Morgunblaðið - 01.03.1988, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJÚDAGUR 1. MARZ 1988
Fræðileg rök gegn
aukinni áfengisneyslu
og bjórfrumvarpi
eftir Tómas Helgason
Það er skylda lækna að beita
þekkingu sinni og reynslu til gagns
fyrir sjúklinga sína og þjóðfélagið
í heild til að koma í veg fyrir sjúk-
dóma og ótímabæran dauða. í ljósi
þessa ákváðu sextán af tuttugu
prófessorum læknadeildar Háskóla
Islands að vara alþingismenn og
aðra við þeim hættum sem íslensku
þjóðinni er búin af frumvarpi sem
lagt hefur verið fram á alþingi til
að heimila framleiðslu og sölu á
áfengu öli. Fyrir þessu eru mjög
sterk rök sem engir, sem láta sig
heilsufar þjóðarinnar og forvamir
varða, geta gengið fram hjá. Allir
læknar við meðferðarstofnanir SÁÁ
og við vímuefnaskor geðdeildar
Landspítalans hafa tekið í sama
streng.
Nýlega hafa birst tvær greinar í
Morgunblaðinu þar sem bjórmenn
reyna að gefa málflutningi sínum
frseðilegt yfírbragð (Grétar Sigur-
bjömsson 10. febr. og Snjólfur Ól-
afsson 17. febr.) Þeir sem ekki
þekkja nægjanlega til kunna að
taka það sem þar er sagt án gagn-
rýni (sbr. Staksteina Morgunblaðs-
ins 12. febr.). Því er nauðsynlegt
að koma eftirfarandi staðreyndum
á framfæri. í því skyni verða notuð
sömu gögn og greinarhöfundar
hafa notað og sýnt hvemig beri að
túlka þau í ljósi fleiri staðrevnda,
sem koma fram í þessum gögnum
og öðmm. Með því að rýna nánar
í aðgerðir annarra með aðferðum
heilbrigðisfræðinnar (faraldsfræði
og tölfræði) skýrist hættan sem
bjórfrumvarpið boðar.
Heildarneysla
og drykkjusýki
Öll vandamál sem tengjast
áfengisneyslu vaxa með aukinni
heildameyslu einstaklinga og þjóða,
sum í beinu hlutfalli, önnur enn
meir (World Health Organization
1980). Þetta á bæði við félagsleg
vandamál og hvers kyns sjúkdóma
sem tengjast áfengisneyslu, þar
með talin drykkjusýki, eins og tafla
1 gefur til kynna. Af henni sést að
tíðni drykkjusýki er meiri á hveijum
tíma í Bandaríkjunum (Myers og
samverkamenn 1984), eða 6,5—8%
meðal þeirra sem voru 18 ára og
eldri, en í Svíþjóð (Halldin 1984),
þar sem hún var 3,1% hjá fólki á
aldrinum 18—65 ára. Í könnunum
á áfengisneysluvenjum og tíðni ein-
kenna sem benda á drykkjusýki,
sem gerðar voru hér á landi 1974
og 1979, var tíðni hennar 1,8% hjá
fólki á aldrinum 20—54 ára (Tómas
Helgason 1984). Þó að saman-
burður sem þessi sé háður ýmsum
fyrirvörum, gefur taflan mjög
ákveðnar vísbendingar um að
drykkjusýki sé algengari í þeim
löndum þar sem áfengisneysla er
meiri.
Tafla 1
Hlutfall fullorðinna, sem eru
dryklqusjúkir á ákveðnum tíma, og
heildameysla áfengis á sama ári í
þremur löndum
Drykkjusjúkir Heildarneysla
% lítrar á íbúa
Bandaríkin 6,5-8 8,3
Svíþjóð 3,1 5,6
ísland 1,8 4,5
Svipuð er niðurstaðan af öðrum
rannsóknum hér á landi, þar sem
líkur til að verða áfengismisnotkun
að bráð hafa rúmlega tvöfaldast á
síðustu 30—40 árum (Tómas Helga-
son og samverkamenn 1983) eða
úr 5,4% fyrir þá sem fæddir voru
rétt fyrir aldamót í 12,4% fyrir þá
sem voru fæddir á árunum 1925—
1954. Á sama tíma hefur heildar-
áfengisneysla á mann líka meira
en tvöfaldast. Hér á landi hafa nú
3,6% fólks sem er 15 ára og eldra
leitað aðstoðar meðferðarstofnana
fyrir vímuefnaneytendur einhvem
tíma á ævinni (Hildigunnur Ólafs-
dóttir og Tómas Helgason 1988).
Mörgum þeirra hefur batnað svo
að algengið, þ.e. fjöldinn sem er
veikur á ákveðnum tíma, er eðlilega
mun lægri. í Bandaríkjunum vom
11,5%—15,7% þeirra sem voru 18
ára og eldri taldir hafa verið áfeng-
ismisnotendur einhvem tíma á
ævinni (Robins og samverkamenn
1984).
Heildarneysla og ofneysla
Oft gætir þess misskilnings að
hægt að sé að skipta neytendum
áfengis í afmarkaða hópa og að það
sé aðeins einhveijum ákveðnum litl-
úm hópi sem sé hætt við að verða
ofnotkun að bráð. Þetta er ósk-
hyggja margra, sem neyta áfengis
til þess að geta talið eigin drykkju
saklausa og aðeins til ánægju. Þrátt
fyrir þá staðreynd að arfgengi skipti
einhverju máli í tilurð áfengis-
vandamála em rökin sem styðja
þessa skoðun takmörkuð (Royal
College of Psychiatrists 1986).
Drykkjusýki er margs konar. Oftast
skipta erfðir tiltölulega litlu máli.
En þó er eitt afbrigði hennar, sem
byijar mjög snemma, þar sem arf-
gengi skiptir vemlegu máli þótt
ekki sé vitað hvemig (Cloninger og
samverkamen 1981). Drykkja hvers
sem er getur orðið of mikil með
alvarlegum afleiðingum fyrir hann
sjálfan og umhverfíð.
Allir áfengir drykkir em jafn-
hættulegir vegna þess að það er
vínandamagnið sem skiptir máli,
en ekki einhveijir aðrir eiginleikar
drykksins. Hin almenna trú, að bjór
sé tiltölulega hættulítill og það séu
aðeins þeir sem drekka brennd vín
sem verði drykkjusjúkir eða fái
skorpulifur, á ekki við rök að styðj-
ast (Royal College of Psychiatrists
1986). í löndum þar sem bjór er
algengasta áfengistegundin em
flestir drykkjusjúklingar bjór-
drykkjumenn.
Meðaláfengisneysla á mann í
hveiju landi gefur ákveðna hug-
mynd um fjölda stómeytenda. Töl-
fræðilegar rannsóknir hafa sýnt að
dreifíng heildameyslunnar fylgir
ákveðnum lögmálum og upplýsing-
ar um hana em mjög mikilvægar
til að gera sér grein fyrir hinni al-
mennu neyslu. Með vaxandi heildar-
neyslu eykst neysla allra hlutfalls-
lega og þar með fjölgar stómeyt-
endum meira en svarar til aukning-
ar heildameyslunnar (Skog 1985,
WHO nr. 89, 1985). Heildameysla
áfengis á mann í þjóðfélaginu og
skaðsemin breytast í takt (Royal
College of Psychiatrists 1986, WHO
1985 nr.88 og WHO/;NH/85.14).
Þetta leiðir til fleiri sjúkdómstilvika
og ótímabærra dauðsfalla (Bmun
og samverkamenn 1985) og er eitt
út af fyrir sig næg ástæða fyrir
lækna til að vinna gegn öllu sem
getur stuðlað að aukinni neyslu.
Óskráð neysla
Óskrað neysla er alls staðar ein-
hver, lögleg og/eða ólögleg. í
Fríhöfninni í Keflavík hefur hin lög-
lega óskráða sala verið um 0,5 lítrar
af hreinum vínanda á ári á mann
15 ára og eldri. Af þessu magni
vom 0,16 lítrar í formi áfengs bjórs
árið 1985. Hér við bætist það áfengi
sem sjómenn mega flytja inn,
heimabmgg og smygl. Smyglið er
illgerlegt að áætla, en heimagert
áfengi gæti numið álíka miklu og
það sem selt er í Fríhöfninni (Tóm-
as Helgason 1982). Þannig má
ætla að óskráð neysla hér á landi
nemi 20—30% af skráðu neyslunni.
í Noregi áætlaði Bmun-Guld-
brandsen (1972) óskráða neyslu
vera 25—30% af heildameyslu, en
í Finnlandi var hún áætluð 10%
(Mákelá 1979). í Svíþjóð má reikna
með 40—45% viðbót á skráða neyslu
léttra vína vegna heimagerða vína
og löglegra innfluttra vína ferða-
manna, en innflutningur ferða- og
farmanna á sterkum drykkjum er
talinn nema 8—10% af skráðri sölu
áfengiseinkasölunnar þar. Hér í við-
bót er smygl sem ómögulegt er að
áætla (Rapport 87). Eins og sjá
má raskar áætlun um óskráða
neyslu engu um hlutföllin milli Ís-
lands og Noregs og Svíþjóðar, en
styttir bilið til Finna aðeins.
Áhrif áfengs öls og
alþjóðlegþróun
Reynsla hefur sýnt, að í löndum
þar sem neysla ákveðinna áfengis-
tegunda hefur náð mettun og heild-
ameysla staðnað, getur heildar-
neysla aukist vemlega með því að
bæta nýjum tegundum við neyslu-
mynstrið (WHO 88, 1985). Aukning
á framleiðslu og framboði áfengra
drykkja hefur leitt til aukinnar
neyslu og nýjar áfengistegundir
hafa bæst við hefðbundna áfengis-
neysluhætti (WHO 1980).
Mynd 1
Á mynd 1 er sýnt hver hefur
verið þróun heildameyslu áfengis í
Svíþjóð og meðaltalsþróun í 15 öðr-
um Evrópulöndum frá 1950—1985.
Til þess að geta gert sér í hugar-
lund hver verði líkleg þróun á ís-
landi, ef leyfð verður framleiðsla
og sala áfengs bjórs, hefur þróun
á íslandi verið bætt við á myndina.
Heildarþróunin í samanburðarlönd-
um 15 hefur verið jafnt stígandi
neysla fram til 1976. í Svíþjóð og
á íslandi var þróunin svipuð til
1966, nema að neysla Svía var um
2 lítrum meiri á mann. Þessi munur
stafar að vemlegu leyti af áfengu
öli („folköl" sem innihejdur 3,5%
vínanda að rúmmáli). Árið 1965
innleiða Svíar milliölið með 4,9%
vínanda og þá breikkar bilið fram
til 1978 að sölu þess var hætt. Þá
þegar byijaði heildameyslan í
Svíþjóð að minnka, en fór ekki að
minnka í hinum Evrópulöndunum
fyrr en 1981.
í kjölfar efnahagskreppunnar
sem varð í mörgum löndum og
minnkandi hagvaxtar dró úr neyzlu
almennings og þar með líka úr
kaupum fólks á áfengi. Aukinn
áhugi á heilbrigðum lifnaðarháttum
hefur einnig leitt til þess að víða
um heim hafa viðhorf til áfengis
breyst. í vaxandi mæli er litið á þá
áhættú sem áfengisneysla hefur í
för með sér og hún talin stefna
heilsu manna í voða, eins og önnur
óhollusta, og hafa í för með sér
félagsleg vandamál. Þá má benda
á, að vonbrigði með árangur með-
ferðar misnotenda hefur líka haft
áhrif í þá átt að horft er til ann-
arra átta en að byggja meðferðar-
stofnanir, þar sem sýnt er þær leysa
lítið af þeim vanda sem áfengis-
neysla hefur í for með sér (Mákelá
og samverkamenn 1981).
Á íslandi hefur heildameyslan
verið nokkuð jafnt stígandi til 1974,
en haldist stöðug eftir það, sér-
staklega frá 1979 þar til hún jókst
lítillega á síðasta ári. Skýringarinn-
ar á því að heildameyslan á Islandi
hefur ekki minnkað eftir 1980 eins
og í öðmm Evrópulöndum er m.a.
Tómas Helgason
„I öllum þróuðum
löndum hefur á síðustu
árum verið unnið að því
að draga úr áfengis-
neyslu. Aðgerðir sem
gætu verkað í gagn-
stæða átt, eins og t.d.
mundu fylgja auknu
áfengisframboði í
formi bjórs, mundu
gera okkur að viðundri.
Það er liðin tíð að upp-
lýst fólk geri grín að
því sem gert er til að
koma í veg fyrir of
mikla áfengisneyslu.
Margir líta hýru auga
til þess sparnaðar sem
við höfum náð með því
að leyfa ekki eina mjög
eftirsótta tegund
áfengis og halda heild-
arneyslunni þannig
niðri.“
að leita í því að áfengi hefur verið
gert fáanlegt hér á æ fleiri stöðum
eftir að farið var að slaka á áfengis-
málastefnunni. Af þessum sömu
ástæðum minnkaði neyslan ekki
árið 1983 þega kaupmáttur launa
minnkaði verulega eins og skeði
1968.
• Mynd 2
Til enn frekari skýringa á áhrif-
um áfengs bjórs á heildarsölu
áfengra drykkja er á mynd 2 sýnd
þróunin 1954—1986 í notkun ein-
stakra tegunda í Svíþjóð. Þar sést
greinilega þáttur áfengs öls þegar
milliölið kom til sögunnar síðla árs
1965. Heildameyslan eykst mjög
greinilega og minnkar strax og sölu
þess var hætt. Einnig sést að milli-
ölið dró ekki úr notkun sterkra
Mynd 2
86 Ar
Heildarsala áfengis í Svíþjóð 1954—1986 í lítrum hreins vinanda á mann 15 ára og eldri á ári eftir tegundum (Rapport 87). Á myndinni
má glöggt sjá áhríf aukinnar bjórsölu 1965—77 (milliöl) á heildarsölu áfengis.