Morgunblaðið - 01.03.1988, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1988
9
Borgaraflokkurinn og
varnarmál
Á fimmtudag og föstudag í síðustu viku
voru umræður um skýrslu utanríkisráð-
herra á Alþingi. Hafa þegar birst frásagn-
ir af þeim umræðum hér í blaðinu. Voru
þær með hefðbundnu sniði eins og
skýrsla ráðherrans. í upphafi ræðu
sinnar, þegar hann fylgdi skýrslunni úr
hlaði, sagði Steingrímur Hermannsson,
þessa skýrslu vera í hefbundnu formi „en
hann hefði hug á að breyta því formi
áður en hann legði fram skýrslu næst“.
í frásögn Morgunblaðsins kemur ekki
fram, hvort nokkur þingmanna hafi innt
ráðherrann eftir því, hverju hann ætlaði
að breyta; hvort hann ætlaði að breyta
um stefnu, uppsetningu eða áherslur í
skýrslunni, verðum við líklega að bíða í
eitt ár til að fá vitneskju um það. í Stak-
steinum er litið á afstöðu yngsta þing-
flokksins, Borgaraflokksins, til varnar-
mála.
Afstaðatil
NATO
í umræðunum nú gafst
yngsta þingflokknum,
Borgaraflokknum, í
fyrsta sinn tækifæri til
að skýra afstöðu sína al-
mennt til utanríkismála.
Var það Júlíus Sólnes
sem flutti ræðu fyrir
hönd flokksins í umræð-
unum sl. fimmtudag.
Eins og lesendur Stak-
steina muna gerðist það
fyrir jólin við atkvæða-
greiðslu vegna fjárlaga,
að borgaraflokksmenn
studdu tillögu Alþýðu-
bandalagsins um að hætt
yrði að inna af hendi
samningsbundnar
greiðslur íslands til Atl-
antshafsbandalagsins.
Var ekki annað unnt en
líta á þá afstöðu sem
stuðning við fráhvarf frá
ef ekki úrsögn úr NATO.
Að vísu vildi Júlíus Sól-
nes ekki una þeirri skýr-
ingu eins og kom fram
hér í blaðinu á sinum
tíma. Og í ræðu sinni á
fimmtudag sagði Júlíus
meðal annars:
„Við teljmn það stað-
reynd, að við séum í
vamarbandalagi vest-
rænna þjóða. Það er stað-
reynd, hvort sem okkur
líkar betur eða verr. Það
er líka staðreynd að þetta
bandalag hefur tryggt
frið í okkar heimshluta í
fjörutíu ár. Hins vegar
eru stríð og skærur víða
annars staðar, svo að við
teljum nauðsynlegt að
vera áfram í NATO, þótt
gjaraan vildum við sjá
heiminn án hemaðar-
bandalaga."
Eins og á þessum orð-
um Júliusar Sólness sést
styður Borgaraflokkur-
inn aðild íslands að
NATO. Á hinn bóginn
koma einnig fram hjá
Júlíusi gamalkunnar efa-
semdir um gildi þess að
þjóðir heims taki saman
höndum i þvi skyni að
tryggja öryggi sitt, einn-
ig gefur hann til kynna,
að NATO-samstarfið eigi
rætur að rekja til þess,
að barist sé annars staðar
í veröldinni, og loks legg-
ur hann „heraaðar-
bandalögin" að jöfnu.
Hann virðist sem sé ekki
taka undir þá skoðun,
sem orðuð hefur verið á
þann veg, að NATO sé
öflugasta friðarhreyfing
veraldar, að það sé ein-
mitt vegna þess að lýð-
ræðisríkin tóku höndum
saman, að tekist hefur
að tryggja frið í okkar
heimshluta. Tilvist
NATO er ekki undir því
komin að friður riki milli
þjóða utan bandalagsins
heldur hinu, að aðildar-
þjóðirnar sjálfar telja
öryggi sínu betur borgið
með samvinnunni en án
hennar. Nýjasta dæmið
um þetta er aðild Spánar
að NATO. Eftir að lýð-
ræðislegir stjómarhættir
höfðu skotið rótum á
Spáni var ekkert því til
fyrirstöðu að Spánn
gengi i NATO og hefur
spánska þjóðin staðfest
þá ákvorðun í þjóðarat-
kvæðagreiðslu.
Ný varnar-
stöð?
í frásögn Morgun-
blaðsins af ræðu Júliusar
Sólness kemur einnig
fram, að Borgaraflokk-
urinn vilji draga úr „mik-
ilvægi herstöðvarinnar í
Keflavík með þvi að láta
koma upp herstöð ein-
hvers staðar fyrir norðan
ísland." Og ennfremur
segir: „Einnig teldi hann
koma til greina að færa
herstöðina út á land til
þess að draga úr hættu
þeirri er höfuðborgarbú-
um stafaði af árás á
hana.“
Þeir borgaraflokks-
menn hafa verið með
óljósar hugmyndir um
það, hvort ekki sé unnt
að veija ísland frá Jan
Mayen. Að visu virðist
Július Sólnes ekki hafa
lagt það til beinum orð-
um i ræðu sinni á Alþingi
á fimmtudaginn, að unn-
ið yrði að þvi að leita
leiða til að veija ísland
frá Jan Mayen, sem er
um 400 milur fyrir norð-
an ísland en þar halda
Norðmenn úti um 30
manna hópi, er sinnir
veðurathugunum. Á Jan
Mayen er flugbraut en
einnig virkt eldfjall og
loks er veðrátta með ein-
dæmum leiðinleg og að-
eins örsjaldan heiðskír
himinn. Kannski hefur
Július Sólnes alls ekki átt
við Jan Mayen með orð-
um sinum. Ef til vill hef-
ur hann haft i huga, að
uppi hafa verið ráða-
gerðir um að senda
bandarisk flugmóður-
skip norður fyrir tsland
á hættutímum til að
stemma stigu við sókn
sovéska flotans suður á
bóginn, er ekki að efa
að þessi flotastefna hefur
i för með sér að minni
líkur eru á þvi en ella,
að ísland verði i fremstu
vigiinu eftir að sovéski
flotinn hefur náð vestur
og suður fyrir Noreg.
Hugmyndin um að
flytja varnarstöðina af
Reykjanesi er ekki ný.
Júlíus Sólnes gerir ekki
ákveðna tillögu um það.
Með hliðsjón af siendur-
teknum umræðum um
þetta mál er ástæða til
þess að varnarmálaskrif-
stofa utanríkisráðuneyt-
isins láti gera úttekt á
hugmyndinni frá her-
fræðilegum sjónarhóli og
mætti birta hana i
skýrslu utanríkisráð-
herra. Kynni það að falla
að hugmyndum Stein-
grims Hermannssonar
um að breyta um form á
skýrslu utanríkisráð-
herra til Alþingis.
EFTIRLAUNAREIKNINGUR VIB:
n -11,5%
ávöxtun umf'ram verðbólgu
Fyrir þá sem vilja leggja reglulega fyrir.
□ Eftirlaunareikningar VIB eru verðbréf í eigu einstaklinga skráð
á nafn hvers eiganda.
□ Eftirlaunareikningar VIB eru alveg óbundnir en þeir eru ávaxt-
aðir eins vel og frekast er unnt án þess að taka of mikla áhættu.
□ Flestir greiða mánaðarlega í eftirlaunareikning sinn. VIB sér um
að senda gíróseðla eða minna á reglulegar greiðslur með öðrum
hætti.
□ Síminn að Ármúla 7 er 68 15 30. Heiðdís, Ingibjörg, Sigurður
B., Vilborg og Þórólfur gefa allar nánari upplýsingar.
VIB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF
Ámuila7, 108 Reykjavík. Sími68 15 30