Morgunblaðið - 09.04.1988, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1988
7
Utanríkisráðherra í Washington:
Hyggst ræða hvala
mál og ýmis mál-
efni varnarliðsins
Þúog
heima
- Nýljóðabók
eftir Sverri Pál
ÚT ER komin ljóðabókin „Þú
og heima“ eftir Sverri Pál Er-
lendsson. Þetta er fyrsta frums-
amda ljóðabók höfundar, sem
er íslenzkukennari við Mennta-
skólann á Akureyri, en hann
hefur þýtt tvær bækur og sa-
mið kennslubók í hljóðfræði og
málsögu. Höfundur gefur bók-
ina út sjálfur.
Sverrir Páll þýddi bókina Kæri
herra Guð, þetta er hún Anna eft-
ir Fynn, sem kom út árið 1982
og söguna las hann einnig í út-
varp. Þá þýddi hann eftir sama
höfúnd Önnubók, sem kom út fyr-
Aðalfimdur
BÍ í dag
Aðalfundur Blaðamannafé-
lags íslands verður haldinn í
dag, laugardag, í húsakynnum
féiagsins að Síðumúla 23. Fund-
urinn hefst kl. 14.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfund-
arstörf og breytingar á siðareglum
Blaðamannafélags íslands.
Söfnunarfé JC af-
hent Heilavemd:
Viljum
finna lausn
áþvísem
er dauða-
dómur
- segir formaður
„Jákvæðu nefndar JC“
JÁKVÆÐA nefnd JC ís-
lands afhenti í gær samtökun-
um Heilavernd rúmar sex
milljónir króna, sem nefndin
safnaði í febrúar með aðstoð
Bylgjunnar og Kvenfélaga-
sambands Vestfjarða. Féð
verður notað til eflingar
rannsóknum á arfgengri
heilablæðingu.
Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson,
formaður Jákvæðu nefndarinn-
ar, sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að söfnunin hefði
gengið vonum framar, en hún
fór fram dagana 19. og 20. fe-
brúar með þeim hætti að fólk
gat hringt í Bylgjuna og beðið
um að lag yrði leikið gegn
greiðslu. Kvenfélagasamband
Vestfjarða sá um söfnun á Vest-
fjörðum og einstök aðildarfélög
JC söfnuðu einnig þessa daga.
Að sögn Vilhjálms eru
250-300 manns í hópi þeirra,
sem eiga á hættu að látast úr
ættgengri heilablæðingu. „Við
viljum fínna lausn á því, sem
nú er dauðadómur fyrir þetta
fólk,“ sagði Vilhjálmur. „Það
þarf að gera þessu fólki kleift
að lifa við sama öryggi og við
hin.“
Vilhjálmur sagði að Blóð-
bankinn, Gunnar Guðmundsson,
yfirmaður taugadeildar Lands-
pítalans og ýmsir erlendir sam-
starfsaðilar hefðu unnið að
rannsóknum á sjúkdómnum.
Heilavemd mun veija söfnunar-
fénu til tækjakaupa og til þess
að styðja við bakið á rannsókn-
um, þar sem þess er þörf.
ir síðustu jól. Hann hefur stundað
íslenzkukennslu við Menntaskól-
ann á Akureyri síðan 1974, en auk
þess unnið að dagskrárgerð fyrir
Ríkisútvarpið, að undirbúningi
Svæðisútvarps fyrir Akureyri og
nágrenni og sinnt menningarmál-
um nyrðra fyrir Morgunblaðið.
Ekkert ljóðanna í bók Sverris hef-
ur birzt opinberlega áður.
Sverrir Páll sagði í samtali við
Morgunblaðið, að bókin hefði verið
í smíðum í fjögur til fímm ár og
orðið til smám saman. Ljóðin í
bókinni hefðu í upphafí verið mun
stærri og meiri verk, en þau hefði
hann sniðið og skorið niður í nú-
verandi mynd. Segja mætti að ljóð-
in væru þrenns konar; orðamyndir
eða smáljóð, eins konar endur-
minningar frá Siglufírði; myndir
af svipuðu tagi, en óstaðbundnar
og ljóð um tilfínningar og væntum-
þykju-
STEINGRÍMUR Hermannsson ut-
anrikisráðherra mun hitta emb-
ættismenn í bandariska utanrikis-
ráðuneytinu i Washington í næstu
viku og ræða hvalamál og ýmis
mál tengd vamarliðinu á
Keflavíkurflugvelli. Meðal þeirra
era olíulekinn sl. haust og flutn-
ingar fyrir varnarliðið.
Fundimir verða 12. og 13. apríl
og sagði Steingrímur í samtali við
Morgunblaðið frá Zurieh í Sviss, þar
sem hann situr nú fund Sambands
ftjálslyndra flokka, að drög að þess-
um fundi hefðu verið lögð þegar
hann hitti George Shultz utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna í september
sl. en þá hefði verið rætt um að
ráðherramir hittust aftur til að ræða
samskiptamál landanna. Steingrím-
ur sagðist þó ekki gera ráð fyrir að
hitta Shultz í þetta skipti en hann
myndi ræða við varautanríkisráð-
herrann John C. Whitehead, Roz-
anne Ridgway aðstoðamtanríkisráð-
herra, Willian L. Ball nýskipaðan
flotamálaráðherra og hugsanlega
fleiri embættismenn.
Steingrímur sagðist væntanlega
myndu ræða um olíulekann á
Keflavíkurflugvelli og hættuna sem
af honum stafaði fyrir vatnsból á
svæðinu. Hann sagðist einnig æfla
að ræða vamarliðsflutningana því
hann hefði áhyggjur af því að vegna
breytinga á útboðunum núna, þann-
ig að flutningamir em ekki lengur
bundnir við ákveðna stærð skipa,
þá kunni flutningamir að færast
alveg til Reykjavíkur frá Njarðvíkur-
höfn. Þeir vom áður bundir við stærð
skipa en það ákvæði hefur verið fellt
út.
Steingrimur sagði síðan að ekki
væri nema mánuður í fund vísinda-
nefndar Alþjóðahvalveiðiráðsins og
ársfund ráðsins í kjölfarið svo sér
fyndist einnig ástæða til að ræða
þau mál í Washington.
FLUG, Bí LL OG HÚS
Fríáls á fjórum hjólum
og í»eigiir húsi!
Að velja sér ferðamátann Flug og bfl er sjálfsagt mál fyrir hvem þann sem vill fá sem mest
út úr ferðalaginu. Þessi möguleiki verður enn álitlegri ef þú velur sumarhús að auki, fyrir þig og
fjölskylduna (eða ferðafélagana)!
Auktu nýrri vídd í Mið-Evrópuferðina með því að ráða ferðinni sjálfur og búa í „eigin“ húsi!
•
Verðdæmi:
LUXEMBORG: Flug + bfll í 2 vikur frá kr. 16.210 á mann.* SUPER-APEX verð. Bfll í B-flokki.
WALCHSEE: Flug + íbúð í Ilgerhof í 2 vikur frá kr. 25.920 á mann.* Flogið til Salzburg.
Tímabilið 10. júlí til 28. ágúst. Bfll í B-flokki í 2 vikur kr. 22.160;
BIERSDORF: Flug + íbúð í 2 vikur frá kr. 18.490 á mann.* Flogið til Luxemborgar.
Tímabilið 18. júní til 9. júlí. SUPER-APEX verð. Bfll í B-flokki í 2 vikur kr. 17.940.
SALZBURG: Flug + bfll í 2 vikur frá kr. 22.780 á mann.* Bfll í B-flokki.
* Meðaltalsverð á mann miðað við 2 fullorðna og 2 böm, 2ja — 11 ára.
FLUGLEIÐIR
-fyrír þíg-
AUar nánari upptýsingar á söluskrifstofum Flugleiða, hjá umboðsmönnum um aUt land og ferðaskrifstofum.