Morgunblaðið - 01.03.1988, Page 24

Morgunblaðið - 01.03.1988, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1988 Creda tauþurrkarai Compact R. kr. 17.287 stgr. Reversair kr. 23.755 stgr. Sensair kr. 31.890 stgr. Viðja, Kópavogi, s. 44444 Rafbúðin, Hafnarfirði, s. 53020 Stapafell, Keflavik, s. 12300 Vörumarkaðurinn, Kringlunni, s. 685440 Grímur og Árni, Húsavik, s. 41600 Rafsel, Selfossi, s. 1439 Sjónver, Vestmannaeyjum, s. 2570 Rafland, Akureyri, s. 25010 Blómsturvellir, Hellisandi, s. 66655 Guðni Hallgrimsson, Grundarfirði, s. 86722 Póllinn, ísafirði, s. 3792 Kaupfélag Húnvetninga, Blönduósi,s.4200 Creda-umboðið, _ Saftckjavenfam íslands, Keykjarik, siai68-8640. IIAGGLilNDS DENISON VÖKVADÆLUR ☆ Oliumagn frá 19-318 l/m(n. ☆ Þrýstingur allt að 240 bar. ☆ Öxul-flans staðall sá sami og á öðrum skófludælum. ☆ Hljóðlátar, endingargóðar. ☆ Einnig fjölbreytt úrval af stimpildælum, mótorum og ventlum. ☆ Hagstætt verð. ☆ Ýmsar gerðir á lager. ☆ Varahlutaþjónusta. ☆ Hönnum og byggjum upp vökvakerfi. SIG. SVEINBJÖRNSSON HF. Skeiðarásl, Garðabæ símar 52850 - 52661 V^terkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiðill! Seðlabankalögin eftir Magna Guðmundsson í þessari lokagrein minni um banka- og peningamál hyggst ég ræða fáein atriði laga um Seðla- banka íslands nr. 36/1986. Áður hefí ég skrifað lítilsháttar um fyrri lög bankans nr. 10/1961 (Hagfræði og stjómmál/ 1984 bls. 78—81). Þau skrif hafa borið árangur. Þessi grein er umsögn um nýju lögin fremur en gagnrýni. Vænti ég þess, að hún geti orðið til glöggvunar, þegar endurskoðun laganna fer fram næst. Sjálfur vann ég í Seðla- bankanum árin 1967—72 og kynnt- ist þar prýðilegu fólki. Það kom síðar í minn hlut að gera tillögur fyrir kanadísk stjómvöld um breyt- ingar á bankalöggjöfínni þar í landi. Var það seinni hluta 8. áratugar- ins, er ég dvaldi við nám og störf vestra. Seðlabanki kallast yfirleitt mið- banki, einsog nafn hans er raunar á ensku: Central Bank of Iceland. Er mér ókunnugt um, hvemig þetta misræmi er til komið eða hví það er ekki leiðrétt. Slíkur banki, seðla- banki/miðbanki, gegnir sumum störfum venjulegs viðskiptabanka, t.d. þeim að stýra lausafjárstöðu ríkissjóðs, annast ávísanareikning hans, erlend gjaldeyrisviðskipti, stofnun og lúkning ríkisskulda. Að hinu leytinu hefir hann með höndum stefnumótun (policy making). Vík ég fyrst að hlutverki Seðlabanka Íslands. í grein 3(a) laganna segir m.a., að bankinn eigi að „vinna að því að peningamagn í umferð og fram- boð lánsQár sé hæfílegt miðað við það, að verðlag haldist stöðugt og framleiðslugeta atvinnuveganna sé hagnýtt á sem fyllstan og hag- kvæmastan hátt.“ Þetta er rétt skilgreining á hlut- verkinu. Orðalag er óbreytt frá fyrri lögum Seðlabankans. En því vek ég athygli á þessu, að sumir hyggja tilgang peningastjómar vera þann einan að tryggja ákveðna vaxtapró- sentu, jafnvel þótt slíkt standi gegn heilbrigðri verðlagsþróun. Satt að segja er stöðugleiki og jafnvægi markmið allrar hagstjómar. Leitast er við með samræmdum aðgerðum að hemja uppsveiflu, er orðið gæti að verðbólgu, og að koma í veg fyrir samdrátt, er leitt gæti til stöðnunar og atvinnuleysis. Banki og stjómvöld taka frumkvæði í stað þess að „bíða eftir markaðslögmál- unum“. Fjórða grein laganna leggur Seðlabankanum á herðar að „hafa náið samstarf við ríkisstjómina og gera henni grein fyrir stefnu sinni í efnahagsmálum og framkvæmd hennar. Orðið efnahagsmál á ekki heima þama, því að þau em mál ríkisstjómár, — peningamál hins vegar mál miðbanka. Ég staldra ögn við þetta atriði, því að það er grundvallaratriði. Gömul og gróin hefð er fyrir því á Vesturlöndum, að miðbanki hafi visst sjálfstæði og geti m.a. beitt ríkisstjóm pen- ingalegum aga, ef svo mætti segja. Það er talið nauðsynlegt vegna þess að stjómvöldum hættir til að sofa á verðinum gagnvart verðbólgu. Önnur vinsælli markmið vega gjaman þyngra. Þess vegna hvílir sérstök ábyrgð á miðbankanum að spyma fótum við ógætilegri fjár- málastjóm. Hér má láta þess getið, að fyrsti bankastjóri (Govemor) Kanadabanka, sem er miðbanki/ seðlabanki þess lands, gerði heyrin- kunnugt, að hann myndi ekki fram- fylgja stjórnarstefnu, sem bryti í bága við stefnu bankans í peninga- málum, eins og hún er túlkuð í lög- um hans. Hann myndi segja af sér í mótmælaskyni. Valdajafnvægi þarf að haldast milli seðlabanka og ríkisstjómar, en ríkisstjóm á að hafa síðasta orðið. Of náin tengsl milli þessara aðila eru óæskileg. Seðlabankastjóm má ekki ráða málum hjá ríkisstjóm — eða öfugt. Ástæða er þó til að ætla, að svo hafi einmitt verið hérlendis, og kann það að geta skýrt verðbólgumistök, sem hér hafa orðið síðustu áratugi. Megintækið, sem Seðlabankinn hefir til að stýra peningaframboð- inu er kaup og sala ríkisskuldabréfa á opnum markaði. Með þeim hætti hefir hann áhrif á reiðufjárforða viðskiptabankanna, þar með á útl- ánagetu þeirra og á vextina óbeint. Lítil eða engin skipuleg verðbréfa- viðskipti í þessu augnamiði hafa átt sér stað til þessa. Sala ríkisskulda- bréfa af hálfu Seðlabankans hefir verið til fjáröflunar fyrir ríkissjóð. Seðlabankinn hefir lengstum ákveð- ið vextina með beinum tilskipunum — með eða án samþykkis ríkis- stjómar. Lög um stjóm efnahags- mála nr. 13/1979 tengdu vextina við verðbólgu með lánskjaravísitölu. Árið 1984 vom vextimir gefnir frjálsir — án óbeinnar miðstýring- ar skv. ofangreindu. Þeir hafa síðan hækkað hrikalega, 115% frá okt./86 til okt./87. Grein 11 í lögun- um, sem fjallar um verðbréfaþing, gefúr von um betri skipan innan tíðar, — aðeins veika von þó,' því að hliðstæft ákvæði stóð í gömlu lögunum. Dr. Magni Guðmundsson „Meðan við höldum áfram að greiða sjálf- um okkur verðbætur samkvæmt verðbólgu- vísitölu á vaxtatekjur, á vinnulaun eða hverja aðra þætti, þarf að lag- færa gengi íslenzku krónunnar með reglu- legu millibili, svo að útflutningsatvinnuveg- irnir geti borið sig.“ Breytileg innlánsbinding við- skiptabankanna samkvæmt 8. grein laganna er einnig hagstjómartæki í höndum Seðlabankans, sambæri- legt við verðbréfaviðskipti á opnum markaði. Hún getur, fræðilega, komið í stað verðbréfaviðskipta. Henni fylgja hinsvegar of snöggar sveiflur reiðufjárforðans og lána- starfseminnar. Hefir breytilegri innlánsbindingu því verið beitt með varúð erlendis. Hún var afnumin í Kanada fyrir liðlega 20 ámm, án þess að hún hafi nokkm sinni verið notuð. Betra þykir að hafa innláns- bindinguna fasta og aðeins lágt hlutfall heildarinnlána, t.d. 5%. Henni er ætlað að standa undir lán- um seðlabanka til viðskiptabanka. Meiri vonir em bundnar við lausa- fjárskyldu viðskiptabankanna samkvæmt 4. mgr. 8. greinar, sem er nýtt ákvæði. Einnig henni ætti að setja skorður, t.d. 10% hámark. Tilgangurinn með henni er aðallega sá, að viðskiptabankar losi sig ekki við auðseljanieg verðbréf í því skyni að auka útlán. 1986 Um önnur atriði vil ég segja þetta: Seðlabanki íslands ætti að heyrá undir ljármálaráðuneyti, en ekki viðskiptaráðuneyti. Og banka- eftirlit ætti að vera deild í fjármála- ráðuneyti, ekki í Seðlabankanum. Pjármögnun Seðlabankans á Þjóð- hagsstofnun á að hætta. Arður af rekstri bankans á að renna óskiptur til ríkissjóðs. Augljósar ástæður em fyrir þessu öllu. Loks skal minnzt á 26. grein lag- anna um stjóm bankans. Þar segir, að í bankastjóm Seðlabankans eigi sæti þrír bankastjórar. Farsælla er, að þar ráði einn bankastjóri, er hafi sér við hlið varabankastjóra og tækniráðgjafa. Hins vegar ætti bankaráðið að telja sjö manns valda úr ýmsum starfsstéttum þjóð- félagsins. Þá segir í grein 26, að bankastjórar skuli eigi skipaðir til lengri tíma en sex ára í senn. Grein 28 mælir ennfremur svo fyrir, að bankastjómm sé óheimilt að sitja í stjóm stofnana og atvinnufyrir- tækja utan bankans. Bæði þetta ákvæði og ákvæðið um takmarkað- an ráðningartíma em afar mikil- væg. Þau em hins vegar ekki látin gilda um núverandi bankastjóra, sem em undanþegnir með 40. grein. Kann ég ekki skýringu á því. Ég hefí nú skoðað banka- og peningamálin frá ýmsum hliðum í sex greinum og lýk máli mínu með þessum orðum: Meðan við höldum áfram að greiða sjálfum okkur verðbætur samkvæmt verðbólguvísitölu á vaxtatekjur, á vinnulaun eða hverja aðra þætti, þarf að lagfæra gengi íslenzku krónunnar með reglulegu millibili, svo að útflutningsatvinnu- vegimir geti borið sig. Slík gengisleiðrétting er gerð mánaðarlega eða ársfjórðungslega í ríkjum Suður-Ameríku, sem hafa sams konar vísitölukerfi. Stjórnvöld hér hika sökum áhrifa á verðlag og skuldastöðu fyrirtækja. Þess vegna höfum við þetta sérkennilega ástand, að útgerð á í erfiðleikum, einnig frysting, ullariðnaður o.fl. greinar, en gróði hleðst upp á gráum og svörtum fjármagnsmark- aði, viðskipti blómgast, veitinga- hallir em reistar, ein á fætur ann- arri, og stór hluti þjóðarinnar fer í skemmtiferðir um víða veröld. Við- skiptahalli vex. Hann er talinn verða 12 milljarðar króna í ár eða nálega 33 milljónir króna á degi hveijum. Við búum við velmegun, sem fengin er að lárli. Höíundur er hagfrœðingur. Ungfrú Vesturland: Sjö taka þátt í keppni um titilinn Fimrn stúlkur af þeim sjö sem taka þátt í keppni um titilinn Ungfrú Vesturland. Morgunblaðið/Ámi Stykkishólmi. UNDANFARIÐ hefir farið fram undirbúningur að fegurðarsam- keppni stúlkna hér i Vesturlands- umdæmi. Hótel Stykkishólmur hefir í samvinniu við aðstandendur keppninnar ungfrú ísland haft með höndum keppnina Ungfrú Vesturland. Er þetta í fyrsta sinn sem ungfrú Vesturland er valin og taka sjö stúlkur þátt í þessari fyrstu keppni. Sú sem hlýtur titil- inn ungfrú Vesturland öðlast þátt til þátttöku um titilinn ungfrú ís- land. Undirbúningur verður í fullum gangi fram til 11. mars, en þá renn- ur upp dagurinn sem ungfrú Vestusr- land verður valin og krýnd. Hótel Stykkishólmur reynir á allan hátt að vanda vel til kvöldsins. Matreiðslu- menn sjá um sem bestan matseðil og allir leggjast á eitt með að gera kvöldið eftirminnilegt. Sigurður Skúli Bárðarson hótelstjóri er í farar- broddi og hefir fengið til liðs við sig úrvalsfólk. Eygló Bjamadóttir dans- kennari hefir umsjón með keppninni og verður stúlkunum til halds og trausts. Sviðsmjmd verður í höndum Jóns Svans Péturssonar hljómsveit- arstjóra, hljóð sér Hafsteinn Sigurðs- son tónlistarkennari um og sviðs- mynd annast Birgir Sigurðsson raf- virki. Hárgreiðslu sér Jóhanna Hauksdóttir um. Stúlkan sem hlýtur titilinn Ungfrú Vesturland fær í verð- laun ferð til Hamborgar eða Amst- erdam í boði Amarflugs og einnig 50 þúsund krónur í peningaverðlaun. Eftirtaldar stúlkur taka þátt í keppn- inni: Amdís Þorsteinsdóttir og Hall- dóra Bima Jónsdóttir, Stykkishólmi, Kristín Erlingsdóttir, Steinunn Tóm- asdóttir og Þórdís Rúnarsdóttir, Ól- afsvík, Halldís Höskuldsdóttir, Laugagerði, og Ingibjörg Huldar- dóttir, Akranesi. — Arni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.