Morgunblaðið - 01.03.1988, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 01.03.1988, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1988 39 Þorsteinn Pálsson, forsœtisráðherra, og Steingrímur Hermannsson, utanríkisráðherra, í sameinuðu þingi í gær. Morgunblaðið/Sverrir Forsætisráðherra kynnir efnahagsaðgerðir: Lækkandi verðbólga mun bæta hag útflutningsgreinanna Ráðstafanaríkisstjórn Kristín Halldórsdóttir (Kvl/Rn) sagði ekki margt nýtt vera í þessum ráðstöfunum, það væri búið að fjalla svo mikið um þetta í fjölmiðlum. Kristín sagði að kalla mætti þessa stjóm „ráð- stafanaríkisstj óm“. Það hefði þó gengið svo erfíðlega að rata á réttu ráðstafanimar að mikið af því sem stjómin væri nú að gera væri að Viðskiptahalli rúmlega 10 milljarðar — ÞORSTEINN Pálsson, forsætis- ráðherra, kynnti sameinuðu þingi efnahagsaðgerðir ríkis- stjórnarinnar síðdegis í gær. í þeim felst m.a. að gengi krón- unnar er fellt um 6%, uppsafn- aður söluskattur verður að fullu endurgreiddur og launa- skattur i sjávarútvegi og sam- keppnisgreinum feUur niður 1. júlí. Forsætisráðherra sagði að gert væri ráð fyrir að verð- bólga yrði 15% á árinu en við- skiptahaUi rúmlega 10 milljíirð- ar. Forsætisráðherra sagði meginvanda útflutningsgrein- anna vera verðbólguna og myndi lækkun hennar bæta hag þeirra. Eftir að forsætisráð- herra hafði kynnt aðgerðiraar tók tál máls einn fuUtrúi frá hveijum flokki. Töldu flestir stjóraarandstæðingar að kaup- máttur lægstu launa hefði ekki verið nægilega bættur með samningunum og ráðstöfunum ríkisstjóraar. Svavar Gestsson sagði að lægstu laun ættu eftir að lækka verulega. í dag verða lögð fram frumvörp af fjár- málaráðherra um þær breyt- ingar sem þarf að gera á fjár- lögum og lánsfjárlögum í kjöl- far þessara ráðstafana. Þorsteinn Pálsson, forsætisráð- herra, las upp yfírlýsingu ríkis- stjómarinnar um efnahagsaðgerðir í kjölfar nýgerðra kjarasamninga. Hann sagði að í þessum aðgerðum fælust breytingar á fjárlögum og lánsíjárlögum og myndi fjármála- ráðherra leggja fram frumvörp um þessar breytingar í dag, þriðjudag. Þorsteinn sagði að I nýgerðum kjarasamningum hefði verið leitast við að bæta stöðu þeirra sem hefðu lægstu launin, að gera samninga sem lækkuðu verðbólgu og kæmu ekki í veg fyrir bættan hag út- flutningsatvinnugreinanna. Erfítt væri að ná öllum þessum markmið- um á sama tíma og þjóðartekjur lækkuðu en hann teldi að vel hefði til tekist í þeim efnum eftir atvik- um. Rekstrarstaða sjávarútvegs batnar um 3 milljarða í aðgerðum ríkisstjómarinnar fælist m.a. nettólækkun skatta á útflutnings- og samkeppnisgrein- amar sem næmi 500 m.kr. og væri alls gert ráð fyrir að rekstrar- staða sjávarútvegsins myndi batna um 3 milljarða á þessu ári. Væri gert ráð fýrir að verðbólga yrði um 15% á árinu. Forsætisráðherra sagði að við núverandi aðstæður væri erfitt að ráðast að vandanum sem við væri að etja. Óhjákvæmilegt hefði einnig reynst að bæta kjör lægstu hóp- anna en gera mætti ráð fyrir að þær hækkanir færu upp allan launastigann. Þjóðhagsstofnun hefði gert ráð fyrir að viðskipta- halli yrði að óbreyttu 13-14 millj- arðar króna en með ráðstöfunum væri ætlunin að lækka hann niður í rúma 10 milljarða. Þessi við- skiptahalli væri of mikill og ekki viðunandi til lengdar. Þau bættu skilyrði sem myndu skapast í kjöl- far ráðstafana ríkisstjómarinnar ættu eftir að hjálpa til þess að taka fleiri skref. Samkvæmt útreikningum hefði fískvinnslan verið rekin með 5% tapi í janúar á þessu ári. Með ráð- stöfunum væri tapið að meðaltali komið niður í 1,5%. Forsætisráð- herra sagði að fískvinnslan byggi því að meðaltali við mjög þröngan kost en stigið hefði verið mikilvægt skref til að bæta hag sjávarútvegs- ins. Lækkandi verðbólga myndi líka bæta stöðu útflutningsgreinanna. Það væri óþolandi ástand að höfuð- atvinnuvegur iandsins væri rekinn með halla til lengri tíma. Svavar Gestsson (Abl/Rvk) sagði nokkur atriði vera ljós varð- andi nýgerða kjarasamninga. Kaupmáttur lægstu launa myndi lækka, verðtrygging væri mjög veik og marga þætti samningsins væri erfítt að meta, s.s. starfsald- urshækkanir. í ráðstöfunum ríkisstjómarinnar fælist gengislækkun sem þýddi að fastgengisstefnan væri hrunin. Ráðstafanir ríkisstjómarinnar, s.s. endurgreiðsla á uppsöfnuðum sölu- skatti, væru viðurkenning á því að stjómin gerði mistök á síðasta ári. Sú ákvörðun að fresta áformum um breytta verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga sagði Svavar að væri f raun skattur á sveitarfélögin. Lántökugjöld taldi hann vera skyn- samlega ákvörðun svo og að leggja skatta á arð fyrirtækja. Svavar taldi það gott að ákveðið væri að breyta vöxtum með pólitískri ákvörðun en of skammt væri geng- ið. Niðurstöður sínar sagði Svavar vera að kaupmáttur lægstu launa væri fyrir neðan allar hellur og færi lækkandi. Það ætti að lög- binda hærri lágmarkslaun þar sem verkalýðshreyfíngin hefði greini- lega ekki mátt til þess. Stjómin leysti ekki meginvanda atvinnuveg- anna, sér í lagi frystingarinnar, og taldi hann þann vanda eiga eftir að fara vaxandi eftir því sem liði á árið. Viðskiptahallinn alvarlegastur Steingrímur Hermannsson, Verðbólga 15% á árinu utanríkisráðherra, sagði þing- flokk Framsóknarflokksins hafa samþykkt þessar aðgerðir í trausti þessa að það yrði til þess að samn- ingamir yrðu samþykktir. Samn- ingamir væru langbesti grundvöll- urinn til þess að snúa við efnahags- þróuninni undanfarið. Steingrímur sagði framsóknar- menn fagna því að ákveðið hefði verið að endurgreiða söluskatt á ný og falla frá launaskatti og að vaxta- og geymslugjöld yrðu end- urskoðuð. Hann sagðist taka undir með Svavari að vaxtalækkunin mætti vera meiri en taldi að vextir ættu eftir að lækka til viðbótar. Sérstaklega alvarlegt sagði Steingrímur vera að viðskiptahalli yrði rúmar 10 milljónir. Svo mikinn halla myndum við ekki þola til lengdar þó að ekki væri hægt að ná honum niður á einu ári. Júlíus Sólnes (B/Rn) sagði ríkisstjómina ekki hafa náð neinum tökum á efnahagsmálunum þrátt fyrir ráðstafanimar. Með gengis- fellingunni væri tekið til baka allt sem hefði náðst í kjarasamningun- um og skelfílegt væri að heyra upplýsingamar um viðskiptahall- ann. Bara þetta segði okkur að stjómin hefði engin tök á efna- hagslífínu. Vissulega væri þó margt jákvætt í þessum ráðstöfunum. Stefnt væri að því að breyta skuldum sjávarút- vegsins og sagði Júlíus að þama rifjuðust upp hugmyndir Alberts Guðmundssonar um pennastrikið fræga. Einnig yrði launaskattur felldur niður en Borgaraflokkurinn hefði verið á móti því að leggja hann á. Júlíus sagði Borgaraflokkinn ekki vera mjög hrifínn af því að hefta mjög erlendar lántökur fyrir- tækja. Það gæti orðið til þess að hækka vömverð í landinu. Jón Baldvin Hannibalsson, fjármálaráðherra, sagði tilgang þessara aðgerða vera að bæta starfskjör fólks og fyrirtækja í út- flutnings og samkeppnisgreinum. Húsnæðiskerfið endurskoðað Jón Baldvin sagði að segja mætti að samstaða væri að verða um að húsnæðiskerfið stæðist ekki. Taldi hann líklegt að frumvarp um end- urskoðun á því yrði lagt fram á næsta hausti og samþykkt fyrir áramót. Þær breytingar sem gera þyrfti á lánsfjárlögum myndu setja þau nær því upprunalega formi sem ríkisstjómin sendi þau frá sér f. Segja mætti að með þessum breyt- ingum yrði eytt þeim slaka sem kom í lánsfjárlögin í meðferð Al- þingis. Varðandi viðskiptahallann yrði að hafa í huga að inni í þessum tölum væri neikvæður vaxtajöfnuð- ur um 6,3 milljarða og sérstök út- gjöld vegna skipa og flugvélakaupa 3,5 milljarðar. Fjármálaráðherra sagðist telja að viðskiptahalli yrði 8,2 milljarðar á árinu samkvæmt útreikningum ráðuneytisins. Ráðherrann sagðist vilja leggja áþað áherslu að ríkisstjómin myndi beina þeim tilmælum til sveitar- stjóma og annarra aðila að hjálpa til við að draga úr þenslunni. Ríkis- stjómin hefði gert sitt með þessum aðgerðum. Fjármálaráðherra sagð- ist vona að allir myndu leggjast á eitt með að ná því meginmarkmiði aZ verulega dragi úr verðbólgu. Þegar gengið hefði verið til samninga hefðu menn verið á einu máli um að höfuðmarkmiðið væri að leiðrétta kaupmátt lægstu launa. Samningar hefðu markast af því að afkoma útflutningsgrein- anna væri veik og því sérstakt fagnaðarefni að samningar hefðu náðst án vinnudeilna. Það hefði verið vandaverk. Fjármálaráðherra sagðist vona að umræða um þessa samninga yrði hleypidómalaus og menn mundu sjá að þessir samning- ar væru það skynsamlegasta sem hægt hefði verið að gera í stöðunni. draga til baka fyrri ráðstafanir, s.s. endurgreiðslu uppsafnaðs sölu- skatts. Menn væru að beygja sig fyrir staðreyndunum. Stefán Valgeirsson (SJF/Ne) sagði ráðherra hafa fullyrt hingað til að fylgja þyrfti framboði og eft- irspum í vaxtemálum. Hann sagð- ist ekki sjá annað en ríkisstjómin væri nú komin á aðra skoðun í því máli. Hann vildi ekki fara út í þetta mál nánar en sagðist ætla að færa að því rök þegar þessi frumvörp kæmu til umræðu að sú stefna sem stjómin hefði fylgt hefði leitt tii þess að fella þurfti gengið. Stefán sagði að það væru mikil vonbrigði hvemig tekið væri á málum. Það hefði átt að gera eitt- hvað til þess að láglaunafólk hefði meiri tekjur en nú. Þrír vara- þingmenn Þrír varaþingmenn tóku sæti á Alþingi í gær. Einar Kr. Guð- finnsson (S/Vf) tók sæti Matt- híasar Bjarnasonar, Árni Johnsen (S/Sl) þingsæti Þor- steins Pálssonar, forsætisráð- herra, og Ingibjörg Daníelsdóttir (Kvl/Vf) sæti Danfríðar Skarp- héðinsdóttur. Fjármálaráðherra: Viðskiptahalli lík- lega 8,2 milljarðar Jón Baldvin Hannibalsson, fjár- málaráðherra, sagði í umræðunum f sameinuðu þingi í gær, um efna- hagsaðgerðir ríkisstjómarinnar, að hann teldi að viðskiptahalli á árinu yrði 8,2 milljarðar. F’yrr f umræðunum hafði forsætisráð- herra sagt að samkvæmt útreikn- ingum Þjóðhagsstofnunar yrði við- skiptahallinn rúmlega 10 milljarð- ar eftir ráðstafanir ríkisstjómar- innar. Fjármálaráðherra sagði einnig að ríkisstjómin myndi beina þeim tilmælum til sveitarstjóma og annarra aðila að hjálpa til við að draga úr þenslunni. Ríkisstjóm- in hefði gert sitt með þessum að- gerðum. Jón Baldvin Hannibalsson, fjár- málaráðherra, i umræðunum i gær. Morgunblaðið/Sverrir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.