Morgunblaðið - 21.05.1988, Page 33
aaor tAW_ r<? fníOA<nrAf>TrA,I SH?A,iröíTjníTOM
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MAI 1988
33
V estur-Þýskaland:
Bangemann vill æðsta
embættið innan EB
Bonn. Reuter.
MARTIN Bangemann, efnahags-
ráðherra Vestur-Þýskalands,
sækist eftir því að verða forseti
framkvæmdastjórnar Evrópu-
bandalagsins en það er æðsta
embættið þar á bæ. í aðalstöðv-
um bandalagsins í Brussel hefur
þessari ákvörðun hans ekki verið
tekið með fögnuði.
Bangemann, sem er 53 ára að
aldri, sagði í sjónvarpsviðtali, að
hann hygðist segja af sér ráðherra-
dómi og einnig sem formaður
Ftjálsra demókrata, eins stjómar-
flokkanna í Vestur-Þýskalandi.
Kvaðst hann stefna að því í fyrstu
að verða einn af 17 mönnum, sem
skipa framkvæmdastjóm EB, en
dró enga dul á, að hann stefndi á
formannssætið.
Frakkinn Jacques Delors er nú
formaður framkvæmdastjómarinn-
ar og hefur látið að því liggja, að
hann vilji vera það áfram. Afdrátt-
arlaus yfirlýsing Bangemanns þykir
því dálítið hranaleg og í engu sam-
ræmi við kurteisisvenjur í þessum
efnum. Bangemann mun líklega
taka sæti Karl-Heinz Naijes í fram-
kvæmdastjóminni en Naijes virðist
Ljón alin í
búrumfyr-
ir veiðimenn
The Daily Telegraph.
TAMIN yón eru tekin úr
búrum sfnum í Texas til að
veiðimenn geti skotið þau.
Þessi frétt hefur valdið reiði
meðal dýraverndarfélaga og
þingmenn hafa verið hvattir
tíl að banna þetta athæfi með
iögum.
Talið er að í það minnsta
hundrað afrísk ljón, sem alin
em í Bandaríkjunum, séu drep-
in þannig á ári hveiju. Greidd
em nokkur þúsund dala fyrir
veiðiferð úti í villtri náttúmnni
og um 500 dali, 22.500 íslen-
skar krónur, kostar að drepa
ljón í garði eiganda ljónsins.
„Þetta er eins og að velja
lifandi humar í veitingahúsi
sem sérhæfir sig í sjávarrétt-
um,“ sagði Jim Stinebaugh,
embættismaður náttúríivemd-
arstofnunar í Austin í Texas.
Hann hvetur til þess að bannað
verði með lögum að drepa út-
lend dýr, eins og ljón, án sérs-
takrar heimildar og að reglur
verði settar sem tryggi að þau
verði aðeins í dýragörðum. P.C.
Hanes, formaður dýravemdar-
félags í Texas, sagði: „Þessi
ljón hafa verið alin sem gælu-
dýr og em tekin út til að láta
veiðimenn skjóta þau. Hvað
væri sú íþrótt kölluð, tækju
menn hundana sína í göngu-
ferð, skytu þá og hengdu hau-
sanna síðan upp á vegg til sýn-
is?“
Hefðbundnir veiðimenn em
jafn reiðir. Steve Christenson,
ritstjóri veiðitímaritsins Hunt-
erá Quest og fyrmm formaður
veiðifélags í Dallas, sagði:
„Afríska ljónið ætti aðeins að
vera veitt úti í villtri náttúr-
unni, á eigin slóðum. Það er
óvirðing við ljónið að veiða það
annars staðar."
Um 40 ára hefð er fyrir þess-
um veiðum í Texas, þar sem
stórir búgarðar hafa boðið upp
á veiðiferðir líkar þeim sem
tíðkast í Afríku. Stinebaugh
segir hins vegar að síðustu tvö
árin hafi aðrir tekið upp þessa
starfsemi, og fáir viðskiptavina
þeirra vilji eyða tíma sínum í
að elta dýrin.
ekkert hrifinn af eftirmanni sínum.
„Kjömir fulltrúar á Evrópuþing-
inu eiga að koma fyrst til álita,“
sagði hann í viðtali við vestur-þýskt
dagblað og bætti því við, að þjóðem-
ið eitt segði ekkert um „hæfíleika
manna og getu“.
Heimafyrir getur ákvörðun
Bangemanns einnig valdið óánægju
og ýfíngum. Fijálsir demókratar
segjast vilja halda í efnahagsráðu-
neytið en Kristilega sósíalsamband-
ið, flokkur Franz Josefs Strauss,
hefur líka augastað á því.
Reuter
Martin Bangemann, efnahagsráðherra og formaður Fijálsra demó-
krata. Hann vill nú verða fremstur meðal jafningja innan Evrópu-
bandalagsins.
Thailand:
22 biðu bana
í lestarslysi
Bangkok. Thailandi.
TUTTUGU og tveir menn biðu
bana og 60 slösuðust í árekstri
vörubíls og jámbrautarlestar i
Thailandi f gær, að sögn tals-
manns ríkisjámbrauta landsins.
Slysið varð með þeim hætti að
bílstjóri vörubifreiðarinnar gat ekki
stöðvað bifreiðina er hann kom að
jámbrautarteinunum. Bifreiðin ók í
gegnum hlið, þar sem þjóðvegurinn
og jámbrautin skerast.
Skall bifreiðin á miðvagn far-
þegalestarinnar með þeim afleiðing-
um að flestir vagnanna fóru útaf
teinununum og höfnuðu í síki. Bif-
reiðastjórinn beið bana og flestir
lestarfarþeganna, sem biðu bana,
vom skólaböm.
1 sýnir og sannar
?Vi
umfram allt ódýrt.
Byggðaverk hf. óskar íbúum Sunnuhlíðar og Sunnuhlíðarsamtökunum
til hamingju með glæsilegt mannvirki.
Með stolti afhendir Byggðaverk hf. Sunnuhlíðarsamtökunum
þjónustuíbúðirnar að Kópavogsbraut 1.
Húsið var byggt á mettíma með lágmarks tilkostnaði; 25% undir gangverði.
Byggðaverk hf. þakkar Sunnuhlíðarsamtökunum, starfsmönnum sínum og
undirverktökum, gott og ánægjuríkt samstarf og óskar þeim velfarnaðar í framtíðinni.
Við byggjum á traustum grunni.
BYGGÐAVERK HF.
Reykavikurvegi 60 Hafnarfirði. Simi 546 44