Morgunblaðið - 01.03.1988, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 01.03.1988, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1988 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1988 fRtYgnnMflfrife Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Svelnsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, BjörnJóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst IngiJónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 700 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 60 kr. eintakið. Slysavarnir í umferðinni ijá.r staðreyndir skaga upp úr þegar fjallað er um um- ferðaröryggi: í fyrsta er bílafloti lands- manna stærri — hlutfallslega — en flestra annarra þjóða. Nærri lætur að hér sé eitt ökutæki á hveija tvo landsmenn. f annan stað skortir töluvert á að vegakerfí okkar sé sam- bærilegt að gæðum og vegir V-Evrópu og N-Ameríku. Enn skortir töluvert á varanlegt slit- lag á þjóðvegi. Umferðarþung- inn á höfuðborgarsvæðinu er og sumstaðar meiri en gatnakerfíð ber með góðu móti. í þriðja lagi er fyöldi umferðar- slysa mjög mikill. Umferðarslys með eignatjóni vóru á áttunda þúsundið 1986. Það ár slösuðust nærri 700 manns í umferðinni, þar af 345 alvarlega. Tveir ein- staklingar hafa að meðaltali lát- ist í umferðarslysum í mánuði hveijum næstliðin ár. Reynslan sýnir að það er hægt að fækka umferðarslysum veru- lega, ef og þegar stjómvöld og almenningur taka sameiginlega á. Slys og dauðsföll í umferð vóru umtalsvert færri árið 1968, þegar hægri umferð var upp tek- in og raunar árið næsta á eftir en bæði fyrr og síðar á því ára- bili sem heimildir ná til. Svipað má segja um norrænt umferða- röryggisár 1983. Ótvírætt er að fyrirbyggjandi aðgerðir greind ár höfðu jákvæð áhrif. Menn kunna að hafa skiptar skoðanir á notagildi bflbelta og viðvarandi bflljósum, meðan bif- reið er í akstri, en hér er um fyrirbyggjandi vamir að ræða sem gefíð hafa góða raun með öðmm þjóðum. Ný umferðarlög, sem taka gildi í dag, kveða á um tafarlausar peninga-sektir ef bflbelti em ekki spennt, ef ekið er án þess að tendra bflljós, ef ekið er yfír á rauðu ljósi eða biðskylda ekki virt, ef ekið er gegn einstefnu, ef ekið er hraðar en leyfilegt er, ef ekki er vikið úr vegi fyrir sjúkra-, slökkvi-, björgunar- eða lögreglubifreið, ef umferðarkvaðir gagnvart gangandi vegfarendum em ekki virtar, ef stjómtækjum bifreiðar er ábótavant — og fleiri sektar- tilefni mætti nefna. Enginn vafí er á því að sam- átak bifreiðarstjóra um að virða þau ákvæði, sem hin nýju um- ferðarlög geyma, lækkar slysa- tíðni, eins og gerðist 1968 og aftur 1983. Gagnkvæm tillits- semi, akstur sem tekur mið af aðstæðum og virtar umferðar- reglur skila óhjákvæmilega árangri í fækkun slysa. Salome Þorkelsdóttir, alþing- ismaður, hafði frumkvæði að lögboðinni notkun bflljósa — sem og að þingsályktun um þjóðar- átak til umferðaröryggis, sem nú er að unnið. Pramtak hennar og breytt umferðarlög þjóna fyr- irbyggjandi slysavömum. Sú staðreynd að við emm eftirbátar grannþjóða í umferðaröryggi, það er að umferðarslys em fleiri hlutfallslega hér á landi en í grannríkjum, færir heim sanninn um, að úrbóta er þörf. Taka ber öllum fyrirbyggjandi slysavöm- um með jákvæðu hugarfari. Tök- um á móti breyttum umferðar- lögum með samátaki gegn um- ferðarslysum. Ráðherrann og heimild- armaðurinn Jóhanna Sigurðardóttir, fé- lagsmálaráðherra, hefur ákveðið að kæra Þjóðviljann fyr- ir siðanefnd Blaðamannafélags íslands vegna þess að blaðið hefur neitað að gefa upp heimild- armann sinn í félagsmálaráðu- neytinu í frétt um ráðhúsmálið. Telur ráðherrann að blaðamaður Þjóðviljans geri „alla starfsmenn ráðuneytisins tortryggilega" með því að skýra ekki frá því, hver sé heimildarmaður hans í félagsmálaráðuneytinu og neita að gefa það upp. Siðanefnd Blaðamannafélags- ins á eftir að segja álit sitt sitt á þessu kæruefni. í tilefni af því vill Morgunblaðið á hinn bóginn ekki láta hjá líða að minna á þá staðreynd og ítreka hana, að í siðareglum Blaðamannafélags- ins stendun „Blaðamaður virðir nauðsynlegan trúnað við heim- ildarmenn sína.“ í þessu felst mikilsverð vörn fyrir blaðamenn og fjölmiðla og viðmælendur þeirra og réttur, sem ekki á að misfara með öðrum til tjóns. Þarf vissulega mjög alvarlegar ástæður til að það teljist brot á siðareglum, að blaðamenn gæti þessa trúnaðar. Er það vissulega áhyggjuefni, að ráðherra skuli telja það atvik, sem hér um ræð- ir, tilefni kæru til siðanefndar, og lýsir kæran litlum skilningi á störfum blaðamanna. Efnahagsraðstafamr ríkisstj órnarinnar : Fastgengisstefna er jafn mikilvæg og áður [ Seðlabanki og ríkisstjórn sendu í gær frá sér greinar- gerðir vegna efnahagsaðgerð- anna og fara þær hér á eftir. Fyrst fer yfirlýsing greinar- gerð Seðlabankans. Ríkisstjómin hefur undanfama daga unnið að undirbúningi sam- stilltra aðgerða á sviði gjaldeyris- mála, ríkisfjármála og peninga- mála í þeim tilgangi að bæta starfsskilyrði útflutningsatvinnu- vega og draga úr viðskiptahalla. Einn þáttur í þessum ráðstöfunum er breyting á gengi íslenzku krón- unnar, og hefur bankastjóm Seðlabankans í samræmi við það og með samþykki ríkisstjómarinn- ar ákveðið 6% lækkun á meðal- gengi íslenzku krónunnar frá deg- inum í dag. Haft hefur verið sam- ráð við bankaráð Seðlabankans um þessa ákvörðun, en í henni felst einnig, að gengi verði fram- vegis haldið stöðugu miðað við viðskiptavog. Þrátt fyrir þessa gengisbreyt- ingu vill bankastjóm Seðlabank- ans ítreka þá skoðun sína, að áframhaldandi fastgengisstefna sé nauðsynlegur grundvöllur aukins stöðugleika og hjaðnandi verð- bólgu. Er ótvírætt, að sá stöðug- leiki í gengi, sem ríkt hefur hér á landi undanfarin tvö ár, hefur ver- ið einn af homsteinum þess árang- urs, sem náðst hefur í efnahags- málum á þessu tímabili. Hækkun raungengis á undanfömu ári og versnandi staða útflutningsat- vinnuvega og samkeppnisgreina hefur ekki stafað af gengisstefn- unni, heldur óeðlilega miklum kostnaðarhækkunum innanlands. Þótt nokkur gengisaðlögun sé nú talin nauðsynleg af þessum ástæð- um, er gengisfesta jafnmikilvæg og áður til að skapa trausta undir- stöðu um stöðugleika í efnahags- málum og hjaðnandi verðbólgu. Án hennar er vonlítið, að íslend- ingum takist að breyta verðlags- þróun hér á landi til samræmis við það, sem nú er meðal annarra Evrópurflga. Yfirlýsing ríkis- stjórnarinnar um efnahagsaðgerðir Ríkisstjómin hefur ákveðið Amar Sigurmundsson: Áfram tap á frystingunni „ÞAÐ er ljóst að þessar aðgerðir ríkisstjómarinnar í gengis- og vaxtamálum munu rétta nokkuð hag fískvinnslunnar. Frystingin verður reyndar áfram rekin með nokkru tapi“ sagði Amar Sigur- mundsson, formaður stjómar Sam- bands fískvinnslustöðvanna, í sam- tali við Morgunblaðið. „Hvað varðar aðrar aðgerðir, það er endurgreiðslu á uppsöfnuðum söluskatti og niðurfellinigu á launa- skatti erum við þokkalega ánægðir með. Við lýsum á hinn bóginn von- brigðum okkar á því, að launaskatt- urinn skyldi ekki vera felldur niður frá og með fyrsta janúar síðastliðn- um,“ sagði Ámar Sigurmundsson. Gengisskráni Mm ~ *<a» ÍWÍKarwfe 50(6 SSSOanmörti 'DW HhlNoagur tn ■IfinnbKl 1 m RlFrakfcfeMd CTSww 1 Of JJJJJjHoftBfld mgHpyiiMmd >ow «flfl JJJJJgAusíUTÍkí t*r» — Porlixul mt i mrnsoím \or 11*** 1 » SOR tW Gjaldeyrir var ekki afgreiddur í bönkunum í gær. samstilltar aðgerðir á sviði gjald- eyrismála, ríkisfjármála og lána- og peningamála. Tilgangur að- gerðanna er að bæta starfsskilyrði útflutningsatvinnuvega og hamla gegn viðskiptahalla og erlendri skuldasöfnun. Einn þáttur þessara aðgerða er lækkun á gengi krón- unnar um 6%, sem Seðlabanki ís- lands hefur ákveðið að fengnu samþykki ríkisstjómarinnar. Steftian i gengismálum verður framvegis við það miðuð, að gengi krónunnar verði haldið stöðugu. Á grundvelli stefnunnar í geng- ismálum og með þeim efnahagsað- gerðum sem ríkisstjómin hefur beitt sér fyrir mun draga úr verð- bólgu á síðari hluta ársins. Fors- enda þessa er að þeirri almennu stefnu, sem mörkuð hefur verið í þeim kjarasamningum sem þegar hafa verið gerðir, verði fylgt í öðrum samningum. Aðgerðir til að bæta hag útflutningsgreina • Uppsafnaður söluskattur verð- ur að fullu endurgreiddur fyrir- tækjum í fískvinnslu og útgerðum skipa, sem greiðsluskyld em til Stofnfjársjóðs fískiskipa, þó ekki vegna sjófrystingar og útflutnings á óunnum físki. Endurgreiðsla þessi nemur 587 m.kr. umfram það sem fjárlög ársins 1988 gera ráð fyrir. • Launaskattur í sjávarútvegi og samkeppnisgreinum iðnaðar fellur niður frá 1. júlí 1988. Þessi að- gerð svarar til um 200 m.kr. • Skuldum sjávarútvegsfyrir- tækja við ríkissjóð og greiðslum vegna lána ríkissjóðs, sem af- greidd voru frá Fiskveiðasjóði 1984, verður breytt í lán til lengri tíma. Áætlað er að skuldbreyting- ar þær sem hér um ræðir létti greiðslustöðu þeirra fyrirtækja sem í hlut eiga um 370 m.kr. á árinu 1988. • Áfram verður unnið að fjár- hagslegri endurskipulagningu fyr- irtækja f útflutningsgreinum í samstarfí viðskiptabanka, byggða- stofnunar og annarra lánastofn- ana. • Seðlabankinn beitir sér fyrir því fyrir hönd ríkisstjómarinnar, að vaxtamunur, sem bankamir taka vegna gengisbundinna afurð- alána, lækki um a.m.k. 0,25%. Seðlabankinn beitir sér einnig fyr- ir því að umsjónar- og eftirlits- gjald vegna afurðalána verði lækk- að í fyrra horf hjá þeim bönkum, sem hækkuðu gjaldið árið 1987. • Seðlabankinn mun beina þvi til bankanna, að þeir leysi með sveigjanlegum hætti rekstrar- vandamál þeirra fyrirtækja, sem þurfa á afurðalánafyrirgreiðslu umfram 75% af verðmæti birgða að halda. • Tilhögun á greiðslu vaxta- og geymslugjalds sauðfjárafurða verður endurskoðuð. • Olíuverð lækkar 1. mars með hliðsjón af stöðu innkaupajöfnun- arreiknings, verði birgða og horf- um um þróun olíuverðs á alþjóða- markaði. Morgunblaðið/Ámi Sœberg Bætt starfsskilyrði launafólks • Ríkisstjómin mun beita sér fyrir setningu laga um starfs- menntun verkafólks, og mun ríkis- sjóður leggja fram fé á árinu 1988 í þessu skyni. • Ákvæði laga og reglugerðar um greiðslur Atvinnuleysistrygg- ingasjóðs vegna fastráðins físk- vinnslufólks verða endurskoðuð í samráði við hlutaðeigandi samtök. Aðgerðir til að hamla gegn viðskiptahalla og erlendri skuldasöfnun • Ríkisútgjöld verða lækkuð um 300 m.kr. á þessu ári. Útgjöld til vegamála lækka um 125 m.kr., framlög í byggingarsjóði ríkisins lækka um 100 m.kr. og önnur útgjöld Iækka um 75 m.kr. • Áformum um breytta verka- skiptingu ríkis og sveitarfélaga verður frestað um ár. Við það styrkist fjárhagur ríkissjóðs um 260 m.kr. frá því sem gert er ráð fyrir í ijárlögum ársins 1988. •Gjald á erlendar lántökur verður tvöfaldað. Tekjuskattur félaga verður hækkaður. Samanlagt skila þessar ákvarðanir ríkissjóði 290 m.kr. á árinu. Gjald á erlendar lántökur fellur niður frá næstu áramótum. Erlendar lántökuheimildir fjár- festingarlánasjóða og ýmissa ann- arra aðila verða lækkaðar um 300 .kr. Lántökur opinberra aðila eru lækkaðar um 100 m.kr., þar af hjá Landsvirkjun 75 m.kr. og Þró- unarfélagi íslands hf. 25 m.kr. Þá er lántökuheimild til smíði Heijólfs lækkuð um 25 m.kr. Erlendar lán- tökur atvinnuvegasjóða eru lækk- aðar um 175 m.kr., þar af hjá Fiskveiðasjóði vegna útlána 75 m.kr., hjá Iðnlánasjóði 75 m.kr. og hjá Iðnþróunarsjóði 25 m.kr. • Fylgt verður fast eftir fram- kvæmd gildandi reglna um erlend- ar lántökur. Hvað varðar lán sem háð eru sérstökum leyfum verður við það miðað, að heildarfjárhæð slíkra lánsheimilda verði haldið innan tiltekinna marka á hveijum ársfjórðungi. • Fiskveiðasjóði verður falið að fresta svo sem framast er unnt lánveitingum til nýsmíða og kaupa á fískiskipum. • Ríkisstjómin mun beina því til sveitarfélaga og annarra fram- kvæmdaaðila að dregið verði úr framkvæmdum eftir því sem föng eru á. Mun ríkisstjómin óska eftir viðræðum um þetta við Samband íslenskra sveitarfélaga og aðra viðkomandi aðila. Vextir og fjár- magnsmarkaður •Nafnvextir innlánsstofnana lækka almennt 1. mars. um 1—4% eða um 2% að meðaltali. • Seðlabankinn hefur ákveðið að lækka eigin vexti í viðskiptum við innlánsstofnanir um 2%. Fjármála- ráðuneytið hefur ákveðið frekari lækkun forvaxta ríkisvíxla um 1% • í kjölfar efnahagsaðgerðanna verða raunvextir á spariskírteinum ríkissjóðs lækkaðir. • Seðlabankinn mun beina því til innlánsstofnana, að þær reikni dráttarvexti sem dagvexti í stað þess að reikna fulla mánaðarvexti fyrir brot úr mánuði. Ákvæði laga um dráttarvexti verða endurskoð- uð. •Lagt verður fram fmmvarp um starfsemi fjármálastofnana, ann- arra en innlánsstofnana, sem með- al annars tryggi hagsmuni eigenda hlutdeildarskírteina í verðbréfa- sjóðum. Jafnframt verður lagt fram frumvarp um skattskyldu fjárfestingarlánasjóða og veð- deilda banka. Með þessum aðgerðum eru sköpuð bætt skilyrði fyrir jafnvægi í þjóðarbúskapnum, sem er undir- staða framfara og batnandi lífskjara. Reykjavík, 29. febrúar 1988. Félagsmálaráðherra lét bókfæra andstöðu sína JÓHANNA Sigurðardóttir lét færa til bókar á ríkisstjómarfundi í gær mótmæli sin vegna niðurskurðar á framlögum ríkisins til bygginga- sjóða ríkisins og Jöfunarsjóðs sveitarfélaga. Jafnframt er hún á móti frestum frumvarps um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Aðspurð um það, hvort vænta mætti frekari viðbragða af hennar hálfu en bókfærðum mótmælum, sagðist Jóhanna ekki vilja um það segja að svo stöddu. „Það liggur alveg ljóst fyrir að ég hef lýst yfír andstöðu minni við stórlækkuð framlög til bygginga- sjóðanna og Jöfunarsjóðs sveitarfé- laga og því, að fresta eigi frum- varpinu um verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga," sagði fé- lagsmálaráðherra Jóhanna Sigurð- ardóttir í samtali við Morgunblaðið. „Það hef ég látið bóka í ríkisstjóm- inni. Ég tel að of langt hafl verið gengið í'því að skerða framlög til byggingasjóðanna. Þar hafi áður verið nóg gert og því hefði átt að fara aðrar leiðir til að draga úr framlögum ríksins til ýmissa mála. Sama gegnir um Jöfununarsjóð sveitarfélaganna. Sú leið sem farin var, að fresta frumvarpinu um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og skerða stórlega framlög til jöfunarsjóðsins, held ég að verði til þess að skapa tortryggni sveitarstjómamannanna í garð ríkisvaldsins. Einnig geti það tafizt, að þessi verkaskipting kom- ist á, en hún hefur í langan tíma verið í undirbúningi. Þessi aðferð mun ekki bæta samskipti ríkis og sveitarfélaga. Nokkrir stjómarliðar hafa þama náð fram sínum ásetn- ingi og á því hljóta þeir þá að bera ábyrgð," sagði Jóhanna Sigurðar- dóttir. Staðgreiðsla: Skattar fólks sem notið hefur ívilnunar hækka 35 Hugsanlegar endurgreiðslur haustið 1989 MÁNAÐARLEGAR skattgreiðslur fólks sem notið hefur ívilnunar skatt- stjóra, til dæmis ef gjaldþol viðkomandi hefur skerst verulega vegna ellihrörleika, veikinda, slyss eða mannsláts, hafa í mörgum tilvikum hækkað verulega i staðgreiðslukerfinu. Skattstjóri hefur þó í aðalatrið- um sömu heimildir og áður til að veita slíkar ívilnanir, en þær koma fólkinu þó ekki til góða á greiðsluári skattanna, heldur verða hugsan- legar ívilnanir greiddar út þegar fólk hefur talið fram. Engar ívilnan- ir verða veittar á þessu ári þar sem tekjur síðasta árs eru „skattfijálsar". Morgunblaðið hefur upplýsingar um skattgreiðslur 82 ára gamallar konu, sem notið hefur ívilnunar skattstjóra. Álagðir skattar hennar á síðasta ári voru um 16.500 krón- ur, eða 1.650 krónur á mánuði miðað við greiðslu skattsins á tíu mánuðum eins og þá var. Þrátt fyrir að aðstæð- ur hennar séu óbreyttar á þessu ári greiðir hún rúmlega 3.530 krónur á mánuði frá áramótum. Miðað við þessar greiðslur hækka skattar kon- unnar því á milli ára úr 16.500 krón- um í tæpar 42.400 krónur, eða um 157%. Mánaðarlegar skattgreiðslur Siglingamála- stofnun ríkisins: Þilfarsfiski- skipum undir 10 brl. fjölg- aði um 30% Þilfarsfiskiskipum, undir 10 brúttólestum að stærð, fjölgaði á sl. ári um 46 (29,9%), úr 154 1. janúar 1987 í 200 1. janúar 1988. Opnir vélbátar (trillur) á skrá hjá Siglingamálastofnun ríkisins 1. janúar sl. voru hins vegar 1.486 talsins eða 157 (10,6%) fleiri en 1. janúar 1987. 1. janúar sl. voru skráð 1.037 þilfarsskip, þar af 899 fískiskip. Þilfarsfiskiskip minni en 100 brl. að stærð voru 491 talsins 1. janúar 1987 en 560 1. janúar 1988 og fjölgaði því um 69 (14,1%) í fyrra. Þilfarsfískiskipum 100 til 499 brl. fjölgaði um eitt, úr 301 í 302, 500 til 999 brl. ijölgaði um 6, úr 29 í 35 og stærri en 1.000 brl. fjölgaði um eitt, úr einu í tvö. í fyrra fjölgaði þilfarsskipum um 86 og þar af fjölgaði fiskiskipum um 77. Skrásett voru 112 þilfars- skip á árinu, þar af 99 fiskiskip, 6 seglbátar, 3 vinnubátar, 2 vöru- flutningaskip og 2 dráttarskip. 98 þilfarsskipanna voru nýsmíði og þar af voru 64,5 smíðuð hérlendis. 12 opnir vélbátar (trillur) og 26 þilfars- skip voru tekin af skrá í fyrra. 5 þilfarsskipanna fórust, eða eru talin hafa farist, og 8 voru seld úr landi. Skuttogarar voru 106 talsins 1. janúar sl. og fjölgaði því um 5. Þar af voru 3 nýsmíði og voru þeir smíðaðir á Akranesi (Gissur ÁR 6), Akureyri (Nökkvi HU 15) og Flekkefjord í Noregi (Sjóli HF 1), að sögn Gísla Auðunssonar fulltrúa hjá Siglingamálastofnun ríkisins. Akranes: Eldur kom upp í bílaverkstæði ELDUR kom upp í bílaverkstæði í jámgrindarhúsi við Ægisgrund 11 á Akranesi. Ungur maður var að vinna við að gera bifreið sína klára í rallakstur og mun meðal annars hafa verið að vinna með logsuðutæki er eldurinn kom upp. Manninn sakaði ekki. Bfllinn brann mikið og er talinn gjörónýt- ur. Einnig urðu talsverðar skemmd- ir á húsinu. hækka um 114% auk þess sem konan hefur ekki lengur tvo skattlausa mánuði. í þessum útreikningum er ekki tekið tillit til hugsanlegrar end- urgreiðslu vegna ívilnungar skatt- stjóra sem kæmi haustið 1989. Morgunblaðið bar þetta dæmi und- ir Snorra Olsen í fiármálaráðuneyt- inu og leitaði eftir skýringum. Snorri sagði að sér virtist að þessi hækkun á milli ára stafaði eingöngu af þeirri ívilnun sem gjaldandinn naut við síðustu álagningu. Hann reiknaði út skatta hennar samkvæmt gamla skattkerfínu, út frá ákveðnum for- sendum, meðal annars þeim að við- komandi hefði notið hlutfallslega sömu ívilnunar áfram. Þá hefði hún þurft að greiða á þessu ári samtals 25.942 krónur, eða 2.160 krónur á mánuði miðað við skattgreiðslur alla tólf mánuði ársins. Ef þessi kona fengi ívilnun næsta haust, hlutfalls- lega þá sömu og síðast, myndi skatt- byrði hennar heldur léttast frá því sem var í fyrra. Þegar farið er nánar ofan í útreikningana kemur í ljós að hækkun hinnar mánaðarlegu skatt- greiðslu nú um áramótin felst ein- göngu í hækkun útsvarsins, og er konan í raun að greiða helmingi hærra útsvar en í fyrra en minni tekjuskatt. Ef hún fær ekki ívilnun vegna þessa árs verður það því sveit- arfélagið sem nýtur góðs af því en ekki ríkið, samkvæmt þessum út- reikningum. Gestur Steinþórsson skattstjóri TVÆR myndir eftir Svavar Guðnason voru meðal verka sem voru boðin upp hjá Kunsthallen í Kaupmannahöfn á miðvikudag. Uppboðið var haldið í tilefni 40 ára afmælis Cobra-listahópsins, sem var stofnaður í París þann 8. nóvember 1948. Margir þekkt- ir listamenn eru f hópnum og voru alls 104 verk boðin upp. Meðai þeirra sem í hópnum eru má nefna Hollendinginn Karel App- el, Danann Asger Jom, sem er vel þekktur í heimalandi sínu og svo Svavar Guðnason, sem hefur starf- Reykjavíkur sagði að heimildir til lækkunar á tekjuskattsstoftii væru enn til staðar, en ekki væri ljóst hvemig tekið yrði á ívilnunarbeiðn- um. Hann sagðist þó ekki sjá að for- sendur væru breyttar og bjóst við að hvert tilvik fyrir sig yrði metið með sama hætti og áður. Til slíks kæmi þó ekki fyrr en við álagningu vegna þessa árs, sem verður sumarið 1989, og inneignin þá endurgreidd. Gestur sagði að í staðgreiðslulög- unum væri ríkisskattstjóra heimilað að endurgreiða aftekna staðgreiðslu með vissum mjög þröngum skilyrð- um. Mál myndu skýrast betur þegar ljóst yrði hvemig ríkisskattstjóri tæki á slíkum málum sem væntanlega yrði fljótlega. Gunnar Eydal skrifstofustjóri Reykjavíkurborgar sagði að þrátt fyrir að sömu heimildir væm fyrir hendi og fyrr mætti búast við vem- legri breytingu á mati á ívilnunar- beiðnum gjaldenda þar sem aðstæður hefðu breyst við staðgreiðsluna. Nú væm skattgreiðslumar teknar jafn- óðum af tekjum og lækkuðu sjálf- krafa ef tekjur fólks minnkuðu. Gest- ur Steinþórsson sagði um þetta að ívilnunin væri hugsuð sem vamagli við því að teknir væm skattar af fólki sem ekki ætti peningana til eða ætti erfítt með að útvega þá. Oftast væri það vegna breyttra aðstæðna og gæti það einnig átt við í stað- greiðslu. í þessu sambandi gat Gestur Steinþórsson þess að framvegis félli ónýttur persónuafsláttur niður og nýttist því ekki til greiðslu eignar- skatts eins og var í gamla skattakerf- inu og gæti það hækkað skattgreiðsl- ur tekjulágs fólks sem ætti eignir umfram eignarskattsmörk. Eignar- skattur vegna ársins 1988 verður lagður á sumarið 1989. að Iengi í Danmörku og er kunnur þar í landi. Hann átti tvö verk á uppboðinu á miðvikudag og bera baeði heitið Komposition-samsetning. Hið fyrra er olíumálverk frá um 1950 og hef- ur það m.a. verið á sýnt í Charlott- enborg 1963 og Aarhushallen 1964. Hið síðara er lítil akvarelmynd, sem áður hefur verið sýnd í Nikolaj- kirkjunni. Myndimar vom seldar á um 310.000 krónur (55.000 dkr.) og rúmar 33.000 krónur (6.000 dkr.) en þær vom metnar á 60.000 dkri og 10.000 dkr. Olíumálverkið Komposition eftir Svavar Guðnason var selt á um 310.000 krónur á uppboði á miðvikudag. Myndir Svavars á uppboði á afmæli Cobra-hópsins
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.