fínna á þessari plötu er sálmurinn
„Hin helga nótt“ í ágætum flutn-
ingi Egils Ólafssonar, Fóstbræðra
og Sönghóps Söngskólans. Önnur
lög á plötunni hafa ekki áður verið
færð í jólabúning svo að ég viti, en
em samt flest þess eðlis að þau
venjast vel sem slík. Gestir Björg-
vins á plötunni em, auk þeirra sem
áður em nefndir, Eiríkur Hauksson,
Ellý Vilhjálms, Eyjólfur Kristjáns-
son, Ema Gunnarsdóttir, Halla
Margrét Ámadóttir, Helga Möller,
Jóhann Helgason, Pálmi Gunnars-
son og Kór Öldutúnsskólans auk
þess sem Björgvin syngur þama
eitt lag með Svölu dóttur sinni, sem
hefur fengið góðar viðtökur á vin-
sældarlistum. Ég sé annars ekki
ástæðu til að gera hér upp á milli
þessara ágætu gesta enda standa
þeir sig allir með prýði og í heild
er þetta vel heppnuð jólaplata.
Ef þig langar að gefa óvenjulega gjöf sem gleður augað
þá er ársmappa Pósts og síma með frímerkjum ársins 1987
einmitt slík gjöf. Hún er einnig kjörin sem gjöf til vina og
kunningja erlendis, því hún er á sinn hátt smámynd
af Islandi sem gaman er að eiga og safna.
Verð möppunnar er 590 kr. Mundu eftir ársmöppunni
næst þegar þig vantar eitthvað eigulegt til að gefa.
Hagkvæm-
ustu sauð-
fjárrækt-
arhéruðin
úr leik
DEILDARSTJÓRAR Sláturfélags
Suðurlands mótmæla harðlega mis-
munandi skerðingu á fullvirðisrétti
sauðfjárafurða verðlagsárið
1988—89. í ályktun sem samþykkt
var á fundi þeirra á Hvolsvelli fyr-
ir skömmu segir að með þessu sé
hallað á mikilvæg sauðfjárræktar-
svæði á starfssvæði félagsins.
Einnig kemur fram sú skoðun að
aðgerðir þessar miði einungis að
þvi að draga í heild úr neyslu kinda-
kjöts í landinu þar sem hér myndu
hagkvæmustu og samkeppnishæf-
ustu sauðfjárræktarhéruðin í
landinu dæmd úr leik.
í ályktuninni kemur einnig fram:
„Fundurinn bendir á að með þessum
aðgerðum er verið að vinna að því að
leggja niður að verulegu leyti sauð-
fjárrækt á Suðurlandi og á engan
hátt tekið tillit til þess, að góðar sauð-
fjársveitir eru á þessu svæði, þar sem
bændur starfa alfarið að sauðfjárrækt
og eiga ekki annarra kosta völ. Bent
skal á, að flokkun bænda eftir sýslum
í álitsgerð starfshóps um sauðfjárrækt
fýlgja fyrirvarar, sem ekkert tillit er
tekið til í skerðingaraðgerðum.
Þá bendir fundurinn á, að árang-
ursríkt starf hefur verið unnið við
uppbyggingu vinnslustöðva á svæði
Sláturfélags Suðurlands, þar sem öll
sláturhús þess á Suðurlandi eru nú
löggilt af heilbrigðisyfirvöldum. Mark-
aðsstaða félagsins hefur verið það
traust, að það hefur nú um nokkurt
skeið selt milli ára. Telja má, að þar
um ráði einnig smekkur neytenda, sem
vilja sunnlenskt kindakjöt öðru frem-
ur.“
Á fundi deildarstjóranna var einnig
samþykkt ályktun þar sem skorað er
á ríkisstjómina og sérstaklega fjár-
málaráðherra að falla frá fyrirhuguð-
um söluskatti á landbúnaðarvörur.
Þá var það harmað að annað árið
í röð skuli sláturleyfishöfum ekki vera
unnt að gera upp við sauðfjárbændur
á réttum tíma. „Fundurinn gerir þá
kröfu til stjómvalda, að þau hlutist
til um að útvega sláturleyfishöfum það
fé sem nauðsynlegt er til þess að inna
þessa greiðslu af hendi nú þegar ásamt
fullum 'dráttarvöxtum til greiðslu-
dags.“
.Miele.
Heimilistœki
annað er mála-
miðlun.
JÓHANN ÓLAFSSON & C0
• 43 SuncMborg - 104 Roykjavík - Slml 888588 I