Morgunblaðið - 09.04.1988, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1988
21
NORRÆNT TÆKNIÁR1988
Umsjón: Sigurður H. Richter
Iðnskólinn í Reykjavík.
Iðnskólinn í Reylq’avík
— Opið hús
Fjöldi nema í dagskóla
haustið 1987
Almennt nám 44 Klæðskurður 1
Bakaraiðn 19 Málaraiðn 18
Bifreiðasm. 10 Múrsmíði 2
Bifvélavirkjun 38 Netagerð 3
Blikksmfði 2 Offsetljósm. 5
Bflamálun 2 Prentiðn 23
Bókbandsiðn 5 Pfpulögn 13
Fatatækni 13 Rafeindavirkjun 127
Fomám 128 Rafvirkjun 51
Grunnd. háriðn. 53 Rafvélavirkjun 4
Grunndeild málmiðn. 62 Setning 12
Grunndeild rafriðn. 103 Skeyt. plötugerð 16
Grunndeild tréiðn. 37 Stálvirkjun 1
Grunndeild bókiðn. 33 Tækniteiknun 73
Gullsmfði 1 Tölvutækni 73
Hárgreiðsla 22 Undirb. fataiðn. 22
Hárskurður 26 Vélvirkjun 19
Húsasmíði 45 Öskjuhlíðarbraut 8
Húsgagnabólstrun 1 Samtals 1.160
Kjólasaumur 9
Kjötiðn 20
Fjöldi nema í kvöldskóla
haustið 1987
Bókbandsiðn 3
Grunnd. rafiðn. 27
Grunnd. bókiðn. 9
Meistaranám 53
Rafeindavirkjun 26
Skeyting og plötugerð 13
Samtals 131
Rafeindavirkjun.
Iðnskóladagur verður haldinn
sunnudaginn 10. april (tengslum
við Norræna tækniárið sem nú
stendur yfir. Iðnskólinn á Skóla-
vörðuholti verður þá opinn kL
13—17. Almenningi er boðið að
koma og kynna sér starfsemi skól-
ans. Veitingar verða á boðstólum.
AlUr eru velkomnir.
1 Iðnskólanum læra nemendur
þá list að beita hefðbundnu hand-
verid iðnaðarmannsins og varð-
veita þannig hluta af menningu
landsins. A sama tfma búa þeir
sig undir virka þátttöku í tækni-
væddum heimi framtfðarinnar.
Þó svo að Iðnskólinn í
Reykjavík sé sérskóli sem býður
jafnvel upp á námsbrautir sem
ekki er að finna í öðrum fram-
haldsskólum tengist hann einnig
almennu framhaldsskólanámi eft-
ir að námsgreinar skólans voru
lagðar að samræmdum áfangalýs-
ingum framhaldsskólanna. Með
þvf hafa opnast ýmsir nýir mögu-
leikar fyrir nemendur skólans um
námsval og leiðir.
Allt frá 1954 hefur Iðnskólinn
í Reykjavfk verið til húsa við
Skólavörðuholt þar sem megin-
hluti starfseminnar fer fram. Að
auki hefur skólinn húsnæði
Vörðuskóla (áður Gagnfræða-
skóla Austurbæjar). Loks má
nefna húsnæði við Smiðjuveg f
Kópavogi þar sem bifreiðasmíði
og framhaldsdeild vélvirkjunar
eru til húsa.
Hlutverk Iðnskólans er að veita
Trésmiði.
nemendum sfnum haldgóða þekk-
ingu f löggiltum iðngreinum, eftir-
menntun í formi námskeiða og
undirbúning undir frekara nám,
svo sem við tækniskóla eða há-
skóla.
Sfauknar kröfur eru gerðar til
Iðnskólans þar sem tækniþróun
er mjög ör f iðnaði og skólinn vill
fylgjast sem best með. Fjármagn
til skólastarfsins er hinsvegar af
skomum skammti og gerir honum
erfitt að gegna hlutverki sfnu sem
skyldi.
Fataiðn. í grunndeild fá nem-
endur undirbúningsþjálfun til
starfa f fataiðnaði. Að lokinni
grunndeild geta nemendur sótt
um framhaldsdeild fataiðnaðr þar
sem þeir sérhæfa sig í fatatækni,
kjólasaum eða klæðskurði karla.
Málmiðnaður. Námið hefst
með grunndeild sem samanstend-
ur af almennu bóknámi, ásamt
kynningaráföngum f fagbókleg-
um og verklegum greinum. Síðan
taka við framhaldsdeildir svo sem:
bifi?eiðasmfði, bifvélavirlg'un,
blikksmíði, stálsmfði, pípuiögn,
rennismíði, vélvirkjun o.fl.
Hársnyrting. Grunndeild hár-
iðna er fyrir þá sem hyggja á nám
í hárskurði eða hárgreiðslu. Nám-
ið er bæði bóklegt og verklegt
Að lokinni grunndeild veija nem-
endur sérgrein, hárskurð eða hár-
greiðslu og fara f verklega þjálfun
á hárgreiðslu- eða rakarastofu.
Að því loknu geta þeir sótt um
inngöngu í framhaldsdeild við-
komandi sérgreinar.
Bókagerð — prentiðnir. Nám-
ið hefst f grunndeild bókagerðar
en tekur fljótlega mið af því sér-
sviði, sem nemar hafa valið sér.
Má þar nefna bókband, setningu,
offsetljósmyndun, offsetprentun,
skeytingú o.fl.
Rafiðnir. Grunndeild rafiðna
er undirstaðan undir nám í raf-
virkjun, rafvélavirkjun og raf-
eindavirkjun. Eftir eitt ár í grunn-
deildinni velja nemendur hvort
þeir halda áfram í rafeindavirkjun
eða rafvirkjun. í framhaldsdeild
rafeindavirkja læra nemendur út-
varps- og sjðnvarpstækni, tölvu-
og flarskiptatækni. Um er að
ræða bæði bóklegt og verklegt
nám. í framhaldsdeild rafvirkja
skiptist námið f almenna rafvirkj-
un og rafvélavirkjun, bóklegt og
verklegt nám.
Tréiðnlr. Þeir nemar sem
hyggja á nám í tréiðn hefla náms-
feril sinn í grunndeild tréiðna.
Sfðan velja þeir námsbrautir eftir
því hvaða sérsvið þeir hyggjast
leggja stund á, húsasmíði hús-
gagnasmíði, húsgagnabólstrun,
tréskipasmfði o.fl.
Auk almenns iðnnáms eru þijár
aðrar námsbrautir f boði.
Tæknlbraut sem er viðbót-
arnám ofan á iðnmenntun og lýk-
ur með tæknistúdentsprófi.
Tölvubraut sem er 3ja ára al-
mennt nám undirbúningsdeildar,
ásamt námi f tölvugreinum sem
skiptast í vélbúnað og hugbúnað.
Tækniteiknun sem er eins árs
nám S gerð uppdrátta og vinnu-
teikninga af ýmsum hiutum og
mannvirkjum.
Öldungadeild er starfandi við
skólann. Þar fá nemendur kennslu
í bókagerð og rafeindavirkjun.
Fornám hefur verið f gangi
innan Iðnskólans um nokkurra
ára skeið. Þar fá nýnemar aðstoð
við að bæta námsstöðu sfna, hafi
þeir ekki náð tilskildum árangri á
grunnskólaprófí.
Kennarar og nemendur munu
leggja sig fram við að veita gest-
um sem bestar upplýsingar um
námsbrautir og verkefni. Boðið
veiður upp á málverkasýningu,
tískusýningu, myndbandasýningu
o.fl. að ógleymdum veitingum I
matsal skólans.
Verið velkomin — pjótið dags-
ins.
HVERFISGATA 46
Ný meiriháttar 6 vikna
vornámskeið að hefjast.
Allt nýjir dansar og spor frá
Tommie og Martin
Innritun hafin kl. 13-18 í
síma 621088.
Afhending skirteina á Hverfisgötu
46, laugardaginn 9. aprí), kl. 14-18.
Kennsla byrjar mánudaginn
11. apríl.
7-9 ára
10-12 ára
unglingar
VISA&