Morgunblaðið - 06.01.1988, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 06.01.1988, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1988 33 Fjöldi breytingartillagna við kvótafrumvarpið Sjávarútvegsnefnd fjórklofin: Heimildir smábáta rýmkaðar töluvert Smábátar að veiðum ÖNNUR umræða um kvótafrum- varpið hófst í neðri deild klukkan tvö í gær en henni var frestað klukkan rúmlega sjö. Meirihluti sjávarútvegsnefndar, •sem þeir Olafur G. Einarsson, Kjartan Jó- . hannsson, _ Alexander Stefánsson og Guðni Agústsson skipa, leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum en minnihlutarn- ir þrir, Matthías Bjarnason, Hjörleifur Guttormsson og Hregg- viður Jónsson, leggja allir fram breytingartillögur við frumvarpið auk þess sem einstakir þingmenn munu væntanlega leggja fram breytingartillögur. Fyrstu um- ræðu verður framhaldið klukkan tiu í dag. Kjartan Jóhannsson (A/Rn) var framsögumaður meirihluta sjávarút- vegsnefndar neðri deildar sem leggur til að frumvarpið verði samþykkt með nokkrum breytingum. Meirihlutinn leggur til að heimild ráðherra til að undanþiggja undir- málsfisk frá kvóta verði þrengd en hingað til hefur undirmálsfískur al- farið fallið utan kvóta. Nefndin teldi að stefna bæri að því að undirmáls- fískur teldist að fullu til kvóta en að nokkum aðlögunartíma þyrfti til þess. Kjartan sagði meirihluta nefndar- innar einnig leggja til breytingar á þeim kafla laganna er snerti 10. grein frumvarpsins, þá er fjallar um smábáta. Meirihlutinn vildi rýmka heimildir þessara báta nokkuð. Bann- dögum línu- og handfærabáta er fækkað á sumar- og haustmánuðum þannig að banndagar verði sjö í júní og október eins og verið hefur sl. tvö ár. Einnig er lagt til að þeim bátum sem stunda línu- eða handfæraveiðar verði gefínn kostur á að sæta veiði- takmörkunum með aflahámarki í stað banndaga óski þeir þess sjálfír. Aflahámark þeirra sem það kysu myndi í þessum tilvikum alfarið byggjast á eigin reynslu. Loks væri gert ráð fyrir að allar þær útgerðir sem hefðu stundað þorskfískveiðar á árunum 1986-87 á bátum undir sex tonnum ættu kost á leyfi til slíkra veiða áfram í stað þess að miðað væri einungis við þá er leyfí fengu til netaveiða á árunum 1986 og 1987. Þorskfísknetaveiði hefði verið leyfís- bundin frá 10. febrúar til 15. maí sl. tvö ár og héfði eitthvað verið um það að menn hefðu eingöngu stundað netaveiðar utan þess tímabils og því ekki þurft leyfí. Eðlilegt þætti að þessir aðilar sætu við sama borð og hinir sem leyfí hefðu þurft. Meirihlutinn leggur einnig til að sá afli sem veiðist frá 1. janúar til gildistöku laganna verði dreginn frá kvóta viðkomandi skips. Kjartan sagði meirihlutann telja að stórauka bæri eftirlit með veiðum og vinnslu afla um borð í frystiskip- um og að stefna bæri að fullnýtingu afla. Bæri að gera kröfur til þess að fískiskip, og þá fyrst frystitogar- ar, kæmu með allan afla að landi jafnskjótt og forsendur væru til slíks. Við skipun fulltrúa í endurskoðunar- nefnd væri rétt að fullt tillit væri tekið til þingstyrks og að þeir fulltrú- ar sem tilnefndir væru af þingflokk- unum störfuðu sjálfstætt innan nefndarinnar. Nefndin ætti að hefja störf þegar í stað og skila áfanga- áliti sem fyrst, helst innan árs. Hún ætti að fjalla sérstaklega um með hvaða hætti unnt væri að taka tiliit til byggðasjónarmiða við stjóm físk- veiða og úthlutun veiðiheimilda. Loks teldi meirihlutinn eðlilegt að sjávar- útvegsráðherra myndi skila árlega skýrslu til sjávarútvegsnefndar Al- þingis um störf samráðsnefíidar. Matthíaa Bjarnason, formaður sjávarútvegsnefndar, skipar fyrsta minnihluta sjávarútvegsnefndar. Matthías sagðist vera íjarri því að vera talsmaður eða fylgjandi al- menns kvótakerfis í fískveiðum. Hann hefði hins vegar áhuga á að allt yrði gert til að skapa sem víðtæk- ast samstarf um afgreiðslu þessa mikilvæga máls á Alþingi. Því hefði hann verið reiðubúinn til þess að greiða þessu frumvarpi atkvæði sitt með því skilyrði að gengið yrði til móts við skoðanir hans og fjölmargra annarra varðandi gildistíma laganna, skýr ákvæði um endurskoðun, veiðar smábáta, veiðar úthafsrækju, sam- ráðsnefnd, aðstoð við byggðarlag þegar hætta væri á byggðaröskun vegna sölu skips frá byggðarlaginu o.fl. Þar sem meirihluti nefridarinnar hefði ekki fallist á þessi sjónarmið gæti hann ekki átt samleið með hon- um við afgreiðslu málsins. Hann flytti því breytingartillögur við frum- varpið á sérstöku þingskjali og réðu afdrif þeirra tillagna afstöáu hans til frumvarpsins í heild. Það væri skoðun hans að miðstýr- ingu og skömmtunarkerfí sem verið hefðu í gildi undanfarin tvö ár hefði þurft að minnka en ekki bæta við þau eins og gert væri með frum- varpinu eftir afgreiðslu þess í efri deild. Hjörleifur Guttormsson (Abl/ Al) tók næstur til máls en hann myndar annan minnihluta sjávarút- vegsnefndar. Hjörleifur sagðist telja að með frumvarpinu væru ekki sniðn- ir augljósir og alvarlegir agnúar af því stjómkerfí sem í gildi hefði verið undanfarin ár. Jafnframt væri gripið til ástæðulausrar ofstjómar varðandi smábáta. Meðal agnúa á kerfínu nefndi Hjörleifur að með fiskveiðistjómun- inni hefði ekki tekist að ná settum markmiðum um veiðar úr helstu nytjastofnum. Einhliða úthlutun kvóta til fískiskipa hefði reynst mikl- um annmörkum háð og verð á fiskiskipum hefði hækkað um nálægt 100% umfram vátryggingarverð- mæti. Sú verðhækkun væri að vemlegu leyti til komin vegna þess að menn væm að komast yfír afla- kvóta. Engar virkar hömlur væm á sölu skipa úr heimahöfn sívaxandi útflutningur á óunnum fiski gæti valdið hráefnisskorti og raskað at- vinnu í landi. Hjörleifur sagði þingmenn Al- þýðubandalagsins flytja tillögu um gmndvallarbreytingu á 10. greininni þar sem gert væri ráð fyrir nánast óbreyttum ákvæðum um smábáta- veiðar. Hjörleifur gagnrýndi einnig stöðu hafrannsókna og sagði skilning nú- verandi stjómvalda á rannsóknaþörf og ráðgjöf í sjávarútvegi vera hörmu- lega litla og bitna jafnt á veiðum og vinnslu. Þetta skilningsleysi hefði m.a. verið staðfest við afgreiðslu ijárlaga fyrir árið 1988 þar sem breytingartillögur frá stjómarand- stöðunni um framlög til þessara málaflokka hefðu allar verið felldar. Gildistími laganna taldi þingmað- urinn að ætti að vera ótiltekinn eins og algengast væri um lög í landinu. Sagði hann að eftir fjögurra ára tilraunir með nýtt stjómkerfí í físk- veiðum hefði ekki tekist að skapa sæmilegan frið um þetta þýðingar- mikla mál. A því væri þó mikil nauðsyn bæði af hagrænum og fé- lagslegum ástæðum. Hatrammar deilur um tilhögun fískveiðistjómun- ar drægju úr og seinkuðu því átaki, sem nauðsynlegt væri að gera varð- andi fískiðnað í landinu og stórbætt lqör og vinnuaðstæður fískvinnslu- fólks. Uní þetta mál hefði þurft að skapa víðtæka samstöðu en ríkis- stjómin hefði gert vonir um það að engu. Þvi væru horfur á því að lands- menn myndu áfram búa við meingall- að stjórnkerfi í fiskveiðum næstu þijú árin. Hreggviður Jónsson (B/Rn), þriðji minnihluti sjávarútvegsnefnd- ar, sagði frumvarp það sem nú lægi fyrir Alþingi vera all sérstætt fyrir margra hluta sakir. Borgaraflokkur- inn hefði lagt áherslu á að sjávarfang það sem lög um stjóm fískveiðar ættu að ná yfír væri sameign þjóðar- innar allrar. í því fælist að leitað væri leiða til að ná aflanum úr greip- um sjávar með sem arðbærustum hætti. Þingmenn Borgaraflokksins væru einhuga um að hafa stjóm á ’sókninni í auðlindir sjávar og það með sem minnstum höftum. Þeir væru því í meginatriðum ósammála skipan mála eins og gert væri ráð fyrir í frumvarpinu. Þeir gerðu sér þó grein fyrir því að meirihluti þingmanna væri á önd- verðum meiði og því aðeins raunhæft að reyna að fá lagfærða verstu gall- ana á frumvarpinu eins og það lægi fyrir. Þeir legðu því fram breytingar- tillögur við frumvarpið sem fælu í sér að landið yrði gert að einu veiði- svæði, að sérstök framkvæmdanefnd færi með stjóm fiskveiða, ásam sjáv- arútvegsráðherra, að botnfískveiðar báta minni en 10 brl. verði óbreyttar frá eldri lögum, að sérstakur dóm- stóll, fískveiðidómur, fjalli úm þau atriði laganna sem dæma þarf um og að gildistími laganna verði ein- ' ungis eitt ár. Hreggviður sagði að það að beija frumvarpið í gegnum báðar deildir Alþingis með forgangshraði og helst án vinnu í nefndum væri víti til vam- aðar, þegar svo viðamikið mál og viðkvæmt væri til umræðu og af- greiðslu á hinu háa Alþingi. I meðferð nefnda hefðu verið gerðar lítilsháttar breytingar sem væm til'" bóta en langt frá því að vera full- nægjandi. Kristín Einarsdóttir, (K/Rvík) taldi ákvæði fmmvarpsins vera í mótsögn við fyrstu grein, þar sem talað væri um að fiskistofnamir væm sameign þjóðarinnar, enda væri gert ráð fyrir því að kvóta væri úthlutað ókeypis til einstaklinga og fyrirtækja, sem gætu ráðstafað honum að vild. Kristín gagnrýndi að hvar sem gripið væri niður í fmmvarpinu, væri allt meira og minna sett undir vald ráðherra. Valdi ráðherra vilja þær kvennalistakonur dreifa, þar á meðal til sveitarfélaga, en í tillögum Kvennálistans er gert ráð fyrir því að kvóta verði úthlutað til byggðar- laga, sem aftur úthlutuðu honum til einstaklinga. Núgildandi lög hafa haft í för með sér alvarlega byggðar- öskun, að mati Kristínar, sem taldi það vemlega gagnrýnivert að at- vinnutækifæri heilu byggðarlaganna væm sett í vald einstaklinga. Um veiðar smábáta sagði Kristín að 10. gr. væri sama sem ekkert breytt og væri lendingin undarleg hjá meirihluta nefndarinnar. Taldi hún að þeir stjómarsinnar, sem við fyrstu umræðu hefðu lýst andstöðu sinni við fmmvarpið, hlytu að vera það enn sem áður. Kristín lýsti sig sammála þeirri skoðun formanns sjávarútvegsnefnd- ar, að gildistími nýrra laga um fiskveiðistjómun ætti að vera eitt ár. Fjármálaráðherra um söluskatt á matvæli: Matvara mun hækka að meðaltali um 7% Bætt upp með hliðarráðstöfunum FRUMVARP stjórnarinnar um breytingar á lögum um sölu- skatt var samþykkt í neðri deild síðdegis i gær. Þriðja umræða um frumvarpið hófst klukkan rúmlega 14 á mánudaginn og lauk henni ekki fyrr en um hálftólfleytið en atkvæða- greiðslu var frestað. Við atkvæðagreiðsluna í gær voru allar breytingartillögur stjórn- arandstöðunnar felldar, en þær gerðu m.a. ráð fyrir því að ekki yrði lagður söluskattur á matvæli. Fjármálaráðherra sagði í umræðum um frum- varpið að „út í hött“ væri að tala um matarskatt sem myndi sliga heimilin. Áætlað væri að meðaltalshækkun á matvöru yrði um 7% og væri það bætt barnafjölskyldum rúmlega upp með hliðarráðstöfunum. Ákvæði um gildistöku laganna var breytt þar sem frumvarpið gerði ráð fyrir að lögin tækju gildi 1. janúar. Vegna þessarar breytingar þurfti frumvarpið að fara aftur til einnar umræðu í efri deild. Sú umræða ásamt atkvæðagreiðslu stóð í tæpa klukkustund og var söluskatts- frumvarpið loks samþykkt um hálffimmleytið. Hreggviður Jónsson (B/Rn) sagði að í frumvarpinu væri ekki gert ráð fyrir undanþágu fyrir varahluti í tæki í fískiskip sem og annan búnað. Þarna væri greinilega um mistök að ræða og ættu menn að geta náð samstöðu um að bæta úr því. Hjörleifur Guttormsson (Abl/Al) sagði fjármálaráðherra hafa látið að því liggja að við værum að feta í fótspor annarra vestrænna ríkja með þessum breytingum á skattkerfinu. Annað hefði verið sýnt fram á, m.a. af Steingrími J. Sigfússyni, við aðra umræðu um þetta mál. Öll lönd Evrópubandalagsins væru með að mir.nsta , kosti tvö prósentustig nema Danmörk og væri tveggja þrepa söluskattur nánast skilyrði í samræmingartillögum fram- kvæmdastjómar Evrópubanda- lagsins. Kristin Halldórsdóttir (Kvl/ Rn) sagði afleiðingu þessarar breytingar ekki bara vera að þyngja byrðar heimilanna heldur væri líka verið að blása á glæður verðbólgu og storka samtökum launafólks. Viðhorf þeirra aðila sem hefðu verið kallaðir á fund fjárhags- og viðskiptanefndar af stjómarandstöðunni hefðu líka verið nánast öll á þann veg að verið væri að þyngja byrðar þeirra sem eyddu mestum hluta tekna sinna í nauðþurftir og þetta myndi auka þungann í kröfum fyrir næstu kjarasamninga. Steingrímur J. Sigfússon (Abl/Ne) sagðist ekki hafa hitt nokkurn mann sem styddi þessar aðgerðir. Það væri eðlilegt þar sem þetta væri alveg fráleitt. Rökin fyrir matarskattinum væm að hans mati hmnin, þetta hefði aldrei verið neitt annað en skatta- gleði. Stefán Valgeirsson (SJF/Ne) sagðist hafa áhyggjur af því að þær upphæðir sem ætlaðar væm til niðurgreiðslna á matvöm myndu ekki endast út allt árið. Hann gagnrýndi einnig vinnu- brögð í ijárhags- og viðskipta- nefnd varðandi tekjuöflunarfmm- vörpin. Jón Baldvin Hannibalsson, fjármálaráðherra, sagði Hregg- við hafa talið að þau mistök hefðu verið gerð að söluskatt skyldi nú innheimta af varahlutum í skip og reyndar flugvélar líka. Þessar breytingartillögur hans sagði ráð- herra vera á misskilningi byggðar þar sem engar breytingar hefðu verið gerðar frá núverandi lögum nema hvað flugvélar sem væm ekki í atvinnurekstri væm ekki lengur undanþegnar. Stefán Valgeirsson hefði haft efasemdir um að fjárhæðir til nið- urgreiðslu dygðu allt árið og einnig hefði verið spurt hvort þær yrðu verðtryggðar. Fjármálaráð- herra sagði að fjárhæð sú sem ætluð væri til niðurgreiðslu á matvælum hefði verið hækkuð vemlega frá því fjárlagafrum- varpið var fyrst Jagt fram og væri nú um að ræða allt í allt nánast 3 milljarða króna. Áætlað væri að þetta fé myndi endast út allt árið miðað við gefnar forsend- ur en það væri ekki verðtryggt. Varðandi þá spurningu af hveiju ekki væm fleiri þrep í sölu- skattinum sagði Jón Baldvin að við hefðum reynslu af fleiri þrep- um og ónýtu söluskattskerfí. Framkvæmdastjórn EB væri nú að reyna að koma á tveggja stiga kerfí sem hún teldi mikla framför frá núverandi ástandi en í sumum löndum er allt að sex þrepa virðis- aukakerfí. Það væm þó litlar líkur á að þessar breytingar næðust í gegn þar sem framkvæmdastjóm- in hefði ekkert framkvæmdavald. Á öllu hinum Norðurlöndunum væri hins vegar um að ræða eins þreps virðisaukakerfi. Fjármálaráðherra sagði allt tal um matarskatt sem ætti að sliga heimilin vera „út í hött“. Áætlað væri að matvara myndi hækka um 7% að meðaltali og yrði bama- fjölskyldum bætt upp með hliðar- ráðstöfunum. Varðandi breytingartillögu sem lögð hefði verið fram af þing- mönnum Borgaraflokksins þess efnis að felld yrði úr lögunum heimild fjármálaráðherra til þess að undanþiggja sk. afruglara fyr- ir útsendingar Stöðvar 2 sölu- skatti sagði ráðherra að ef þessi heimild yrði nýtt væri það til þess að mismuna fólki ekki eftir bú- setu, en nú væri það aðallega fólk á landsbyggðinni sem ekki hefði enn keypt slík tæki, og til að fram- fylgja anda útvarpslaganna, en þar væri kveðið á um jafnræði mismunandi rekstraraðila. RÚV hefði t.d. á sínum tíma fengið niðurfelld gjöld af öllum sínum útsendingarbúnaði. Sagði fjár- málaráðherra að ef öll opinber gjöld myndu leggjast'á afruglar- ana myndu þeir kosta allt að 26.000 krónum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.