Morgunblaðið - 06.01.1988, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 06.01.1988, Qupperneq 56
'ALHLIÐAPRENTÞJÓNUSTA gSGkdk flf flf ^ Þjönusta íþínaþágu SSGuíjónáhf. imiMtWPlWW [ / 91-2 72 33 SAMVINNUBANKI SP ISLANDS HF. MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1988 VERÐ 1 LAUSASÖLU 55 KR. Beiðnirnar hafa aldrei verið fleiri Borgarfógetaembættið í Reykjavík: 1.163 beiðnirum gjaldþrotaskipti ^ Morgunblaðið/Bjami Eldurískemmu BUR SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík var tvivegis kallað út í gærkvöldi. f fyrra tilfellinu hafði eldur komið upp í rusli í skemmu Bæjarútgerðar Reykjavíkur sem verið er að rífa. Eldurinn reyndist ekki mikill og gekk greiðlega að ráða niðulögum hans. í seinna tilfellinu var tilkynnt um reyk í kjallaraíbúð í húsi við Hagamel. Þar hafði pottur gleymst á eldavél. Fjórir menn voru sofandi í íbúðinni og leik- ur grunur á að þeir hafi haft áfengi um hönd. Bretland og Þýzkaland: Ferskfisksalan j ókst um 5 prósent milli ára Aukning í verðmætum 17,4% ÍSLENDINGAR seldu á síðasta ári 88.083 lestir af ferskum fiski í Bretlandi og Þýzkalandi að verðmæti rúmir 5 milljarðar króna. Aukning í magni milli ára er um 4,9% en í verðmætum 17,4%. Meðalverð fyrir fiskinn í Bretlandi hækkaði um 12% en 9,6% í Þýzkalandi. Fisksalan jókst í Bretlandi en dróst saman í Þýzkalandi. Sé Frakkland tekið með nam salan 89.000 lestum að verðmæti 5,1 milljarður króna. Ferskur fiskur er seldur til fleiri landa, en Bretland og Þýzkaland "eru stærstu kaupendurnir og töl- ur þessar því marktæk vísbend- ing um breytingar milli ára. Árið 1987 voru seldar héðan til Þýzkalands 26.889 lestir af fersk- um físki ur fískiskipum og gámum að verðmæti rúmir 1,3 milljarðar króna. Árið áður nam salan 28.091 lest að verðmæti tæpir 1,3 milljarð- ar. Meðalverð fyrra árið var 45,67 en seinna árið 50,06. Hækkun á meðalverði er 9,6%, sem er svipað og hækkun marksins gagnvart krónunni. Samdráttur í magni varð ~*it,3% en aukning í verðmætum 4,9%. Sala úr gámum í Þýzkalandi minnkaði milli áranna um rúmlega 1.600 lestir. Sala úr fískiskipum jókst hins vegar um 160 lestir. Sala á karfa jókst, en minnkaði af öðrum tegundum. Salan í Bretlandi í fyrra nam 61.194 lestum að verðmæti 3,7 ■"Hnilljarðar króna. Meðalverð var 61,09. Hækkun á meðalverði frá fyrra ári var 6,55 krónur eða 12%, sem samsvarar gengisbreytingum á árinu. Magn jókst um 5.341 lest eða 9,6% en verðmæti um 692 millj- ónir eða 22,7%. Sala úr gámum í Bretlandi jókst um 3.287 lestir og úr fiskiskipum um 2.054 lestir. Sala á þorski jókst úr 35.126 lestum í 36.360. Talsverð aukning varð ennfremur á sölu á ufsa, kola og grálúðu. í Frakklandi 'voru á síðasta ári seldar 988 lestir að verðmæti 49,9 milljónir króna. Meðalverð var 50,45 krónur. Rúmlega helmingur þessa var þorskur. Árið 1986 var selt svo lítið í Frakklandi að saman- burður er ekki marktækur. Upplýsingar þessar eru fengnar frá LIU. Sjá frétt um sölumet á bls. 23. Spáð hlýn- andi veðri KALDAST varð við Mývatn og á Staðarhóli i Aðaldal í gær og náði frostið að verða 24 stig á þessum tveimur stöðum. Víða norðan- lands var frostið um 20 stig, en sunnanlands var það á bilinu 6-12 stig. í dag verður áframhaldandi frost með éljum við ströndina, en björtu veðri er spáð inn til landsins. Með kvöldinu þykknar upp með suðaustlægri átt og dregur þá úr frostinu. Spáð er snjókomu eða slyddu á morgun og föstudag og frostið verður á bilinu 0 til 6 stig á landinu. Myndin er tekin í gærkvöldi þegar Bjöm Karlsson hjá Veðurstof- unni tók veðrið. Borgarfógetaembættinu í Reykjavík bárust 1.163 beiðnir um gjaldþrotaskipti á siðastliðnu ári og hafa þær aldrei verið fleiri. Arið 1986 fékk embættið 945 slíkar beiðnir. Undanfarin ár hefur gjaldþrotabeiðnum fjölgað mikið, til dæmis voru þær fimmfalt fleiri í fyrra en árið 1982. Gjaldþrotabeiðnimar skiptast þannig, að sögn Ragnars, að 862 Fundur um olíuleka STARFSMENN vamarmála- skrifstofu utanríkisráðuneytis- ins munu i dag eiga fund með bæjarstjórum Keflavíkur og Njarðvíkur vegna upplýsinga, sem benda til þess að lekinn, sem varð á leiðslu á olíugeymslusvæði varnarliðsins, hafi orðið til þess að olía sé komin í grunnvatn á lekasvæðinu. Samkvæmt upplýs- ingum varnarmálaskrifstofunn- ar í gærkvöldi telja sérfræðjngar b'tlar líkur á að olíumengun kom- ist í vatnsból Keflvíkinga og Njarðvíkinga, þar sem þau séu ekki í stefnu grunnvatnsflæðis, utan eitt lítið vatnsból Njarðvík- inga, en það sé það langt undan, að mengun þess er talin ólíkleg. Veiðist síld við Eldey? Grindavík. ÞRÍR Suðurnesjabátar, Amey GK, Vonin KE og Geir goði GK, vora meðal þeirra 14 síldveiði- báta, sem sóttu um veiðileyfi vegna viðbótarsöltunar fyrir Sovétmenn. Samkvæmt upplýsingum frétta- ritara Morgunblaðsins hugðist Óskar Þórhallsson, skipstjóri á Am- ey GK frá Sandgerði, bytja að leita að síld við Eldey í gærkvöldi, en vart varð við tölvert af sfld í nóvem- er og desember síðastliðnum milli Snæfellsness og Eldeyjar, þó aldrei væri reynt við hana. Kr.Ben. Morgunblaðið/Bjami voru á hendur einstaklingum og hafði þeim fjölgað um 100 frá árinu á undan, en 301 á hendur lögaðilum (t.d. hlutafélögum) og ijölgaði þeim beiðnum um 128 frá fyrra ári. Langfiestar gjaldþrota- beiðnimar komu frá kröfuhöfum, en 5—10% frá viðkomandi ein- staklingum eða stjómendum lögaðila. Ekki leiða nærri allar gjald- þrotabeiðnimar til gjaldþrots. Stór hluti þeirra er dreginn til baka vegna þess að mönnum hefur tek- ist að bjarga sér á eileftu stundu. Á árinu 1987 var kveðinn upp 351 gjaldþrotaúrskurður, 252 á hetidur einstaklingum og 99 á hendur lög- aðilum. Em þetta 11 fleiri úr- skurðir er árið 1986, en Ragnar sagði að þessi §öldi úrskurða segði ekki alla söguna því um áramót hefðu 80—90 mál verið í biðstöðu vegna þess að ekki hefði unnist tími til að úrskurða í þeim. Á síðasta ári fékk skiptaráðandi 28 beiðnir um greiðslustöðvun, sem er minna en árið 1986 þegar 40 slíkar beiðnir bámst, að sögn Ragnars H. Hall. •• Oll sala tívolíbomba bönnuð Dómsmálaráðuneytið sendi siðdegis í gær skeyti til allra lögreglustjóra þar sem til- kynnt er um bann á sölu tívolíbomba til almennings. Bannið gildir meðan rann- sókn fer fram á þeim slysum sem af bombunum hiutust um áramótin. Söluaðilum var til- kynnt bannið í gær, en þeir munu nú athuga hvort þeir geti talist skaðabótaskyldir vegna slysanna sem urðu um áramótin. Flugeldasala er aðeins heimil nokkra daga um hver áramót, frá 27. desember til 6. janúar. „Bannið tekur ekki til langs tíma, en það er stefnt á að stöðva sölu fyrir þrettándann að svo miklu leyti sem henni er ekki þegar lokið,“ sagði Þor- steinn Geirsson ráðuneytisstjóri í samtali við Morgunblaðið í gær. Rannsókn stendur nú yfír í Borgamesi og Reykjavík á slys- unum, sem urðu vegna notkunar tívolíbomba um áramótin, en einnig munu lögreglustjórar annars staðar kanna, hvort óhöpp hafi hlotizt af meðferð á tívolíbombum í þeirra umdæm- um. Sjá frétt á bls. 22 og um- mæli þeirra, sem seldu tivolíbomburaar, á bls. 31.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.