Morgunblaðið - 21.05.1988, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1988
Nemendur frá sex
löndum í Jarð-
hitaskólanum
Sagan af dönsku bræðrunum var sögð á heilsíðu í danska síðdegisblaðinu BT.
Tveir danskir bræður á síðum BT:
Betrunarvistin á íslaiidi
endaði með ósköpum
TÍUNDA starfsár Jarðhitaskól-
ans er hafið. Skólaárið er sex
mánuðir og að þessu sinni eru
nemendurnir frá Eþíópíu, Hond-
úras, Kenýa, Kína, Mexíkó og
Tyrklandi.
Jarðhitaskólinn var stofnaður
árið 1979 og þar hafa verið þjálfað-
Ragnar H. Ragnar
ísafjörður:
Minnisvarði
um Ragnar
H. Ragnar
ÁKVEÐIÐ hefur verið að reisa
Ragnari H. Ragnar, skólastjóra
Tónlistarskóla Isafjarðar, minn-
isvarða á ísafirði og færa bænum
að gjöf. Það eru Pétur Kr. Haf-
stein, Jón Páll Halldórsson og
Kristján Haraldsson sem standa
fyrir þessu framtaki.
Leitað hefur verið til listamanns-
ins Jóns Sigurpálssonar um gerð
minnisvarðans. Hann vinnur nú að
listaverki, sem hann kallar KUML.
Um verður að ræða 25—30 fer-
metra torf- og grjóthleðslu, sem
verður um 1 metri að hæð. Á miðri
hleðslunni verður um 3 metra grá-
grýtisbjarg, sem verður sagað í
femt. Yfirborð bjargsins verður
hijúft og óunnið, en sagarsárið
verður hins vegar slípað og á þá
fleti meitluð einhver þau orð sem
táknræn þykja fyrir Ragnar H.
Ragnar.
Til þess að gera hugmynd þessa
að vemieika verður að leita til al-
mennings um Ijárframlög. Það er
ljóst, að fjölmargir, bæði ísfirðingar
og aðrir, munu hafa hug á að leggja
þessu máli lið í því skyni að heiðra
minningu Ragnars H. Rágnar.
Þeim, sem það vilja, gefst nú kost-
ur á að leggja það framlag, sem
þeir kjósa, inn á ávísanareikning
nr. 10197 við Útvegsbanka íslands
hf. á ísafirði. Nöfn gefenda verða
skráð í sérstaka bók, sem afhent
verður bæjarstjóm Isafjarðar til
varðveizlu, um leið og minnisvarð-
inn verður afhjúpaður. Stefnt er að
því, að það verði gert hinn 28. sept-
ember á hausti komanda, en þá
hefði Ragnar H. Ragnar orðið
níræður, hefði hann lifað.
Safnist meira fé en sem nemur
kostnaði við gerð og framkvæmd
þessa verks, mun því verða varið í
þágu Tónlistarskóla ísafjarðar, sem
verður flömtíu ára nú í haust og
Ragnar H. Ragnar helgaði drýgstan
hluta starfsorku sinnar hér á
Isafirði
Þess skal að lokum getir, að
Guðmundur E. Kjartansson, löggilt-
ur endurskoðandi, hefur góðfúslega
tekið að sér að færa reikningsskil
vegna þessara framkvæmda.
(Fréttatílkynning)
ir 69 jarðvísindamenn og verk-
fræðingar frá 14 þróunarlöndum.
Orkustofnun rekur skólann í sam-
vinnu við Háskóla Sameinuðu þjóð-
anna. Nemendur fá dvalarstyrki frá
SÞ, en íslendingar kosta kennsluna.
Segir í fréttatilkynningu frá Orku-
stofnun að starfið hafi gengið vel
frá upphafi og að starfsemi skólans
sé liður í aðstoð íslendinga við þró-
unarlönd.
Kennarar skólans em sérfræð-
ingar á Jarðhitadeild Orkustofnun-
ar, prófessorar við Háskóla íslands
og sérfræðingar hjá verkfræðistof-
um og hitaveitum. Starfsemin mið-
ar að því að veita nemendum þjálf-
un í einstökum greinum jarðhita-
fræða og vinna þeir gjaman verk-
efni, sem tengjast framkvæmdum
hitaveitna og rannsóknum á ein-
stökum jarðhitasvæðum. Náminu
lýkur með ritgerð, sem skólinn gef-
ur út og dreifir til þróunarlanda og
víðar.
Nemendur í ár em Jesus De León
V., verkfræðingur frá Mexíkó,
Ismail Dokuz, verkfræðingur frá
Tyrklandi, Eyob Easwaran, verk-
fræðingur frá Eþíópíu, Pang
Zhonghe, jarðfræðingur frá Kína,
Orlando Pena R., jarðfræðingur frá
Hondúras og Mwakio P. Tole, jarð-
fræðingur frá Kenýa.
Suðurlandsvegur:
Harður
árekstur hjá
Hveragerði
Selfossi.
HARÐUR árekstur varð um há-
degisbil í gær milli fólksbifreiðar
og vörubifreiðar á gatnamótum
Olfusvegar og Suðurlandsbraut-
ar við Hveragerði. Ökumaður
fólksbifreiðarinnar og tveir far-
þegar voru fluttir á slysavarð-
stofu Borgarspitalans. Ökumann
vörubifreiðarinnar sakaði ekki.
Vömbifreiðin var á leið austur
frá Reykjavík og var beygt inn til
Hveragerðis, í veg fyrir fólksbifreið-
ina sem rakst harkalega á hægra
framhom hennar.
— Sig. Jóns.
TILRAUN tU að leiða tvo af-
brotahneigða bræður frá Kaup-
mannhöfn frá villu síns vegar
og senda þá til íslands til að vinna •
fyrir sér, endaði með ósköpum,
að því er segir í heilsíðufrétt í
danska síðdegisblaðinu BT.
Bræðumir voru sendir aftur til
Danmerkur eftir að annar þeirra
hafði stolið tveimur bilum og
kveikt i öðmm þeirra.
Bræðumir, sem em 15 og 16 ára
gamlir, vom dæmdir ásamt tveimur
öðmm unglingum í bæjarrétti
Kaupmannahafr.ar fyrir 185 þjófn-
aði sem þeir játuðu á sig. Bræðum-
ir hlutu 6 mánaða skilorðsbundinn
dóm og vom auk þess skikkaðir til
að ráða sig í vinnu sem afbrotaeftir-
litið útvegaði þeim.
Annar þeirra fékk vinnu í frysti-
húsi í Reykjavík en hinn gerðist
vinnumaður í sveit. Eftir fímm
vikna sælu í sveitinni fór kauða að
leiðast dvölin og tók hann því bfl
bóndans traustataki og forðaði sér.
Þá lagði hann bflnum og reit bónda
bréf og lét hann vita hvar bflinn
væri að finna. Síðan stal hann öðr-
um bfl og ók áleiðis til Reykjavík-
ur. Ekki hafði hann ekið lengi er
hann yfírgaf bflinn og kveikti í hon-
umu
Dönsk yfirvöld sáu sig nauð-
beygð til að senda drengina heim
en eitthvað misfórst komutími
þeirra til Kastmp því þeir stungu
fylgdarmann sinn af og ganga nú
lausir f Kaupmannhöfn.
Að sögn fylgdarmanns drengj-
anna vom drengimir og vinnuveit-
endur þeirra ánægðir með vist
þeirra á íslandi. Ógæfan stafaði ef
til vill af löngun bræðranna til að
vera saman.
íslenska álfélagið:
Eggert
Hauksson
í sljórn
FRIÐRIK Sophusson, iðnaðar-
ráðherra, hefur skipað Eggert
Hauksson, framkvæmdastjóra, í
stjórn tslenska álfélagsins.
Iðnaðarráðherra skipar tvo menn
af níu í stjóm álfélagsins en aðal-
fundur fyrirtækisins var haldinn í
þessari viku í Zúrich. Eggert kemur
inn í stjóm fyrirtækisins í stað Jóns
Aðalsteins Jónssonar, fram-
kvæmdastjóra. Magnús öskarsson,
borgarlögmaður, situr áfram í
stjóminni fyrir hönd iðnaðarráðu-
neytisins.
Að sögn Páls Flygenrings, ráðu-
neytisstjóra, er það mjög algent að
skipt sé um menn þegar nýr ráð-
herra tekur við embætti og það
yfirleitt gert.
Lánskjaravísitalan:
Hækkun
um 1,53%
SEÐLABANKINN hefur reiknað
út lánskjaravísitölu fyrir júni-
mánuð og reyndist hún vera 2.051
stig. Hækkunin frá mánuðinum á
undan varð 1,53%, sem jafngildir
20,1% hækkun á heilu ári.
Hækkun lánskjaravísitölu sfðustu
þijá mánuði umreiknað til árshækk-
unar nemur 18,0%, sfðustu sex mán-
uði 18,3% og síðustu 12 mánuði
21,6%.
Kvikmyndin Foxtrot
seld fyrir 30 milljónir
DANSKA dreifingarfyrirtækið Nordisk Film keypti heimssýning-
arrétt á íslensku kvikmyndinni Foxtrot á 30 miHjónir króna.
Myndin er gerð af Frost film i samvinnu við norska aðila. Samn-
ingar um söluna voru undirritaðir í Cannes á fimmtudagskvöld-
ið. Nordisk Film er þegar í samningaviðræðum um dreifingu
myndarinnar, og mun hún verða sýnd í kvikmyndahúsum og sjón-
varpi, auk þess sem hún verður til dreifingar á myndböndum.
Að sögn forsvarsmanna Frost film er þetta í fyrsta skipti, sem
heimssýningarréttur á íslenskri kvikmynd er seldur.
Karl Óskarsson, einn aðstand-
enda Frost film, sagði í samtali
við Morgunblaðið, að myndin
hefði fengið góða dóma áhorfenda
í Cannes og nokkrir aðilar hefðu
sýnt áhuga á kaupum. Hann sagði
söluverðið óvenjugott og samn-
inginn um dreifínguna einnig.
Slíkir samningar væru ekki al-
gengir um skandinavískar mynd-
ir, að Bergman frátöldum. Karl
sagði lykilinn að þessari sölu vera,
að myndin var gerð með ensku
tali auk íslensku útgáfunnar.
Þessi góða sala þýði þó ekki, að
framleiðendur komi heim með
fullar hendur fjár, því að myndin
kostaði um 42 milljónir króna í
framleiðslu. Þetta þýðir þó, að
sögn Karls, að hægt verður að
vanda betur til íslensku útgáf-
unnnar en annars hefði verið
mögulegt. Foxtrot er gerð í sam-
vinnu Frost fílm og norsku fyrir-
tækjanna Viking Film og Film
Effekt. Það var Viking Film sem
sá um sölu myndarinnar í Can-
nes. „Þessi sala eykur möguleika
okkar á framhaldsverkefnum.
Næsta mynd verður væntanlega
í samvinnu við Skandinava," sagði
Karl óskarsson. Leikstjóri Foxt-
rot er Jón Tryggvason og höfund-
ur handrits Sveinbjöm I. Bald-
vinsson.