Morgunblaðið - 06.01.1988, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1988
Stærsta farþegaskip heims
Reuter
The Sovereign of the Seas, eða Einvaldur heimshafanna, sem er stærsta farþe^askip heims, siglir hér inn
í höfnina í Miami í Flórídu eftir ferð yfír Atlantshaf frá Frakklandi. Skipið er 74.000 tonn og rúmar allt
að 2.690 farþega.
Suður-Afríka:
Löggæsla aukin í
Pietermaritzburg
Pakistan:
Ætluðu að sprengja júmbó-
þotuna í loft upp yfir Israel
Rawalpindi, Reuter.
FIMM Palestínuarabar sem nú
bíða úrskurðar dómstóls í Raw-
alpindi í Pakistan sakaðir um að
hafa rænt bandarískri farþega-
flugvél árið 1986 sögðu i gær að
þeir hefðu ætlað að sprengja
vélina í loft upp einhvers staðar
yfir landssvæði ísraels. í yfirlýs-
ingu frá fimmmenningunum
segir að þeir hafi ætlað sér að
sleppa gíslunum fjögur hundruð
áður en vélin yrði sprengd upp
og sögðust þeir ekki bera ábyrgð
á blóðbaðinu sem fylgdi í kjölfar
flugvélarránsins.
Fjórir vopnaðir menn rændu
júmbóþotu Pan Am flugfélagsins á
flugvelli í Karachi þann 5. septem-
ber árið 1986. Eftir átök milli
árásarmannanna og öryggissveita
lágu 22 farþegar í valnum og meira
en hundrað manns særðust. Arásar-
mennimir neita ákæm um rán og
morð og segjast ekki bera ábyrgð
á blóðbaðinu. „Við komum til Pa-
kistans til að ráena bandarískri
flugvél til þess að draga athygli
heimsins að Palestínu sem var að
blæða út. Ætlan okkar var að ræna
vélinni, sleppa gíslunum lausum og
fljúga vélinni svo til ýmissa landa
og frelsa 1.500 palestínskar frelsis-
hetjur,“ segir í yfirlýsingu frá
leiðtoga mannanna, Salman Ali al-
Turki. Síðan hafí þeir ætlað að
sprengja vélina í loft upp yfír ísra-
el með sjálfum sér innanborðs til
að undirstrika kröfur sínar.
Farþegar sem lifðu flugránið af
segja á hinn bóginn að skothríðin
hafí hafist áður en jjakistanskir
hermenn komu á vettvang. Fyrst
hafí árásarmennimir farið með
bænir og svo beint sjálfvirkum riffl-
um sínum að farþegahópnum.
Réttarhöldin yfír mönnunum eiga
sér stað í nýju rammgerðu fangelsi
12 km fyrir utan Rawalpindi. Ef
fímmmenningamir verða sekir
fundnir um ákæmrnar eiga þeir
lífstíðarfangelsi eða dauðarefsingu
yfír höfði sér.
Jóhannesarborg, Reuter.
SUÐUR-AFRÍSKA lögreglan
sagði í gær að löggæsla yrði
aukin til muna í úthverfum í
grennd við Pietermaritzburg til
þess að reyna að binda enda á
valdabaráttu milli hópa svartra
manna sem hafa kostað fimm
mannslíf síðustu daga.
Að sögn lögreglustjórans í Piet-
ermaritzburg hefur löggæsla þegar
Varað við fjöl-
lyndi á kjöt-
kveðjuhátíðinni
Rio de Janeiro, Reuter.
Heilbrigðisyfirvöld í Brasilíu
hafa sent frá sér skorinorða við-
vörun til ferðamanna, sem
hyggjast vera á hinni frægu kjöt-
kveðjuhátíð í Ríó í næsta mánuði.
Ferðamenn eru eindregið varað-
ir við að stunda kynlíf af
kæruleysi og fjöllyndi þessa daga
vegna hættu á alnæmis-smitun.
Hátíðin er fræg um víða veröld
og á síðustu ámm hefur hún og
orðið alræmd vegna fjörs í kynlífs-
málum. Hátíðina hafa hommar sótt
í auknum mæli, en þeir em í Bras-
ilíu sem annars staðar taldir í hvað
mestri smitunarhættu. Yfir eitt þús-
und manns hafa dáið af völdum
aids í Brasilíu.
verið aukin en í ráði er að bæta enn
við. Ekki gat lögreglustjórinn um
hversu mörgum lögreglumönnum
yrði bætt við núverandi lið. Leiðtogi
vinstri sinnaðra svertingja sem tek-
ið hafa þátt í baráttu síðustu vikna
sagði að liðsaukinn yrði einungis
til þess að styrkja andstæðinga
þeirra, Inkatha, sem er íhaldsamur
flokkur Súlú-manna. Vinstri menn
halda því á lofti að yfirvöld séu
hliðholl Inköthum.
Peitermaritzburg hefur tekið við
af Soweto sem helsta óróasvæði
Suður-Afríku. Um 270 manns létu
lífíð í Pietermaritzburg og nágrenni
á síðasta ári. Að sögn lögreglu hafa
20 manns þegar fallið á þessu ári.
Þrír létust og einn særðist þegar
ráðist var á þá á götu í Mbubu
úthverfi Pietermaritzburg. Lík
tveggja manna fundust í nágrenni
Mbubu, höfðu þeir verið stungnir á
hol.
ERLENT
Umhverfisslys í S ovétríkj unum:
Aral-vatn að þoma upp
vegna áveituframkvæmda
með alvarlegum afleiðingum fyrir stóran hluta Mið-Asíu
Moskvu. Reuter.
ARAL-vatn í Asíuhluta Sovétríkjanna, áður fjórða stærsta vatn
í heimi, hefur minnkað um þriðjung á aðeins 20 árum. Af þeim
sökum blasir nú við umhverfisslys, sem haft getur stórkostlega
alvarlegar afleiðingar fyrir stóran hluta Mið-Asíu. Sagði frá þessu
í sovéska vikuritinu Ogonjok.
I tímaritinu sagði, að vatnið úr
fljótunum Amudaija og Syrdaija
hefði verið ekið til áveitu og vegna
þess væri nú svo komið, að fjöru-
borðið hefði hopað um 100 km
og vatnið giynnst um 12 metra.
„Ef ekki kemur til eitthvert
kraftaverk verður ekki komist hjá
stórkostlegum óförum,“ segir höf-
undur greinarinnar, Abdizhamíl
Nurpeisov, og bætir því við, að
engu sé um að kenna nema af-
skiptum mannanna — 20 ára
gamalli áætlun um að veita vatni.
á eyðimörkina í Kazakhstan og
Uzbekístan.
Vegna þessara áveitufram-
kvæmda tókst að rækta hrísgijón
og baðmull á stórum svæðum og
þorp og bæir risu á áður ófijóum
sléttunum. Þvi var hins vegar
engu skeytt, að vatnið, sem var
notað til áveitu, var sjálf lífsupp-
spretta Aral-vatns.
„Það er búið að eyðileggja vist-
fræðilegt jafnvægi á þessum
slóðum og afleiðingin er m.a.
tortímandi sand- og saltbyljir. Af
loftmyndum má sjá, að milljónir
tonna af sandi og salti hafa dreifst
yfír allt svæðið."
Fiskveiðar voru áður blómlegur
atvinnuvegur við Aral-vatn en nú
heyra þær sögunni til. Vatnið er
orðið of grunnt fyrir skipin og of
salt til að þar geti þrifíst fískur.
Áður fyrr var aflinn að jafnaði
um 5.000 tonn á ári.
Gresjumar, sem vatninu var
veitt á, eru einnig að eyðileggjast
vegna saltburðarins og mengað
drykkjarvatn er farið að hafa
veruleg áhrif á heilsufar fólksins
á þessum stöðum. „í aðeins einu
héraði, Kzul-Orda, er fólk, sem
haldið er smitnæmri gulu, 40%
sjúklinga í öllu Kazakhstan og
margir aðrir faraldrar hafa skotið
upp kollinum að auki,“ segir
greinarhöfundur og krefst tafar-
lausra aðgerða til að bjarga
Aral-vatni, sem „stjómar að
nokkm leyti veðurfarinu í Mið-
Asíu“.
Að undanfömu hafa Sovét-
menn verið að vakna til vitundar
um ástand umhverfismála í
ríkjunum og í fjölmiðlum er frétt-
um að því gert hærra undir höfði
en áður. Hefur t.d. mikið verið
fjallað um Bajkal-vatn í Síberíu
en út í það hefur eitmðum úr-
gangi verið dælt í langan tíma. í
Bajkal-vatni em um 20% af fersk-
vatni jarðarinnar.
EGGTENNIS
Tryggðu þér tíma strax.
Opið frá kl. 08.00 f.h. til 22.15 e.h
SÓLEY JAR *3l
ENGJATEIG 1
við Sigtúnsreit