Morgunblaðið - 06.01.1988, Síða 17

Morgunblaðið - 06.01.1988, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 6. JANÚAR 1988 17 25 milljónir á tromp! 45 milljónir á númeríð allt! Rík ástæða fyrir þig til að taka þátt! pdrætti Háskólans hefur hæsta vinnings- hlutrall í heimi! 70% af veltunni fara til vinnings- hafa! Allir vinningar eru greiddir út í beinhörð- um peningum sem vinningshafar ráðstafa að eigin vild. Vinningarnir eru undanþegnir skatti! Vinningamir 1988: 9 á 5.000.000 kr./ 108 á 1.000.000 kr./ 108 á 500.000 kr J 324 á 100.000 kr./ 1.908 á 25.000 kr./ 10.071 á 15.000 kr./ 122.238 á 7.500 kr/ 234 aukavinningar á 25.000 kr./ Samtals 135.000 vinningar á 1.360.800.000 kr. Helgi Háifdanarson GRYTTJORÐ Nú á áramótum flutti útvarps- stjóri Ríkisútvarpsins prýðisgott ávarp til þjóðarinnar, og fjallaði meðal annars um nauðsyn þess að varðveita íslenzka tungu og veija hana fyrir óhollum erlend- um áhrifum. Fáeinum klukkustundum síðar var frá því sagt í fréttum Ríkisútvarpsins, að leiðtogar stórveldanna hefðu sagt eitthvað (hvað sem það nú var) um þjóð- ir hvors annars (í stað hvor um annars þjóðir), og að bflar hefðu rekizt aftan á hver annan (í stað hver aftan á annarí). Víst hefur ræða útvarpsstjór- ans verið orð í tíma töluð, fýrst starfsmenn hans, sem lögum samkvæmt eru skyldugir að vera til fyrirmyndar um málfar, hafa svo gersamlega glatað skilningi á algengustu orðum móðurmáls- ins og misst á þeim öll tök. Á þessum sama sólarhring hafði forsætisráðherrann og síðan forsetinn einnig eggjað þjóðina lögeggjan að varðveita Qöregg sitt, íslenzka tungu. Það var ánægjulegt, að þama skyldu þessir þrír leiðtogar með svo prýðilegum hætti leggjast á eitt, og að sama skapi hörmulegt, að sáð þeirra skyldi falla í svo grýtta jörð, einmitt þar sem það hefði hvað helzt þurft að bera ávöxt. Þetta skeytingarleysi út- varpsmanna um málfar er fyrir löngu orðið óþolandi. Það er krafa þjóðarinnar, að þar sé bót á ráðin tafarlaust. Nokkuð tíðkast það, að menn stundi ýmiss konar heitstreng- ingar um áramót. Sumir strengja þess heit að leggja nið- ur reykingar eða annan óvana. Aðrir heita því að hætta að mestu að lernja kerlingu sína (nema í sjálfsvöm), ellegar steinþætta einhveiju sem er enn verra. Hvemig væri nú að út- varpsmenn strengdu þess heit að hætta með öllu að kvelja landa sína með málvillum frá og með því ári, sem nú er að hefjast? Fyrir fáum ámm gaf Bók- menntafélagið út smákver, sem nefnist Gætum tungunnar. Enda þótt ég ætti þar nokkum hlut að máli, var ég einhvem tíma svo frakkur að ráðleggja út- varpsmönnum að lesa þennan pésa (það tekur hálftíma); en þar er sýnt, hvemig forðast má allflest þeirra mállýta, sem út- varpsmerin gera sig- seka um. Nú leyfi ég mér að ítreka þessa ráðleggingu, þó ekki hafl því góða fólki til þessa þótt ástæða til að taka á henni mark. Það sem þar kynni að þykja álita- mál, gætu þau borið undir málfarsráðunaut útvarpsins. Þess hlýt ég að geta, að mér er vel kunnugt um starfsfólk hjá Ríkisútvarpinu, sem er piýðilega máli farið og lætur sér mjög annt um málvöndun í starfí sínu. En þeim mun verri er hlutur hinna, sem iðka subbuskap sinn í blóra við vandláta samstarfs- menn, því engin tök hafa hlust- endur á því að skilja sauðina frá höfrunum. Auðvitað eiga útvarpsmenn margra kosta völ til að bæta ráð sitt, og þá mættu þeir minnast þess, að þeir hafa fengið ágætan málfræðing til ráðuneytis. Að svo mæltu óska ég þeim góðs gengis á nýju ári.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.