Morgunblaðið - 01.03.1988, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1988
VrrAMIN - HEILSUEFNI
Kröftugheilsuefni-unninúrbestuhráefnumnáttúrunnar.
Bio-Selen
+ Zink
Bio-Glandin
Bio-Chróm
Bio-Fiber
Bio-Caroten
Dr. Matti Tolonen segir:
Hinn kunni læknir og vísindamaður
dr. Matti Tolonen segir: „Besta selen-
efnið á markaðnum er Bio-Selen +
Zink. Það inniheldur Selen 100 mcg.,
Zink 15 mg., A-vrtamín 3000 I.E., C-
vítamín 90 mg., E-vítamín 15 mg., B-6
vitamín 2 mg., jámoxið og ýmis B-
vítamín sem eru í gemum. Þetta em
lifræn andoxunarefni, 7 vítamín og
steinefni í einni töflu sem byggja upp
ónæmiskerfiö gegn sjúkdómum." Dr.
Matti Tolonen segi ennfremur:
„Ukaminn nær ekki að nýta selenið
nema hráefnið sé algjörlega lífrænt
og því aðeins að hin afar mikilvægu
efni, Zink og B-6, séu einnig til staðar
með seleninu. Zinkið stuðlar einnig
að betri nýtingu A-vítamíns og mynd-
unar gammalinolíusýru í likamanum.
B-6 vítamínið byggir upp rauðu blóð-
komin og er nauðsynlegt húð, hári
og nöglum, auk þess að styrkja tauga-
kerfið."
P0LBAX
POLLEN & BAXTIN
Polbax blómafrjókomin vinsælu eru
ekki aðeins gerð úr frjókomum eins
og önnur pollenefni, heldur líka úr
frævum og það gerir Polbax-pollen-
efnið mun kröftugra heilsuefni. Þar
að auki inniheldur Polbax Baxtin
andoxunarefni, sem ver frumumar
gegn hættulegum súrefnisskemmd-
um. Þetta má þakka þrotlausu starfi
sænska „Pollen-kóngsins" Gösta
Carisons í 25 ár.
Polbax (75) kostar aðeins kr. 390,-
Fæst í apófekinu, heilsubúdinni og markaðnum,
Dreifing: Bio-Selen-umboðið.sími: 76610.
MINOLTA
NETTAR, LITLAR
0GLÉTTAR
LJÓSRITUNARVÉLAR
- og þær gera allt sem gera þarf
á minni skrifstofum
D-10
Lítil, einföld og því traust. Fyrirtak á skrifborðið!
Verð kr. 25.025.- stgr.
Japönsk snilldarhönnun, þýsk ending og
nákvæmni.
Verð frá kr. 37.300.-stgr. _
5 lita prentun ef vill, innsetning einstakra arka,
innbyggður arkabakki til að spara pláss;
hágæðaprentun og hagkvæmni í rekstri.
Verð kr. 48.200.- stgr.
Hkiaran
ÁRMÚLA 22, SlMI (91) 8 30 22, 108 REYKJAVlK
„Hjá vondu fólki
af Snæfellsnesi“
eftirJón Sæmund
Sigmjónsson
Svo virðist sem hin óheilaga
þrenning ríkisstjómarflokkanna
reyni oftar en ekki að nota hvert
minnsta tækifæri til að gera úlfalda
úr mýflugu. Svo er komið, að for-
sætisráðherra er farinn að kvarta
undan upphlaupagirni ríkisstjómar-
liðsins og er mikið til í því. Þó gild-
ir enn hið fomkveðna, að ekki þarf
nema örfáa misjafna sauði til að
koma óorði á alla hjörðina.
Kaupleigan
Alþýðuflokksmenn bám verka-
mannabústaðakerfið fram til sigurs
á sínum tíma, en það hefur orðið
gífurlegum fjölda fólks til mikillar
blessunar á undanfömum áratugum
og séð því fyrir góðu húsnæði á
viðráðanlegum kjömm.
Nýir tímar kalla á nýja valkosti
og kaupleiguformið fyrir húsnæði
er vissulega snjöll lausn fyrir alla
þá, sem hafa lítil efni, en vilja samt
kaupa og alla þá, sem vilja ekki
taka strax ákvörðun um kaup á
húsnæði eða vilja yfirleitt aðeins
leigja. Þá er þetta snjöll lausn fyrir
hinar dreifðu byggðir, sem skortir
húsnæði fyrir fagfólk af ýmsu tagi
og fjármögnunaraðila á lands-
byggðinni, sem vilja íjárfesta í
tryggum framkvæmdum í heima-
byggð.
Þetta er nýtt húsnæðisform, sem
jafna má við framþróunargildi
verkamannabústaðakerfisins á
sínum tíma og kallar að sjálfsögðu
á mótstöðu allra þeirra, sem á hefð-
bundinn hátt em á móti allri fram-
þróun, em rígbundnir í viðjum
tregðunnar, eða einfaldlega þola
ekki að rósir blómgist í garði ná-
grannans. Þetta nýja form rýrir þó
á engan hátt gildi verkamannabú-
staðakerfisins, sem Alþýðuflokks-
menn standa vörð um nú sem
endranær.
Meðgöngutíminn
Fmmvarp félagsmálaráðherra,
Jóhönnu Sigurðardóttur, um kaup-
leigu hefur fengið óvenju vandaða
meðferð í öllum undirbúningi og
tilurð. Leitað hefur verið ráða og
leiðbeininga hjá fjölda fólks úr
sveitastjómum og verkalýðsfélögin
og hinir fæmstu lögfræðingar utan
og innan ráðuneytisins úr flestum
pólitískum flokkum hafa lagt hönd
að verki.
Lagatextinn ásamt greinargerð
er viðamikið plagg, sem lagt var inn
til þingflokka stjómarflokkanna
þann 7. desember á síðasta ári. Þar
lá það ósnert og ólesið af samstarfs-
flokkum Alþýðuflokksins þar til í
lok janúar að loksins komst hreyf-
ing á málið.
Þá kom í ljós, að beðið var um
undirbúningsnefnd til að samræma
sjónarmið og jafna hugsanlegan
ágreining stjómarflokkanna um
þetta fmmvarp svo að þeir gætu
staðið sameiginlega að því, þegar
til framlagningar kæmi. Þetta var
gert og vom haldnir fimm fundir í
þessari nefnd.
Undirbúningsnef ndin
Framsóknarmenn mættu ekki á
fyrsta fundinn, en sjálfstæðismenn
reifuðu breytingartillögur. Á öðmm
fundi lögðu sjálfstæðismenn fram
skriflegar hugmyndir um breyting-
ar, en framsóknarmenn lögðu lítið
til málanna. Á þriðja fundi lögðu
framsóknarmenn fram plagg, sem
var nákvæm eftirlíking af pappír
sjálfstæðismanna, en þó með þungri
áherslu á það atriði, að frumvarpið
skyldi bútað í sundur og aðeins
borinn fram sá hluti þess er lýtur
að hinu félagslega kaupleigukerfi.
Þessi afstaða kom verulega á óvart,
því almenna kaupleigukerfið er
nokkuð, sem er sérstaklega aðlað-
andi fyrir landsbyggðina og á því
áreiðanlega eftir áð verða vemleg
lyftistöng fyrir húsbyggjendur út
um allt land. Sveitastjómir og félög
utan af landi hafa einmitt spurst
mikið fyrir um möguleikana í því
sambandi.
Á fjórða fundinn komu fram-
sóknarmenn með óbreytta afstöðu,
en samþykktu að bera málið undir
þingflokk sinn. Á fimmta fundinum
bám þeir þær fréttir, að þingflokk-
urinn hefði samþykkt að standa að
flutningi fmmvarpsins í heild og
komu framsóknarmenn eftir það
ekki með eina einustu efnislega
breytingatillögu. Skaut það nokkuð
skökku við fréttaflutning fjölmiðla,
þar sem t.d. var hermt eftir Alex-
ander Stefánssyni í Dagblaðinu
þann 16. febrúar, að það verði að
íappa upp á frumvarpsdrögin, sem
ekki væm neitt neitt. Einnig bolla-
lagði Þjóðviljinn um hugsanlega
mótleiki Alexanders. Sjálfur kvað
hann þennan fréttaflutning hinn
versta rangsnúning.
Samkomulagið
í nefndinni vom Jón Sæmundur
fyrir Alþýðuflokkinn, Geir Haarde
og Gunnar Bjömsson fyrir Sjálf-
333
333
3
3
3
AFMÆLISTILBOÐ 3
rrr ferðatæki
VESTURÞÝSK GÆÐATÆKI Á VERÐI SEM FREISTA
Falleg, vönduð og endingargóð vesturþýsk ferðatæki sem veita eigendum
sínum örugga ánægju um ókomin ár.
■ M
GÆÐI Á GÓÐU VERÐI
SKIPHOLT 1 S: 20080 - 26800
ÁRA
ÖRUGG
ÞJÓNUSTA