Morgunblaðið - 29.12.1987, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1987
mestar mætur á. Og þær svip-
myndir sem hann festi á léreft
munu ylja þeim sem á horfa um
mörg ókomin ár.
Sturla Friðriksson
Horfinn er á braut mikill lista-
maður, sérstakur og sjálfstæður
persónuleiki, þjóðrækinn íslending-
ur og góður fulltrúi Mýramanna,
Ásgeir Bjarnþórsson, 88 ára gam-
all.
Þótt Ásgeir næði háum aldri og
nyti sæmilegrar heilsu lengi vel,
varð fjöldi málverka hans ekki í
samræmi við það. Hann þjónaði list-
inni, án þess að hugsa um hvað hún
gæfi af sér í peningum. Hann kast-
aði aldrei til höndum við verk sín.
Hann vann hvert þeirra af mikilli
kostgæfni og lét ekkert verka sinna
frá sér fyrr en hann var búinn að
grandskoða þau tímum saman,
jafnvel misserum og árum. Hann
tignaði gömlu meistarana og lét
ekki tískuna ráða ferð sinni. í sam-
talsbók þeirra Andrésar Kristjáns-
sonar segir hann á einum stað:
„Tískulist er eins og hrímið, sem
myndast á einni nóttu eða degi, en
hjaðnar fyrir þeirri sól sem eilíflega
skín. Öll sönn list er löng. Hún
verður að hafa í sér eitthvert brot
af eilífðinni, sameina nútíð og
fortíð, ef hún á að vera mann-
bætandi, lyfta huganum." Hann
spyr ennfremur hvort það sé ekki
hlutverk nútíðarinnar að tengja
saman fortíð og framtíð og skila
arfinum helst með örlítilli viðbót af
þroska, sem líkja megi við lítinn
árssprota á vaxandi eilífðartré.
I þessum anda vann Ásgeir
Bjamþórsson. Þetta var hugsjón
hans sem listamanna. Henni þjón-
aði hann trúlega til lokadægurs.
Mér finnst það sennileg spá, að
verk hans verði meira metin sem
lengra líður og þau eigi eftir að
verða eftirsótt í samræmi við það.
Ég hygg að mörgum, sem kynnt-
ust Asgeiri, sé líkt farið og mér.
Ég met list hans mikils, en maður-
inn sjálfur var ekki síður eftirminni-
legur. Hann var svipmikill og bar
sig vel, sagði allra manna best frá,
stálminnugur, skjótur til svara og
oftast bæði á skarplegan og
skemmtilegan hátt. Fáir höfðu mál-
ið betur á valdi sínu. Ómyrkur var
hann í máli og fór ekki dult með
skoðanir sínar.
Ég þekkti Ásgeir eiginlega betur
eftir að hann kenndi mér afmælis-
vísuna, _sem Helgi Hjörvar sendi
Bjama Ásgeirssyni:
Glöggt hefur Mýramannakyn
markað sér hinn væna hlyn.
Tvennan áttu ættargrip
Egilsmál og Þorsteinssvip.
Egilsmál lék á tungu hans. Sama
mætti segja um fleiri frændur Ás-
geirs á Mýrum en Bjama ÁSgeirs-
son. Ásgeir hafði sterkar taugar til
æskuhéraðs síns og helst hefði hann
viljað að safni verka hans yrði val-
inn staður í Borgamesi.
Ásgeir var þjóðrækinn og unni
sjálfstæði íslands. Fjölþættar gáfur
Ásgeirs áttu sinn þátt í því að fleira
tafði hann við vinnu hans sem lista-
manns en vandvirkni hans og
virðing hans fyrir listinni. Hann
hafði áhuga á mörgum málum, var
vel heima á íjölmörgum sviðum og
féll vel að ræða við menn um flest
milli himins og jarðar. Þetta tafði
oft fyrir honum. Að þessu leyti var
íslensk bændamenning honum í
blóð borin, eins og hann sjálfur lýs-
ir henni í áðumefndri viðtalsbók í
frásögn sinni af Sigurði á Haugum,
sem gat rætt við Asgeir af mikilli
þekkingu um Jótlandsmálin og önn-
ur mál úti í heimi, en var ekki að
sama skapi afkastamaður við bú-
skapinn.
Vði hjón emm í hópi þeirra, sem
minnast við fráfall Ásgeirs margra
ánægjulegra samvemstunda með
honum og teljum hann með eftir-
minnilegustu mönnum samtíðar
sinnar.
Þórarinn Þórarinsson
t
Faðir okkar og tengdafaðir,
GÍSLI V. SIGURÐSSON
póstf ulltrúi,
Fálkagötu 13,
lést 24. desember.
Ómissandi með
steikinni og hangikjötinu,
hentar vel
í salatið, á kalda borðið
og í síldarréttina,
svo fátt eitt sé nefnt.
Sigrún Gísladóttir, Gunnar Kristinsson,
Guðrún Gísladóttir, Arnar Gunnarsson,
Anna Sigríður Gísladóttir Neville, William Neville,
Aðalheiður Erna Gisladóttir, Oddur Gústafsson,
Garðar V. Gíslason, Lára Gislason.
t
Eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaöir og afi,
GUÐMUNDUR i. GUÐMUNDSSON
fyrrverandi utanríkisráðherra,
sem andaðist 19. desember, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni
í Reykjavík miðvikudaginn 30. desember kl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeir sem vilja minnast hins látna
vinsamlegast láti líknarfélög njóta þess.
í ORA grænmeti
eru engin rotvarnarefni,
aðeins valin hráefni.
Fæst í næstu
Rósa Ingólfsdóttir,
Guðmundur I. GuÖmundsson, Rósa St. Jónsdóttir,
Grétar Guðmundsson, Kathleen Guðmundsson,
Örn Guðmundsson, Kristín Guófinnsdóttir,
Ævar Guðmundsson, Guörún Jóhannesdóttir
og barnabörn.
Heíurðu reynt nýju
200 ASA Gullfilmuna?
matvöruverslun,
hagstætt verð.
Þú opnar ORA dós -
og gæðin koma í ljós!
Vesturvör 12, Kópavogi.
30 ÁRA VAXANDI
VINSÆLDIR SANNA GÆÐIN
AUK hf 95,6/SlA