Morgunblaðið - 06.01.1988, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.01.1988, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1988 Akranes: Beiðni um gjald- þrotaskipti Hennes Bæjarfógetanum á Akranesi barst í gær beiðni um að sauma- stofan Hennes hf., sem er dóttur- fyrirtæki Henson hf. i Reylqavík, yrði tekin til gjaldþrotaskipta. „Ákveðið fyrirtæki var að kanna möguleika á kaupum en þegar það brást var ekki annað að gera en óska eftir gjaldþrotaskiptum. Ég hef velt fyrir mér öllum möguleikum en því miður hefur enginn þeirra gengið upp og gjaldþrotabeiðnin er eini raun- hæfi möguleikinn í stöðunni. En þetta var vissulega erfið ákvörðun," sagði Halldór Einarsson iðnrekandi í samtali við Morgunblaðið í gær. Hennes hf. tók til starfa á Akra- nesi haustið 1984 í nýju húsi, sem sérbyggt var fyrir starfsemina. Véla- kostur var allur nýr og hefur saumastofan verið talin hin glæsileg- asta á landinu. Starfsmenn voru 30 nú í desember en -voru flestir um 65 talsins. Saumastofa Henson hf. í Reykjavík starfar áfram af fullum krafti að sögn Halldórs Einarssonar. Prjónastofan Iðunn hættir framleiðslu PRJÓNASTOFAN Iðunn hefur sagt upp nær öllum starfsmönnum sínum og mun hætta framleiðslu á ptjónavörum á árinu og breyta rekstrinum. Um er að ræða tiu starfsmenn og miðast uppsagnir þeirra við 1. april. Njáll Þorsteinsson, framkvæmda- stjóri fyrirtækisins, sagði í samtali við Morgunblaðið að meginástæða uppsagnanna væri að reksturinn bæri ekki þann ijármagnskostnað, sem væri við lýði í þjóðfélaginu nú. Samt væri um að ræða rótgróið fyrir- tæki með góðan vélakost og mikla rejmslu af rekstri sem þessum. 45-50% framleiðslunnar hefði verið selt á 'markað erlendis óg framleiðsl- an væri orðin of dýr. Eins væri innflutningur á samkeppnisvörum mikill og erlend framleiðsla þætti fínni en sú innlenda. „Ég er mjög leiður y& því að þetta skuli ekki geta gengið. Fyrir- tækið er orðið 54 ára gamalt og þó við hættum ffamleiðslu þá verður verslunin rekin áfram. Við munum þreifa fyrir okkur út þetta ár, en skammtímalánin voru orðin of mikil og dæmið of örðugt til þess að það gengi upp í bili," sagði Njáll ennfrem- Morgunblaðifl/Sigurour Sigmundsson JOLINDONSUÐ UT JÓLABÖLLUNUM fer nú að fækka enda er jóla- hald á lokastigí og fer siðasti jólasveinninn til fjalla í dag, á þrettándanum, samkvæmt þjóð- trúnni. Jólaböllin hafa verið snar þáttur í jólahaldi íslenskra barna og þessa mynd tók Sig- urður Sigmundsson, fréttaritari Morgunblaðsins í Hreppum, á jólaballi þar eystra nýverið. Söluskattsfrumvarpið samþykkt: Spurningar og svör um staðgreiðslu STAÐGREIÐSLA skatta hófst 1. janúar síðastliðinn og í tilefni af þvi gefur Morgun- blaðið lesendum sínum kost á að fá svarað á síðum blaðsins spurningum sem kunna að vakna varðandi staðgreiðslu- kerfið. Morgunblaðið kemur þeim spumingum sem berast á fram- færi við embætti ríkisskatt- stjóra. Spumingamar og svör við þeim birtast síðan í blaðinu. Lesendur geta hringt í síma Morgunblaðsins 691100 kl. 10-12 árdegis mánudaga til föstudaga og borið fram spum- ingar sínar. Stjórnarliðar deildu um niðurgreiðslur á matvæli Eru þær f öst krónutala eða „verðtryggðar“? FRUMVARP ríkisstjómarinnar um breytingar á söluskattslög- gjöfinni var samþykkt á Alþingi í gær og hafa því öllu tekjuöflun- arfmmvörp ríkisstjómarinnar verið samþykkt. Miklar deilur hafa staðið um þetta fmmvarp á þingi og þá sér i lagi ákvæði þess efnis að söluskattur verði lagður á matvæli. Fjármálaráð- herra hefur sagt að matvara muni hækka að meðaltali um 7% en að þessar breytingar muni ekki hafa áhrif á framfærslu meðalfjölskyldu, þar sem aðrar vörur muni lækka að sama skapi, m.a. með breyttri tollalöggjöf. Nokkrar deilur urðu í efri deild, þegar málið kom þangað til loka- afgreiðslu, um hvort niður- greiðslur á matvöra væm föst krónutala, eins og fjármálaráð- herra vildi halda fram, eða ættu að fylgja öðrum breytingum, eins og þeir Halldór Blöndal og Egill Jónsson töldu. Einnig var sam- þykkt sem lög fmmvarp um flutning Útflutningsráðs og út- gáfu útflutningsleyfa frá við- skipta- til utanríkisráðuneytis. Stjómarandstæðingar fluttu nokkrar breytingartillögur við frumvarpið, m.a. þess efnis matvara yrði undanþegin söluskatti, en þær voru felldar. Hreggviður Jónsson, Borgaraflokki, flutti breytingartil- lögu þess efnis að felldur yrði niður söluskattur af varahlutum o.fl. í skip. Fjármálaráðherra sagði þessa tillögu vera á misskilningi byggða. í frumvarpinu væri óbreytt orðalag frá núverandi lögum og hefði íjár- málaráðherra heimild til þess að undanþiggja þessar vörur sölu- skatti. Þrír þingmenn stjómarliðs- ins greiddu bó atkvæði með tillögunni, þau Ólafur Þ. Þórðarson, Guðmundur G. Þórarinsson og Ragnhildur Helgadóttir. Guðni Ágústsson sat hjá við atkvæða- greiðsluna. Neðri deild breytti ákvæðum lag- anna um gildistöku, en samkvæmt frumvarpinu áttu þau að taka gildi 1. janúar þessa árs. Þar sem ekki tókst að afgreiða frumvarpið sem lög fyrir áramót var gildistöku- ákvæðinu breytt í „þegar í stað“. Vegna þessarar breytingar þurfti frumvarpið að fara til efri deildar á ný til einnar umræðu. Svavar Gestsson spurði þar fjármálaráð- herra hvort fjárhæðir þær sem ætlaðar væm til niðurgreiðslu á vömverði væm verðtryggðar. Jón Baldvin Hannibalsson, ijármálaráð- herra, sagði upphæðina í Qárlögum vera fasta krónutölu. Halldór Blöndal, formaður íjárhags- og við- skiptanefndar, sagðist ekki áður hafa heyrt að þessar ljárhæðir ættu að vera föst krónutala. Hann hefði ávallt talið að þær myndu breytast ef forsendur þeirra breyttust. Það væri ekki víst að allir þingmenn stjómarinnar yrðu hrifnir af þessum upplýsingum. Stuðningur hans við fmmvarpið hefði m.a. verið bundinn við það að þessar tölur hækkuðu í takt við aðrar breytingar. Egill Jónsson sagði að í nefndar- áliti meirihluta landbúnaðamefndar efri deildar vegna frumvarps um framleiðslu og sölu á búvömm væri það skjalfest hvemig niðurgreiðsl- um yrði háttað á þessu ári, en um það hefði náðst samkomulag milli ijármálaráðuneytis og landbúnað- arráðuneytis. Taldi hann ljóst að þær ættu að fylgja öðmm verð- breytingum. Mikil aukning spamaðar: í dag Innlánsaukningin nær 36% Merki um góðæri segja bankastjórar MIKIL aukning varð á innlánum viðskiptabankanna og stærstu sparisjóðanna á árinu sem leið, og jukust heildarinnlán um ná- lægt 36%, eða mun meira en lánskjaravísitala, sem hækkaði á sama tíma um 22,3%. Af bönkunum var aukningin mest hjá Búnaðarbankanum, en þar jukust innlán um 41,7%, en hjá Sparisjóði vélstjóra jukust innlán enn meira, eða um 46,7%. Innlánaaukningin hjá öðmm bönkum og sparisjóðum á síðasta ári er á bilinu 28-39%, samkvæmt bráðabirgðatölum. Aukningin á innlánum bankanna á árinu 1987 var sem hér segir: Búnaðarbankinn 41,7%; Útvegs- bankinn 37,0%; Landsbankinn 36,6%; Alþýðubankinn og Iðnaðar- bankinn með um 36%; Samvinnu- bankinn með um 32% og Verzlunarbankinn með um 28%. Samsvarandi tölur fyrir sex stærstu sparisjóðina eru sem hér segir: Sparisjóður vélstjóra 46,7%; SPRON 38,8%; Sparisjóður Hafnar- ijarðar 38,6%; Sparisjóður Mýra- sýslu 38,3%, Sparisjóður Kópavogs 37,6% og Sparisjóður Keflavíkur 29,6%. Meiri aukning varð á innlánum Búnaðarbankans á Reykjavíkur- svæðinu en á landsbyggðinni, að sögn Jóns Adolfs Guðjónssonar, bankastjóra Búnaðarbankans, en alls voru innlán Búnaðarbankans árið 1987 kr. 13.425 milljónir, sem er aukning um 3.950 milljónir frá árinu áður. Jón Adolf taldi ástæð- una fyrir innlánaaukningunni einkum vera þá að góðærið í landinu skilaði sér inn í bankakerfíð, en hækkandi vextir og góð kjör á inn- lánsreikningum hjá Búnaðarbank- anum væru einnig orsakir fyrir hinni miklu innlánsaukningu bank- ans. Hallgrímur Jónsson, sparisjóðs- stjóri hjá Sparisjóði vélstjóra, sagði að sparisjóðurinn hefði verið í mik- illi sókn úndanfarin ár, t.d. hefði innlánsaukningin verið 54% I fyrra, en Sparisjóðurinn nyti einnig góð- ærisins í landinu. Innlán hefðu aukist frá árinu 1984, og þessi þró- un væri enn athyglisverðari fyrir þá sök að jafnframt þessu hefðu kaup á verðbréfum aukist, þannig að það væri ljóst að spamaður hefði aukist mjög mikið þrátt fyrir alla eyðsluna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.