Morgunblaðið - 21.05.1988, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MAl 1988
21
Templarar:
50 ára afmæli Regiiis
REGINN, blað templara, á 50
ára afmæli um þessar mundir.
Hannes Jónsson bóksali var
Stjórnsýslu-
hús í undir-
búningi á
Akranesi
Akranesi.
HAFINN er undirbúningur að
byggingu stjórnsýsluhúss á
Akranesi og standa vonir til að
samningur eignaraðila um
hönnun hússins liggi fyrir á
næstu dögum.
Undirbúningsnefnd vegna
væntanlegrar byggingar var skip-
uð 22. desember 1987 en þá hafði
verið rætt um slíka byggingu allt
frá árinu 1982. í nefndinni eiga
sæti Finnur Sveinbjömsson hag-
fræðingur, Þorleifur Pálsson lög-
fræðingur og Gísli Gíslason bæjar-
stjóri á Akranesi.
Að sögn Gísla er nefndinni falið
að gera tillögur um hveijir komi
til með að hafa aðstöðu innan
stjómsýsluhússins og meta hús-
næðisþörf þeirra. Þá á nefndin að
semja lýsingu á samkeppni um
hönnun hússins og beita sér fyrir
því að gerður verði samningur
milli eignaraðila um hönnun þess.
í húsinu er gert ráð fyrir skrif-
stofu Akraneskaupstaðar, skrif-
stofu bæjarfógeta og skattstofu
Vesturlands. Þá er gert ráð fyrir
skrifstofu fyrir gjaldheimtu,
Tryggingastofnun ríkisins, Vinnu-
eftirlit ríkisins, Sjúkrasamlag
Akraness svo nokkuð sé nefnt.
Gísli Gíslason segir að gera
megi ráð fyrir að húsrýmisþörf
stofnana liggi fyrir í lok maí eða
byijun júni og einnig samningur
eignaraðila um hönnun hússins.
Þá gæti vonandi farið fram sam-
keppni um bygginguna síðari hluta
þessa árs og hönnun þess á næsta
ári og þá mætti gera ráð fyrir að
framkvæmdir við byggingu hefjist
eigi síðar en í byijun árs, 1990
sagði Gísli að lokum.
—JG
fyrsti ritstjóri þess og kom
fyrsta tölublaðið út þann 17.
maí 1938. Það voru siglfirskir
templarar sem stofnuðu blaðið
og sáu um útgáfu þess í 40 ár
en árið 1978 hófst samstarf
milli Regins og forráðamanna
Stórstúku íslands um útgáfuna.
I afmælisblaðinu kennir margra
grasa, frásagnir, ávörp og af-
mæliskveðjur. í ávarpi Guðmundar
Bjamasonar, heilbrigðisráðherra,
segir meðai annars:
„Engum blandast hugur um
þær hættur sem stafa af neyslu
áfengis og hversu hræðilegar af-
leiðingar hennar geta orðið fyrir
einstaklinga, fjölskyldur og þjóð-
félagið allt. Kostnaður samfélags-
ins vegna ofneyslu áfengis er
gífurlegur. Það verður því seint
fullþakkað það mikla og mikil-
væga starf áhugamanna í bindind-
ishreyfingunni við að vara við
hættunni og benda á afleiðingar
af notkun áfengis."
Allt efni Regins er unnið endur-
gjaldslaust og eru tekjur blaðsins
nær eingöngu styrkir, gjafír og
auglýsingar. Ritstjórar Regins eru
þeir Jóhann Þorvaldsson og Halld-
ór Kristjánsson.
Eigendur Herragarðsins, Þorvarður Árnason t.v. og Guðgeir Þórar-
insson í nýju versluninni.
Herrahúsið flytur
í nýtt húsnæði
HERRAHÚSIÐ flutti í nýtt hús-
næði sl fimmtudag. Herrahúsið
var stofnað 1965 og hefur í ár-
anna rás rekið þijár verslanir
samtímis í Reykjavík. Nú hefur
verið byggt nýtt hús á Laugavegi
47 og hefur Herrahúsið flutt
þangað með alla sina starfsemi.
Herrahúsið hefur alltaf kapp-
kostað að hafa á boðstólum vandað-
an karlmannafatnað og eftir að
rekstri eigin saumastofu var hætt
hefur Herrahúsið lagt metnað sinn
í innflutning á vönduðum herrafatn-
aði, segir í frétt frá verslununni.
Meðal þeirra sem Herrahúsið
selur fatnað frá eru Van Gils í
Belgíu, Falbe Hansen í Danmörku
og Marzotto á ítalfu.
Listahátíð:
Miðasala
hefst á
þriðjudag
MIÐASALA Listahátiðar hefst
þriðjudaginn 24. maí í Gimli við
Lækjargötu. Þar verða seldir
miðar á öll atriði hátíðarinnar
og Listahátiðaraukann sem er
tónleikar Leonards Cohen
föstudaginn 24. júni.
Miðasalan verður opin frá kl.
13.30 til 19.00 alla daga en tekið
verður við miðapöntunum í síma
til klukkan 22.00 öll kvöld.
Fólk er hvatt til að kynna sér
dagskrá Listahátíðar og tryggja
sér miða tímanlega þar sem tón-
leikar vinsælla tónlistarmanna
eins og Cohens, franska jassfíðlu-
leikarans Stephane Grappellis og
einleikartónleikar Vladimir Ash-
kenazys, verða aðeins einu sinni
og búast má við að færri komist
að en vilja.
(Fréttatilkynning)
RÝMINGAR-
SALAI
Ferming í Set-
bergsprestakalli
Ferming i Setbergsprestakalli
hvitasunnudag.
Ferming i Grundarfjarðar-
kirkju kl. 11. Prestur sr. Jón
Þorsteinsson. Fermd verða:
Gaukur Garðarsson
Haraldur Róbert Magnússon
Hringur Pálsson
Pálmi Marel Birgisson
Þorsteinn Bjarki Ólafsson
Þórarinn Kristjánsson
Aðalheiður Friðfínnsdóttir
Eva Jódís Pétursdóttir
Guðbjörg Jóhanna Nielsdóttir
Jófríður Friðgeirsdóttir
Kristín Björg Ámadóttir
Kristín Ýr Pálmarsdóttir
Margrét Óskarsdóttir
Sædís Helga Guðmundsdóttir.
Ferming f Setbergskirkju
hvítasunnudag kl. 14. Prestur sr.
Jón Þorsteinsson. Fermdur verður
Illugi Guðmar Pálsson.
%
Vegna eigendaskipta og
breyttrar sölustefnu verður
rýmingarsala á ýmsum
vörum hjá okkur
í nokkra daga.
Við erum aðeins
að skapa rými fyrir
nýjar vörulínur!
Notið tækifæri
sem ekki gefst aftur
og gerid hagkvæm kaup.
Á rýmingars&lunni bjóðum vlð m.a.:
Verðdæmi
.0°
1. -Heilartepparúllur
2. -Teppabútaogafganga
3. -Mottur og stök teppi
4.
5.
6.
7.
-Fyrsta flokks gólfdúka
-ítölsk ieðursófasett
-Sófaborð
-Borðlampa
8. -Amerískmálverk
Afsláttur Áður: Nú:
20% Ballet 139.500 111.600
30-50% Ýmsir 5.000 2.500
20% L. 1,70 X 2,40 36.025 28.820
25% Rikett fm. 595 446
20% Altana 121.000 96.800
30% Turin 15.250 12.200
20% Lampi 6.450 5.160
30% Stærsta gerð 21.900
Góðir greiðsluskilmálar — Eurokredit — Visa-raðgreiðslur.
TEPPABÚÐIN hf.
SUÐURLANDSBRAUT 26, S. 681950-84850.
VeriÖ velkomin!