Morgunblaðið - 29.12.1987, Síða 46
AUK hl. 99.S/SIA
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1987
Minning:
Guðrún H. Stein-
grímsdóttir
Fædd 13. febrúar 1981
Dáin 15. desember 1987
b'
Guðrún Hansína Steingrímsdótt-
ir var fædd 13. febrúar 1891, dáin
15. desember 1987.
Foreldrar hennar voru hjónin
Guðrún Einarsdóttir og Steingrímur
Steingrímsson, bóndi í Stóra-
Nýjabæ í Krísuvík.
Hún giftist Magnúsi Bjama Há-
konarsyni frá Nýlendu, Miðnesi, 2.
júní 1916.
Magnús lést árið 1964.
Böm þeirra: Steinunn Guðný,
gift Skúla K. Halldórssyni, tón-
skáldi; Ólafur Hákon, bóndi,
Nýlendu, kvæntur Svölu Sigurðard-
óttur; Björg Magnea, látin, var gift
Ólafi Guðmundssyni, birgðaverði,
sem einnig er látinn; Einar Marinó,
jámsmiður, kvæntur Helgu Aðal-
steinsdóttur; Gunnar Reynir,
endurskoðandi, kvæntur Sigur-
laugu Zophoníasdóttur; Hólmfríður
Bára, gift Brynjari Péturssyni,
verkstjóra; Tómasína Sólveig, skrif-
stofustúlka; Jóhanna Halldórsdóttir
kom til þeirra um fermingu og var
hjá þeim til fullorðinsára. Hún gift-
ist Helga Helgasyni. Bjuggu þau í
Vík í Mýrdal og seinna í Keflavík.
Þau em bæði látin. Afkomendur
þeirra hjóna em 65 á lífí.
★
Guðrún Steingrímsdóttir tengda-
móðir mín er látin. Ég sakna
hennar. Hún var mér góð. Hún var
gáfuð kona. Hún var mikill persónu-
leiki, sem maður aldrei gleymir.
Hún var mikil húsmóðir og stjóm-
söm. Gaman var að borða hjá henni,
því kokkur var hún með afbrigðum
góður. Þá var það ekki amalegt að
fá morgunkaffið hjá henni beint á
sængina, í Nýlendu, þegar maður
gisti þar, eða var í sumarfríi með
Steinunni konu minni.
Ekki talaði hún mikið, en hugs-
aði þeim mun meira, enda heyrði
ég aldrei nema gáfulegt frá hennar
munni koma. Enginn gekk bónleið-
ur til búðar, sem á hennar fund fór
til að leita ráða hinna ýmsu vanda-
Einar Benediktsson, skáld, réð hana
til heimilis síns í London í tvö ár í
fyrra stríði, og einnig var hún hjá
þeim hjónum um skeið í Höfða í
Reykjavík. Það var heldur engin
tilviljun, að Einar las kvæðin sín
fyrir hana til að heyra álit hennar
og hvem skilning hún legði í ljóðin
hans.
Konur eins og Guðrún eru ekki
á hvetju strái, því miður. Ég veit
að eiginmaður hennar, Magnús
Hákonarson, breiddi hvorki hey né
fisk án þess að spyrja Guðrúnu
hvort hún héldi að hann væri að
koma á eður ei. Það er gaman að
hafa átt slíka konu sem Guðrún var
að vini og félaga í 50 ár.
Síðustu 10 ár æfi hennar á
Hrafnistu í Hafnarfirði vom lær-
dómsrík fyrir mig, og þá ekki síður
henni sjálfri. Við hjónin heimsóttum
hana alltaf vikulega þessi ár. Hún
var mér ávallt hvati í tónlist minni.
Hún vissi vel hvað ég var að gera.
Ég vann þama suður frá hjá henni,
aðallega að hljómsveitarútsetning-
um. Eg var varla búinn að vera
nema hálftíma hjá henni, þegar hún
hálfpartinn rak mig niður í setu-
stofu til að láta eitthvað ganga.
Ekki neitt slór. Hún var ekki vön
slíku í sínu lífí.
Ég er ekki viss um að henni
hafí alltaf liðið nógu vel í lífinu.
'Ég veit að hún vildi gera meira,
og umfram allt að láta gott af sér
leiða.
Ég segi ekki meira um Guðrúnu
að sinni. Ég gæti sagt svo mörgum
sinnum fleira, því það er úr mörgu
að moða. Hún gæti hafa sagt eins
og skáldið Örn Amarson: „Samt
er gaman að hafa lifað svo langan
dag.“
Ég kveð hana bæði með söknuði
og fögnuði. Ég veit, að nú líður
henni best.
Skúli K. Halldórsson
Nú er hún amma mín loksins
dáin.
Það finnst einhveijum kannski
skrítið á ég segi „loksins" en ég
veit að hún er hvfldinni fegin.
Guðrún Steingrímsdóttir, amma
átti stórbrotna, Ianga og marg-
slungna ævi. Hún kynntist bæði
allsnægtunum og örbirgðinni og því.
hvemig það var að koma upp stór-
um bamahópi við lítil efni.
Þessum þætti í lífi ömmu minnar
kynntist ég aldrei og þá sögu verða
aðrir að segja.
Mínar fyrstu minningar um
ömmu em tengdar skápnum hennar
í stofunni heima í Nýlendu, þar sem
góða lyktin var og allt góðgætið,
hárinu hennar, sem hún þvoði upp
úr vaskafati og fléttumar náðu
næstum tvo hringi í kringum höfuð-
ið, og hænunum hennar, sem verptu
bragðbestu eggjum í heimi.
En manneskjunni sjálfri, ömmu
minni, kynntist ég ekki fyrr en fyr-
ir nær átta ámm þegar við misstum
þá konu, sem okkur var báðum
kær. Hún missti dóttur sína, ég
móður mína.
Þá var amma komin á Hrafnistu
í Hafnarfirði, sem var heimili henn-
ar síðasta áratuginn, og var orðin
þreytt.
Hún vissi hvemig mér leið, betur
en margir aðrir, því sjálf hafði hún,
á unga aldri, misst móður sína og
systkini öll.
Það kom ekki sá dagur að hún
spurði ekki um stelpukrakkann og
mörgum bitanum stakk hún að mér
af sínum litla kosti.
Amma mín sagði ekki margt en
verkin hennar töluðu. Peysumar,
hosumar og vettlingamir, sem hún
pijónaði bæði handa mér og öðmm
allt fram á sín síðustu ár.
Ég þakka elskulegri ömmu
minni. Guð geymi hana.
Sólveig
Með þessum fáeinu orðum langar
mig að kveðja ömmu mína, Guðrúnu
Hansínu Steingrímsdóttur, sem
borin er til hinstu hvíldar í dag.
Ætlun mín er ekki sú að gera grein
fyrir ævi hennar, það gera aðrir sem
betur þekkja. Hins vegar þakka ég
af heilum hug þær hlýju samveru-
stundir sem ég var svo lánsamur
að fá að njóta með henni.
Hugurinn reikar aftur til þeirra
tíma er ég sem lítill drengur bjó í
Nýlendu. Minnist ég þess að vakna
sólríka sumarmorgna. Þá sátu
amma og afi í eldhúsinu. Amma
greiddi og fléttaði sítt og fallegt
hár sitt. Mér fannst þá að þetta
myndi aldrei breytast. Þó ég stækk-
aði og fullorðnaðist þá yrðu amma
og afí alltaf eins og byggju í Ný-
lendu. Frá þeim árum á ég margar
mínar hugljúfustu minningar.
Með lífsviðhorfí sínu og breytni
setti amma mark sitt á samtíð sína
og afkomendur sem margir koma
til með að búa að um ókominn tíma.
Allir sem henni kynntust, virtu hana
og litu upp til hennar.
Aldrei varð mér þó ljósara en
sumarið 1984 hversu mikil einurð
og viljastyrkur bjó í þessari öldnu
konu. Þó heilsufar hennar væri með
þeim hætti, að hún þyldi illa ferða-
lög frá Hrafnistu í Hafnarfirði, gat
ekkert fengið hana ofan af þeirri
fyrirætlan sinni að heimsækja okk-
ur í nýju íbúðina að Ásabraut í
Sandgerði, þetta sumar. Þar áttum
við góðan dag.
Að leiðarlokum vil ég þakka
elsku ömmu fyrir allar þær gleði-
og hamingjustundir sem hún veitti
okkur. Algóði Guð blessi hana og
varðveiti.
Pétur Brynjarsson
Á þessum degi, er við kveðjum
föðurömmu okkar, Guðrúnu H.
Steingrímsdóttur í Nýlendu, er okk-
ur efst í huga þakklæti fyrir það
sem við fengum að njóta er við
dvöldum hjá henni og afa svo oft
sem böm, við leik og störf. Amma
var góður uppalandi og kenndi okk-
ur margt til munns og handa sem
við búum að enn í dag. Hún við-
hélt ýmsum góðum gömlum siðum
sem við borgarbömin fengum að
kynnast.
Við vomm ekki gamlar er hún
sendi okkur til Jónu í Nýjabæ með
Maríufiskinn okkar og eigum við
hlýjar minningar úr eldhúskrók
ömmu og afa þar sem við sátum
og hreinsuðum æðardún sem amma
safnaði gjarnan og nýtti. Minnis-
stæðir em tvflitu fingravettlingarn-
ir sem hún kenndi okkur að pijóna
og nutum við þá einnig frásagnar-
gáfu hennar og stálminnis, en hún
hafði frá mörgu að segja, enda
sigldari en margir aðrir henni sam-
tíða. Bar gyllti kortakassinn sem
við fengum ósjaldan að skoða í, því
glöggt vitni. Horfði hún þá dreym-
andi út um gluggann og greiddi og
fléttaði síða fallega hárið sitt sem
í eina tíð var tinnusvart og hennar
stolt og piýði.
Æfiágrip ömmu munum við ekki
rekja hér en óhætt er að segja að
líf hennar hafi einkennst af þeim
tíðaranda sem vinnulúnar hendur
hennar bám vitni um. Nýtni, ráð-
deild og síðast en ekki 'síst
umhyggja fyrir náunganum vom
hennar aðalsmerki. Hyggjum við
að allir þeir sem líta til baka og
hugsa um húsfreyjuna, formanns-
konuna, vinnuforkinn, móðurina og
ömmuna, Guðrúnu í Nýlendu,
minnist hennar með virðingu og
hlýju.
Nú er langri æfi hennar lokið og
viljum við fyrir hönd íjölskyldna
okkar og þá ekki síst foreldra og
systkina sém vegna fjarvem í út-
löndum geta ekki fylgt ömmu
síðasta spölinn, senda ykkur öllum,
ættingjum og vinum, innilegar sam-
úðarkveðjur. Við kveðjum ömmu
að leiðarlokum með versinu fallega
sem hún kenndi okkur í æsku:
Vertu yfir og allt um kring
með eiiífri blessun þinni,
sitji guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
Hvíli elsku amma í friði.
Gjuðrún og Guðný
mála lífsinS.
|
I
Verzlunarskóli
íslands
FULLORÐINSFRÆÐSLA
Innritun á vorönn verður á skrifstofu
skólans 5.-8. og 11. janúar 1988
kl. 08.00-19.00.
Boðið er upp á eftirtalda náms-
möguleika auk stakra námskeiða:
ÖLDUNGADEILD
Nám til verslunarprófs og stúdents-
prófs.
STARFSNÁM
Bókhaldsbraut og skrifstofubraut.
FORNÁM TÖLVUHÁSKÓLA VÍ
Áfangar fyrir þá nemendur, sem
ekki hafa lokið stúdentsprófi af við-
skiptabraut, en hafa áhuga á að
sækja um íTVÍ næsta haust.
Áfangalýsingar, umsóknareyöublöö
og nánari upplýsingar fást á skrif-
stofu skólans, Ofanleiti 1.
t
Móðir okkar,
GUÐMUNDA PÁLÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Skipasundi 92,
andaðist á gjörgæsludeild Landakotsspítala þann 24. desember sl.
Sophus Henry Holm og Guðmundur Holm.
t
Móðir okkar,
RAGNHEIÐUR SVEINSDÓTTIR,
Dalbraut 27,
lóst í Landspítalanum aðfaranótt 28. desember.
Vilborg og Helga Harðardætur.