Morgunblaðið - 01.03.1988, Síða 55

Morgunblaðið - 01.03.1988, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1988 55 Valgerður Péturs- dóttir — Kveðjuorð Fædd 7. júní 1912 Dáin 9. febrúar 1988 Miðvikudaginn 17. febrúar var Valgerður Pétursdóttir, Vallargötu 18, Keflavík, fyrrverandi matráðs- kona á Sjúkrahúsi Keflavíkurlækn- ishéraðs lögð til hinstu hvíldar. Leiðir okkar Valgerðar lágu fyrst saman við undirbúning og stofnun Sóroptimistaklúbbs Keflavíkur árið 1974, þar sem hún starfaði til hinstu stundar. Valgerður var glæsileg kona, sérstaklega háttvís og einlæg í framkomu og gestrisin með eindæmum. Klúbbsystur nutu góðs af þessum kostum hennar þegar erlenda sóroptimistagesti bar að garði — þá var gott að fara með þá á hið fallega heimili Valgerðar og eiginmanns hennar, Braga Hall- dórssonar, þar sem notið var góðra veitinga og samræðna við húsmóð- urina, hvort heldur var á ensku eða einhverju Norðurlandamálanna. Valgerður var mikill listaunnandi og bar heimili hennar vott um það. Hún lék á hljóðfæri og var stundum tekið lagið hvort heldur var heima hjá henni eða á fundarstað. Val- gerður hafði yndi af ferðalögum og í einni heimsókn til dóttur sinnar, sem búsett er í Bandaríkjunum, sat hún fund með þarlendum sóroptim- istum og vann þar með að einu markmiði sóroptimista „að efla vin- áttu og einingu meðal sóroptimista allra landa“. Hún var sóroptimisti (besta systir) í orðsins fyllstu merk- ingu, drenglunduð og alltaf reiðu- búin til að hjálpa þeim sem minna máttu sín. Við í Sóroptimistaklúbbi Keflavíkur kveðjum Valgerði með trega og þakklátum huga fyrir vin- áttu hennar og allar góðu stundim- ar sem við áttum saman, og biðjum henni guðsblessunar. Eiginmanni, börnum og öðrum ástvinum vottum við dýpstu samúð. Sóroptimistasystur í Keflavík t Innilegar þakkir til ykkar allra sem sýnduð okkur samúö og vinar- hug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, JÓHÖNNU SIGURJÓNSSON hjúkrunarkonu, Múlavegi 10, Seyðisfirði. Páll S. Ágústsson, Axel J. Ágústsson, Helgi Ágústsson, Ásgerður Ágústsdóttir, og Dagbjört Jónsdóttir, Hafdfs Edda Eggertsdóttir, Lovísa Gfsladóttir, Björgúlfur Kristinsson börn. t innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúö og hlýhug við andlát og útför sonar míns, bróður okkar og mágs, JÓNS MARS JÓNSSONAR. Heiða Jónsdóttir, Óttar Jónsson, Óðinn Jónsson, Pétur Jónsson, Vilborg Jónsdóttir. Kristín Jóhannsdóttir, Hafþór Jónasson, Þorbjörg Björnsdóttir, Gerður Róbertsdóttir, Guðrún Ragnarsdóttir, Guðrún V. Guðjóns- dóttir - Minning Fædd 24.júni 1896 Dáin 22. janúar 1988 Mig langar að minnast í fáum orðum vinkonu minnar, Guðrúnar Valgerðar Guðjónsdóttur, sem lést hinn 22. janúar síðastliðinn, á nítugasta og öðru aldursári. Guðrún fæddist í Kumbaravogi á Stokkseyri á Jónsmessu árið 1896, ólst upp í Biskupstungum, en var lengst af húsfreyja á Bjarnastöðum í Grímsstaðaholti í Reykjavík. Þeg- ar ég hitti hana fyrst, fyrir svo sem hálfum öðrum áratug, var hún orð- in ekkja, og hafði flutt sig um set að Ægisíðu 64, þar sem hún bjó síðan. Við sjóinn fyrir neðan húsið hennar eimdi enn eftir af gömlum lífsháttum á Grímsstaðaholti. Það- an úr vörinni sóttu grásleppukarlar sjóinn, og sækja víst enn, og þar hafði Guðrún hænsni og endur í kofa. I fjörunni var ævintýraland bam- anna á Högunum. Þar gat maður unað sér við leiki tímunum saman: skoðað kvikindi í sjávarpollunum, byggt sandkastala og fylgst með starfi sjómannanna. En mest að- dráttarafl höfðu fuglamir hennar Guðrúnar. Hún var bamgóð, við hændumst að henni og vildum óð og uppvæg fá að hjálpa til við að tína egg, gefa fuglunum eða moka út úr kofanum. Að starfi loknu þrammaði svo vinnufólkið heim að dyrum hjá Guðrúnu, og þáði kandís- mola að launum. Síðar varð það vani minn að heimsælq'a Guðrúnu á laugardags- morgnum og fá hjá henni morgun- kaffi áður en við fómm niðureftir Skreytum við öll tækifæri iHÍinin ReyVjavfkurvegi 60, sími 53848. Álfheimum 8, simi 33878. Bæjaríirauni 28, sími 50202. OÍTIROn AFGREIÐSLUKASSAR að gefa fuglunum. Yfir kaffinu spjölluðum við um alla heima og geima. Eins og aðrir íslendingar af hennar kynslóð hafði Guðrún lif- að tímana tvenna, og var það held- ur en ekki lærdómsríkt fyrir mig að fræðast af henni um liðna tíð. Eftir kaffið leit hún stundum í boll- ann minn, eða spáði fyrir mér í spil, en það var nú mest okkur til gamans, enda var Guðrún lífsglöð kona og hláturmild. Hin síðustu ár var Guðrún að mestu rúmföst. Fundir okkar urðu strjálli, en mér ekki síður dýrmætir og fyrmm. Hjá Guðrúnu ríkti ætíð kyrrð og ró, við minntumst gömlu góðu daganna, og mér fannst ég eins og endurnærður eftir hveija heimsókn. " s + Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinar- .fljpP S hug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR SIGURÐARDÓTTUR, Sörlaskjóli 82, Reykjavik. # b ■Bj'' Sérstakar þakkir til starfsfólks lungnadeildar Vífilsstaðaspítala og rm . jF ji$ starfsfólks gjörgæsludeildar Landspítalans fyrir góða umönnun. f jPajlp m ÆMm Sigurjón Hallbjörnsson, £ IHb " Halldóra Sigurjónsdóttir, Baldur Karlsson, Erna Sigurjónsdóttír, Guðmundur Konráð Arnmundsson, Berglind Baldursdóttir, Sigríður Baldursdóttir, W ' María Guðmundsdóttir, Jessica Bringham. En nú hefur Guðrún fengið hvíld að lokinni langri og farsælli ævi. Ég kveð hana með söknuði og þakka vináttu og góðar stundir, sem ekki gleymast. Aðstandendum votta ég samúð. Chicago, Finnur Lárusson Utför eiginmanns mfns, MAGNÚSAR RUNÓLFSSONAR fyrrverandi skipstjóra, fer fram frá Frikirkjunni þriðjudaginn 1. mars kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á liknarstofnanir. Laufey K. Björnsdóttir og aðstandendur. t Móðir mín, KRISTJANA G. FANNBERG, Hátúni 10, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 2. mars kl. 15.00 Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á Slysavarnafé- lag íslands. Fyrir mína hönd, barnabarna og annarra vandamanna, Eyþór Fannberg. + Við þökkum innilega öllum þeim er sýndu okkur samúð og vinar- hug við andiát og útför ÞURfÐAR EINARSDÓTTUR. Sigríður Guðjónsdóttir, Haraldur J. Hamar, Guðbjörg Guðjónsdóttir, Eðvar Ólafsson, Ruth Guðjónsdóttir, Bjarni Th. Mathiesen, Gylfi Guðjónsson, Kristin Jónsdóttir, Sesselja Einarsdóttir. Legsteinar MARGAR GERÐIR Mmorex/Gmít Steinefnaverksmiðjan Helluhrauni 14, sími 54034, 222 Hafnarfjörður + Þökkum auösýnda samúð við andlát og útför SIGURÐAR Á. SOPHUSSONAR verslunarmanns, Laufási 1, Garðabœ. Vilborg Jónsdóttir, Ragnheiður Sigurðardóttir, Siguröur Björnsson, Vilborg Björnsdóttir, Þóra Sophusdóttir. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur vináttu og samúð vegna fráfalls móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GÍSLEYJU SESSEUU GÍSLADÓTTUR, Marbakkabraut 5, Kópavogi. Sérstakar þakkir færum við læknum og starfsfólki hjarta- og gjör- gæsludeildar Borgarspítalans. Hrafn Hauksson, Guðrún Guðmundsdóttir, Ragnar M. Hauksson, Guðrún Ellertsdóttir, Gisley G. Hauksdóttir, Heimir Stefánsson, barnabörn og barnabarnabarn. + Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við fráfall föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GÍSLA SVEINSSONAR frá Sveinsstöðum. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 6b á Borgarspítalanum fyr- ir góða umönnun. Rósinberg Gíslason, Maria Bender, Sveinn Gíslason, Kolbrún Magnúsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Lokað í dag frá klukkan 13.00 til GUÐRÚNAR JÓNSDÓTTUR. 15.30 vegna jarðarfarar Elfurhf., Laugavegi 38.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.