Morgunblaðið - 06.01.1988, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1988
21
til sem gerir þessi tímamót erfið
fyrir fólk. Margir eru einhleypir og
lenda þá í enn meiri einangrun. Og
á lífeyrisaldri gerist það oft að
maki fellur frá eða verður varanlega
veikur.
Fólkið sjálft
Til að vinna að undirbúningi ell-
innar þarf fólk að mínu viti að byrja
á skipulegan hátt að hugsa um elli-
árin miklu fyrr. Það getur orðið of
seint að búa sig undir ellina þegar
maður gengur einn daginn út af
vinnumarkaði sem „löggilt gamal-
menni“. Umræða um aðlögun
starfsloka þarf að fara fram á miklu
víðara sviði en nú er gert. En fyrst
og fremst þarf fólkið sjálft, þeir sem
nálgast lífeyrisaldurinn, að huga
að þessum málum. Auðvitað eru
margir sem eiga fijó áhugamál og
eru vel staddir félagslega á þessum
tímamótum. Hitt mun þó vera al-
gengara að visst tómarúm skapist
og viðbrigðin frá fullri þátttöku í
algera hvíld séu of mikii. Samtök
fólks, svo sem verkalýðshreyfingin,
þurfa að taka þessi mál til endur-
skoðunar. Innan raða verkalýðs-
hreyfingarinnar er meginþorri af
vinnandi fólki í landinu. Á þessum
vettvangi þarf að vinna skipulega
að málunum. Fólk þarf sjálft að
taka þetta upp í verkalýðsfélögun-
um áður en það verður gamalt og
í samtökum opinberra starfsmanna
og í öðrum fjöldasamtökum fólks.
Fólkið sjálft þarf og á að hafa frum-
kvæði að því að brúa bilið út af
vinnumarkaði og inn á lífeyrisaldur-
inn — sérstaklega félagslegu hlið-
ina. Að mínu viti hefur verkalýðs-
hreyfingin brugðist þarna og orðið
það fyrst fyrir að „hringja í
steypubíl" þegar nálgast verkalok-
in.
Brúarsmíðin
Hér verður að lokum sagt frá
tilraunum sem gerðar eru í Kópa-
vogi á þessu sviði. í Kópavogi starfa
tvenns konar samtök fólks sem
komið er á fullorðinsár. Þessi sam-
tök skarast. Onnur þessara sam-
taka eru „Hana nú“ klúbbarnir, sem
eru óformleg samtök fólks sem er
50 ára og eldra. Þessi samtök hafa
starfað í nokkur ár og fá svolítinn
styrk frá bæjarfélaginu ti) að skipu-
leggja starfið og eru formlega tengd
félagsmálaþjónustu bæjarins. Að
öðru leyti reka klúbbamir sig sjálf-
ir og eru þeir óformlegir en sérstak-
ur starfsmaður aðstoðar við að
skipuleggja starfið. Engin gjöld eru
í klúbbunum, engin stjóm og engar
kvaðir. Fólk tekur þátt í starfi
klúbbanna ef það langar til þess
og annars ekki. Og starfsemin er
öll byggð á hugmyndum fólksins
sem starfar í klúbbunum. í þá em
nú skráðir um fimm hundruð ein-
staklingar sem em auðvitað
mismunandi virkir m.a. vegna þess
að meginþorri félaganna er enn á
vinnumarkaði og hefur ýmsar
skyldur þar og annars staðar.
Þau verkefni sem félagar í Hana
nú klúbbunum velja sér em öll val-
in með það fyrir augum að um
skemmtilegt og fijótt félagslíf sé
að ræða. Það em ótrúlegar uppá-
komur í Hana nú og sífellt leitað á
ný mið. En gmnntónnin er að mað-
ur er manns gaman. Það em
margar dýrðlegar stundir sem við
höfum átt og upplifað í þessum
óformlegu samtökum, undanfarin
ár. Þó ekki væri annað en það,
væri tilgangi náð, en ekki er vafi
á því að þau verkefni Hana nú
klúbbanna sem tengjast listum,
bókmenntum, náttúmskoðun og
ýmis skonar menningarstarfsemi
fyrir utan samvem í léttari dúr,
verða eftir í pokahominu þegar við
göngum að lokum út af vinnustað
okkar að loknu ævistarfi. Og félags-
leg tengsl og vináttubönd verða í
mörgum tilvikum varanleg. Og ekki
má gleyma því að í fjöldaaðgerðum
heildarsamtaka Hana nú klúbbanna
koma oft gestir félaganna, bæði
böm og aðrir sem brúa enn frekar
kynslóðabilið.
Hin samtökin sem starfa í Kópa-
vogi em Félagsstarf aldraðra sem
er bundið við 67 ára aldurinn —
„löggildinguna". í félagsstarfinu er
mjög mikil gróska og á ýmsum
sviðum þjónusta fyrir fullorðið fólk
sem Hana nú klúbbarnir em ekki
með á sinni könnu. Starfsemin skar-
ast. Á þenna hátt er gerð tilraun í
Kópavogi til að byggja brú og gefa
fólki kost á að byija fyrr að huga
að elliárum og raunar löngu áður
en sá tími kemur. Þetta er gert á
fijálsan og óformlegan hátt. Tilboð-
in em miðuð við þarfir hvers aldurs
og áhugamál og þegar að því kem-
ur að þrekið minnkar á elliárunum
em til hliðar við þetta tilboð eins
og vönduð heimilishjálp og ýmis
önnur aðstoð sem ellilífeyrisþegar
eiga kost á að njóta.
Höfundur er atvinnumálafulltrúi
íKópavogi.
Merniina flýjum við ekki
Békmenntir
Jóhann Hjálmarsson
Jón Erlendsson: KVÆÐABÓK.
Utgefandi höfundur, Akureyri
1987.
Kvæðabók er fyrsta bók Jóns
Erlendssonar. Bókin er ekki ólík
öðmm byijendaverkum, en athygli
vekur fjölbreytni formsins. í bókinni
em háttbundin ljóð, órímuð ljóð og
ljóð sem brúa bil beggja.
Yfírleitt tekst Jóni Erlendssyni
best að koma hugsunum sinum á
framfæri þegar hann er hvað lengst
frá gömlum bragarháttum. Dæmi
er Frelsi:
Ein tegund af frelsi væri
að flýja mennina
í svanaliki út að
vötnunum
i viðáttum heiðanna.
Þau ljóð Jóns Erlendssonar sem
leitast við að vera háttbundin gjalda
þess að höfundurinn hefur ekki
gott vald á slíku formi og honum
hættir mjög til mælsku. Hlutar
þessara ljóða em þó ekki illa ortir,
stundum er laglega kveðið, en of
oft minna þau á það sem Jón segir
sjálfur í Lífinu og tímanum að
„nauðsynlegt er að gæða hlutina
nýju Iífi“. Því ber ekki að leyna að
sumt er æði veigalítið í Kvæðabók
og skyggir á lofsverðar tilraunir til
skáldskapar.
Jón hefur tilhneigingu til ær-
ingjaskapar og ber út af fyrir sig
ekki að lasta. En þessi einkenni
hans nýtast sjaldan í ljóði, þó einna
helst þegar hann temur sér hófstill-
ingu. Dæmi em Nagli og Steinninn
i steypunni, bæði ljóðin stutt og
ekki fjarri þvi að vera hnyttin. Sum
ljóðin í bókinni em varla annað en
glens.
Þó væri sú kennd fundin
vegna Qærveru manna.
Mennina flýjum við ekki.
Og i líki mávsins er hverfur
frá bláum öldum hafsins
að leita sér ætis á öskuhauga þéttbýlisins
myndum við fljúga þvert á drauminn
og heim.
Meðal annarra ljóða sem njóta
þess að höfundurinn fer fijálslega
með form em Ég vil fara um þessi
fjöll og dali, Andartak sumar,
Gagnvart deginum og í skugga
ormsins.
m
dBASE 111+ 12.1.
INNRITUN TIL
ÍUAN.
SÍMl:
621066
ERT PÚ AÐ FÁST VIÐ FÉLAGATÖL,
PÓSTLISTA EÐA AÐRAR SKRÁR?
dBASE 111+ GERIR ÞETTA
AÐ EINFÖLDU MÁLI.
EFNI:
• Um gagnasafnakerii. • Skipulagning og uppsetning
gagnasafna. • Rööun gagna. • Útreikningar
og úrvinnsla. • Útprentun skýrslna, límmiða og giróseöla.
LEIÐBEINANDI: Valgeir Hallvarðsson, véltæknifræðingur.
TÍMI OG STAÐUR: 12.-14. jan. kl. 13.30 - 17.30 að Ánanaustum 15.
ALVÍS BÓKHALD 11.1.
INNRffUNTIL
B.JAN.
SÍMI:
621066
ALVÍS BÓKHALD
Með þekkingu og valdi á notkun Alvís bókhaldskerfis-
ins er hægt að nýta hina miklu möguleika þess til
hlítar.
EFNI:
• Aðalbókhald • Viðskiptamannabókhald
• Skuldabókhald • Afstemmingar • Áætlanakerfi
• Uppgjörskerfi • Gjaldkerakerfi
LEIÐBEINANDI: Sigríður Olgeirsdóttir.
TÍMI OG STAÐUR:
11.-14. jan. kl. 13.30- 17.30 að Ánanauslum 15.
MULTIPLAN
INNRITUN TIL
15.JAN.
SÍMh
621066
ÁÆTLANAGERÐ, TÖLULEG
ÚRVINNSLA OG SAMANBURÐUR
ÓLÍKRA VALKOSTA ERU DÆMIGERÐ
VERKEFNI MULTIPLAN
Multiplan er mest notaði töflureiknir á íslandi
og þótt víðar væri leitað.
LEIÐBEINANDI:
Ólafur H. Einarsson, kerfisfræðingur.
TÍMI OG STAÐUR:
18- 21. jan. kl. 13:30 - 17:30 að Ánanaustum 15.
RITVINNSLUKERFIÐ WORD i 181
INNRfTUNTIL
15.JAN.
SÍMI:
621066
SÉ RITVINNSLA EITTHVAÐ FYRIR ÞIG,
ÁTT ÞÚ ERINDI VIÐ WORD KERFIÐ,
eitt hið öflugasta og mest noiaða hérlendis.
Word kerfið inniheldur m.a. sjálfvirkt efnisyfirlit
og atriðaskrá. í því má vinna samtímis
á 7 mismunandi skrár.
EFNI:
• Skipanir kerfisins. • Uppsetning skjala og bréfa.
• íslenskir staðlar. • Æfingar.
LEIÐBEINANDI:
Ragna Sigurðardóttir Guðjohnsen, ritvinnslukennari.
TÍMI OG STAÐUR:
18,- 21. jan. kl. 8:30 til 12:30 að Ánanaustum 15.
ATHUGIÐ! VR OG STARFSMENNTUNARSJÓÐUR BSRB STYRKJA FÉLAGSMENN SÍNA
TIL ÞÁTTTÖKU í NÁMSKEIÐUM SFÍ.
Scjórnunarfélag Í5[ands 4
TÖLVUSKÓU A i
. Ánanaustum 15 Simi: 6210 66 ^===1 J——s
flD PIONEER