Morgunblaðið - 06.01.1988, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1988
Hrunamannahreppur:
Tveir menn sködd-
uðust af að skjóta
„Tívolíbombum“
Syðra-Langholti.
TVEIR ungir menn sködduðust
í andliti og hár þeirra sviðnaði
þegar þeir voru að skjóta upp
þessum svokölluðu Tívolíbomb-
um á gamlárskvöld. Ekki sködd-
uðust þeir þó það mikið að þeir
þyrftu að leita læknis og má telja
mildi að ekki fór verr eftir að
hafa heyrt um þá miklu skaða
sem þessar bombur hafa valdið.
Mikið er orðið um það að margs-
konar flugeldum sé skotið á loft á
gamlárskvöld jafnt hér um slóðir
sem annars staðar og annast þjörg-
unarsveitir og skátar sölu á þessum
vamingi til fjáröflunar fyrir sína
starfsemi. Ekki er fréttaritara
kunnugt um að þessi varningur
hafi valdið slysum hér um slóðir
utan það sem þessir tveir ungu
menn hlutu sem fyrr sagði. Nokkuð
hefur hinsvegar verið um það að
útigangshross hafi tryllst við flug-
eldaskotin og eru þess dæmi að
hross hafi hlaupið tugi kílómetra
til heiða.
Kveikt var í brennum víða á
gamlárskvöld svo sem venja er.
Kviknaði víða í sinu þar sem jörð
er alauð og mjög þurr en ekki hlut-
ust tjón af, en strekkingsvindur var
á norðaustan hér á gamlárskvöld.
Sjónvarpið er að sjálfsögðu vel
vaktað hér sem annars staðar á
þetta kvöld. Þá var að venju nokkur
fagnaður í félagsheimilinu á Flúð-
um eftir miðnætti, sem er einkum
sóttur af yngra fólki.
— Sig. Sigm.
Gufunes-
kirkjugarður
HAMRAHVERFI
FOLDAHVERFI
Gullinbrú
o
ARTÚNSHÖFÐI
Rannsóknastofnanir
KELDNAHOLTI
4
' >
KELDUR, *
rannsókna'- _
stofnanir H.í.
GRAFARVOGUR III,
Brekknahverfi: Úthlutun
140 einbýlis- og par-
húsalóða hefst í janúar.
vesturlandsvz
500 m
Lóðaúthlutun í Grafarvogi
í janúar fer fram úthlutun á 140 einbýlis- og parhúsalóðum i Grafarvogi III, í Brekkuhverfi í
Reykjavík. Síðar á þessu ári fer fram úthlutun á lóðum fyrir um 500 íbúðir í einbýlis-, fjölbýlis og
rað- eða parhúsum. Gert er ráð fyrir að lóðirnar verði byggingarhæfar á þessu ári.
Útgerðarráðgjafinn:
Sérhaunaður hugbúnaður
fyrir skipstjóra togskipa
UM BORÐ í togara Granda hf.,
Ásbirni, var nýverið tekin með í
veiðitúr tölva af gerðinni Hew-
lett Packard. Verið var að prófa
hugbúnað fyrir veiðiskip í sam-
vinnu Granda, Háskóla íslands,
Félags íslenskra iðnrekenda og
Iðntæknistofnunar íslands. Hug-
búnaður þessL sem er á tilrauna-
stigi, heitir Utgerðarráðgjafinn
og er unninn fyrir styrk frá
Rannsóknaráði ríkisins. Verk-
efnisstjóri er Kristján Jónasson.
Reynslan af fyrstu ferðinni lofar
góðu um framhaldið.
Tölvan er tengd Loran C-stað-
setningartæki, hraðamæli, dýptar-
mæli, olíueyðslumæli og hægt er
að tengja hana fleiri tækjum skips-
ins til gagna- og upplýsingaúr-
vinnslu. Birgðaskrá er í hugbúnað-
inum fyrir veiðarfæri og annan
þann skipsforða sem þarf að end-
umýja. Hún getur jafnframt reikn-
að út verðmæti aflans, sem um
borð er hveiju sinni og gengið frá
uppgjöri veiðiferðar. Tölvan er með
stóran litskjá og má á hveijum stað
kalla fram mynd af togslóðum
skipsins með öllum upplýsingum um
afla og aðstæður í hverju togi.
Gert er ráð fyrir að skipstjóri
geti haft aflabók sína í tölvunni
með öllum þeim upplýsingum sem
hann þarf og tengjast ýmsum veiði-
svæðum. Skipstjórinn getur t.d.
kallað fram upplýsingar um afla
tiltekinna fiskislóða frá fyrri tíð og
upplýsingar um einstök atriði, eins
og sjávarhita, strauma, dýpi o.fl.
Það er mjög mikilvægt að stutt
sé við þróun af þessu tagi. Á sviði
tölvutækni fyrir sjávarútveg, eigum
við íslendingar tvímælalaust að
vera í fararbroddi og er Útgerðar-
ráðgjafinn stórt skref í þá átt.
(Fréttatilkynning)
Á skildinum, sem komið var fyrir á hraunkletti sem skagar fram i
heimreiðinni, stendur: „í minningu Hreðavatnshjónanna Sigurlaugar
Daníelsdóttur og Kristjáns Gestssonar. Með þökk íslenskra sam-
vinnumanna fyrir land Samvinnuskólans á Bifröst."
BALLETT KLASSÍSKUR BALLETT
BRLLET5KÓLI5IGRÍÐRR flRmRníl
KENNSLA HEFST A MORGUN
FIMMTUDAGINN 7. JANÚAR
Nemendur mæti á sömu tímum og áður.
Upplýsingar í síma 72154.
Félag íslenskra listdansara.
SKÚLAGÖTU 32-34
Um borð í togara Granda hf., Ásbirni, var prófaður hugbúnaður
fyrir veiðiskip í samvinnu Granda, Háskóla íslands, Félags íslenskra
iðnrekenda og Iðntæknistofnunar íslands. Hugbúnaðurinn heitir
Útgerðarráðgjafinn.
Minningarskjöldur
um Hreðavatnshjónin
Minningarskjöldur um hjónin
að Hreðavatni í Norðurárdal,
Sigurlaugu Daníelsdóttur og
Kristján Gestsson, var fyrir
nokkru afhjúpaður við heimreið-
ina að Samvinnuskólanum á
Bifröst. Skjöldurinn er þakklæt-
isvottur fyrir land Samvinnu-
skólans er erfingjar þeirra hjóna
gáfu Samvinnuskólanum á sínum
tíma.
Skjöldurinn er mótaður eftir
birkilaufí sem tekið var á skólalóð-
inni sl. sumar og var honum komið
fyrir á hraunkletti sem skagar fram
í heimreiðinni. Á skildinum er áletr-
un sem lýsir þökk íslenskra sam-
vinnumanna.
INNLENT
Háskólahappdrættið og SIBS:
Happdrættismið-
ar hækka um 50%
VERÐ á happdrættismiðum hjá
happdrætti Háskólans og happ-
drætti SÍBS hækkaði um 50% nú
um áramótin, eða úr 200 í 300
krónur á mánuði. Heildarvinn-
ingupphæð happdrættanna
hækkaði einnig um 50%, en miða-
verð hefur staðið í stað undan-
farin tvö ár.
Heildaríjárhæð vinninga hjá
happdrætti Háskólans er nú 1.360,8
milljónir króna, að sögn Jóhannesar
Helgasonar framkvæmdastjóra
happdrættisins. Lægsti vinningur
hækkar úr 5000 krónum í 7500
krónur, en hæsti vinningur á einn
miða er nú 5 milljónir. Happdrætti
Háskólans hleypti af stokkunum
skyndihappdrættinu Happaþrennu
í mars sl., og hefur miðaverðið, 50
krónur, haldist óbreytt og engin
hækkun áætluð á næstunni.
Ólafur Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri happdrættis SÍBS,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að heildarvinningsupphæð happ-
drættisins væri nú 163,4 milljónir,
en vinningum hefur verið fjölgað
um rúmlega 30%. Lægsti vinningur
hjá happdrætti SÍBS er 5000 krón-
ur, en hæsti vinningur 3 milljónir.