Morgunblaðið - 29.12.1987, Page 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1987
fclk f
fréttum
Fimm ættliðir í beinan kvenlegg
Fimm ættliðir samankomnir í skírnarveislu þeirrar yngstu. F.v.: Guðrún Gísladóttir 21 árs, Guðrún
Ólafsdóttir 62 ára, Guðrún Hannesdóttir áttræð, Ása Margrét Helgadóttir 6 mánaða og Ása Margr-
ét Ásgeirsdóttir 39 ára.
Morgunblaðið/Ámi Helgason
Þorgrímur Bjarnason bóndi í Vík við Stykkishólm.
Fæst ekki um
lífsgæða-
kapphlaupið
Stykkishólmi.
*
AMEÐAN menn eru í kapp-
hlaupi um að útvega sér
nýja bíla og þeim fjölgar á met-
hraða hér á landi lætur Þorgrím-
ur Bjarnason bóndi í Vik við
Stykkishólm sér nægja að koma
á gamla traktornum sínum i
bæinn, hvort sem það er til inn-
kaupa eða í vinnuna.
Þorgrímur Bjamason var áður í
Borgarlandi, sem áður hét Dældar-
kot, og bjó þar með Ingibjörgu
Stefánsdóttur, en fyrir nokkrum
árum fluttu þau sig um set eða til
Víkur við Stykkishólm.
Þorgrímur var á unga aldri tek-
inn í fóstur til heiðurshjónanna
Elínborgar og Hannesar Hannes-
sonar en þau ólu alls upp þijú börn
og komu þeim öllum til manndóms.
Þorgrímur er mjög lagvirkur
maður og öll sín verk vinnur hann
af alúð og kostgæfni upp á gamla
móðinn. Um auð og völd hefur hann
sjálfsagt sjaldan eða aldrei dreymt
og í kapphlaupi dagsins í dag er
hann ekki hlutgengur. Fróðleiks-
maður er hann og les þegar hann
kemst til þess en auðvitað situr
búsmali og vinnan fyrir. Fróður er
hann, það fer ekki milli mála og
er hjálpsamur og hollráður.
Þorgrími líkar best að vera
heima, hann ferðast ekki mikið og
hefur engu eytt til utanferða. Öll
eyðsla er honum andstyggð, enda
vaninn við að fara vel með._
— Árni
BERGÞÓRA í SEINNA LAGI
Ég ætti kannski
að safna skeggi
Bergþóra Árnadóttir sendi
frá sér í haust plötu með
frumsömdu efni, en sú plata er
m.a. nýstárleg fyrir það að hún
var tekin upp líkt og á tónleikum;
19 lög voru tekin upp á rúmum
fimm tímum í Stúdíói Stemmu á
Seltjarnarnesi. Fólk í fréttum
leitaði til Bergþóru til að spyrja
hana um plötuna og hvernig það
sé að vera kona á íslenskum
plötumarkaði.
Bergþóra býr í risíbúð á Skóla-
vörðuholtinu og bauð blaðamanni
uppá kaffi inn í eldhús. Þar fór við-
talið fram með stöku upphlaupum
vegna kattanna tveggja sem vildu
fá sína athygli.
Bergþóra, segðu mér frá tilurð
plötunnar.
Það var þannig að við, eða öllu
heldur maðurinn minn, fékk upp-
ljómun á föstudaginn langa síðast-
liðinn, þetta er svo langur dagur
og maður getur hugsað svo mikið,
að fara og skoða hljóðverið hjá
Didda fiðlu og einmitt að athuga
þennan möguleika að taka upp
beint. Nú, okkur leist ákaflega vel
á þetta og bókuðum bara tíma í
snatri. Næst var að finna undirleik-
ara og fyrst var talað við Tryggva
Húbner sem hefur verið mikið með
mér. Næst hringdum við út til
Bandaríkjanna til Pálma Gunnars-
sona. til að gá hvort hann væri
lifandi, því þá gengu þær sögur að
hann væri dauður, og hvort hann
væri ekki til í að rísa upp með okk-
ur. Síðan barst Hjörtur Howser inn
í þetta dæmi. Með okkur voru einn-
ig þeir Abdou og Siggi Reynis og
vinur minn Eyjólfur. Við tókum
síðan upp 19 lög á fimm og hálfum
tíma 27. maí og Sjónvarpið mynd-
aði þetta alltsaman.
Nú er þetta eina platan sem
kemur út á þessu ári sem kona
gefur út, og henni hefur ekki
verið mikið hampað. Hefur það
háð þér að vera kona í poppiðn-
aðinum?
Já, það kom mér á óvart hvað
fólki er mismunað eftir kynferði í
tónlistinni. Ég er mikið farin að spá
í að reyna -verða mér út um skegg
og fara í kynskiptingaraðgerð,
vegna þess hve ég hef fundið það
að það háir mér að vera kona; að
vera „kelling“. Það er allt í lagi
fyrir strákana að vera á svipuðum
aldri og ég, en ég er bara kelling
og á ekkert að vera að blanda mér
í þessi mál. Ef konur vilja syngja
þá eiga þær að vera skrautpíur með
fallega rödd sem syngja bakraddir
í popptónlist.
Það sagði mér það maður um
daginn að ég væri með ljóta rödd
og kynni ekkert að syngja og ég
var alveg sammála honum, en ég
held nú að ég sé sæmilega lagviss
og sæmilega vel að mér í tónlist
og ég hef aldrei stílað inn á það
að syngja með einhverri englarödd.
Morgunblaðið/Þorkell
Ég kann ágætlega við röddina í
mér eins og hún er.
Nú hefur plötunni ekki verið
mikið hampað i fjölmiðlum en
hvernig viðtökur hefur þú fengið
þegar þú ert að spila fyrir fólk?
Aíveg frábærlega góðar. • Það
kom mér verulega á óvart, ég var
að spila efni af plötunni, reyndar
rétt áður en hún kom út, og fólk
bað aftur um þau lög sem ég hefði
reyndar talið að væru í þyngri kant-
inum og ekki beint formúlúlög.
Það er allt of útbreiddur mis-
skilningur að plötukaupendur séu
allir unglingar með lofttæmi á milli
eymanna sem taki ekki við neinu
nema diskótakti. Mér finnst, þegar
ég held tónleika, að fóll: sé að
hlusta á það sem ég er að syngja.
0g þess vegna finnst mér að ég
þurfi að syngja eithvað sem er
hlustandi á.
Viltu segja eithvað að lokum?
Já, ef einhver veit um gott skegg-
meðal eða leið til að öðlast ákveðið
líffæri þá endilega að láta mig vita.
Viðtal Arná Matthiasson