Morgunblaðið - 06.01.1988, Page 23

Morgunblaðið - 06.01.1988, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 6. JANÚAR 1988 23 Bretland og Þýskaland: Hoffell SU og Við- ey RE settu sölumet Morgunblaðið/Ámi Helgason Kaupfélag Hvammsfjarðar í Stykkishólmi hefur nú hætt rekstri. Stykkishólmur: Matvöruverslun hættir MJÖG hátt verð fæst nú fyrir ferskan fisk á erlendum mörkuð- um. Tvö íslenzk fiskiskip, Hoffell SU og Viðey RE seldu í Bret- landi og Þýzkalandi og fengu bæði hærra meðalverð í krónum talið en áður hefur fengizt. Ástæðan er fyrst og fremst eftir- spurn umfram framboð. Hoffellið seldi á -mánudag og þriðjudag í Hull samtals 165,9 lest- ir. Heildarverð var 16,2 milljónir króna, meðalverð 97,60. Talsverður munur var á verði á fiskinum milli daga. Á mánudag voru seldar 106,7 lestir fyrir 9,5 milljónir króna, með- alverð 89,20. Síðari daginn voru seldar 59,2 lestir að verðmæti 6,7 milljónir króna, meðalverð 112,59. Skýringin á þessum verðmun er sú, að fyrri daginn var elzti fiskurinn seldur, en allt að 20 dagar voru liðn- ir frá því fyrsti fiskurinn var veiddur, fyrir jólin. Lítið var af stór- um þorski í afla Hoffellsins, en Kópavognr: Þrettánda- brenna og blysf ör SKÁTAFÉLAGIÐ Kópar gengst í kvöld fyrir þrettándabrennu og blysför sem hefst kl. 20.00 við íþróttahúsið á Digranesi í Kópa- vogi. Gengið verður undir blysum vestur Fífuhvammsveg að Smáravelli þar sem kveikt verður í bálkesti. Við bálið verður kötturinn sleg- inn úr tunnunni, lúðrasveit leikur og HSSK setur á loft flugelda. Skátafélagið Kópar sér um fram- kvæmdir og eru allir velkomnir. Fólk er hvatt til að klæðast að hætti álfa, jólasveina, púka eða annarra þekktra og óþekktra vætta sem birtust mönnum þennan dag. hann fór að meðaltali á 179 krónur hvert kíló. Meðalverð fyrir þorsk var 95,08, ýsa fór á 137,90, ufsi á 61,09, karfi á 51,70 og grálúða á •80,74. Skipstjóri á Hoffellinu er Högni Skaftason. Það var íslenzka fyrirtækið Is- berg, sem sá um sölu fisksins. Pétur Bjömsson, framkvæmdastjóri þess, sagði í samtali við Morgunblaðið, að framboð á fiski í Bretlandi væri nú mjög lítið enda hefðu heimabát- ar ekki komizt á sjó að marki vegna veðurs eftir áramótin. Til dæmis hefði í gær enginn fiskur verið í Grimsby og segja mætti að allt Kirkjuhck, Fljót»hlíð. NAUTGRIPIR veiktust og einn drapst nýlega þegar verið var að hræra upp mykju á bænum Guðnastöðum í Austur-Landeyj- um. Mykjan er hrærð upp með mykjudælu svo hægt sé að bera hana á tún. . Þegar Ragnar Guðlaugsson bóndi á Guðnastöðum vann við þetta í haughúsi sínu varð honum litið inn í fjósið og sá þá að ung- neyti lágu undarlega í lausagöng- unni og fór að athuga það. Ragnar sagðist þá hafa séð að einn var dauður og fimm lágu ósjálfbjarga. Var þá farið að loftræsta eins og hægt var og hætt að hræra. Tókst honum þannig að bjarga þeim sem veikir voru en þeir sem lengst voru leiddir gátu ekki staðið upp fyrr en eftir tvær klukkustundir. Talið er að kolsýringseitrun hafí valdið og Bretland bitist um þessa titti, enda vildu menn gjaman fisk eftir hátíðasteikumar. Viðey RE seldi á mánudag 165 lestir, mest karfa í Bremerhaven. Heildarverð var 12,6 milljónir króna, meðalverð 76,11. Það er hæsta meðalverð í krónum talið, sem fengizt hefur á þessum mark- aði. Skýring þar, eins og í Bretlandi, liggur í eftirspurn umfram fram- boð. Þorskur í afla Viðeyjar fór á 100,17 krónur að meðaltali, ýsa á 111,32, Ufsi á 82,10, og karfí á 73,97. Skipstjóri á Viðey er Ólafur Örn Jónsson. má þakka snarræði bóndans að ekki fór verr. Ekki veit fréttaritari til að svona óhapp hafi áður orðið hér á landi. Stykkishólmi. ÁKVÖRÐUN hefir verið tekin um að hætta rekstri matvöru- verslunar Kaupfélags Hvamms- fjarðar í Stykkishólmi. í ágústbyijun sl. árs yfirtók Kaup- félag Hvammsfjarðar rekstur matvöru- og byggingarvöru- verslunar Kaupfélágs Stykkis- hólms, sem hætti þá rekstri. Rekstur verslananna hefir verið í tveirhur gömlum verslunarhúsum nú í eigu Sambands ísl. samvinnufé- laga, en upphaflega byggt af Kaupfélagi Stykkishólms, en þessi hús standast engan veginn kröfur tímans. Að undanförnu hafa staðið yfír viðræður mijli Kaupfélags Hvammsíjarðar og Sambandsins um úrbætur í húsamálunum, en engra úrbóta á aðstöðu er að vænta, en það er forsenda fyrir áframhaldandi rekstri fyrirtækj- anna. Kaupfélag Stykkishólms var stofnað árið 1920 og starfaði hér í 66 ár. Um tíma var það mjög öflugt og rak 7 útibú bæði hér og í Dalasýslu. Auk þess hafði það bæði saumastofu, dúnhreinsunar- stöð, bifreiðaverkstæði, bifreiða- akstur o.fl. Það rak einnig frystihús og tók þátt í útgerð og því aðili sem vann mikið í uppbyggingarstarfi Stykkishólms og veitti mikla at- vinnu. Fyrir nokkru voru uppi áform um að Sambandið byggði hér stórt verslunarhús undir starfsemi sam- vinnuverslunar hér. Fékk það í þeim tilgangi stóra og góða lóð hjá Stykkishólmshreppi á einum besta stað í bænum. Voru framkvæmdir hafnar, en svo var allt stöðvað og síðan reksturinn. Kaupfélag Hvammsijarðar hefir hug á að reka byggingarvöruversl- unina áfram og mun það ákveðið. Hjá Kaupfélaginu í matvöruversl- uninni hafa starfað 8 manns sem nú missa vinnu sína og fækkar með því störfum við verslun í Stykkis- hólmi. — Árni Eggert TÖLVUGRUNNUR 11.1. Austur-Landeyjar: Nautgrípir veikj- ast vegua kolsýr- ings úr haughúsi Morgunblaðið/Helga V. Heggur víkur fyrir ráðhúsi GAMALL heggur, sem staðið hefur við norð-vesturenda Tjarnar- innar, hefur nú, ásamt lerkitré, orðið að víkja vegna fyrir- hugaðrar ráðhúsbyggingar. Að áliti byggingarnefndar var nauðsynlegt að fjarlægja þessi tré og að sögn Jóhanns Pálssonar garðyrkjustjóra Reykjavíkurborgar var ekki unnt aldurs þeirra vegna að flytja þau í heilu lagi. Jóhann sagði, að græðlingar hefðu verið teknir af trjánum svo að afkomendur þeirra mættu vaxa og dafna, borgarbúum til yndisauk- í framtíðinni. SÍMI: 621066 Á 40 TÍMUM ÖÐLAST ÞÚ GRUNDVALLAR- ÞEKKINGU Á EINKATÖLVUM OG HÆENl TIL AÐ NOTA ÞÆR AF ÖRYGGI Jafnframt er þetta námskeiö hið fyrsta í röð námskeiða sem mynda annaðhvort Forritunar- og kerfisnám eða þjálfunarbraut, eftir því hvora leiðina þú kýst, hyggir þú á framhaldsnám í tölvufræðum. Hið fyrra er 200 klst. nám og hið siðarnefnda 40 klst. nám, að grundvallarnámi loknu. NÁMSEFNI: Kynning á einkatölvum. Helstu skipanir stýrikerfisins MS-DOS og öll helstu hjálparforrit þess. Ftitvinnslukerfið WOFID, töflureiknirinn MULTIPLAN og gagnasafnskerfið dBASE 111+. Við bjóðum dagnámskeið kl. 8:30-12:30 og kvöldnámskeið kl. 19:30-22:30, tvo og þrjá daga í viku, um 4ra til fimm vikna skeið. Kennt er að Ánanaustum 15. Námskeiðin hefjast 11.janúar. Þetta er lengsta og besta byrjendanámskeið fyrir notendur einkatölva sem völ er á. ATHUGIÐ! VR OG STARFSMENNTUNARSJÓÐUR BSRB STYRKJA FÉLAGSMENN SÍNA TIL ÞÁTTTÖKU í NÁMSKEIÐUM SFÍ. Stjórnunarfélag íslands A TÖLVUSKOU Ms — --'..l Ánanaustum 15 • Sími: 6210 66

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.