Morgunblaðið - 01.03.1988, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1988
31
Suður-Afríka:
Tugir kirkju-
leiðtoga
handteknir
Hðfðaborg. Reuter.
DESMOND Tutu, nóbelsverð-
launahafi og erkibiskup i ensku
biskupakirkjunni, var handtek-
inn í gær og hafður í haldi
stutta stund ásamt nokkrum
tugum annarra kirkjuleiðtoga i
Suður-Afriku.
Farið var með mennina á lög-
reglustöð í Höfðaborg þar sem
þeir voru yfirheyrðir en þeir höfðu
ráðgert að ganga fylktu liði að
þinghúsinu til að mótmæla aðför
lögreglunnar að samtökum, sem
beijast gegn aðskilnaðarstefnunni.
Eftir hálfa klukkustund var þeim
sleppt og fóru þá Tutu og 20 menn
aðrir að kirkjunni þar sem gangan
hafði átt að hefjast.
Tutu sagði, að lögreglan hefði
verið að athuga hvort prestamir
og aðrir kirkjunnar menn, sem
Reuter
Desmond Tutu og aðrir kirkjunnar menn færðir til yfirheyrslu.
Þeir ætluðu að ganga að þinghúsinu í Höfðaborg tU að mót-
mæla aðskilnaðarstefnunni.
voru af öllum kynþáttum og trúfé-
lögum, hefðu brotið lög um öryggi
ríkisins með því að efna til óleyfi-
legrar mótmælagöngu. Allan Bo-
esak, kunnur klerkur í Suður-
Afríku, sagði, að atburðir gær-
dagsins hefðu verið sögulegir.
„Aldrei fyrr hafa jafn margir
kirkjuleiðtogar komið saman til
mótmæla. Við höfum komið þeim
skilaboðum til stjómarinnar, að við
ætlum ekki að horfa þegjandi upp
á það, sem er að gerast í þessu
landi."
Friðarför Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna:
Egyptar taka tillögum
Bandaríkj asli óruar vel
Jerúsalem, Damascus, Tel Aviv, Paris, Reuter.
Sovétmenn kúg-
uðu Waldheim
-segir fyrrum lögfræðingur banda-
ríska dómsmálaráðuneytisins
Toronto, Moskvu, Reuter.
SOVÉTMENN kúguðu Kurt
GEORGE Shultz, utanrikisráð-
herra Bandaríkjanna, kom til
Jórdaníu í gær eftir að hafa átt
viðræður við Hosni Mubarak
Egyptalansdsforseta um tillögur
Bandaríkjamanna um hvernig
binda megi enda á átök ísraela
og Palestinumanna á hernáms-
svæðum ísraels. Að sögn banda-
rískra embættismanna ' ríkti já-
kvæður andi i viðræðum þeira
Shultz og Mubaraks. Yasser Ara-
fat, leiðtogi Frelsissamtaka Pal-
estínu (PLO), fordæmdi friðarför
Shultz á sunnudag og sagði til-
ganginn með henni vera þann að
kveða niður andóf Palestínu-
manna.
Viðræður Shultz og ráðamanna í
Jórdaníu, ísrael og Sýriandi hafa
reynst árangurslausar en hann virt-
ist ánægður með fund sinn með
Mubarak er hann ræddi við frétta-
menn í Egyptalandi. Kvaðst hann
telja tillögur Bandaríkjastjómar til
lausnar deilu Palestínumanna og
ísraela uppbyggilegar og sagði að
Bandaríkjamenn og Egyptar hygð-
ust vinna saman að lausn málsins.
Bandarískir embættismenn sem voru
í för með Shultz sögðu að fulltrúar
Egyptalandsstjómar hefðu kynnt
ákveðnar hugmyndir sem orðið gætu
til þess að treysta áætlun Banda-
ríkjastjómar. Samkvæmt henni
munu Palestínumenn á herteknu
svæðunum fá takmarkaða sjálfs-
stjóm eftir að fulltrúar þeirra og
ísraelsstjómar hafa samið um frið.
Yasser Arafat, leiðtogi Frelsis-
samtaka Palestínu (PLO) sagði í við-
tali við franska sjónvarpsmenn í
Túnis um helgina að George Shultz
vildi með för sinni bijóta á bak aftur
uppreisn Palestínumanna á herteknu
svæðunum. Arafat hvatti enn og
aftur til þess að málefni Palestínu-
manna yrðu tekin til umfjöllunar á
alþjóðlegri ráðstefnu og sagði það
einu færu leiðina til að binda enda
á átökin. Hvatti hann jafnframt til
þess að öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna tæki málið til umræðu.
Shultz situr leiðtogafund Atlants-
hafsbandalagsins, sem hefst á morg-
un í Brussel í Belgíu, og er talið
hugsanlegt að hann haldi áfram frið-
arför sinni um Mið-Austurlönd síðar
i þessari viku. Shultz ræddi á nýjan
leik við ráðamenn í Jórdaníu í gær
og sögðu bandarískir embættismenn
að Jórdanir væru að íhuga tillögur
Bandaríkjastjómar. Richard Murp-
hy, aðstoðarutanríkisráðherra
Bandaríkjanna og sérfræðingur í
málefnum Mið-Austurlanda, mun
eiga fundi með sýrlenskum og
saudi-arabískum embættismönnum
í dag og á morgun.
Ágreiningoir í ísrael
Alvarlegur ágreingur er uppi inn-
an ísraelsstjómar um hvemig stilla
megi til friðar á herteknu svæðun-
um. Hefur Shultz af þessum sökum
þurft að eiga sérstaka fundi með
Shimon Peres utanríkisráðherra og
Yitzhak Shamir forsætisráðherra.
Samkvæmt nýlegri skoðanakönnun
dagblaðsins Yedioth Ahronoth styðja
51 prósent ísraela friðartillögur
Bandaríkjastjómar.
78 Palestínumenn hafa fallið í
átökum undanfamar 11 vikur og
talið er að um 1.000 manns hafi
særst. Talsmaður ísraelsku her-
stjómarinnar tilkynnti á sunnudag
að hermenn sem hugðust grafa fjóra
Palestínumenn lifandi yrðu dregnir
fyrir herrétt svo og þrír félagar
þeirra, sem voru myndaðir, er þeir
handleggsbrutu tvo unga Palestínu-
menn sem veittu enga mótspymu.
Yfirmönnum í hemum var gert að
horfa á myndband af atburðinum
og var brýnt fyrir þeim að sýna
ekki meiri hörku en nauðsynlegt
væri.
Shamir forsætisráðherra ísraels
sagði í gær að til greina kæmi að
neita fréttamönnum um aðgang að
herteknu svæðunum. Moshe Katzav,
félagsmálaráðherra í stjóm Shamirs,
tók í sama streng á blaðamanna-
fundi og sagði að fréttaflutningur
af svæðum þessurn væri síst til þess
fallinn að draga úr óeirðunum.
Waldheim, forseta Austurríkis,
til að fjölga sovéskum starfs-
mönnum við Sameinuðu þjóðirn-
ar meðan hann var aðalritari
stofnunarinnar, að þvi er Eli
Rosenbaum, fyrrum saksóknari
við þá deild bandaríska dóms-
málaráðuneytisins sem rannsak-
ar stríðsglæpi, sagði á sunnudag.
Að sögn Rosenbaums hótuðu
Sovétmenn Waldheim að afhjúpa
tengsl hans við nasista í seinni
heimsstyrjöldinni gengi hann
ekki að kröfum þeirra. Málgagn
sovéska kommúnistaflokksins,
Pravda, birti í gær grein um
Waldheim, sem bendir til þess
að sovésk yfirvöld vi(ji ekki leng-
ur halda uppi vörnum fyrir Wald-
heim.
Rosenbaum sagði á sunnudag að
sovésk stjómvöld hefðu vitað að
Waldheim hefði starfað undir stjóm
Alexanders Loehrs, hershöfðingja
nasista, sem var hengdur fyrir
stríðsglæpi árið 1947. Sovétmenn
hefðu haldið þessum upplýsingum
leyndum til að þær gætu orðið þeim
að gagni.
„I stað þess að afhjúpa Waldheim
notuðu Sovétmenn upplýsingamar
til að ná samkomulagi við Waldheim
um að fjölga sovétmönnum í starfs-
liði aðalritara Sameinuðu þjóð-
anna,“ sagði Rosenbaum. „Þar til
fyrir nokkrum árum, þegar banda-
rískum lögum var breytt, voru Sam-
einuðu þjóðimar helsta njósnastöð
Sovétmanna í Bandaríkjunum."
Rosenbaum sagði ennfremur að
Waldheim hefði orðið aðalritari
Sameinuðu þjóðanna vegna stuðn-
ings Sovétmanna, sem hefðu hafn-
að öllum öðrum frambjóðendum og
beitt neitunarvaldi gegn þeim.
Pravda birti í gær grein þar sem
greint er frá kröfum um að Wald-
heim segi af sér, en ólíkt fyrri
umfjöllunum sovéskra fjölmiðla er
ekkert ritað Waldheim til vamar.
Að sögn fréttaskýranda virðist sem
sovésk stjómvöld séu komin á þá
skoðun að Waldheim verði að segja
af sér og þau vilji því hætta stuðn-
ingi við hann.
OECD:
Hagvöxtur
meiri en áð-
urvartalið
Verðhrunið í október
hafði lítil áhrif á
efnahagslífið
Parfs. Reuter.
FULLTRÚAR helstu iðnríkjanna
eru sammála um, að svartsýnin
á viðgang efnahagslifsins í heim-
inum i kjölfar verðhrunsins i
október hafi ekki verið á rökum
reist. Telja þeir þess vegna nauð-
synlegt að endurskoða hagvaxt-
arspár og hækka flestar tölur.
Hagfræðingar OECD, Efna-
hagssamvinnu- og þróunarstofnun-
arinnar, hafa ákveðið að hækka
áætlaðan hagvöxt í Vestur-Þýska-
landi úr 1,5% í 1,75% og sagði
Bemhard Molitor, formaður vest-
ur-þýskrar sendinefndar á ráð-
stefnu, sem nú er haldin á vegum
OECD, að „ástandið er miklu betra
en flestir höfðu talið".
Til ráðstefnunnar eða fundarins
var boðað að kröfu lítilla aðildar-
þjóða OECD, sem óttuðust áhrif
verðhrunsins á efnahagslífið, og
vom menn sammála um, að ástæða
væri til að hækka hagvaxtarspár í
flestum löndum. Helmut Schlesing-
er, aðstoðarseðlabankastjóri í Vest-
ur-Þýskalandi, sagði, að „það er
nú ljóst, að menn vom allt of svart-
sýnir í október. Verðhmnið hefur
haft mjög lítil áhrif á hagvöxtinn".
Ml
Engar uppistöður
Frábaer lausn
Falleg og sterk hillujárn sem bera ótrúlegan þunga.
Hillur búnar til úr SPUR MF hillujárnum
eru níðsterkar og þola ótrúlegan þunga.
Eins meters löng hilla þolir allt að 75 kg.
Pær eru frábær lausn ef þig vantar hillu
undir t.d. sjónvarp, myndbandstæki,
hljómflutningstæki, yfir ofna, undir
spegla, í eldhús, undir blóm í garðstofunni,
fyrir ljósakappa, í barnaherbergi, í verslun-
ina eða í skrifstofuna svo eitthvað sé nefnt.
SPUR MF hillujárnin eru fyrir 16 mm
þykkt hilluefni og allt að 40 cm á breidd.
Hillujárnin eru í lengdunum 60 cm, 80 cm,
100 cm, og 200 cm, hvít, brún eða silfurlit-
uð pökkuð í plast með skrúfum og töppum
og er auðvelt að setja upp.
'
.
Hillurnar er gott að þrífa því þær falla alveg að
veggnum og því kjörnar í eldhús og baðherbergi.
Einnig er til í einum pakka hillujárn og glerhilla,
sem er kjörið í baðherbergi.
Þú þarft ekki að leggja heilu veggina
undir hillusamstæður. Hillujárnin frá
SPUR leysa vandann.
Fást í flestum byggingarvöruverslunum.
Umboðsaðilar: Hagvís s. 41068