Morgunblaðið - 01.03.1988, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1988
38
<
Leikfélag Akureyrar:
Horft af brúnni
Friimsýning á f östudaginn
I Samkomuhúsinu á Akur-
eyri standa nú yfir lokaæfingar
á sjónleiknum Horft af brúnni
eftir Arthur Miller, en frum-
sýning verður föstudaginn 4.
mars. Þetta er næstsíðasta
verkefni LA á þessu leikári, en
vetrarstarfinu lýkur nú sem
undanfarin ár á söngleik, að
þessu sinni Fiðlaranum á þak-
inu.
Ekki er ráðist á garðinn þar
sem hann er lægstur þegar valið
er til sýningar verk eftir Arthur
Miller. Kunnir eru sjónleikir hans,
Sölumaður deyr, Eftir syndafallið
og Allir synir mínir, svo einhveij-
ir séu nefndir ásamt Horft af
brúnni. Verk Millers þykja jafnan
erfíð viðfangs, efnismikil átaka-
verk, iðulega flölskylduharmleikir
með miklum og flóknum vísunum
til samfélags og tilfínninga, og
þau eru samin af þvílíkri list að
höfundi hefur verið skipað á bekk
helstu leikritaskálda veraldar.
Horft af brúnni gerist í hafnar-
hverfí New York-borgar á þeim
árum þegar McCarthy-isminn var
við lýði. Á þeim árum þótti inn-
flytjendafjöldi keyra úr hófí og
þeim var refsað sem héldu hlífí-
skildi yfír fólki sem laumaðist til
Bandaríkjanna í trássi við lög um
leyfílegan hámárks§ölda innflytj-
enda. Höfuðpersóna leikritsins,
Eddie Carbone, sem sjálfur er af
erlendu bergi brotinn, lendir í
þessari aðstöðu og í verkinu er
fjallað um vanda hans og raunar
margt fleira sem áhrærir heimili
hans og fjölskyldu.
í uppfærslu Leikfélags Akur-
eyrar er notuð þýðing Jakobs
Benediktssonar, sú sama og þegar
Þjóðleikhúsið setti verkið á svið á
sjötta áratugnum. Leikstjóri hér
er Theodór Júlíusson, leikmynd
og búningar eru verk Hallmundar
Kristinssonar og ljósameistari er
Ingvar Bjömsson.
Aðalhlutverkið, Eddie Carbone,
leikur Þráinn Karlsson, Sunna
Borg leikur Beartice, eiginkonu
hans, og Erla Ruth Harðardóttir
Katrínu, systurdóttur hennar.
Alfíeri lögmann, eins konar sögu-
mann í leiknum, leikur Marinó
Þorsteinsson og ítölsku bræðuma,
Marco og Rodolpho, leika þeir Jón
Benónýsson og Skúli Gautason.
Allmargir fleiri leikendur koma
fram í smærri hlutverkum.
Það er talið til tíðinda hvar-
vetna í veröldinni þegar verk Art-
Leikarar LA, Erla Rut Harðardóttir, Þráinn Karlsson og Skúli
Gautason, æfa Horft af brúnni.
hurs Millers eru sett á svið og því hygli á þessari uppfærslu Leik-
er ærin ástæða til að vekja at- félags Akureyrar.
Ýmsir innlendir o g erlendir
aðilar tilbúnir að kosta mótið
— segir Gunnar Sólnes formaður Golfklúbbs Akur-
eyrar, sem fengið hefur boð um að halda atvinnumót
„VIÐ ERUM þessa dagana í við-
ræðum við ýmsa aðila um fjár-
mögnun mótsins og geri ég fast-
lega ráð fyrir að mótshaldið verði
þegið. Endanleg afstaða liggur
ekki fyrir, en verður væntanlega
tekin fyrir í stjóm GA á miðviku-
dagskvöld,“ sagði Gunnar Sólnes
formaður Golfklúbbs Akureyrar í
samtali við Morgimblaðið í gær,
en eins og fram hefur komið, hef-
ur GA verið boðið að halda eitt
af mótum atvinnukylfinga í
kvennaflokki 1.-7. ágúst nk.
Icemaster Icelandic Open
Búist er við milli 75 og 85 af bestu
kvengolfurum heims til þátttöku og
koma þær frá ýmsum heimshomum,
svo sem frá Bretlandi og öðrum Evr-
ópulöndum, Bandaríkjunum, Ástralíu
og Suður-Afríku. íslenskar golfkonur
munu jafnframt fá að taka þátt í
mótinu, nái þær 5 í forgjöf. Golfklúb-
bur Akureyrar mun þurfa að standa
straum af öllum kostnaði og þar með
verðlaunafé. Að sögn Áma Jónssonar
framkvæmdastjóra GA er gert ráð
fyrir að mótið muni kosta hátt í sex
milljónir króna. Þar af nemur verð-
launafé þremur og hálfri milljón
króna. Gunnar sagði að ýmsir aðilar,
sem erfítt væri að tilgreina á þessari
stundu, væm tilbúnir til að styrkja
keppnina. Þetta væru fyrirtæki bæði
norðanlands og sunnan og jafnframt
erlend fyrirtæki. Ef af mótshaldinu
verður hérlendis, hefur verið rætt um
að nefna mótið „Icemaster Icelandic
Open“. Hugsanlega kæmi þó nafn
stærsta styrktaraðilans inn í heitið,
að sögn Gunnars.
Englendingurinn Mark Jones, sem
rekur skrifstofuna Total Sport Ama-
sement í Englandi, kom til Akureyrar
í síðustu viku til að líta á aðstæður
að Jaðri, en hann sér um skipulagn-
ingu atvinnugolfmóta um allan heim.
Héðan fór Jones til Filippseyja þar
sem hann er að undirbúa annað mót.
Hálft annað ár er nú liðið síðan GA
hóf að kynna sig á erlendum vett-
vangi og hefur klúbburinn fengið
mjög góða umfjöllun í erlendum golf-
blöðum. Sú kynning hefur nú borið
góðan ávöxt, að sögn Áma, og dag-
lega hringja útlendingar til að leita
upplýsinga. Um 200 útlendingar
komu til Akureyrar á síðasta sumri
til að leika golf. Nýlega birtist í
breska tímaritinu Golf World fjögurra
síðna umfíöllun um GA og Arctic
Open-mótið sem fram fór að Jaðri
sl. sumar. Ritstjóri og ljósmyndari
tímaritsins voru meðal þátttakenda
og mun Jones hafa fengið upplýsing-
ar hjá þeim og hjá öðrum golfmönn-
um, sem leikið hafa hér.
Gríðarlegur heiður
„Þetta er gríðarlegur heiður fyrir
okkur. Atvinnumót eru frekar fá í
heildina, en ef af þessu verður, er
það eitt öruggt að þetta yrði stórkost-
legur viðburður fyrir okkur og mikil
auglýsing fyrir land og þjóð,“ sagði
Ámi. Allir helstu fjölmiðlar Evrópu
fylgja atvinnugolfleikurum á mótin
og má búast við fjölda blaða- og
fréttamanna hingað, þar á meðal Sky
Channel-sjónvarpsstöðinni og gert er
ráð fyrir að sænska sjónvarpið taki
mótið upp fyrir Eurovision.
Á mótinu verða leiknar 72 holur.
Ef Akureyringar sjá sér mótshaldið
ekki fært, verður það fært til Edin-
borgar í Skotlandi, en Skotar buðu í
það á sínum tíma.
IConica
UÓSRITUNARVÉLAR
Jón Jónsson fyrrum
skólasljóri látinn
Daivík.
JÓN JÓNSSON kennari á
Dalvík og fyrrum skólastjóri
Gagnfræðaskólans á Siglufirði
andaðist sunnudaginn 21. febr-
úar. Jón var fæddur að Skriðu
í Svarfaðardal 25. maí 1905,
sonur Jóns S. Jónssonar bónda
á Upsaströnd og Guðrúnar J.
Sigurjónsdóttur. Hann ólst upp
með móður sinni að Völlum í
Svarfaðardal hjá séra Stefáni
Kristinssyni og Sólveigu Pét-
ursdóttur. Árið 1934 kvæntist
hann Önnu Stefánsdóttur,
Amgrimssonar frá Gröf í
Svarfaðardal. Þeim varð níu
barna auðið og búa þau flest á
Dalvík. Anna kona Jóns lést
árið 1985.
Jón var mikilsvirtur og vel lát-
inn kennari af nemendum sínum.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri árið
1930 og að því loknu hélt hann
unglingaskóla á Dalvík til ársins
1931. Árið 1931 gerðist hann
skólastjóri við unglingaskólann á
Siglufírði til ársins 1934 er Gagn-
fræðaskóli Sigluflarðar var stofn-
aður. Varð hann fyrsti skólastjóri
hans og gegndi því starfi til árs-
ins 1943. Átti hann um tíma sæti
í bæjarstjóm á Siglufirði á þessum
árum. Fyrstu árin kenndi hann í
Svarfaðardal en 1948 gerðist
hann kennari við unglingaskólann
á Dalvík og kenndi þar til ársins
1971 er hann lét af störfum vegna
heilsubrests.
Jón Jónsson tók virkan þátt í
félagsstörfum og gegndi Qöl-
mörgum trúnaðarstörfum fyrir
sveitarfélag sitt. Á árunum
1934-38 átti hann sæti í hrepps-
nefnd Svarfaðardalshrepps og frá
árinu 1950-62 sat hann í hrepps-
nefnd Dalvíkurhrepps. Gegndi
hann starfi oddvita árin 1958-62.
Auk þessa átti Jón sæti í fjölmörg-
um nefndum á vegum sveitarfé-
lagsins ásamt því sem hann sat í
stjómum ýmissa félagasamtaka á
Dalvík og í Svarfaðardal. Á ámn-
um 1958-71 átti hann sæti í stjóm
Kaupfélags Eyfírðinga og gegndi
um tíma starfí varaformanns
stjómar.
Útför Jóns Jónssonar fór fram
frá Dalvíkurkirkju laugardaginn
27. febrúar.
Fréttarltari
NY
SÓSUÞRENNA
kórónu
■ IM
kórónu
kórónu
K0KTEILS0SA
Dreifingaraðili:
Heildverslun
Valdimars Baldvinssonar h/f,
Akureyri. Sími 96-21344.
Fást í öllum betri
matvöruverslunum.
REIKNIVÉLAR
Verð f rá kr.
2.610,-
CFTIR flRTHUR miLL€K
Leikstjóri: Theodór Júlíusson.
Leikmynd: Hallmundur Kristinsson.
Lýsing: Ingvar Björnsson.
Frumsýning 4. mars kl. 20.30. Uppselt.
2. sýning 5. mars kl. 20.30.
3. sýning 6. mars kl. 20.30.
MIÐASALA
96-24073
IjQKFéLAG AKUREYRAR
El