Morgunblaðið - 16.04.1988, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1988
47
GWst/ári
5000
4000
3000
2000
1000
1935 1945 1955 1965 1975 1985
MYND 2. RAFMAGNSFRAMLEIÐSLA 1935-1987
Þús.tonn
500-
400-
300 •
200-
OLÍUSPARNAÐUR
VEGNA RAFHITUNAR
INNFLUTT GASOLÍA
OG BRENNSLUOLÍA
100-
Matthea Jónsdóttir
Matthea Jóns-
dóttir sýnir
í FÍM-salnum
MATTHEA Jónsdóttir opnar í
dag, laugardag, kl. 14 tíundu
einkasýningu sína „Vorvinda“ í
FÍM-salnum, Garðastrœti 6.
Matthea stundaði nám í Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands
1954—56 og Myndlistarskólanum
1960—61. Matthea hefur tekið þatt
í Qölmörgum samsýningum heima
og yrlendis.
Á sýningunni eru 45 verk, olíu-
og vatnslitamyndir, unnar á sl. 3
árum og eru öll verkin til sölu. Sýn-
ing Mattheu er opin virka daga kl.
16—19 og 14—19 um helgar, en
henni lýkur sunnudaginn 1. maí.
30. apríl nk. verður opnuð sýning
á verkum Mattheu í Gallerí Sal-
ammbo í París, sem er skipulögð á
vegum gallerísins.
(Fréttatilkynning)
\v
DAGVIST BARNA.
HEIMAHVERFI
Holtaborg — Sólheimum 21
Vantar fóstru og starfsstúlku allan daginn nú
þegar.
Upplýsingar gefur forstöðumaðúr
í síma 31440.
MIÐBÆR
Grænaborg — Eiríksgötu 2
Fóstrur og starfsfólk vantar nú þegar eða frá
1. maí næstkomandi.
Upplýsingar gefur forstöðumaður
í símum 14470 og 681362.
VESTERBÆR
Grandaborg — Boðagranda 9
Vantar fóstru og annað starfsfólk nú þegar.
Upplýsingar gefur forstöðumaður
í síma 621855.
0J
MYND 5.
ÁHRIF RAFHITUNAR Á OLÍUNOTKUN ÍSLENDINGA 1986
fjarða en á höfuðborgarsvæðinu.
(Mynd 3.)
Nýting innlendra orkugjafa
Innlendir orkugjafar, vatnsafl og
jarðhiti, hafa átt veigamikinn þátt
í þeim stórstígu framförum, sem
orðið hafa hér á landi á síðastliðn-
um 50 árum og lagt hafa grunninn
að aukinni velmegun og hagsæld.
Er raforkunotkun íslendinga á
íbúa nú orðin sú önnur hæsta í
heimi eða um 16.800 kWst á mann
á ári, næst á eftir Noregi. (Mynd 4.)
Árið 1937 var aðeins um 10%
af orkuþörfinni fullnægt með inn-
lendum orkugjöfum, en þar af var
vatnsafl um 5%. Árið 1986 er hlut-
ur innlendra orkugjafa 71%, er
skiptist í 43% raforku og 28% jarð-
hita til húshitunar. Árið 1986 nam
rafhitun um 500 GWst, er samsvar-
ar 90 þúsund tonnum af olíu eða
um einum fjórða af olíunotkun
landsmanna það ár. (Mynd 5.)
Orkufrekur iðnaður
Fyrstu hugmyndir um beislun
vatnsorkunnar til uppbyggingar
stóriðju má relqa til hugmynda
Einars skálds Benediktssonar á
fyrstu áratugum aldarinnar, en
hann lét gera stórhuga áætlanir
um byggingu virkjana og iðjuvera.
Orkufrekur iðnaður hóf þó fyrst
innreið sína er Áburðarverksmiðja
ríkisins í Gufunesi tók til starfa
árið 1954, en rafmagnssala til
hennar varð möguleg eftir að íra-
fossstöð var tekin í notkun 1953.
Þegar Landsvirkjun var stofnuð
árið 1965 var markmiðið fyrst og
fremst virkjun Þjórsár við Búrfell
til að sjá fyrir orkuþörf Suðvestur-
lands og hins nýja álvers ÍSAL í
Straumsvík. Vegna orkusölusamn-
ingsins við ÍSAL var hægt að ráð-
ast í stórvirkjun, sem almenningur
naut jafnframt góðs af í hag-
kvæmara orkuverði.
Árið 1979 tók Jámblendiverk-
smiðjan á Grundartanga til starfa
í kjölfar Sigöldustöðvar, er tekin
var í notkun 1977.
Umhverfismál
Virkjun vatnsafls er tvímæla-
laust sú aðferð til raforkufram-
leiðslu sem veldur minnstri mengun
umhverfis. Umhverfísáhrif eru þó
alltaf einhver eins og frá öllum
mannvirkjum.
Vatnsorkan nýtist ekki á hag-
kvæman hátt nema með gerð uppi-
stöðulóna vegna þess að rennsli er
misjafnt eftir árstíðum og úrkomu
og er það yfirleitt minnst hér á
landi, þegar þörfin er mest. Land-
þörf virkjana er misjöfn og fer hún
eftir aðstæðum á virkjunarstað og
miðlunarmöguleikum
Framtíðarhorfur
ísland hefur yfir að ráða miklu
vatnsafli, sem er ótæmandi og
hrein orkulind. Erum við þar mun
betur sett en flestar okkar ná-
grannaþjóðir, er verða að byggja
raforkuframleiðslu á kolum, olíu
eða kjamorku. ísland og Kanada
eru einu löndin í Vestur-Evrópu og
Norður-Ameríku, sem enn hafa
aögang að ódýru vatnsafli.
Jarðvarma háhitasvæðanna má
einnig nota til raforkuframleiðslu,
en slíkt er sérstaklega hagkvæmt
þegar saman fer varmavinnsla til
húshitunar og raforkuframleiðsla.
Að teknu tilliti til hagkvæmnis-
og umhverfissjónarmiða gæti raf-
orkuframleiðsla numið um 30
TWst/ári úr vatnsafli, en um 20
TSst/ári úr jarðvarma eða alls 50
TWst/ári. í dag hefur aðeins verið
nýtt um 13% af vatnsaflinu en inn-
an við 8% af heildinni. Miðað við
óbreytta stóriðjunotkun og gildandi
orkuspá verða árið 2015 aðeins
nýtt um 11% af nýtanlegri orku til
raforkuframleiðslu.
Það eru því fjölbreyttir mögu-
leikar á að nýta þessa auðlind og
efla þar með almennan og orkuf-
rekan iðnað og hugsanlega flytja
út orku eftir sæstreng.
(Frá Landsvirkjun)
- SIGLINGAR
ERU NAUÐSYN
Kynningardagur
týrimannaskólans
í Reykjavík
laugardaginn 16. apríl kl. 14.00-18.00
Skólinn verður opinn almenningi.
Nemendur sýna nýjustu siglinga- og
fiskleitartæki.
Fjölmörg fyrirtæki sýna hið nýjasta á
sviði siglinga og fiskveiða.
Göte Sundberg, forstöðumaður sjóminjasafnsins á
Álandseyjum afhendir Sjómannaskólanum málverk
til varðveislu.
Þyrla Landhelgisgæslunnar verður á staðnum.
Slysavarnafélag Islands sýnir björgunartæki.
Kvenfélagið HRÖNN sér um veitingar.
Allir vel komair
StýrimannaskóUnn í Reykjavík,
skólastjóri.