Morgunblaðið - 06.01.1988, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1988
Þóra Jónsdótt-
Kveðja
Vegna mistaka við birtingn
þessarar minningargreinar sl.
sunnudag, biðst Morgunblaðið
velvirðingar og birtir hana aftur.
Fædd 20. október 1902
Dáin 20. desember 1987
Frú Þóra Jónsdóttir er látin. Ég
var svo lánsöm að vera bamabam
hennar og langar mig að minnast
hennar í örfáum orðum.
Amma var ein af þeim sem maður
vill svo gjarnan líkjast og taka til
fyrirmyndar. Hún var alla tíð heil-
steypt og sönn gagnvart sjálfri sér
og samferðafólki sínu. Heimili sitt
annaðist hún ætíð af festu og kost-
gæfni hvort sem um stórt húshald
eða lítið var að ræða. Alltaf var
gott að koma í heimsókn til ömmu
Þóm, öllum tók hún opnum örmum,
hlustaði, sýndi skilning, ráðlagði og
síðast en ekki síst, gaf ómælda
hjartahlýju og elsku.
Að vera vandur að virðingu sinni
fínnst mér lýsa best hvemig amma
var, og jgerði sér far um að kenna
okkur. A það við um svo margt og
má nefna; umhverfí sitt og eigið
útlit, faia vel með það sem gefíð er
án óþarfa íburðar og prjáls; málfar
og samræður, segja heldur minna
og vanda orð og umtal; samskipti
við náungann, velja góðan félags-
skap og sýna sanngimi. 'Hennar
leiðarljós var kristin trú og mann-
kærleiki.
Það er erfítt að sjá á bak ömmu
Þóm en efst í huga er þakklæti fyr-
ir að hafa þekkt hana og notið
hennar. Minningar hennar lifír með
mörgum. Guð blessi ömmu mína.
María
Birting afmælis- og
minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á
2. hæð i Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins i Hafn-
arstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að
berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.
VilfríðurÞ. Bjama-
dóttir — Minning
Fajdd 28. september 1893
Dáin 23. desember 1987
Mig langar með örfáum orðum
að minnast ömmu minnar, Vilfríðar
Þ. Bjarnadóttur eða ömmu Villu
eins og hún var kölluð. Amma var
94 ára þegar hún lést á Hrafnistu,
þar sem hún hafði verið rúmliggj-
andi í nokkur ár og var eflaust
hvíldinni fegin.
Um leið og ég þakka ömmu minni
samfylgdina minnist ég allra okkar
samverustunda með þakklæti, þar
sem hún miðlaði mér af reynslu
sinni og þekkingu. Amma var glað-
lynd og glæsileg kona og bar sig
með reisn og alltaf var gaman að
koma til hennar að Austurbrún 4.
Nú veit ég að elsku amma mín
er komin til nýrra heimkynna, en
ég kveð hana með virðingu og þökk,
blessuð sé minning hennar.
Þá svefn að öllu sígur,
mín sál, ó drottinn, stígur
í hæé og þakkar þér.
Þá harkið heimsins þagnar,
mitt hjarta rónni fagnar
og finnur, að þú ert hjá mér.
(Þýð. Stefán Thorarensen.)
Halla Hauksdóttir
4:U'- "" .. " ■' *..................
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
| tilboö — útboó ~~]
IH ÚTBOÐ
Skiptilsölu
Tilboð óskast í vitaskiptið Árvakur, þar sem
það liggur við Suðurhöfnina í Hafnarfirði, í
því ásigkomulagi sem skipið er í núna.
Skipið verður til sýnis eftir nánara samkomu-
lagi við forstöðumann vita hjá Vitamálastofn-
un og gefur hann jafnframt allar nánari
upplýsingar, sími 27733.
Tilboð leggist inn á skrifstofu vora eigi síðar
en 20. jan. nk. kl. 11.30 f.h. og verða þau
þá opnuð í viðurvist viðstaddra bjóðenda.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
Borgartúni 7, sími 26844.
Auglýsing frá ríkisskattstjóra
Vísitala
jöfnunarhlutabréfa
Samkvæmt ákvæðum 5. og 6. málsl. 1.
mgr. 9. gr. laga nr. 75/1981 um tekjuskatt
og eignarskatt hefur ríkisskattstjóri reiknað
út vísitölu almennrar verðhækkunar í sam-
bandi við útgáfu jöfnunarhlutabréfa á árinu
1988 og er þá miðað við að vísitala 1. janú-
ar 1979 sé 100.
1. janúar 1980 vísitala 156
1. janúar 1981 vísitala 247
1. janúar 1982vísitala 351
1. janúar 1983 vísitala 557
1. janúar 1984vísitala 953
l.janúar 1985vísitala 1.109
1. janúar 1986vísitala 1.527
1. janúar 1987 vísitala 1.761
l.janúar 1988vísitala 2.192
Við útgáfu jöfnunarhlutabréfa skal annars
vegar miða við vísitölu frá 1. janúar 1979
eða frá 1. janúar næsta árs eftir stofnun
hlutafélags eða innborgunar hlutafjár eftir
þann tíma, en hins vegar við vísitölu 1. janú-
ar þess árs sem útgáfa jöfnunarhlutabréfa
er ákveðin.
Reykjavík, 6.janúar 1988.
Ríkisskattstjóri.
Kanaríeyjafarþegar
Sendum ykkur bestu nýársóskir og þökkum
liðin ár. Erum ennþá á sama stað á skrifstof-
unni á Broncemar.
Auður og Klara,
fararstjórar Flugleiða.
Auglýsing frá
ríkisskattstjóra
um skilafresti launaskýrslna o.fl.
gagna samkvæmt 92. gr. laga nr.
75/1981 um tekjuskatt og eigna-
skatt.
Samkvæmt lokamálsgrein 93. gr. nefndra
laga hefur skilafrestur eftirtalinna gagna,
sem skila ber á árinu 1988 vegna greiðslna
á árinu 1987, verið ákveðin sem hér segir:
I Til og með 20. janúar 1988:
1. Launaframtal ásamt launamiðum.
2. Hlutafjármiðar ásamt samtalnings-
blaði.
3. Stofnsjóðsmiðar ásamt samtaln-
ingsblaði.
4. Bifreiðahlunnindamiðar ásamt sam-
talningsblaði.
II Til og með 22. febrúar 1988:
1. Afurða- og innstæðumiðar ásamt
samtalningsblaði.
2. Sjávarafurðamiðar ásamt samtaln-
ingsblaði.
III Til og með síðasta skiladegi skatt-
framtala 1988, sbr. 1.-4. mgr. 93.
gr. nefndra laga:
1. Greiðslumiðar yfir hvers konar
greiðslur fyrir leigu eða afnot af
lausafé, fasteignum og fasteignum
og fasteignaréttindum, sbr. 1. og 2.
tl. C-liðar 7. gr. sömu laga. (Athygli
skal vakin á því að helmingur
greiddrar leigu fýrir íbúðarhúsnæði
til eigin nota vegna tekjuársins er til
frádráttar í reit 70 á skattframtali
skv. 3. tl. E-liðar 30. gr. nefndra
laga enda séu upplýsingar gefnar á
fullnægjandi hátt á umræddum
greiðslumiðum).
Reykjavík, 6.janúar 1988.
Ríkisskattstjóri.
| húsnæöi i boöf~
Verslunarhúsnæði
nálægt Laugavegi
Til sölu er ca 270 fm gott verslunarhúsnæði
á götuhæð í nálægð Laugavegar.
Verð er 38.000,- kr. á fermetra.
Góð áhvílandi lán.
Allar frekari upplýsingar veitir: Heimir Sigurðs-
son, sími 666501 eða 666701 (heimasími).
Aðalfundur
Aðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna i Reykjavík verður hald-
inn miðvikudaginn 13. janúar nk. kl. 21.00 i Átthagasal Hótel Sögu.
Á dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
3. Önnur mál.
Stjórn fulltrúaráðs.
Hafnfirðingar
- Stefnir
Laugardaginn 9. janúar kl. 10.30 verða fundir i starfshópum Stefnis,
félags ungra sjálfstæðismanna i Hafnarfirði, i Sjálfstæðishúsinu við
Strandgötu.
Allir velkomnir.
Stjómin.
Hafnfirðingar
- f ramtíðarsýn
Þorsteins Pálssonar
Hádegisverðarfundur Stefnis, félags ungra
sjálfstæðismanna i Hafnarfirði, veröur hald-
inn i Sjálfstæðishúsinu við Strandgötu
laugardaginn 9. janúár kl. 12.30.
Gestur fundarins verður Þorsteinn Pálsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætis-
ráðherra. Ræðir hann framtiðarsýn sina.
Allir velkomnir.
Stjómin.