Morgunblaðið - 06.01.1988, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1988
HANDKNATTLEIKUR / WORLD CUP í SVÍÞJÓÐ
r-J
WORLD-CUP
í SVÍÞJÓÐ
12.-17. JAN. 1988
i
PITEÁ
(1000 km frá Eskilstuna)
7. - 8. SÆTI
Laugardag 16. jan.
1
r^
)
UMEÁ
(800 km frá Eskilstuna)
5. - 6. SÆTI
Laugardag 16. jan.
(
I
I
I
ESKILSTUNA
DVALARSTAÐUR
LANDSLIÐSINS
ÖREBRO
(70 km frá Eskilstuna)
ÍSLAND -
JÚGÓSLAVÍA
Miðvikudag 13. jan.
STOKKHÓLMUR
KATERINEHOLM
(50 km frá Eskilstuna)
ÍSLAND -
A-ÞÝSKALAND
Þriðjudag 12. jan.
MOTALA
(160 km frá Eskilstuna)
ÍSLAND
DANMÖRK
Fimmtudag 14. jan.
Sovétmenn óhressir
með að fá ekki að taka
þátt í World Cup
Voru búnirað panta farseðla til Svíþjóðar
Sovétmenn eru óhressir með
að þeir hafi ekki fengið boð
frá Svíum um að taka þátt í
World Cup. Jewtuschenko,
landsliðsþjálfari Sovét-
manna, segir að hann hafi
verið búinn að panta farseðla
fyrir rússneska landsliðið -
sem ætlaði að verja titil sinn.
Sovétmenn, sem hafa alltaf
verið með í World Cup, eða
fjórum sinnum, urðu sigur-
vegarar síðast -1984.
Frekja Sovétmanna hefur vak-
ið mikla undrun hér í Svíþjóð,
því að þeir vitað um reglur World
Cup. Svíar bjóða til leiks sjö efstu
Þorbergur
Aðatsteinsson
skritarfrá
Sviþjóð
þjóðunum, fyrir
utan þá, úr síðustu
HM. Sovétríkin
náðu því ekki og
féllu niður í B-
keppni HM.
Jewtuschenko hefur bannað
tveimur sovéskum félagsliðum að
taka þátt í mótum í Svíþjóð, vegna
þessa máls.
Svíar með ráðstefnu
Sænska handknattleikssamband-
ið heldur ráðstefnu samfara World
Cup. Sambandið hefur boðið for-
ráðamönnum allra handknatt-
leiksþjóða á ráðstefnuna, sem þeir
nota til að kynna alla aðstöðu í
Svíþjóð - íþróttahús og annað, í
sambandi við umsókn þeirra á að
halda HM 1983. Svíar óttast nú
að Alexander Kozukov, aðalritari
sovéska handknattleikssam-
bandsins, mæti ekki á ráðstefn-
una, eins og hann hefur látið í
veðri vaka. Þeir eru hræddir um
að það skaði ráðstefnuna og um-
sókn þeirra til HM.
145 þús. óhorfendur
í gær kom það fram hér í blöðum
að Svíar reikna með að yfir 145
þús. áhorfendur komi til að sjá
leikina í HM-keppninni ef hún
verður haldin í Svíþjóð.
íslendingar
mæta A-Þjóð-
verjum fyrst
Síðan Júgóslövum og Dönum
Islenska landsliðið hefur
aðsetur í Eskilstuna
íslendingar mæta A-Þjóðverj-
um í fyrsta leik sínum í World
Cup í handknattleik í Svíþjóð.
Síðan verður leikið gegn
heimsmeisturum frá Júgó-
slavíu og Dönum. Þessar fjórar
þjóðir hafa samastað í Eskilst-
una, fyrir vestan Stokkhólm.
Íslendingar og A-Þjóðverjar leika
í Katrineholm, þriðjudaginn 12.
janúar. Leikurinn gegn Júgóslövum
verður leikinn á miðvikudegi í
Orebro og viðureignin gegn'Dönum
fer fram í Motala á fimmtudegi.
Ef Islendingar hafna í öðru af
tveimur efstu sætum B-riðilsins,
liggur leið þeirra til Stokkhólms,
þar sem leikið verður um 3.-4. sæti
og 1.-2. sæti á sunnudeginum 17.
janúar. Ef íslendingar hafna í þriðja
sæti fara þeir til N-Svíþjóðar, þar
■sem leikið verður í Umeá um 5.-6.
sætið. Keppnin um 7.-8. sætið fer
fram í Piteá, sem er einnig norðan-
lega í Svíþjóð.
Leikirnir í A-riðlinum, þar sem
Svíar, Ungverjar, V-Þjóðveijar og
Spánveijar leika í, fara fram í S-
Svíþjóð.
Niðurröðun leika í World Cup er
þessi:
Þríðjudagur 12. janúan
A-RIÐILL: Svíþjóð - Spánn í Malmö
og Ungveijaland - V-Þýskaland í
Váxjö.
B-RIÐILL: Júgóslavía - Danmörk í
Borlánge og A-Þýskaland - ísland
í Katrineholm.
Miðvikudagur 13. janúar:
A-RIÐILL: Svíþjóð - Ungveijaland
í Kalmar og V-Þýskaland - Spánn
í Kristianstad.
B-RIÐILL: ísland - Júgóslavía í
Örebro og Danmörk - A-Þýskaland
í Uppsölum.
Fimmtudagur 14. janúar:
A-RIÐILL: Svíþjóð - V-Þýskaland
í Ystad og Ungveijaland - Spánn í
Karlskrona.
B-RIÐILL: ísland - Danmörk í
Motala og Júgóslavía - A-Þýskaland
í Eskilstuna.
Svíar hafa nú þegar ákveðið að
sjónvarpa beint frá öllum áður-
nefndum leikjum Svía, svo og
úrslitaleiknum.
Svíar ætla sér að
leika til úrslita
Roger Carlson, landsliðs-
þjálfari Svía, hefur valið
landsliðshóp sinn, sem leikur í
World Cup. Carlson hefur sagt
að hann sætti sig ekki við neitt
annað - nema að leika til úrslita.
Landsliðshópur Svía er þannig
skipaður:
Markverðir: Mats Olsson, Lugi,
Mats Fransson, Lysekil og Tom-
as Svensson, Eskilstuna.
Aðrir leikmenn: Peder Jörphag
og Per Carlén, Granollers,
Magnús Wislaijder, Per Carls-
son,' Björn Jilsen og Per Jilsen,
Redbergslid, Robert Hedin,
Ystad, Mats Lindau og Staffan
Olsson, Cliff, Ola Lindgren,
Drott, Erik Hajas, Hellas, Sten
Sjögren, Lugi og Stefan
Kennegard, Vástra Frölunda.
Anders Dahl hefur
valið landsliðs-
hópinn sinn
ANDERS Dahl-Nielsen, lands-
liðsþjálfari Dana íhandknatt-
leik, hef ur valið landsliðshóp
sinn sem leikur í World Cup.
Hann hefur valið sautján leik-
menn, þar sem Morten Stig
Christensen, sem leikur með
norska liðinu Stavanger, getur
ekki verið með í öllum leikjum
Dana.
Danski landsliðshópurinn er
skipaður nær sömu leikmönn-
um og léku í mótinu í Danmörku á
dögunum. Danir unnu þá sigur,
25:24, yfir Islendingum:
Markverðir: Karsten Holm, Kold-
ing, Jens Chr. Kristensen, Skov-
bakken og Jens Warmberg, GOG.
Aðrir leikmenn: Jens Erik Roep-
storff og Flemming Hansen, Helsin-
gör, Morten Stig Christensen,
Stavanger, Klaus Sletting Jensen
og Claus Munkedal, Holte, Erik
Veje Rasmussen, Dragsholm, Kim
G. Jacobsen, Kolding, Otto Mertz,
Santander, Michael Fenger og Lars
Lundbye, HIK, Bjarne Simonsen,
Skovbakken, Frank Jörgensen,
Gladsaxe/HG, Niels-Erik Kilde-
lund, GOG og Ole Lauridsen, Ribe.