Morgunblaðið - 01.03.1988, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1988
Skondínn texti
um samtíðarsögu
________Bækur_______________
Kári Valsson
Michael Konupek: Böhmerland
600 cc. Útg. Ex libris, Oslo 1987
Michael Konupek, höfundur þess-
arar bókar, er tékkneskur flótta-
■ maður í Noregi. Hann er doktor í
heimspeki frá háskólanum í Prag,
er þar sem hann er hvorki af stétt
öreiga né flokksgæðinga heldur af
„borgaralegum" uppruna, var hon-
um ekki treyst til annars en að
vinna við holræsagerð höfuðborgar-
innar. Meira að segja það starf
missti hann, er hann hafði sett
nafn sitt undir hógvært skjal, þar
sem farið var fram á, að ráðamenn
stjómuðu Tékkóslóvakíu í samræmi
við stjómarskrána. Skjalið var
Charta 77.
Nú var Konupek orðinn atvinnu-
laus og þar með átti hann yfir höfði
sér kæru vegna sníkjulifnaðar. Því
flýði hann ásamt fjölskyldú sinni
áf landi brott og settist að í Nor-
egi. Þetta var fyrir tíu árum, og
hann kunni ekki stakt orð í norsku.
Nú kom fyrsta skáldsaga hans út
á norsku, og allir ritdómar eru sam-
mála um, að hún er rituð á lýta-
lausu og fjörlegu bókmáli.
Bókin byggist á endurminning-
um höfundar úr sumarfríum hans
nyrzt í Bæheimi. Skemmst frá að
segja þá fellir hann engin saknað-
artár. Hann lætur leikfélaga sinn
rekja feril unglingsára sinna frá
- -bamalegum þykjustuleikjum, unz
- . (it :(f<’ liltju li
-Si!'hnÞet.kuá 6Ó0ír
VU *• pontí innl JyjH /tvoí M-.M
.-.nviw iHíHMI Rl.AM)
<X !•.«' Mi-.iu.'!
K*Hv.tjH-K Ihi.I.vi vj<
Dale .
Cameqie
þjálfun
STJORNUNARNAIUISKEID
í Dale Carnegie®stjórnunarnámske-
iðinu hafa þátttakendur gert raun-
hæfar sparnaðaráætlanir, frá
100.000 kr. upp í nokkrar milljónir,
sem byggjast á raunhæfri notkun
námskeiðsins.
Námskeiðið hefst 10. mars kl. 9:00-
12:00 og stendur yfir í 6 fimmtu-
dagsmorgna.
Á námskeiðinu er fjallað um m.a.:
★ Stjórnunarskrefin og notkun þeirra.
★ Hvatningu og hvernig við getum byggt upp starfsábyrgð.
★ Skoðanaskipti - Hvernig við komum hugmyndum okkar
til skila.
★ Að byggja upp fólk - Tilgang starfsins.
★ Valdadreifingu sem tæki til að ná æskilegum árangri.
★ Skapandi hugmyndaflug og tímastjórnun.
FJARFESTING í MENNTUN SKILAR
ÞÉR ARÐIÆVILANGT.
I Innritun og upplýsingar í síma 82411
0
STJÓRIMUIMARSKÓUIMIM
c/o Konráð Adolphsson. Einkaumboð fyrir Dale Carnegie námskeiðin'’
hann nítján ára gerir upp við sig,
hvað hann ætlar að læra, „svo fremi
að háskólinn verði ekki rifinn". (Það
er að segja eftir innrás Rússa árið
1968.) Á þeim árum eru áhrif kunn-
ingjanna sterk. Þannig kemst hann
í kynni við alfræðiorðabók og skák,
stundar náttúruskoðun og fijálsar
íþróttir en fer á mis við fótbolta
og bjóríþróttir.
Þetta síðara ætti að vera forvitni-
leg lesning í umræðunni um bjór-
Michael Konupek
inn, og þá einnig bjórspekin, en hún
kennir, að himingeimurinn sé eins
og þvagblaðra, sem þenst út. Svo
kemur að því, að hún annað hvort
springur eða tæmist.
Leikfélagarnir velta fyrir sér
hinztu rökum tilverunnar ekki síður
en spekingarnir á kránni. Þeir efast
um, að Guð kynni að vera til, þótt
þeir taki ekki mark á því, sem fé-
lagi kennari segir þeim í guðleysis-
kennslu í skólanum. En þegar þeir
í barnalega saklausri grimmd
murka lífið úr ketti og þeir sjá, að
hið lemstraða hræ er með öllu
líflaust, verða þeir skelkaðir;
skyndilega fínnst þeim lífríkið allt
andsnúið, eins og ef indíánaguðinn
Manitú hefði reiðzt þeim.
Á uppvaxtarárum eru að sjálf-
sögðu líka kynferðismál á dagskrá.
En bókin er ekki aðeins þroska-
saga. Eins og titill hennar gefur til
kynna, er hún jafnframt lýsing á
landi og lýð.
Samkvæmt sögunni er Böhmer-
land heiti á heimsins lengsta mótor-
hjóli. Það hafði verið grafíð niður
í jörð eins og fjársjóður, svo fannst
það, var grafið upp, síðan var því
stolið og að lokum gert upptækt í
nafni lýðveldisins. Hafi slíkt vélhjól
verið til, þá var það kallað eftir
þeim hluta Bæheims, sem Hitler
fékk að sameina Þýzkalandi í Múnc-
hen-samningum árið 1938. En hver
man nú orðið eftir fjaðrafokinu út
af Súdetahéruðunum fyrir fímmtíu
árum?
Brezkur forsætisráðherra, Ne-
ville Chamberlain, afhenti þá jaðar-
lendumar Tékkóslóvakíu Þjóðvetj-
um, enda voru þær byggðar þýzku-
mælandi fólki. Að því loknu þakk-
aði Foringinn greiðann og sagði:
„Vilduð þér, forsætisráðherra,
gefa mér að skilnaði regnhlífína
yðar til minningar um þessar heims-
söguiegu sættir?“
Bretinn svaraði: „Því miður get
ég efcki orðið að ósk yðar, „Herr
Hitler". Það er ekkert mál að af-
henda meginiðnaðarsvæði annars
lands, en regnhlífína læt ég ekki
af hendi. Hana á ég sjálfur."
Þegar Camberlain sté sigursæll
út úr flugvélinni í Lundúnum, veif-
aði hann pappírssnepli með undir-
skrift Hitlers og kallaði til mann-
fjöldans: „Friður á okkar tímurn."
Hann hafði afsökun á trúgimi sinni.
Hitler hafði lofað að gera ekki kröf-
ur til landa í Evrópu og stóð við
það. Upp frá því hóf hann að hrifsa
til sín lönd án óþarfa kröfugerðar.
Hinir lúsiðnu, dverghögu Súdetar
reyndust vera „falskir Tékkar“.
Fyrst um sinn fögnuðu þeir samein-
ingunni við Stór-Þýzkaland, en urðu
síðan að gjalda grunnhyggni sinnar.
Þeir fylgdu foringjanum og blæddu
í vígaslóð hans um álfuna þvera og
endilanga og að hildarleiknum lokn-
um vom þeir reknir af óðölum
sínum slyppir og snauðir. Súdeta-
hémðin vom þar með ekki lengi
mannlaus. Hver sem stolið gat brá
sér þangað og sneri ríkur heim. Á
stuttum tíma urðu hin blómlegu
hémð að samfelldum mslahaug
stijálbyggðum mannrottum, sem
skort hafði dug eða þor til að koma
sér burt aftur, enda var varla að
miklu að hverfa. Af þessum lýð er
kominn sá, sem hér segir sögu sína
í fyrstu persónu, þótt hann um síðir
fínni lífi sínu tilgang. Svið sögunnar
er sett í eina slíka sárt leikna fjalla-
sveit um það bil tíu ámm eftir
valdarán kommúnista.
í nágrannaborginni tókst áætlun-
arbúskap hins félagslega hagkerfís
að töfra fram samfélagsgerð, sem
var karlmönnum í vil þrátt fyrir
svæsinn alkóhólisma. Þar vom kon-
ur 7,5 sinnum fleiri en karlar.
„Þar slást heilir hópar viðþols-
iausra kvenna um hveija skjögrandi
karltusku, sem veltur út úr ölstofu.
Um þetta skrifa ég ekki. í Bæheimi
vita það allir hvort eð er, en þeir
sem hafa ekki kynnzt því, gætu
einfaldlega ekki trúað mér.“ Svo
segir í formála bókarinnar.
Þrátt fyrir þessa sjálfsögun leiðir
höfundur fram á sviðið þó nokkuð
af skrautlegum manngervum. Þar
er fremstur í flokki faðir sögu-
mannsins. Hann lifir á örorkustyrk,
enda er hann þjáður af gigt alla
daga. í skjóli nætur bráir þó af
honum, og er hann þá iðinn við að
„raspa" hitt og þetta handa tíu
manna fjölskyldu sinni samkvæmt
heimagerðri kennisetningu: „Hvað
sem sólin sýnir oss, má til að skaffa
oss máninn." Þess vegna kemur það
úr hörðustu átt, er hann rökstyður
andúð sína á kommúnistum meðal
annars með því, að undir þeirra
stjóm sé búið að stela öllu steini
léttara!
Konupek dregur upp skýrar
myndir af hveiju mannsbami, sem
kemur við sögu. Það er lítil hætta
á, að lesandi fari mannavillt í hinum
fjölmenna hópi systkina eða kunn-
ingja sögumannsins unga, en hann
rifjar upp reynslu sína á hóteli, sem
hafði tæmzt af starfsfólki og
drykkjarföngum í kjölfar innrásar
heija Varsjárbandalagsins. Jafnvel
póstmeistarann í heimaþorpinu, al-
gera aukapersónu, gerþekkjum við
um leið og hans er getið. Aðeins
eitt orð bregður ljósi á innræti hans
og stjómmálaafstöðu og lýsir um
leið tíðarandanum. Hann er ekki
nefndur annað en „bréfaopnarinn".
Hin lipra, hispurslausa framsögn
höfundar er í ætt við vinsælustu
útflutningsafurð Tékka. Ha? Hver
skyldi hún vera? — Pólitískir brand-
arar.
Nágrannar sögumannsins,
menntafólk frá Prag, er í ónáð yfír-
valda. Þýðing þeirra á leikriti Iones-
cos Ópiemsöngkonunni sköllóttu
fæst hvorki gefín út né sett á svið.
„Hví ekki það?“ er spurt af
hrekkleysi. „Fólkið myndi bara
skemmta sér og hlæja."
„Er það ekki svo, að menn óttast
mest það, sem þeir ekki skilja?"
segir samyrkjubústjórinn, en stöðu
sinnar vegna hefur hann orðið að
sitja margan hrútleiðinlegan flokks-
fund. „Kommúnistar hafa ekki
snefíl af skopskyni. Þá vantar ein-
faldlega fmmur 'heilann til að geta
skilið gamansemi. Þess vegna þola
þeir ekki, að fólk hlæi og geri að
gamni sínu ... Þeir hugsa sér héim-
inn eins og belju — með öðmm
endanum étur hún gras, og svo
dettur það niður út um hinn — þið
vitið hvað — en úr miðjunni lekur
mjólk. En það sem til er í heiminum
að auki af hugsun og hlátri geta
þeir ekki útskýrt. Aldrei. Reyndu
bara að skilgreina hláturinn hag-
^HUBBURINN
í BANDARÍKJUNUM
Einkaumboð og söluaðili:
BRIMBORG
Ármúla 23, símar: 685870 og 681733