Morgunblaðið - 05.03.1988, Page 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. MARZ 1988
LADA LUX
1500, KR. 250
LADA SAFIR
LADA STATION LUX
1300, KR. 229.
LADA 1200
BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR
Suðurlandsbraut 14 107 Reykjavík, sími 38600 10 línur
Hugsaðu málið
Ef þú ert í bílahugleiðingum,ættir
þu að lesa þessa auglýsingu
tvisvar. Ræddu við sölumenn
okkar um kosti LADA bílanna og
vinsælu greiðslukjörin. Afgreiðslu-
tíminnn er 2-4 dagar. Við eigum
einnig úrval notaðra LADA bíla.
Beinirsímar:
Nýirbílarsimi: 31236
Notaðir bílar sími: 84060
Opið laugardaga frá 10-16
ÓBRBYTT VERÐÁ MEÐ-
AN BIRGBIR ENDAST
2800
Lada bílar
seldir ’87
fclk í
fréttum
Ellen Kristjánsdóttir flytur eitt lag Næturgalans.
Albert Wallbank, sem bjargaðist úr sjávarháska við Látrabjarg í
árslok 1947.
ÁRIÐ 1947
Komst lífs af úr
sjávarháska
við Látrabjarg
Albert Wallbank heitir maður-
inn á myndinni. Hann er bú-
settur í Fleetwood og hefur í nokk-
ur ár átt við vanheilsu að stríða.
Wallbank var einn þeirra tólf manna
sem björguðust þegar breski togar-
inn Dhoon fórst við Látrabjarg í
ofsaveðri í desember 1947. Nokkrir
skipsfélagar hans eru enn á lífí í
Fleetwood.
Þess var minnst fyrr í vetur að
fjörutíu ár voru frá hinni giftusam-
legu björgun. Wallbank fékk senda
Lesbók Morgunblaðsins með grein
um slysið og á myndinni er hann
með hana í höndunum. Hann heldur
enn sambandi við björgunarmenn
og Fólk í fréttum hefur séð bréf frá
honum til Hannesar Hafstein for-
stjóra Slysavamarfélags íslands,
þar sem segir að fréttir héðan gleðji
hann og hressi í erfiðri vanheilsu.