Morgunblaðið - 06.01.1988, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1988
31
Dráttur á greiðslu til sauðfjárbænda:
Mun leiða til endurskoð-
unar á fyrirkomulaginu
- segir Haukur Halldórsson formaður Stéttarsambauds bænda
„SVONA uppákomur ganga ekki
og munu leiða til endurskoðunar
á þessu fyrirkomulagi," sagði
Haukur Halldórsson formaður
Stéttarsambands bænda um
greiðslur sláturleyfishafa til
bænda fyrir sauðfjárinnlegg í
haust. Innleggið átti að vera að
fullu greitt fyrir 15. desember
en margir sláturleyfishafar hafa
enn ekki greitt bændum að fullu.
Flestir færðu innleggið inn á við-
skiptareikninga bænda fyrir
áramót, án þess að lofa greiðslu.
Sláturleyfishafar telja að ríkið
hafi ekki staðið við loforð um fjár-
mögnun staðgreiðslu afurðanna
sem gefin hafi verið út við sam-
þykkt búvörulaganna. Landbúnað-
arráðuneytið telur hins vegar aó
Hvítanesið:
íslenskum skipverj-
um ekki sagt upp
- segir Guðmundur Asgeirsson
framkvæmdastjóri Nesskips hf.
FRAMKVÆMDASTJÓRI Nes-
skips, Guðmundur Asgeirsson,
hafði samband við Morgunblaðið
vegna fréttar á bls. 61 í blaðinu
í gær, þar sem haft var eftir
Guðmundi Hallvarðssyni, form-
anni Sjómannafélags Reykja-
víkur, að fjórum islenskum
skipverjum á m/s Hvítanesi hafi
nýlega verið sagt upp störfum
og Pólveijar ráðnir í þeirra stað.
„Það hefur engum íslenskum skip-
vetja á Hvítanesi verið sagt upp
störfum," sagði Guðmundur. „Einn
hinna fjóru skipvetja sem Guð-
mundur Hallvarðsson segir að sagt
hafi verið upp störfum, er í fríi í
Austurlöndum, annar er að taka
meirapróf, sá þriðji er matsveinn
og ekki í Sjómannafélagi Reykja-
víkur. Hann hafði beðið um að vera
færður í annað skip Nesskips hf.
og er þar nú í starfi. Sá fjórði er
bátsmaður á Hvítanesi. Það hafa
engar vangaveltur verið uppi um
að segja þessum mönnum upp störf-
um. Hins vegar hafa útlendingar
einnig verið í áhöfn Hvítanessins
sem er skráð í Panama,“ sagði
Guðmundur Ásgeirsson.
búið sé að gera þær ráðstafanir
með afurðalánum og staðgreiðslu-
láni ríkissjóðs að sláturleyfishafarn-
ir hafi átt að geta greitt bændum
afurðirnar að fullu rétt eftir miðjan
desember. Landbúnaðarráðuneytiá
hefur nú boðað forystumenn slátur-
leyfishafa og fulltrúa bænda á fund
í ráðuneytið í dag til að skýra þenn-
an ágreining.
Haukur Halldórsson sagðist ekki
geta sagt hvemig best væri að
bæta úr. Hann sagði að ýmsum
hugmyndum hefði verið várpað
fram, til dæmis að ríkið keypti allt
kjötið beint af bændum og slátur-
leyfishafarnir yrðu þá eingöngu
verktakar við slátrunina eða hverfa
aftur til gamla umboðssölukerfis-
ins. Báðum þessum hugmyndum
hefði verið varpað fram og ýmsum
þar á milli.
Lúðvík Georgsson hjá KR:
I lANDSSAMBAK
JHJAlWUlSVflTASU;,
BOMBUR
Uröbcimpfgarum
nctkun
X'‘
'!
Engin eftirsjá í
hættulegri vöru
Söluaðilar kanna skaðabótaskyldu
Athugasemd frá stjóm
Félags þroskaþjálfa
MORGUNBLAÐINU hefur
borizt eftirfarandi athugasemd
frá sljórn Félags þroskaþjálfa:
Þetta er skrifað í tilefni af grein
er birtist í Morgunblaðinu sunnu-
daginn 13. desember 1987. Þar er
ijallað um heimilismenn á deild 2 á
Kópavogshæli á mjög persónulegan
hátt.
Stjóm Félags þroskaþjálfa vill
taka fram að þroskaþjálfar eins og
aðrir opinberir starfsmenn þurfa að
gæta þagmælsku um ákveðin atriði
í starfi sínu. Þetta er ítrekað í 6.
grein laga um þroskaþjálfa nr.
18/1978, þar segir: „Þroskaþjálfa
er skylt að gæta þagmælsku um
atriði, sem hann fær vitneskju um
í starfi sínu og leynt skulu fara
skv. lögum eða eðli máls. Þagnar-
skylda helst þótt viðkomandi hafi
látið af störfum."
Við fögnum því að á undanföm-
um árum hefur umfjöllum um
málefni fatlaðra aukist og opnast
með hvetju árinu sem líður. Þessi
umfjöllun hefur að flestu leyti verið
til góðs og stuðlað að auknum skiln-
ingi almennings á aðstæðum og
þörfum fatlaðra. En kynning á
stofnunum fyrir fatlaða er vand-
meðfarin. Hér teljum við að gengið
hafi verið of langt og blaðamanni
látnar í té of miklar og persónuleg-
ar upplýsingar. Auk þess teljum við
að blaðamaðurinn hafi leyft sér að
lýsa fólki á neikvæðan hátt og
leggja mat á útlit þess. Kynning
má aldrei vera á kostnað hins fatl-
aða eða aðstandenda hans og
. verður að lúta lögum og reglugerð-
um. Þetta á ekki síst við um
kynningu á heimilum fólks, þar
þurfa bæði starfsmenn og fjölmiðla-
fólk að gæta þess að rjúfa ekki
friðhelgi einkalífsins.
Rekstrarfræði á há-
skólastigi að Bifröst
S AMVINNU SKÓLINN að Bi-
fröst í Borgarfirði verður sér-
skóli á háskólastigi næsta haust.
í fréttatilkynningu frá skólanum
segir, að samvinnuskólapróf i
rekstrarfræðum verði tekið að
loknu tveggja ára námi, en inn-
tökuskilyrði er stúdentspróf af
hagfræði- eða viðskiptabraut.
Auk þess verður boðið eins vetr-
ar undirbúningsnám til inntöku
í rekstrarfræðanám. Inntöku-
skilyrði í undirbúningsnámi er
þriggja ára nám á framhalds-
skólastigi án tillits til námsbraut-
ar.
Viðfangsefni námsins verða m.a.
verslunar- og framleiðslustjórn,
starfsmannastjómun og skipulags-
mál, fjármálastjórn og reiknings-
hald, almannatengsl, lögfræði og
félagsfræði. Áhersla verður lögð á
raunhæf verkefni og tengsl við at-
vinnulífið. Viðfangsefni í undirbún-
ingsnámi verða m.a. yfirlit um
viðskipta- og félagsmálagreinar
miðað við nemendur sem áður hafa
stundað nám á ólíkum námsbraut-
um, t.d. í iðn- eða vélskólum,
sjómanna- eða bændaskólum,
mennta-, verslunar- eða fjölbrauta-
skólum, fiskvinnslu- eða öðrum
verkmenntaskólum.
„OKKUR er engin eftirsjá í
vöru sem talin er hættuleg al-
menningi," sagði Lúðvík
Georgsson hjá Flugeldasölu KR.
„Fyrstu viðbrögð okkar við
fréttum af þessum slysum voru
á þá leið að banna ætti bomb-
urnar, en við munum bíða eftir
niðurstöðu rannsókna opin-
berra aðila með endanlega
ákvörðun í málinu." Söluaðilar
kanna nú hvort þeir séu skaða-
bótaskyldir vegna slysa sem
hlotist hafa af meðferð
tívolíbombanna.
Lúðvík sagðist ekki vera sáttur
við skrif um að til sölu hefðu verið
bannaðar tívolíbombur. Hann
sagði að frá 1980-1984 hefðu ver-
ið tvær tegundir af tívolíbombum
af markaði. B orið hefði á því að
minni bombunum hefði verið skotið
úr rörum fyrir þær stærri, því hefði
fylgt slysahætta og það átt þátt í
Leiðrétting
í grein minni í Morgunblaðinu
í gær, á blaðsíðu 16, hafa slæðst
nokkrar villur, flestar léttvægar,
en þó vil ég leiðrétta meinlegar
villur á tveim stöðum í greininni:
1. í lok 3. töluliðs greinarinnar
átti að standa: „Borgarsjóður
verður að gera sér ljóst, að ef
þessum ágangi heldur áfram,
þá verður Reykjavíkurborg að
leysa þessi hús til sín og greiða
fullar bætur fyrir.“ Þarna féll
niður orðið „til“.
2. í lok greinar minnar átti að
standa: „Verði nú hætt við í
annað sinn, að hola ráðhúsi
niður í Tjörnina, þá býð ég lóð
við Tjörnina vestanverða til
þess að reisa styttu af Davíð
Oddssyni...“ Þarna stóð „eia“
í stað reisa.
Reykjavík, 6. janúar 1988,
Leifur Sveinsson.
að ákveðið var að banna stærri
gerðina en léyfa þá minni. Þetta
hefði verið gert í samstarfi innflytj-
enda og yfirvalda. Minni gerðin
hafi í daglegu tali verið nefnd 2
tommu en væri í raun 2’A tommu
og skotið úr 2Vs tommu röri. Svo
óhönduglega hefði tekist til við
samningu reglnanna að ekki hefði
verið slegið máli á bombumar,
heldur eingöngu stuðst við þessa
málvenju og frá 1984 hefðu þessar
„2 tommu“ bombur verið hinar
stærstu á markaðinum eins og
ætlunin hefði verið að yrði .
Lúðvík kvaðst telja að
tívolíbombumar sem KR seldi
hefðu verið nægilega vel merktar
enda hefðu aldrei borist athuga-
semdir frá Eldvarnaeftirliti um
annað. Eldvarnaeftirlitsmenn
hefðu árlega skoðað lager, merk-
ingar og aðstæður í söluskála KR
en engar athugasemdir gert.
Að sögn Lúðvíks hefur út-
breiðsla tívolíbomba margfaldast
síðastliðin 2-3 ár. „Áður vom það
fáir menn sem keyptu þessar
bombur ár eftir ár og vissu full-
komlega hvað þeir vom með í
höndunum. Fyrir nokkmm ámm
fóm síðan ónefndir aðilar að reka
grimman áróður fyrir sölu þessara
sprengja og nú þykir sá varla
maður með mönnum sem ekki
skýtur upp tívolíbombum. Þær em
langódýrastar sé miðað við ljós-
í frétt Morgunblaðsins í gær var
sagt eftir Bjarka Elíassyni, yfir-
lögregluþjóni í Reykjavík, að
lögregla hefði ekki verið kvödd
á vettvang í neinu þeirra tilfella,
þegar menn slösuðust á gamlárs-
magn og verð á þeim hækkaði
ekki nema um 10% nú milli ára,
þetta er kínversk framleiðsla og
verð bundið við bandaríkjadal.
Aðrir stórir flugeldar, vestur-
þýskir, breskir og íslenskir hafa
hækkað margfalt meira.
„Afleiðingin er sú að notkunin
hefur margfaldast og þrátt fyrir
að við höfum merkt vömna vel og
látið sérstakar leiðbeiningar fylgja
hveiju setti, virðist sem margir
hafi ekki gert sér grein fyrir hvað
þeir vom með hættulegan hlut í
höndunum," sagði Lúðvík Georgs-
son.
Skátar kanna skaða-
bótaskyldu
Björn Hermannsson fram-
kvæmdastjóri Landsambands
Hjálparsveita skáta sagði á sama
hátt og Lúðvík frá tilkomu þess að
stærri gerðir tívolíbomba vom
bannaðar árið 1984. Hann sagði
einnig að allir skoteldar sem seldir
hefðu verið i nafni LHS hefðu verið
mektir mjög vel, betur en gerðist
annars staðar. Til marks um það
nefndi hann að á hólka fyrir
tívolíbombur hefðu verið límdar
varúðarleiðbeiningar og allar um-
búðir verið merktar mjög vandlega.
Varðandi skaðabótaskyldu sagði
Bjöm að skátar hefðu leitað álits
lögfræðinga á því máli og væri það
til athugunar.
kvöld af völdum tívolíbomba.
Rétt er, að lögi’eglan í Borgar-
nesi var kvödd til vegna annars
slyssins, sem varð í hennar um-
dæmi. Það slys varð við orlofshús
Iðju í Svignaskarði.
Slysin á gamlárskvöld:
Lögreglan í Borgarnesi
var kvödd að Svignaskarði