Morgunblaðið - 01.03.1988, Síða 2

Morgunblaðið - 01.03.1988, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1988 Búvöruverð til bænda hækkarum rúm4% BÚVÖRUVERÐ tU bænda hækk- ar um 4,44% fyrir sauðfjárafurð- ir og 4,17% fyrir nautgripaafurð- ir nú um mánaðamótin, sam- kvæmt útreikningum sexmanna- nefndar. í framhaldi af ákvörðun nefndar- innar er búist við að fimmmanna- nefnd komi saman til fundar í dag og ákveði útsöluverð með hliðsjón af vinnslu- og sláturkostnaði. Búvöruverð er tekið til endur- skoðunar með þessum hætti árs- fjórðungslega og nemur hækkunin á ársgrundvelli 17-19% að sögn Guðmundar Sigþórssonar skrif- stofustjóra í landbúnaðarráðuneyt- Tívolíbomb- ur bannaðar Dómsmálaráðuneytið hefur ákveðið að framvegis verði bann- að að selja almenningi svonefnd- ar tívolíbombur. Þessi ákvörðun er niðurstaða könnunar sem staðið hefur yfir á vegum ráðu- neytisins frá því skömmu eftir áramót en þá slösuðust þrír menn alvarlega á augum við að skjóta upp bombunum. Að sögn Hjalta Zóphaníassonar skrifstofustjóra í ráðuneytinu á eft- ir að gefa út reglugerð þar sem formlega er tilkynnt um bannið en ákvörðun var tekin síðastliðinn föstudag. Auk banns á tívolíbomb- um kvaðst Hjalti reikna með að í reglugerðinni yrði þrengdur enn frekar sá tími sem almenningi er heimilt að skjóta upp ýmis konar skoteldum um áramót, nú frá 27. desember til 6. janúar, auk nánari reglna um meðferð neyðarblysa fyrir skip, en talsvert mun hafa borið á að þeim væri skotið upp frá landi að tilefnislausu. Þröstur vann Margeir SJÖTTA umferð Reykjavíkur- skákmótsins var tefld í gær. Helstu úrslit urðu þau að Jón L. Árnason vann Helga Ólafsson, Þröstur Þórhallsson vann Mar- geir Pétursson, skák Gurevítsj og Kotronias fór í bið, einnig skák Höi og Christiansen. Jón L. Amason er enn einn í efsta sæti með 5V2 vinning en næstur kemur Þröstur Þórhallsson með 5 vinninga, þá Dolmatov með 4V2 vinning og síðan Gurevítsj og Höi með 4 vinninga og biðskák. • Sjöunda umferð verður tefld i dag og hefst hún klukkan 17. Pólveijarnir hætta á Hvítanesinu Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson SJÓMANNAFÉLAG Reykjavíkur og Nesskip hafa náð samkomu- lagi um að á næstu vikum fylli ísienskir sjómenn þau þijú pláss á Hvítanesinu sem nú eru skipuð pólskum hásetum. Að sögn Guðmundar Hallvarðssonar formanns Sjómannafélags Reykjavíkur felst í samkomulaginu viðurkenning á að fram- vegis njóti umbjóðendur félagsins forgangs í störf á skipum Nesskipa. Myndin er tekin er unnið var að útskipun á saltfiski til Spánar í Hvítanesið eftir að samkomulag náðist í deilunni. Innlánsstofnanír lækka vexti um 2% að meðaltali BANKAR lækka nafnvexti i dag að meðaltali um 2%, en það er þó misjafnt eftir bönkum. Sam- vinnubankinn lækkar útlánsvexti mest, eða um 5% af almennum skuldabréfum, en bankinn breyttí ekki vöxtum 21. febrúar sl. eins og aðrar innlánsstofnan- ir. Engar vaxtabreytingar verða hjá sparisjóðum, en þeir lækkuðu vexti mest 21. febrúar. Seðla- bankinn lækkar dráttarvexti úr 4,3% í 3,8% og eigin vexti í við- skiptum við innlánsstofnanir um 2%. Þá hefur fjármálaráðuneytið ákveðið frekari lækkun forvaxta ríkisvixla um 1% og einnig verða raunvextír á spariskírteinum rikissjóðs lækkaðir. Landsbankinn lækkar forvexti víxla í 30%, eða um 4%. Þá lækka vextir af almennum skuldabréfum um 2%, í 35%. Útvegsbankinn lækk- ar forvexti um 1%, í 31,5% og vexti af almennum skuldabréfum úr 37% í 35%. Búnaðarbankinn hefur óbreytta víxlaforvexti, 31%, én lækkar vexti af skuldabréfum um 1%, í 33%. Iðnaðarbankinn breytir ekki útlánsvöxtum, en bankinn lækkaði þá 21. febrúar. Þar eru forvextir 31% og skuldabréfavextir 33%. Verzlunarbankinn lækkar for- vexti um 2%, í 32%, og skuldabréfa- vexti úr 35%, í 34%. Samvinnubank- inn lækkar forvexti úr 35% í 30% og skuldabréfavexti úr 37% í 32%. Alþýðubankinn lækkar forvexti úr 33% í 31% og skuldabréfavexti úr 35% í 33%. Forvextir sparisjóða verða áfram 29,5% og skuldabréfa- vextir 31%. Innlánsvextir lækka einnig víðast hvar. Þannig eru vextir af almenn- um sparisjóðsbókum 19% í öllum innlánsstofnunum nema Iðnaðar- banka og Alþýðubanka, 20%. Vext- ir af almennum tékkareikningum eru lægstir 8%, í Landsbanka og sparisjóðum, en hæstir 12% í spari- sjóðum. Hæstu vextir á sértékka- reikningum eru 23% í Samvinnu- banka. Jóhann gerði jafn- tefli við Júsupov Biðskákirnar hrúgast upp JÓHANN Hjartarson gerði f gær jafntefli við Artur Júsupov í 6. umferð skákmótsins í Linares. Jóhann hafði hvítt en Júsupov beitti franskri vörn og kom með nýjung í 17. leik. Jóhann virtist samt hafa þægilegri stöðu en skákin leystist upp í hróksendatafl og skák- mennimir sömdu eftir 37 leiki. Aðeins fengust úrslit í þremur skákum: Ljubojevic vann Tsjiburda- nidze og Nunn og Illescas gerðu jafntefli. Skákir Timmans og Beljavskíjs þar sem Timman er með unna stöðu, Portischs og Nicolics þar sem Portisch hefur betra, og Georgievs og Chandlers sem er óljós, fóru allar í bið og eru biðskák- ir því alls orðnar 6 talsins og ekki gert ráð fyrir neinum tfma til að ljúka þeim. Timman er efstur eftir 6 um- ferðir með 4,5 vinninga og unna biðskák, Beljavskíj er með 3,5 vinn- inga og biðskák og Nunn 3,5 vinn- inga. Ljúbojevic er með 3 vinninga og biðskák, Jóhann 3 vinninga, Júsupov 2,5 vinninga og 2 biðskák- ir, Portisch og Ulescas 2,5 vinninga og biðskák, Chandler 2 vinninga og 2 biðskákir, Nicolic 1 vinning og biðskák og Tsjiburdanidze 0,5 vinninga. Sjá ennfremur skákskýringar á bls. 37. Iceland Seafood: Verksmiðjustjóri sagði upp síðastliðið sumar Sölustjóri hugði á uppsögn Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins mun vera alllangur að- dragandi að ágreiningi þeirra Guðjóns B. Ólafssonar og Ey- steins Helgasonar. Reynt hefur verið að leysa ágreininginn milli Eysteins og Guðjóns og á tímabili var rætt um að flytja Eystein í annað starf, en Eysteinn mun ekki hafa verið til viðtals um það. Eysteinn Helgason sagði á blaðamannafundi i gær, að hann hefði ákveðið að samþykkja ekki þá málsmeðferð þar sem með henni hefði i raun ekki fengizt lausn á ágreiningi hans og Guð- jóns. Þegar Guðjón hefði svo hótað að reka hann, ræki hann ekki Geir Magnússon, hefði hann óskað eftir stjómarfundi í Ice- land Seafood, þar sem fjallað yrði um málið. Við þeirri ósk hefði Guðjón ekki orðið, þrátt fyrir að einstakir stjómarmenn hefðu tekið undir hana. Stjóm Iceland Seafood taldi sig ekki geta dregið úr hömlu að taka afstöðu til málsins. Málið var rætt á tveimur stjómarfundum áður en til úrslita dró. Fundir þesSir voru haldnir á íslandi, þann 10. janúar og 12. febrúar, og var ákvörðun um mál þeirra Eysteins og Geirs frestað þar til meirihluti stjómarinnar tók þá ákvörðun að segja þeim upp störfum á fundi þann 24. febrúar sl. ' Guðjón B. ólafsson taldi, að því er heimildir Morgunblaðsins herma, að sá kjami sem vann með hónum að uppbyggingu fyrir- tækisins væri að riðlast. Verk- smiðjustjóri fyrirtækisins hætti störfum í fyrrasumar og fyrir lá að sölusljórinn, sem verið hefur annar aðallykilmaður fyrirtækis- ins frá þeim tíma sem uppbygging þess hófst undir forystu Guðjóns B. Ólafssonar, var ráðinn í því að hætta störfum hjá fyrirtæirinu í síðastliðinni viku ef ekkert yrði að gert og Eysteinn Helgason ekki látinn víkja fyrir nýjum manni. Síðastliðið ár var gott rekstrar- ár hja'Iceland Seafood og ijallar ágreiningur forráðamanna þess ekki um rekstararerfiðleika eða fyrirsjáanlegt tap hjá fyrirtækinu. Eysteinn tók við mjög góðu búi af Guðjóni haustið 1986, verð fór hækkandi allt síðastliðið ár, en nú munu vera erfiðleikar fram- undan hjá fyrirtækinu vegna mik- ils framboðs á físki, m.a. á Al- askaufsa, sem hefur aukið sam- keppni við íslenska fiskinn. Ágreiningurinn hefur magnast vegna persónulegrar streitu milli manna, eins og ein heimild blaðs- ins komst að orði. Þáttur Geirs Magnússonar, að- stoðarforstjóra fyririækisins, er allur tengdur því sem að framan segir. Guðjón B. ólafsson taldi vera samstarfserfiðleika milli hans og verksmiðjusljórans sem hætti, og ekki síst af þeim sökum nauðsynlegt að aðstoðarforstjór- inn viki frá störfum. í fréttum ríkisútvarpsins á mið- nætti í nótt, hafði fréttaritari út- varpsins það eftir Geir Magnús- syni, að þeir Guðjón hefðu í 11 ár starfað saman að endurreisn Iceland Seafood, sem hefði verið gjaldþrota þegar þeir hefðu tekið við. Á þeim tíma hefði aldrei ver- ið fundið að sínum störfum og núna blómstraði fyrirtækið. Sér kæmi það á óvart að samskiptin við viðskiptavini væru talin slæm. Hann sagði að Guðjón hefði oftar en einu sinni ætlað að reka verk- smiðjustjóra Iceland Seafood úr starfi og sölustjóri fyrirtækisins hefði fengið tilboð um önnur störf eftir að versnandi samkomulag innan fyrirtækisins hefði kvisast út. Samkomulagið við Guðjón hefði verið slæmt frá því að Ey- steinn hefði tekið við stjóm fyrir- tækisins haustið 1986.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.