Morgunblaðið - 06.01.1988, Side 24

Morgunblaðið - 06.01.1988, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1988 Kenýa: Thatcher og Moi ræddu refsiaðgerð- ir gegn S-Afríku Nairobi, Reuter. MARGARET Thatcher, forsætis- ráðherra Bretlands, kom til Kenýa á mánudag og ræddi i gær við Daniel Arap Moi, forseta Kenýa, um helstu hagsmunamál Kenýa og Afríku. Viðræðurnar voru vin- samlegar en þó greindi leiðtogana á um efnahagslegar refsiaðgerðir gegn Suður-Afríku, sem Thatcher leggst einarðlega gegn. Moi, sem kom á sáttum í landa- mæradeilu Kenýa við Uganda fyrir viku, styður efnahagslegar refsiað- gerðir til að knýja stjóm Suður- Afríku til að breyta kynþáttastefnu sinni. Thatcher hélt því hins vegar fram að breytingar ættu sér þegar stað í Suður-Afríku og viðhalda þyrfti sambandi við Suður-Afríku til að geta haft áhrif á stjóm Suður- Afríku. Haft er eftir talsmanni Thatchers að leiðtogamir séu ekki ósammála um markmiðið, að .koma eigi í veg fyrir kynþáttaaðskilnaðinn, en þá hafi greint á um aðferðir til að ná þessu markmiði fram. Thatc- her hafí ennfremur sagst vera umhugað að leiðtogi svartra þjóðem- issinna í Suður-Afríku verði leystur úr haldi sem fyrst og hún hafí ekki útilokað að hún færi í heimsókn til Suður-Afríku ef það gæti orðið að gagni. Slíka heimsókn teldi hún þó ótímabæra nú. Að sögn talsmannsins virtist Moi ekki vera mótfallinn slíkri heimsókn. Sendimenn Breta sögðu að við- ræðumar hefðu verið mjög vingjam- legar og árangursríkar. Embættis- menn frá Kenýa sögðu að leiðtogamir hefðu athugað leiðir til að auka samvinnu landanna tveggja. Eftir viðræðumar lagði Thatcher blómsveig að leiði Jamo Kenyatta, fyrsta forseta Kenýa, og að leiðum Rúmenía: Prestí hót- að lífláti Vín, Reuter. RÚMENSKA leyniþjónustan hót- aði að myrða baptista-prest fyrir að gagnrýna yfirvöld. Að sögn Kathpress, trúarlegrar austurrískrar fréttastofu, handtók rúmenska lögreglan prestinn, Paul Negrut, 30. desember síðastliðinn. Honum var hótað lífláti ef hann hætti ekki að gagnrýna yfírvöld í predikunum sínum. Prestinum var sagt að hans biðu sömu örlög og pólska prestsins Popi- eluszko, sem myrtur var af pólsku öryggislögreglunni. Lögregla í Rúmeníu hefur að und- anfömu hert aðgerðir vegna gagn- rýni á stjóm landsins eftir að efnt var til mótmæla í borginni Brasov í nóvember. Varsjárbandalagið: Vilja koma í veg fyrir endur- nýjun kjamorkuflugskeyta Austur-Berlín, Brussel, Bonn, Reuter. ERICH Honecker, leiðtogi austur-þýska kommúnistaflokksins, hefiu- skýrt Helmut Kohl, kanslara Vestur-Þýskalands, frá því fyrir hönd ríkja Varsjárbandalagsins að þau séu reiðubúin til að endumýja ekki hluta af skammdrægum flugskeytum með kjamorkuhleðslum í eigu ríkjanna gegn þvi að ríki Atlantshafsbandalagsins falli frá svipuðum áformum. Austur-þýska fréttastofan ADN skýrði frá þessu á mánudag og sagði Honecker hafa komið þessari tillögu á framfæri í bréfi til Kohls í síðasta mánuði. Afvopnunarsáttmáli risaveldanna sem undirrit- aður var í Washington í síðasta mánuði tekur ekki til svonefndra vígvallarvopna með kjamorkuhleðslum. Kristilegir demókratar, flokks- menn Kohls kanslara, fögnuðu tillögu þessari í gær en embættismenn á vegum NATO kváðust tejja að henni væri fyrst og fremst ætlað að reka fleyg milli Vestur-Þjóðvera og annarra ríkja bandalagsins. Samkvæmt frásögn fréttastofunn- lögð á vigvallarvopn, einkum flug- ar sagði Honecker að unnt væri að vinna að jöfnuði I herafla risaveld- anna með frekari afvopnunarsamn- ingum ef ríki Atlantshafsbandalags- ins væru reiðubúin til að falla frá áformum um að endumýja þennan hluta heraflans. Honecker ítrekaði einnig í bréfínu að Austur-Þjóðveijar legðu kapp á að samið yrði um fækk- un þessara vopna þar eð þau ógnuðu þýsku rílqunum tveimur fyrst og fremst. Svonefnd vígvallarvopn eru vopn með kjamorkuhleðslum og geta eld- flaugar, sem heyra undir þessa skilgreiningu, dregið allt að 500 kíló- metra. Samkvæmt frásögn ADN miðuðust tillögur Honeckers ein- göngu við eldflaugar. Kjamorku- hleðslum má hins vegar einnig koma fyrir í annars konar vígvallarvopnum svo sem stórskotaliðsbyssum og flug- vélum. Að undanfömu hafa ríki Atlantshafsbandalagsins rætt hvem- ig mæta beri miklum yfirburðum Sovétríkjanna á sviði hins hefð- bundna herafla í ljósi þéss að risa- veldin hafa náð samkomulagi um að eyða öllum meðaldrægum og skammdrægum kjamorkuvopnum á landi. Bandaríkjamenn og Bretar hafa mælt með því að áhersla verði um hefðbundna herafla. Embættismenn innan Atlantshafs- bandalagsins kváðust enn ekki hafa fengið afrit af bréfí Honeckers en þeim þótti sýnt að með þessu vildu ríki Varsjárbandalagsins færa sér í nyt ágreining Vestur-Þjóðveija og annarra ríkja NATO um hvort fækk- un skammdrægra kjarnorkuflug- skeyta eða niðurskurður hins hefðbundna herafla eigi að njóta for- gangs í afvopnunarviðræðum. skeyti, og var raunar ákveðið á síðasta fundi kjamorkuáætlana- nefndar NATO að kanna hvaða möguleikar væm fyrir hendi i þeim efnum. Að sögn austur-þýsku fréttastof- unnar kvaðst Honecker vera hlynnt- ur því að viðræður um niðurskurð hins hefðbundna herafla og um önn- ur þau atriði sem stuðlað gætu að traustari samskiptum austurs og vesturs hæfust sem fyrst. Varaði hann við því að efnavopn yrðu stað- sett í Vestur-Þýskalandi og sagði að það kynni að leiða til þess að viðræð- ur um bann við framleiðslu þess háttar vopna færu út um þúfur. Alfred Öregger, formaður þing- flokks kristilegra demókrata í Vestur-Þýskalandi, fagnaði tillögu Honeckers í gær og sagði að Vestur- tjóðveijum væri umhugað um að samið yrði um fækkun þessara vopna. I máli hans kom fram að Sovétmenn eiga fímmtan sinnum fleiri skammdræg kjamorkuflug- skeyti en aðildarríki NATO. Sagði Dregger flokksbræður sína vera ein- dregið þeirrar skoðunar að fækka bæri skeytum þessum niður í þann Ijölda sem væri nægjanlegur til þess að fæla stórveldin frá árás með hin- Strauss hrífst af Gorbatsjov FRANZ Josef Strauss leiðtogi kristilegra sósíalista í Bæjaralandi skipti aldeilis um skoðun á Sovétríkjunum við heimsókn sina þangað á dögunum. Vesturlönd „þurfa ekki lengur að hafa áhyggjur af árásargimi stjórnvalda" í Moskvu, sagði Strauss meðal annars. Síðasta ár og siðustu vikur byrjaði heimurinn að breytast. Striðsguð- inn Mars má víkja og Merkúr viðskiptaguðinn kemur í hans stað, bætti Strauss við. Ef einhver Vestur-Þjóðveiji hefur undanfama áratugi varað við „rauðu hættunni" þá er það Franz Josef Strauss. Þýskir blaðamenn vitna gjaman í ummæli Strauss enda oft hin hnyttilegustu, krydduð latínu enda er hann lærður í fom- fræðum. Hann hefur verið óþreyt- andi að telja um fyrir þeim sem viljað hafa sína Sovétmönnum lin- kind: „Þeir sem dást að Brezhnev hér um slóðir hafa minna vit í kollin- um en Reagan hefur í sitjandan- um,“ sagði Strauss í viðtali árið 1981. En nú er annað hljóð í strokkn- um. Strauss flaug sjálfur vél sinni til Moskvu. Á þriðjudag í síðustu viku biðu hans herlegar móttökur í Kreml og Gorbatsjov heilsaði hon- um með orðunum: „Gleður mig að kjmnast yður.“ Þetta var í fyrsta skipti sem Strauss kom til Sov- étríkjanna og sagði hann að stærsta stund lífs síns hefði verið að kom- ast á forsíðu Prövdu málgagns kommúnistaflokksins. Kannski meira í gríni en alvöru en bar vott um kurteisi heimsmannsins. Eftir tvær og hálfa klukkustund á fundi með Gorbatsjov var ljóst að Strauss hafði „fallið fyrir“ per- sónutöfrum flokksforingjans eins og svo margir vestrænir leiðtogar á undan honum. Strauss átti vart hermanna Breska samveldisins áður en hún heimsótti iðnfræðslumiðstöð í sveitahéraði fyrir sunnan Nairobi. Þá skoðaði Thatcher teverksmiðju og ræddi við tebændur áður en hún sneri aftur til Nairobi, þar sem Moi hélt opinbera veislu henni til heiðurs. Fagurlega klæddar konur af Massai-ættflokknum færa Thatcher forsætisráðherra háls- festi með upphafsstöfunum hennar. Reuter jAZZBáLLETTFVW* 7 ÁRAOG ELDRI S87701 og1 tNGJATEIG 1 við Sigtúnsreit LÆRA AÐ DANSA HJÁ OKKUR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.