Morgunblaðið - 16.04.1988, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1988
11
Helgi Hálfdanarson:
Virðulegar viðtökur
Fyrir rúmum áratug krotaði ég
greinarstúf í blað, þar sem ég
hélt því fram, að Reykjavík væri
snotur bær, ekki sízt fyrir hið
fagra umhverfí sitt og uppruna-
lega piýði bæjarlandsins. Sérstak-
lega nefndi ég tvö tilvalin náttúru-
vætti, sem með engu móti mætti
hrófla við.. Annað þeirra var
Kermóafoss í Elliðaám, einn hinn
sérkennilegasti og fegursti foss
sinnar tegundar á öllu íslandi; en
hitt var Tjömin, sem ég leyfði
mér að kalla perlu gamla bæjarins.
Nú vita allir hvemig fór um
Kermóafoss; honum var útskúfað
úr landslaginu, og það til þess eins
að þóknast nokkrum laxveiðiklóm.
Hins vegar hrósaði ég happi yfir
því, að tekizt hefði nokkum veginn
„að varðveita Ijömina fyrir
smekklausu glingri og steigurlát-
um prangarasvip hinnar nýju
steinaldar".
En sú dýrð átti ekki heldur lengi
að standa. Nú á ekki að linna lát-
um fyrr en búið er að byrgja fyrir
fallegasta útsýnið yfír hana, og
stofna til þess að hún verði um-
kringd af ærandi stómmferð.
Þeirri deilu, sem staðið hefur
um skeið út af smíði ráðhúss, virð-
ist nú vera að ljúka með sigri
valdfrekjunnar. Að undanfömu
hefur þar á ýmsu gengið, og ekki
er laust við að aukaatriði hafí
reynt að skyggja á það sem mestu
varðar.
Einhvem tíma var orð á því
haft, að naumast yrði þess langt
að bíða, að Bakkabær þyrfti við-
auka, sem þá hlyti einnig að lenda
í Tjöminni. Og viti menn! Svo fljótt
fór sú þörf að segja til sín, að
húsið er þegar tekið að vaxa, áður
en borgarstjóri tekur fyrstu aus-
una.
En þó að ljóst sé, að þessi hrika-
legi staurahjallur verður þyí ömur-
legri sem hann færist meir í auk-
ana, þá skiptir það ekki mestu
máli, hvort hann skuli teljast þijár
hæðir eða fjórar, heldur hitt, hvort
nokkmm slíkum ófögnuði skuli
böðlað niður í Tjömina, þegar
Reykvíkingar mótmæla skriflega
þúsundum saman, og líkur benda
til þess, að meirihluti bæjarbúa sé
því mjög andvígur. Óbilgimi ráða-
manna í þessu máli á sér enga
afsökun. Þörfín á því að smíða
fokdýrt ráðhús einmitt nú er
reyndar fjarri því að vera brýn.
Miklu þarfari verkefni bíða í
hrönnum. Og þó að menn vilji fyr-
ir hvem mun láta ráðhús ganga
fyrir mætti fínna því margan stað
í bænum, sem allir Reykvíkingar
gætu með ánægju sameinazt um.
Tjamarsvæðið er einmitt sá blett-
ur, sem allir vissu fyrir fram að
hlyti að valda viðtækri móðgun
og sundurþykkju. Margsinnis hef-
ur verið sýnt fram á það, að þessi
staður fyrir ráðhús hefur enga
kosti fram yfír aðra, en ýmsa stór-
galla, fyrir utan gegndarlausa
fjársóun að þarflausu og umferð-
arvandræði sem ekki sér fram úr.
Og allt er uppátækið sorglegt
skemmdarverk á sögufrægu bæj-
arhverfi, sem rík menningamauð-
syn er að varðveita eftir föngum.
Hvað mönnum gengur til að halda
þessari fásinnu til streitu, er satt
að segja óskiljanlegt, nema vera
skyldi til að þóknast nokkrum
veiðiklóm í fjármálabraskinu.
Þegar samtökin Tjömin lifí hófu
söfnun undirskrifta undir mót-
mæli, benti ég á, að slíkar aðgerð-
ir gætu aldrei sýnt annað en mjög
skekkta mynd af viðhorfi Reyk-
víkinga, og spáði því, að niðurstöð-
ur yrði hraklega rangtúlkaðar af
staurhjöllungum. Og hvað gerist?
Undirskriftir urðu að vísu miklu
fleiri en vænta mátti að söfnuðust
á svo stuttum tíma, því þær urðu
yfir tíu þúsund. En þegar fram
er borin beiðni um atkvæða-
greiðslu og afhentir em undir-
skriftalistar, sem borgarstjóri sá
sér þó ekki fært að veita viðtöku,
leyfír forseti borgarstjómar sér
að viðhafa þau ummæli, að 85%
atkvæðisbærra borgarbúa hafí
„ekki séð ástæðu" til að skrifa
undir!
Þegar ég spáði útúrsnúningi og
rangtúlkun á undirskriftum, átti
ég á ýmsu von; en þó datt mér
naumast í hug, að neinn af ráða-
mönnum bæjarins myndi gera sig
sekan um svo lítilsiglda smekk-
leysu. Eh við hveiju mátti ekki
búast?
Nú leyfi ég mér að lokum að
sköra á háttvísa fylgismenn
þeirra, sem þama ráða ferðinni,
að leggja sig alla fram um að
koma fyrir þá vitinu, áður en
lengra er haldið út í algera ófæru.
Takist það, er ég þess fullviss, að
öll þessi mistök verða fyrirgefín,
og málinu mun lykta með heilum
sáttum. Þá mun fagurt ráðhús rísa
á vel völdum stað, sem öllum
bæjarbúum mun þykja vænt um.
Og vígsluræðu borgarstjóra verð-
ur tekið með fögnuði Reykvíkinga,
ekki bara sumra, heldur allra.
SIMAR 21150-21370
SOLUSTJ. LARUS Þ. VALDIIVIARSSON
LOGM. JOH. ÞORÐARSON HRL.
Til sýnis og sölu auk annarra eigna:
Skammt frá Bústaðakirkju
Raðh. í Fossvogi 191,4 fm nettó á pöllum. Sólsv. v/stofu. Svefnálma
m. 4 góðum svefnherb. og sólverönd. Glæsil. trjágarður. Góður bílsk.
Húsið er á vinsælum stað. Allt eins og nýtt.
Endurbyggð þakíbúð
rétt v/Sundhöllina 3ja herb. um 80 fm. Nýir gluggar. Góðir kvistir.
Sólsv. Viðarkl. i loftum. Ágæt geymsla í kj. Sanngjarnt verð. Lang-
tímal. geta fylgt.
Nýendurbyggð sérhæð - bílskúr
í þríbhúsi v/Snorrabr. 4ra herb. 1. haeð um 105 fm nettó i reisuk
steinh. Sórinng. Sérhitaveita. í kj. fylgja 2 góð ibherb. m/snyrt. Stór
og góður bílsk. Hæðin er laus 1. júni nk.
Ódýr íbúð - langtímalán
Samþ. 3ja herb. ib. 86,5 fm nettó í reisul. steinh. v/Leifsg. Laus 1. júiínk.
Gott einbýlishús um 200 fm
óskast til kaups í borginni eöa nágr. Skipti mögul. á 300 fm úrvals eign
í Garðabæ. Nánari uppl. á skrifst.
Miðsvæðis í Kópavogi óskast
4ra herb. góð fb. helst í lyftuh. Skipti mögul. á rúmgóðu raðh. rétt
við miðbæinn i Kóp., stór og góður bilsk. fylgir. Nánari uppl. á skrifst.
Einbýlishús eða raðhús
120-140 fm óskast til kaups vestan Elliðarár. Skipti mögul. á 3ja herb.
úrvals ib. v/Boöagranda m. bílsk.
Opið í dag laugardag kl. 11.00-16.00.
Viðskiptum hjá okkur fylgja
ráðgjöf
og traustar upplýsingar.
ALMENNA
FASTEIGNASAl AN
LAUGAVEG118 SÍMAB 21150-21370
OfTIROn
AFGREIÐSLUKASSAR
STORA
GÆLUÞÝRASÝNINGI
FJOLSKYLDUSKEMMTUN I REIÐ-
HÖLLINNI VÍÐIDAL 16. OG 17. APRIL
ARBÆJARHVERFI e »
■\ V
"i...>... i .
* c> \ .
RAUOAVATN
iREIÐHOLLIN
FEGURDARSAMKEPPNI
Taktu pátt í aö velja fallegasta köttinn á sýningunni..
HUNDASÝNING
Scháferhundar sýna llstir sínar.
KOMIO 06 SJÁH>...
HAMSTRAHÖLLINA
• undraland fiskunnenda.
• ýmsar tegundir skrautfugla.
• ótal gæludýravörur á sýningartilboðsverði og
margt, margt tleira.
Opnunartími frá ld. 10.00-22.00.